Morgunblaðið - 17.08.1991, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 1991
5
Sjúkrabíll
íárekstri
Maður var fluttur á slysadeild
meiddur á hendi eftir harðan
árekstur á Reykjanesbraut um
klukkan 8 í gærmorgun. Bíl var
ekið í veg fyrir sjúkrabíl sem var
á leið norður Reykjanesbraut og
ökumaður sjúkrabílsins reyndi að
forðast árekstur með því að
beygja undan en ók þá aftan á
fólksbíl á þeirri akrein. Ökumaður
þess bíls slasaðist og var fluttur
á sjúkrahús en meiðsli hans
reyndust ekki hættuleg, að sögn
lögreglu. Bíll mannsins skemmd-
ist mikið en sjúkrabíllinn minna.
Morgunblaðið/Ingvar
Skaut af hagla-
byssu inni hjá sér
HLUTI víkingasveitar lögregl-
unnar í Reykjavík var kvaddur
að húsi við Melabraut á Seltjarn-
arnesi laust fyrir klukkan tíu í
fyrrakvöld en þar hafði ölvaður
maður á fimmtugsaldri hleypt
af haglabyssu í íbúð sinni.
Maðurinn ógnaði engum með
byssunni og var einn í því herbergi
þar sem hann hleypti af fjórum
skotum í vegg en kona hans var
stödd í íbúðinni.
Lögreglan beið átekta í á aðra
klukkustund enda var maðurinn þá
einn í íbúðinni og talið að hann
gengi senn til náða. Þegar farið var
inn í húsið var maðurinn sofandi.
Hann var handtekinn og færður í
fangageymslur.
Rannsóknarlögregla ríkisins yfir-
heyrði manninn í gærmorgun og
að því loknu var hann látinn laus
en haglabyssunni og skotfærum
mannsins var haldið eftir.
Norrænir tannlæknar:
Fundaðum
alnæmis-
vamir
HÓPUR norrænna tannlækna
fundar eftir helgina um alnæmi
og ráðstafanir til að verjast smiti
við tannaðgerðir.
Hollensk alnæmisrannsókn leiðir
í ljós að í 6% alnæmistilvika verður
fyrstu einkenna vart í munni og
80% sjúklinganna höfðu sár í munnf
af völdum HlV-smits. Til að veijast
smiti eiga einföld atriði eins og
notkun gúmmíhanska við blóðugar
aðgerðir og sótthreinsun tækja að
duga tannlæknum og sjúklingum,
að sögn Magnúsar Gíslasonar yfir-
tannlæknis.
Yfirtannlæknar, fulltrúar há-
skóla og fagfélaga tannlækna á
Norðurlöndum hittast annað hvert
ár. Fundurinn í Reykjavík verður á
mánudag og þriðjudag og hann sitja
um 22 tannlæknar. Upplýsingum
sem fram koma á fundinum verður
síðan miðlað til tannlækna, að sögn
Magnúsar Gíslasonar.
Hann segir að útbreiðsla alnæm-
is og helstu varúðarráðstafanir á
tannlæknastofunum verði til um-
ræðu á fundinum. „Við skiptumst
á upplýsingum um hvað tannlæknar
geri til að varast smit við aðgerðir
og reynum að átta okkur á því
hvort varúðarráðstafanir hafi borið
tilætlaðan árangur. Veiran sem
veldur alnæmi er frekar viðkvæm,
hún þolir til dæmis ekki meira en
60 gráðu hita, svo að tiltölulega
einfalt er að veijast henni.“
Eitt efnisatriða á fundi tann-
læknanna snertir þá stefnu sem
tannlæknar fylgja hvað varðar upp-
lýsingar og smitvarnir, með sér-
stöku tilliti til svokallaðs Flórída-
máls. Þar smitaði tannlæknir sjúkl-
ing og í framhaldi af því sam-
þykkti Bandaríkjaþing lög sem
skylda tannlækna til að greina
sjúklingum sínum frá ef þeir eru
smitaðir af alnæmi. Magnús Gísla-
son segir slíkar reglur ekki gilda
hérlendis, engin upplýsingaskylda
hvíli á sjúklingum.
Bankarán-
ið eystra
óupplýst
INNBROTIÐ í afgreiðslu
Landsbanka íslands á Borg-
arfirði eystra um verslunar-
mannahelgina þar sem stolið
var um einni milljón króna
er enn óupplýst, að sögn Lár-
usar Bjarnasonar, sýslu-
manns og bæjarfógeta á
Seyðisfirði.
Að sögn Lárusar er málið enn
til rannsóknar. Aðspurður sagði
hann að enginn væri í haldi
vegna málsins og að ekki væri
unnt að segja einhver ákveðinn
lægi undir grun.
ÆMn__o fr\
HEIMSKLÚBBUR
Skipulag og farargtjóm:
Ingólfur Guðbrandsson
INGÓLFS KYNNIR mM ÞAÐ BEZTA í 4 HEIMSÁLFUM
FEGURD OG FURDUR AFRÍKU
l
24.aóv.
