Morgunblaðið - 17.08.1991, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
LAUGARDAGUR 17. AGUST 1991
ÍÞRÖmR
FOLX
■ TOTTENHAM keypti á
fímmtudaginn skoska landsliðsmið-
heijann Gordon Durie frá Chelsea
fyrir rúmar 230 milljónir ÍSK, eða
2,2 milljónir punda.
Bob Hennessy Durie fór til Cheisea
skrifarfrá árið 1986 frá Hibs
Englandi fyrir 3gp þúsnud
pund. Á síðasta
keppnistímabili lék hann 33 leiki
og skoraði 13 mörk fyrir Chelsea.
Æ CELTIC keypti miðvörðinn
Gary Gillespie frá Liverpool á 925
þús. pund, eða 94,3 millj. ÍSK.
■ BLACKBURN Rovers keypti
David Speedie frá Liverpool fyrir
53 milljónir ÍSK. Liðinu tókst ekki
að fá Ronnie Rosental. Hann vill
frekar fara til meginlandsins.
H GLASGOW Rangers keypti
skoska landsliðsmiðvallarleikmann-
inn Stewart McCall frá Everton
fyrir 126 milljónir ÍSK, eða 1,2
milljónir punda.
■ MARSEILLE keypti enska
landsliðsmanninn Trevor Steven
frá Glasgow Rangers á fimm
millj. sterlingspund (510 millj. ÍSK)
uá fimmtudagskvöld - aðeins mínútu
áður en lokað var á félagsskipti
leikmanna, sem geta leikið í Evr-
ópukeppni. Steven er 27 ára.
■ MARK Falco sem áður lék með
Tottenham og nú síðast með QPR
var í gær seldur til Millwall fyrir
175 þúsund pund, eða um 18 millj-
ónir ÍSK.
■ RA Y Ciemence markvörðurinn
góðkunni hefur skrifaði undir leik-
mannasamning við Tottenham, en
jþar hefur hann verið að þjálfa und-
anfarin ár. Það á að nota hann sem
varamarkvörð fyrir Erik
Thorstved í Evrópukeppninni.
■ LUTONgreiddi tæpar 30 miilj-
ónir fyrir Phillip Gray sem leikið
hefur í varaliði Tottenham ásamt
Guðna Bergssyni. Hann á að koma
í stað hins danska Elstrup.
■ IAN Rush mun ekki leika með
Liverpool gegn Oldham í dag.
Hann er meiddur á hásin og verður
frá keppni í nokkrar ”’kur. Aftur á
móti er Steve McMahon, sem
meiddist illa á fæti í lok síðasta
keppnistímabil, orðinn góður og
reiknað er með að hann leiki gegn
.Oldham.
■ LEE Sharpe, hjá Manchester
United, leikur ekki með liðinu gegn
Notts County vegna meiðsla og
einnig er Gary Pallister á sjúkra-
lista - meiddur á baki. Óvíst er
hvort að Bryan Robson geti leikið
með.
■ DON Howe hætti óvænt sem
þjálfari Wimbledon í vikunni, að-
eins þremur dögum áður en keppn-
in í 1. deild hefst.
KNATTSPYRNA
Meistarar Arsenal
med óbreytt lið
Liverpool með 6,5 milljóna tríó gegn nýliðum Oldhams
ENGLAIMDSMEISTARAR Arse-
nal hefja titilvörn sína á
Highbury í dag, þar sem þeir
fá leikmenn QPR í heimsókn.
Þrátt fyrir að félagið sé eitt það
stöndugasta á Englandi hefur
George Graham, framkvæmda-
stjóri Arsenal, ekki séð ástæðu
til að kaupa nýja leikmenn fyrir
keppnistímabilið. Þess má geta
að enskir knattspyrnumenn
hafa gengið kaupum og sölum
fyrir yfir 50 millj. sterlingspund
frá síðasta keppnistímabili.
Ron Atkinson, framkvæmda-
stjóri Aston Villa, hefur verið
duglegastur að kaupa leikmenn.
Hann hefur keypt átta nýja leik-
menn til félagsins og þá hefur Leeds
keypt sex nýja leikmenn.
Leikir dagsins
Arsenal - Queens Park Rangers,
Chelsea - Wimbledon, Coventry -
Manchester City, Liverpool - Old-
ham, Manchester United - Notts
County, Norwich - Sheffield United,
Nottingham Forest - Everton, Sheffi-
eld Wednesday - Aston Villa, Sout-
hampton - Tottenham, West Ham -
Luton.
Smávægileg meiðsli eru í herbúð-
um Arsenal. Steve Bould er meidd-
ur á ökkla og Svíinn Andreas Limp-
ar er meiddur á hné.
