Morgunblaðið - 07.08.1991, Side 32

Morgunblaðið - 07.08.1991, Side 32
32 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 1991 ATVI IM 91 Kennarar athugið! Við Laugaskóla í Dalasýslu eru lausar til umsóknar kennarastöður. Meðal kennslugreina: íþróttir og almenn kennsla yngri barna. Ef áhugi er á starfi við heimavistarskóla þá hafið samband við skólastjóra í síma 93-41269 eða 93-41262 og aflið frekari upplýsinga. Skólastjóri. Stærri fyrirtæki eða stofnanir Bókasafnsfræðingur með góða íslensku- kunnáttu og kennsluréttindi á framhalds- skólastigi óskar eftir starfi við umsjón og skipulagningu safna-, upplýsinga- og fræðslumála. Skipulagshæfni og góð starfs- reynsla bæði að safnamálum og kennslu í boði fyrir góðan vinnustað og sveigjanlegan vinnutíma. Áhugasöm fyrirtæki eða stofnanir vinsamleg- ast sendið upplýsingar til auglýsingadeildar Mbl. merktar: „B - 11009“ fyrir 15. ágúst. „Au pair“ óskast til London í byrjun september til að gæta 2ja ára telpu. Má ekki reykja. Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 15. ágúst merktar: „A - 12204“. ÆT Iþróttakennarar íþróttakennara vantar að Grunnskólanum, Hellu, næsta skólaár. Upplýsingar veita skólastjóri í síma 98-75943 eða 98-75138 og formaður skólanefndar í síme* 98-78452. Sölufólk Bókaforlag óskar að ráða dugmikið sölufólk til ýmissa áhugaverðra verkefna. Há sölulaun. Upplýsingar gefur Kristján í síma 689133. Starfskraftur óskast til heimilis í Garðabæ hluta úr degi (ekki alla daga vikunnar). Upplýsingar í símum 12500 og 657108 á kvöldin og um helgar (Guðrún). Hjúkrunarfræðingur Sjúkrahúsið á Patreksfirði vantar hjúkrunar- fræðing til starfa 1. september eða síðar eftir samkomulagi. Boðið er uppá bjarta og góða vinnuaðstöðu í nýuppgerðu húsnæði. Góð starfskjör í boði. Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í símum 94-1110 og 94-1386. W' IÐNSKÓLINN í REYKJAVÍK Sjúkraþjálfari Laus er til umsóknar staða sjúkraþjálfara við skólann. Umsóknarfrestur er til 20. ágúst. Upplýsingar í veita Ágúst B. Karlsson, að- stoðarskólameistari, í síma 52907 og skrif- stofa skólans eftir 14. ágúst. Sölu- og afgreiðslustarf Óskum eftir að ráða starfsmann nú þegar, hálfan daginn í sérverslun. Tilvalið fyrir kven- mann á aldrinum 25-50 ára. Reynsla eða menntun í verslunarstörfum æskileg. Góð laun. Upplýsingar í síma 680690. Skrifstofustarf Lánasjóður íslenskra námsmanna óskar eftir starfsmanni sem fyrst til að sinna afgreiðslu og almennum skrifstofustörfum. Um er að ræða lifandi starf sem krefst hæfni í mann- iegum samskiptum og góðrar almennrar menntunar. Nánari upplýsingar gefur framkvæmdastjóri sjóðsins í síma 25011. Bakarasveinn - bakaranemi - aðstoðarmaður Viljum ráða í ofangreind störf. Upplýsingar í síma 35280. Miðbæjarbakarí - Bridde, versiunarhúsinu Miðbæ, Háaleitisbraut 58-60. Þroskaþjálfar Þroskaþjálfar eða fólk með sambærilega menntun óskast til starfa við þjálfunarstofn- unina Lækjarás. Um er að ræða tvær stöður sem veitast frá 1. september nk. Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 39944 milli 10.00 og 16.00 virka daga. MIÐNESHREPPUR Sandgerði Kennarar Kennara vantar við Grunnskólann í Sand- gerði. Sérkennsla, kennsla yngri barna. Húsnæðisfyrirgreiðsla. Upplýsingar veita Guðjón Þ. Kristjánsson, skólastjóri, í síma 92-37436 og Þórunn B. Tryggvadóttir, yfirkennari, í síma 92-37730. Skólanefnd. BORGARSPÍTALINN Læknaritarar Læknaritarar óskast til starfa nú þegar eða í haust. Stúdentspróf eða hliðstæð menntun æskileg, hafi umsækjendur ekki löggildingu sem læknaritarar. Upplýsingar veitir skrifstofustjóri í síma 696204. Starfsfólk óskast í umönnun. Sveigjanlegur vinnutími. Upplýsingar í síma 26222 frá kl. 10.00-12.00. Elli- og hjúkrunarheimilið Grund. RIKISSPITALAR Fulltrús Fulltrúi óskast til starfa við launadeild Ríkisspítala. Um er að ræða fullt starf við launavinnslu. Æskilegt er að umsækjendur hafi stúdentspróf eða sambærilega menntun. Umsóknir sendist starfsmannahaldi Ríkisspítala, Þverholti 18, 105 Reykjavík á eyðublöðum sem þar fást. Umsóknarfrestur er til 15. ágúst 1991. Kópavogshæli Þroskaþjálfar, fóstrur eða annað uppeldismenntað fólk Óskum að ráða deildarstjóra með uppeldis- menntun til að stjórna daglegum rekstri á tveimur heimiliseiningum á Kópavogshæli. Annars vegar er um að ræða einingu þar sem búa 7 atferlistruflaðireinstaklingar. Hins vegar er sambýliseining með 8 fullorðnum einstaklingum. Unnið er í nánu samstarfi við fagteymi hælisins. Fyrirhugað er stjórnunarnámskeið í október fyrir deildarstjóra. Ráðning óskast sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi. Fagfólk Óskum að ráða til starfa áhugasamt fólk með menntun á uppeldissviði. Starfið felur í sér skipulagningu og framkvæmd þjálfunar á heimiliseiningum í nánu samstarfi við deild- arstjóra og fagteymi. Fyrirhugað er að halda sérhæfð námskeið fyrir starfsfólk heimili- seininga. Einnig vantar aðstoðarfólk til framtíðarstarfa svo og vantar okkur fólk í ræstingu nú þeg- ar. Um er að ræða hálfar og heilar stöður í afleysingar og til frambúðar. Á Kópavogshæli er í boði aðstaða til líkams- ræktar fyrir starfsfólk. Upplýsingar um ofantalin störf gefur Sigríður Harðardóttir, hjúkrunarforstjóri í síma 602700 virka daga frá kl. 9.00-16.00. Aðstoðarfólk við sjúkraþjálfun og sundlaug Aðstoðarmaður óskast til starfa við sundlaug Kópavogshælis. Ekki er verra að viðkom- andi hafi einhverja reynslu af þjálfun í vatni en ekki nauðsynleg. Unnið er í samvinnu við íþróttakennara og sjúkraþjálfara. Þá er laus staða aðstoðarmanns við endurhæfingar- deild Kópavogshælis. Ekki er gerð krafa um sérmenntun en við leitum eftir hressum og samviskusömum einstaklingi. Upplýsingar um ofantalin störf gefur Guðný Jónsson, yfirsjúkraþjálfari í síma 602725 milli kl. 9.00-16.00 virka daga. FLUGMÁLASTJ ÓRN Laus staða Staða framkvæmdastjóra fjármálaþjónustu Flugmálastjórnar er laus til umsóknar. Gerð er krafa um að umsækjendur hafi við- skiptafræði- eða sambærilega menntun og hafi mjög gott vald á enskri tungu. Æskileg er 8-10 ára reynsla af störfum er snerta bókhald, fjármálastjórn og áætlanagerð hjá stóru fyrirtæki (100-200 manns). Laun eru samkvæmt launakerfi opinberra starfs- manna. Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf, sendist samgöngu- ráðuneytinu fyrir 23. ágúst 1991. Flugmálastjórn. 1(111f*t*« itiitmn i

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.