1991
Landið er ríkara en flest önnur af öllu, sem ferðalangur
getur' óskað sér. Hvergi finnurðu aðra eins fjölbreytni
og litadýrð í ríki náttúrunnar, nærri 300 tegundir villtra
dýra, þ. á m. fíla, gíraffa, ljón, hlébarða, zebra, nashyrn-
inga, vísunda, ótal yndisfagrar antilópu- og gazelluteg-
undir, 500 tegundir fugla og 24.000 tegundir blóm-
strandi trjáa og jurta í blóma vorsins á suðurhveli. Fólk
er orðlaust af undrun og fögnuði og finnst engin skemmt-
un jafnast á við að njóta þessara töfra í ríki náttúrunnar.
Ferðin er full af spennandi ævintýrum og sterkari upp-
lifun náttúrunnar en þig hefur órað fyrir, þú verður
þátttakandi í þessu stórkostlega sjónarspili, rétt eins og
í kvikmynd. Alls þessa nýturðu við beztu skilyrði, vega-
kerfið er gott eins og farartækin, hótelin glæsileg og
matur og vín með því bezta, sem þekkist í heiminum á
verði, sem er lægra en víðast annars staðar, loftið tært,
hitastig hæfilegt, um 25°C, heilnæmasta veðurfar i heimi
er talið vera i Höfðaborg.
FERÐA TILHÖGUN:
Flogið er til London og áfram samdæg-
urs til JÓHANNESARBORGAR og gist
á hinu glæsilega JOHANNESBURG SUN
& TOWERS með fullkomna þjónustu og
fjölda veitingasala. Heimsókn í GOLD
REEF CITY, gamla gullgrafarabæinn
og daginn eftir dagsferð til höfuðborg-
arinnar PRETORIA með fagrar bygg-
ingar, minnismerki og blómstrandi trjá-
göng. Jóhannesarborg er nýtízkuleg
með fjölda fagurra bygginga og glæsi-
verzlana, borgin sem reis á gulli, en þar
fundust auðugustu gullnámur heims fyr-
ir 100 árum.
Ekið norður um frjósamar lendur
TRANSVAAL í KRUGER-ÞJÓÐGARÐ-
INN, stærsta friðaða svæði villidýra í
heimi, í safari-ferðina miklu og gist 2
nætur í Safari Lodge við jaðar villidýra-
svæðisins og Iágskógarins „bushweld",
fullt fæði, sundlaug og frábær aðbúnað-
ur. Ekið suður í DREKAFJÖLL og gist
2 nætur á lúxushótelinu DRAKENS-
BERG SUN í hrífandi umhverfi „Hring-
leikahússins" svonefnda, farið þaðan í
safariferðir. Þaðan liggur leiðin til DUR-
BAN, stærsta baðstaðar Afriku, gist á
fimmstjörauhótelinu MAHARANI á
strönd Indlandshafsins, 3 nætur. Flogið
til PORT ELIZABETH, en þaðan hefst
þriggja daga ferðalag eftir „blómaleið-
ÍOUTH AFRICA
REYNSLA FARÞEGA:
„Afríkuferðin var samfellt ævintýri. Hver
einstakur dagur var ferðarinnar virði. Ég
sagði við Sigríði kvöldið sem við komum
frá Chobe að ég mundi hafa keypt ferðina
fyrir þennan eina dag. Mér finnst ólíklegt
að ég eigi eftir að fara jafn skemmtilega
ferð og þessa, þó ég voni, að ég komist í
ferð síðar, sem nálgist þessa. Glaðværðin,
sem ríkti í allri ferðinni og hve allir urðu
góðir vinir, tel ég líka einn bezta mæli-
kvarðann á hrifningu og
ánægju þátttakenda.
Beztu þakkir.
Bjöm Traustason,
byggingameistari. “
Heimsreisufarar í Höfða-
borg. Borðfjallið í baksýn.
inni“, GARDEN ROUTE, til HÖFÐA-
BORGAR með viðkomu á mörgum heill-
andi stöðum eins og OUTSHORN og
WILDERNESS. Gist á nýjasta lúxushót-
eli CAPE TOWN í einni af fegurstu
borgum veraldar í 4 nætur og farið í
ferðir á „Borðfjallið" fræga, GÓÐRAR-
VONARHÖFÐA og í VÍNLÖNDIN, þar
sem sum beztu vin heimsins eru fram-
leidd. Hægt að framlengja í Höfðaborg.
Flogið þaðan um London heim.
ÓDÝR FERÐ!
Þú kynnist varla öðru eins á
ævinni. Gríptu tækifærið og njóttu
töfra þessa lands við bestu skil-
yrði núna, áður en verðið þýtur
upp. Aðeins 6 sæti laus.
Ingólfur verður til viðtals
kl. 13-14 í dag og á mánudag
og veitir upplýsingar.
ÍTALÍA
LISTAVEISLAN MIKLA
23. ág.-5. sept.
4 sæti laus vegna forfalla
ef pantað er strax.
IIIIMIBSIImi
AUSTURSTRÆTII7, SÍMI: (91)622011 & 622200