Morgunblaðið - 07.08.1991, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. AGUST-1991
Sjóslys við S-Afríku:
Saka skipstjórann um
brot á siglingalögum
Jóhannesarborg. Reuter.
FARÞEGAR sera björguðust þegar gríska farþegaskipið Oceanos
sökk undan ströndum Suður-Afríku um helgina hafa ásakað skipstjó-
rann og áhöfnina um að hafa skilið sig eftir á valdi örlaganna um
borð í sökkvandi skipi. Þegar skipstjórinn yfirgaf skipið voru enn
170 farþegar um borð, þ.á m. gamalmenni og börn. Ferðaskrifstofan
sem leigði skipið sagði í gær að skipstjórinn hafi breytt rétt þegar
hann yfirgaf það.
Fjölmargar björgunarsveitir og
félagasamtök lögðu hönd á plóginn
við björgunina. Öllum farþegum
og skipveijum, alls um 600 að tölu,
var bjargað. Ekki er vitað hvað
olli slysinu, en sprengjuhótun hafði
borist skömmu áður en skipið lét
úr höfn. Skipstjórinn, Yiannis Avr-
anias, sagðist þó ekki telja að um
hermdarverk væri að ræða, heldur
taldi hann að stimpill í vélarrúmi
hefði gefið sig og gert gat á skipið.
Farþegar á skipinu eru ekki
ánægðir með framgöngu Avranias
og áhafnar hans. Þeir hafa ásakað
hann um brot á siglingalögum þar
sem hann yfirgaf skipið þótt konur
og böm væru enn um borð. Að
sögn farþeganna voru ellefu af
þeim sextán mönnum, sem fóru
með fyrstu þyrlunni í land, yfir-
menn af skipinu.
Avranias neitaði að hafa brugð-
ist skipstjómarskyldum sínum.
Hann sagði að þó að „nokkuð
margir“ farþegar hefðu enn verið
um borð þegar hann yfirgaf skipið,
hefði hann farið til að stjórna
björgunaraðgerðum úr landi. Lorr-
ine Betts, sem er leiðsögumaður
og var einna síðust til að yfirgefa
skipið, varði athafnir skipstjórans
og sagðist myndu sigla með honum
aftur án þess að hugsa sig um.
Bandaríkin;
Eystrasaltsríkin fá ráðgjöf
til viðbótar bestukjörum
Washington. Reuter.
BANDARIKJASTJORN ætlar að
bjóða Eystrasaltsríkjunum ráð-
gjöf og aðstoð við að þróa og
koma á viðskiptatengslum til við-
bótar við að Sovétríkin og
Eystrasaltsríkin þrjú njóti
bestukjara í viðskiptum við
Bandaríkin.
Talsmaður Bandaríkjastjórnar,
Marlin Fitzwater, sagði að Banda-
ríkjamenn myndu bjóða Eystra-
saltsríkjunum „aðstoð við viðskipta-
og vöruþróun og markaðssetningu
til að bæta viðskiptatengsl okkar
við þau“.
Bandaríkjastjórn hefur aldrei við-
urkennt innlimun Eistlands, Lett-
lands og Litháens í Sovétríkin.
George Bush Bandaríkjaforseti
hefur farið fram á það við Banda-
ríkjaþing að það veiti Sovétrikjun-
um og Eystrasaltsríkjunum bestu-
kjör í viðskiptum við Bandaríkin en
það þýðir m.a. að lágir tollar yrðu
lagðir á framleiðsluvörur þeirra sem
fluttar yrðu inn til Bandaríkjanna.
--------*-*-*-------
■ KA UPMANNAHÖFN - Tii
stendur að opna meðferðarheimili
fyrir áfengissjúklinga á Græn-
iandi. Hingað til hafa áfengissjúkl-
ingar fengið meðferð á Islandi eða
í Danmörku en hún hefur aðeins
staðið dönskumælandi Grænlend-
ingum til boða. Meðferðarheimilið
á Grænlandi verður einnig opið
þeim sem aðeins tala grænlensku.
