Morgunblaðið - 07.08.1991, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 1991
35
Heilsugæslustöð Suðumesja
eftir Skúla Skúlason
Megintilgangur þessarar greinar
er að gefa innsýn í viðamikla starf-
semi Heilsugæslustöðvar Suður-
nesja og það uppbyggingarstarf
sem þar hefur verið unnið á siðastl-
iðnum 10 árum.
Heilsugæslustöð Suðurnesja hef-
ur verið starfrækt síðan 1975 þó
rekja megi aðdraganda að stofnun
stöðvarinnar til haustsins 1973 þeg-
ar læknar og hjúkrunarkonur í
Keflavíkurlæknishéraði rituðu bréf
til sveitarstjórnanna á svæðinu um
nauðsyn þess að heilsugæsla sé
starfrækt í samræmi við þágildandi
lög.
Húsnæðismál Heilsugæslunnar
voru fyrst um sinn leyst til bráða-
birgða en á síðastliðnum 10 árum
hefur gríðarlegt átak verið unnið
við að koma húsnæðismálum til
betri vegar. Tekist hefur að leigja,
byggja yfir eða kaupa húsnæði fyr-
ir Heilsugæsluna í 5 sveitarfélögum
á Suðurnesjum á þessu árabili.
Keflavík
Þetta 10 ára framkvæmdatíma-
bil hófst í Keflavík. Heilsugæslan
hafði tekið til starfa á Sólvallagötu
8 árið 1975. Fyrsti yfirlæknir stöðv-
arinnar var Kjartan Ólafsson sem
jafnframt var héraðslæknir. Núver-
andi yfirlæknir er JÓn Aðalsteinn
Johannsson. Árið 1977 er Jóhanna
Brynjólfsdóttir ráðin hjúkrunarfor-
stjóri og gegnir hún því starfi enn.
Það húsnæði var 140 fermetrar.
Mikil þrengsli voru þar strax frá
upphafi eins og gefur að skilja fyr-
ir umfangsmikla starfsemi sem rek-
in var strax í upphafí. Það er síðan
1980 sem ráðist er í byggingu nýju
heilsugæslunnar og hún tekin í
notkun 1984. Það húsnæði er sam-
tals um 730 fermetrar en hluti þess
er samnýttur með Sjúkrahúsinu.
Þar er aðstaða fyrir 5 heilsugæslu-
lækna, kvensjúkdómadeild, mæðra-
skoðun, sérfræðiaðstaða og þaðan
er skipulögð heimahjúkrun og for-
varnarstarf og þaðan er skipulögð
heimahjúki-un og forvarnarstarf.
[@ HQMAKAUP; Ö
| f tkatsugaesŒ&tytiaafgnaðltoj
... ;
Heilsugæslan í Vogum er til húsa að Iðndal 2,
Tafla 1.
Fjöldi íbúa um hvern lækni og hjúkrunarfræðing
Heilsugæsla Tala ibúa Fjöldi lækna Fjöldi hjúkrf. íbúará lækni íbúar á hjúkrf.
Keflavík H2 13.200 5 8 2.604 1.447
Sandgerði H — — 0,5 _
Garður H — — 0,5
Vogar H — — 0 — —
Grindavík H2 2.168 1 1 2.168 2.168
Tafla 2.
Dæmi um starfsemi heilsugæslu Suðurnesja
Tegund
Móttaka hjá heilsugæslulæknum
Móttaka sérfræðinga á stofu
Slysamóttaka heilsug.lækna
Krabbameinsskoðun, fj. kvenna
Mæðraeftirlit, fj. skoðana
Ónæmisaðgerðir fullorðinna
Ónæmisaðgerðir barna
Börn vigtuð og skoðuð í Kefl.
Fjöldi tilvika árið 1990
alls: 27.460 talsins
alls: 3.501
alls: 435
alls: 1.565
alls: 3.037
alls: 865
alls: 3.521
alls: 3.065
Sandgerði
Það var árið 1986 sem Heilsu-
gæslan í Sandgerði fluttist á neðri
hæð Tjarnargötu 11, efri hæðin er
jafnframt í eigu Heilsugæslunnar.
Stöðin sjálf er þarf í 94 fermetrum
þar sem eru tvær móttökustofur,
ritaraaðstaða, biðstofa, snyrting og
aðstaða fyrir tannlækni. Fyrir 1986
hafði Heilsugæslan verið í 24 fer-
metrum á Tjarnargötu 4 en þar
voru aðeins tvö herbergi til afnota
og mjög þröngt til að geta þjón-
ustað vaxandi byggð.
Garður
Árið 1988 flytur Heilsugæslan í
nýtt leiguhúsnæði í Heiðartúni 2c.
