Morgunblaðið - 07.08.1991, Side 21
21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 1991
Sjálfsblekking
eftir Vestarr
Lúðvíksson
Morgunblaðið fagnar ákvörðun
sjávarútvegsráðherra varðandi afla-
heimildir fyrir næsta ár.
Sá sem setur þessi orð á blað er
sama sinnis, þetta er skref í áttina.
Að hinu leytinu vekur það ugg,
að sjávarútvegsráðherra skuli ekki
ganga skjótar í því að leiðrétta þau
ólög sem fyrri ríkisstjórn setti í kvót-
amálinu. Þar virðast kratar nær því
marki að vilja leiðrétta alvarlega
„kompásskekkju", nefnilega núver-
andi lög um fiskveiðistefnu, sem í
grundvallaratriðum eru brot á stjórn-
arskrá lýðveldisins.
Auðvitað verðum við að byggja á
þekkingu og reynslu Hafrannsókna-
stofnunar. Að mínu mati þarf að stór-
efla þá stofnun og gefa henni meiri
völd í stjórnun veiðanna.
A meðan verið er að byggja upp
fiskistofnana við ísland, verður ein-
hverskonar úthlutunarstarf að eiga
sér stað. En sala á kvóta manna á
meðal er og verður glapræði.
Ef einhver sem úthlutað hefur
fengið kvóta eða krókaleyfi ekki
nýtur sér þetta sjálfur á sannanlegan
hátt þá á úthlutunin hreinlega að
falla niður.
Sjálfur er ég svokallaður smábáta-
eigandi sem kerfíð leikur svo grátt
þessa dagana.
Sendi inn í trha skjöl til sjávarút-
vegsráðuneytisins með umsókn um
krókaleyfi. Frestur var til 1. maí sl.
Hafði samband við skoðunarmann
Siglingamálastofnunar í byrjun mars
og óskaði eftir úttekt á bátnum mín-
um til þess að hafa hann í lagi á
réttum tíma. Fékk eftir ítrekuð símt-
öl skoðun um miðjan maí (þá var
tíminn útrunninn gagnvart veiðileyfi
frá ráðuneytinu). Skv. skoðun-
armönnum var flest allt að, eða það
mikið að ég þarf að fá smið á stað-
inn, eða senda bátinn í burtu. Þetta
var athugað bæði hérlendis og í
Færeyjum, jú ekkert mál að laga
bátinn. Fer á fund ráðuneytisstjóra
Árna Kolbeinssonar: Vestarr, enginn
bannar þér að laga bátinn. Já en
hvað með veiðileyfí? Það er allt ann-
að mál! Þú getur keypt þér annan
bát með leyfí, sett hann síðan í úreld-
Vestarr Lúðvíksson
„Á meðan verið er að
byggja upp fiskistofn-
ana við ísland, verður
einhverskonar úthlut-
unarstarf að eiga sér
stað. En sala á kvóta
manna á meðal er og
verður glapræði.“
ingu og flutt leyfið síðan á milli á
þinn bát! Ég þakkaði náttúrulega
ráðuneytisstjóranum fyrir gott við-
mót og spjall!
Hafrannsóknastofnun á stórt og
gott starf fyrir höndum, sem ber að.
þakka og efla, en Þorsteinn Pálsson
á annað starf fyrir höndum, sem
felst m.a. í því að gefa mönnum
tækifæri til að laga sína hluti, láta
Siglingamálastofnun, sem starfar
allt árið, sinna beiðni um skoðun á
réttum tíma og veita mönnum síðan
veiðileyfí, t.d. ákveðna prósentu af
veiddum afla, ekki ímynduðum afla.
Alþingi þarf að leiðrétta sína
kompásskekkju í kvótamálinu gagn-
vart íslensku þjóðinni — þar er undir-
ritaður sammála krötunum.
llöfundur er bankamaður og
trillukarl.
Wordnámskeið • Macintosh
Word er fjölhæfasta ritvinnsluforritið fyrir Macintoshi
© 12 klst námskeið fyrir byrjendur og lengra komna
12.-15. ágúst kl. 16-19!
&O Tölvu-og verkfræöiþjónustan
&O Grensásvegi 16 - fimm ár í forystu '<£b
50%
Vel merkt einkastæði
Nú býður Bifreiðaskoðun íslands upp á
merkingar fyrir einkabílastæði úr sama efni og bíl-
númerin. Einstaklingar og fyrirtæki geta pantað
áletrun, bílnúmer eða stutt nafn á spjöldin.
Verð númeraplatnanna er kr. 1500 og
afgreiðslufrestur er 3 dagar. Hægt er að panta þær
hjá öllum skoðunarstöðvum Bifreiðaskoðunar,
í eftirtöldum símanúmerum:
Reykjavík - 673700
Keflavík - 15303
Ákranes - 12480
Borgarnes - 71335
ísafjörður - 3374
Blönduós - 24343 Eskifjörður - 61240
Sauðárkrókur - 36720 Hvolsvöllur - 78106
Akureyri - 23570 Selfoss - 21315
Húsavík - 41370
Fellabær - 11661
BIFREIÐASKOÐUN
ÍSLANDS HF.