135 Grænlendingar hafa fengið
hjálp vegna áfengisneysiu á Islandi.
FENNER REIMAR & REIMSKÍFUR
Fleygreimar og kílreimar. Lengdir upp í 9150 mm.
Reimskífur fyrir klemmfóðringu.
PowI«e«
Suðurlandsbraut 10. Sími 686499.
Upplýsingar um kjama- og
sýklavopnatilraunir Iraka
Bagdad. Reuter.
IRAKAR sögðu eftirlitsmönnum Sameinuðu þjóðanna í gær að þeir
væru færir um að framleiða plúton. Þeir sögðust einnig hafa gert
tilraunir með miltisbrand og eiturefnið toxín, sem notað má til að
eitra matvæli, með það fyrir augum að nota til sýklahernaðar.
Eftirlitsnefndin, sem skipuð er
29 mönnum, kom til íraks á föstu-
dag og sagði David Kelly, formaður
hennar, að þeim hefði verið tjáð um
sýklahernarðartilraunirnar íjórum
tímum eftir komuna. Hann sagði
að þessar tilraunir væru ekki stórar
í sniðum.
í tilkynningu frá Alþjóðakjarn-
orkumálastofnuninni í gær sagði
að það hefði komið óþægilega við
menn þar þegar ljóst var að Irakar
hefðu gert leynilegar tilraunir til
framleiðslu plútons, þótt magnið
sem um ræðir sé smávægilegt.
Rússland:
Hreinsanir í
kommúnista-
flokknum
Moskvu. Reuter.
MIÐSTJÓRN kommúnistaflokks
Rússlands rak í gær Alexander
Rútskoj, varaforseta landsins og
náinn samverkamann Borís Jelts-
íns forseta, ásamt öðrum umbóta-
sinna úr flokknum. Rútskoj er
meðal forystumanna í nýstofnuð-
um Lýðræðisflokki rússneskra
kommúnista sem stefnir að því að
laða til sín fjórðung iiðsmanna
gamla flokksins og vill koma á
markaðsbúskap.
Sjálfstæða fréttastofan Interfax
telur að brottreksturinn boði algeran
klofning í kommúnistaflokknum en
samkvæmt lögum hans mega félagar
ekki stofna sjálfstæða skoðanahópa
innan hans. Fyrr í mánuðinum náðu
helstu forystumenn sovéska móður-
flokksins braðabirgðasamkomulagi
um grundvaliarbreytingar á stefnu-
skránni.
Harðlínumaðurinn ívan Poloz-
hkov, sem barist hefur af hörku gegn
umbótum í átt til markaðsbúskapar,
sagði af sér embætti flokksleiðtoga
á fundi rússnesku kommúnistanna.
Er talið að flokksforystan vilji með
þessu bæta ímynd sína en Polozhkov
var afar óvinsæll meðal almennings.
Sparneytinn bíll á góðum greiðslukjörum.
Eins og fjöldi kannana og keppni í sparakstri hér og erlendis hafa sýnt
er Suzuki Swift í fararbroddi í heiminum hvað varðar bensínsparnað og
lágmarks mengun. Þessi árangur er ekki síst því að þakka að Suzuki
Swift er búinn aflmikilli vél með rafstýrðri bensíninnsprautun og full-
komnasta mengunarvarnabúnaði (catalysator) sem völ er á.
Nú fiest Suzuki Swifi á sérlega hagstœðu verði og greiðslukjörum.
Dæmi um verð og greiðslukjör: Suzuki Swift 1 .Oi GA 3dr.
Verð kr.:..........746.000.-
Útborgun kr.:.....190.000.-
Afborgariir kr.:....18.680.-
í 36 mánuði
MINNI MENGUN
$ SUZUKI
ilW
SUZUKI BÍLAR HF
SKEIFUNNI 17 SlMI 68 51 00