Husnæðið þar er mjög bjart og vel
staðsett. Stærð þess er 119 fermetr-
ar og aðstaða fyrir ritara. Þar eru
tvær móttökustofur, biðstofa og
ónotað rými sem leigja mætti tann-
lækni ef þeir sýndu því áhuga. Á
efri hæð stöðvarinnar er kaffístofa
og lítil fundarstofa. Áður hafði stöð-
in verið til húsa á Garðvangi og
hafði þar til umráða 60 fermetra.
Vogar
mundur Ásmundsson en hjúkrunar-
forstjóri Ólafía Sveinsdóttir. Lengst
af var stöðin til húsa í Borgartúni 6
í 65 fermetra kjallarahúsnæði. í
febrúar síðastliðnum fluttist heilsu-
gæslan í nýtt og glæsilegt húsnæði
á Víkurbraut 62. Ohætt er að segja
að þar hafi verið hugsað til framtíð-
ar. Aðstaða þar er öll til fyrirmynd-
ar, og kemur til með að fullnægja
þörf Grindvíkinga fyrir heilsugæslu
um ókomin ár. Þar er m.a. aðstaða
fyrir sjúkraþjálfara og tannlækni
sem er ómetanleg þjónusta í sjávar-
plássi.
Starfsemin viðamikil
Eins og sjá má á ofangreindu
yfírliti um húsnæðismálin er um-
fang Heilsugæslu Suðurnesja tals-
vert viðamikið. Heilsugæslulækn-
arnir og hjúkrunarfræðingarnir
þjónusta nágrannabyggðirnar eins
og kostur er, en hafa aðsetur í
Keflavík. Ekki eru til neinar
ákveðnar reglur um fjölda íbúa sem
hver læknir eða hjúkrunarfræðing-
ur á að sinna, en rætt um að ekki
sé óeðlilegt að um 1.200-1.500
íbúar séu um hvem lækni og 800-
1.000 íbúar um hvem hjúkrunar-
fræðing. Þó verður að gæta þess
að aðstæður víða um tand eru mis-
jafnar til þjónustu á milli þéttbýlis
og stijálbýlis. En ef skoðuð er tafla
1, og tekið tillit til ofangreindra
upplýsinga er augljóst að þörf er á
fleiri stöðugildum lækna og hjúkr-
unarfræðinga á Suðurnesjum.
í töflu 2 má líka sjá greinilega
hversu umfangsmikii heilsugæslu-
þjónusta er veitt á svæði Heilsu-
gæslustöðvar Suðurnesja.
Hvað er framundan
Mjög brýnt er að hefja undirbún-
ing að stækkun húsnæðis heilsu-
gæslunnar í Keflavík. Þar er orðið
mjög þröngt um alla starfsemi.
JÁfnframt er æskilegt að fjölga
læknum og hjúkrunarfræðingum.
Eins og sjá má á toflu 1 er álagið
mikið á þessum starfsstéttum. Sök-
um þess hefur reynst erfítt að sinna
ýmsu forvarnarstarfí og lögboðinni
„Mjög brýnt er að hefja
undirbúning að stækk-
un húsnæðis heilsu-
gæslunnar í Keflavík.
Þar er orðið mjög
þröngt um alla starf-
semi. Jafnframt er
æskilegt að fjölga lækn-
um og hjúkrunarfræð-
ingum.“
heilsuvernd eins og hún er skil-
greind í 19. grein laga um starfsemi
Heilsugæslustöðva. Heilsugæslu-
stöðin í Keflavík er jafnframt mið-
stöð fyrir heiisugæslurnar á svæð-
inu (nema Grindavík) og koma það-
an læknar og hjúkrunarfræðingar
til að þjóna íbúum nágrannabyggð-
anna. Þessa þjónustu þyrfti að
auka.
Heilbrigðisyfírvöld hafa sýat
Suðurnesjum mikinn skilning við
uppbyggingu heilsugæslunnar og
vænti ég ekki annars en áframhald-
andi góðs samstarfs um uppbygg-
ingu og eflingu heilsugæslu þessa
örtvaxandi svæðis.
Höfundur er förmadur stjórnar
Sjúkrahúss Keflavíkur og
Heilsugæslu Suðurnesja.
Heilsugæslan í Garði flutti í nýtt húsnæði 1988.
Allt til ársins 1990 var Heilsu-
gæslan til húsa í Vogagerði 8 í
herbergi sem nam 8 fermetrum.
Sú aðstaða var vægast sagt bágbor-
in. í febrúar síðastliðnum fluttist
heilsugæslan í nýtt húsnæði í Iðnd-
al 2. Þar hefur stöðin til umráða
116 fermetra húsnæði auk 30 fer-
metra sameignar. Aðstaðan þar er
mjög góð, biðstofa, 2 móttökustof-
ur, aðstaða fyrir ritara og óinnrétt-
að herbergi t.d. fyrir tannlækni.
Grindavík
Heilsugæslan í Grindavík varð
Hl-stöð 1983 og síðan H2-stöð
1990. Læknir stöðvarinnar er Krist-
3é/es UUSTÖ
su'o^nf
cöni
Heilsugæslan í Sandgerði hefur verið í eigin húsnæði að Tjarnar-
götu 11 síðan 1986.
FÉLAGSLÍF
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.00.
s
Kristniboðssamkoma á Háaleit-
isbraut 58 í kvöld kl. 20.30.
Ræðumenn Susie Bachman og
Péll Friðriksson. Allir velkomnir.
ifm SAMBAND (SŒNZKRA
KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Samvera fyrir fólk á öllum aldri
í Suðurhólum 35. Bænastund kl.
20.10. Samveran hefst kl. 20.30.
Samfélagsmáltíð. Séra Jakob
Hjálmarsson. Athugið að sam-
veran er í Suðurhólum en ekki í
Árnavík.
Ungt fólk á öllum aldri er velkomið.
Helgin 9.-11. ágúst
Fjölskylduhelgi í Básum
Fjölskylduferðin í Bása er árleg-
ur viðburður hjá Útivist, sem
margir hlakka til, ekki síst yngri
kynslóðin, enda dagskráin öll
sniðin við hæfi barnanna. Boðið
verður upp á spennandi ratleiki,
kvöldvöku og varðeld svo eitt-
hvað sé nefnt. Einnig göngur
fyrir þá eldri. Sérstakt tilboðs-
verð.
m
UTIVIST
•RÓFINHI l • REYKJAVÍK • SÍMlAÍMSVUI HiOi
Kringum Þorbjörn
Kvöldganga 6. ágúst kl. 20.
Gengið í kringum Þorbjarnarfjall
ofan Grindavíkur. Skemmtileg
leið sem fáir hafa farið. Brottför
frá BSI - bensínsölu. Stansað á
Kópavogshálsi, við Ásgarð í
Garðabæ og við Sjóminjasafn
fslands í Hafnarfirði.
Botnssúlur- Þingvellir
Gengið úr Botnsdal upp með
Glym að Hvalvatni og tjaldað
þar. Þá verður haldið upp að
Bratta og gengið á Súlurnar. Á
sunnudeginum verður gengið frá
Botnssúlum eftir Leggjarbrjóts-
leið og niður á Þingvöll. Farar-
stjóri: Óli Þór Hilmarsson.
Sjáumst!
Útivist.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLOUGÖTU3S11798 19533
Helgarferðir
9.-11.ágúst
la. Síðsumarsferð í Þórsmörk
(Einhyrningsflatir - Markarfljóts-
gljúfur). Fjölbreytt ferð við allra
hæfi. Hin stórkostlegu Markar-
fljótsgljúfur skoðuð á laugardeg-
inum. Gönguferðir um Mörkina.
Tilvalin fjölskylduferð.
lb. Landgræðsluferð íÞórsmörk.
Við óskum eftir nokkrum sjálf-
boðaliðum í landgræðsluferð um
helgina. Einnig vantar sjálf-
boðaliða til gæslu í Hvítárnes-
skála nú í ágúst.
2. Álftavatn - Strútslaug. Gist
í skála F.i Mjög spennandi ferð
um svæðið kringum Fjallabaks-
leið syðri. Ekið á Mælifellssand
og gengið að Strútslaug og
kringum Hólmsárlón.
3. Landmannalaugar - Eldgjá.
Gist I sæluhúsi F.í. Gönguferðir
um nágrenni Lauga. Ekið i
Eldgjá. Upplýsingar og farm. á
skrifstofunni Oldugötu 3, símar
19533 og 11798.
Ferðafélag íslands.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3 & 11798 19533
Miðvikudagsferðir
7. ágúst
Kl. 08 Þórsmörk - Langidalur.
Dagsferð og til sumardvalar.
Verð 2.300,- kr. (hálft gjald fyrir
7-15 ára). Missið ekki af sumrinu
í Þórsmörk. Bæði dagsferöir og
sumardvöl i Þórsmörk njóta mik-
illa vinsælda. Tilvalið að dvelja
t.d. frá miðvikudegi til föstudags
eða sunnudags. Munið helgar-
ferðirnar í Mörkina.
Kl. 20 Kvöldganga út í bláinn.
Við förum góða og skemmtilega
gönguleið ekki mjög langt frá
höfuðborginni. Gönguferð við
allra hæfi. Verð 600,- kr. fritt f.
börn m. fullorðum. Brottför frá
Umferðarmiðstööinni, austan-
megin. Sveppaferð er frestað.
Ferðafélag íslands.
Skíðamenn
30 ára og eldri
Dagana 10. og 11. ágúst verður
haldið í Kerlingafjöllum opið
Reykjavíkurmót í stórsvigi.
Mótið er opið öllum skíðamönn-
um 30 ára og eldri.
Skráning keppenda er á móts-
stað. Keppendur sjá sér sjálfir
fyrir gistingu og fæði.
Stefnt er að því að fá sem flesta
skíöamenn til leiks og góðrar
samveru.
Nefndin.