Liverpool, sem hefur keypt leik-
menn fyrir mestu peningaupphæð-
ina, teflir fram 6,5 milljónpunda
tríóinu Mark Wright, Dean Saund-
ers og Mark Walters gegn nýliðum
Oldham, sem léku síðast í 1. deild
1923. Saunders og Walters ásamt
John Barnes eiga örugglega eftir
að gera varnarmönnum Oldham
lífíð leitt á Anfíeld Road í Liver-
pool. Joe Royle, framkvæmdastjóri
Oldham, hefur styrkt lið sitt frá sl.
keppnistímabili. Hann keypti Mike
Milligan og Graeme Sharp frá Ever-
ton og Brian Kilcline frá Coventry.
Manchester United leikur heima
gegn Notts County. Paul Parker
og danski landsliðsmarkvörðurinn
Peter Schmeichel leika sinn fyrsta
deildarleik með United.
Ron Atkinson teflir fram mikið
breyttu liði Aston Villa gegn
Sheffíeld Wed. á Villa Park, en
þess má geta að Atkinson hljóp frá
Sheff. Wed. í sumar, eftir að hafa
sagt að hann færi aldrei frá félag-
inu. Trevor Francis, framkvæmda-
SUNO / HEIMSMEISTARAMOTIÐ
Sjö sundmenn
áHMíAþenu
SJÖ landsliðsmenn í sundi taka
þátt í heimsmeistaramótinu,
sem hefst í Aþenu í Grikklandi
eftir helgina. Þetti er mesti
fjöldi sundmanna frá íslandi
sem hafa tekið þátt í HM.
Þrír sundmennirnir eiga mögu-
leika á að komast í B-úrslit;
Ragnheiður Runólfsdóttir, ÍA,
Helga Sigurðardóttir, Vestra og
Magnús Olafsson, SFS.
Annars eru íslensku keppendurn-
ir þessir - keppnisgreinar:
Ragnheiður kepptir í 100 og 200
m bringusundi.
Helga keppii' í 50, 100 og 200 m
skriðsundi.
Magnús keppir í 100 og 200 m
skriðsundi.
Ævar Örn Jónsson, SFS, keppir
í 100 og 200 m baksundi.
Arnar Freyr Ólafsson, SFS,
keppir í 200 og 400 m fjórsundi.
Karl Þór Ragnarsson, SH, keppir
í 100 og 200 m bringusundi.
Ingibjörg Arnardóttir, Vestra,
keppir í 400 og 800 m skriðsundi.
Sundfólkið er í mjög góðri æfingu
og eiga að geta gert vel í Aþenu.
Það hefur verið að undirbúa sig
fyrir heimsmeistaramótið frá því í
mars.
stjóri Sheff. Wed., sá leik á borði
og keypti markvörðinn Chris Woods
frá Glasgow Rangers í vikunni.
Tottenham leikur gegn Sout-
hampton á The Dell. Skoski lands-
liðsmiðheijinn Gordon Durie, sem
var keyptur frá Chelsea á 2,2 millj.
punda, leikur við hlið Gary Lineker,
enska landsliðsmiðherjanum.
Tony Adams, fyrirliði Arsenal.
Arnar
Grétarsson
UBK (3)
Ingólfur
Ingólfsson
Stjömunni (4)
Hörður
Theódórsson
Víkingi (1)
Gunnar Már
Másson
Val (1)
UÐ 14. UMFERÐAR
Guðmundur Hreiðarsson og Helgi
Björgvinsson, Víkingi.
Helgi Bjarnason, Janni Zilinik, Atli
Helgason og Hörður Theódórsson,
Víkingi. Þorvaldur Jónsson, Gústaf
Ómarsson og Arnar Grétarsson,
Breiðablik. Arnaldur Loftsson,
Einar Páll Tómasson, Sævar Jóns-
son, Ágúst Gylfason, Baldur Braga-
son og Gunnar Már Másson, Val.
Halldór Kristinsson, Erlingur
Kristjánsson, Sverrir Sverrisson og
Steingrímur Birgisson, KA. Þor-
TENNISMOT T.S.I.
OG
B.M. VALLAHF.
Dagana 27. ágúst til 1. september
verður haldið tennismót T.S.Í. ogB.M.
Vallá hf. Keppt verður á Víkings-
og Þróttarvöllum í öllum flokkum.
Skráningferfram á Víkingsvöllum og
lýkurföstudaginn 23. ágúst kl. 18.00.
B.M.VALLÁ!
KNATTSPYRNA / SVIÞJOÐ
Stöðugleiki kom
með Gunnari
Hácken komið á gott skrið og Gunnar Gíslason
er byrjaður að leika á ný
Gunnar Gíslason, landsliðsmað-
ur í knattspyrnu, er byijaður
að leika á ný með Hácken, sem er
komið á gott skrið í sænsku 1. deild-
inni. Gunnar lék
með þegar félagið
vann útisigur á aðal-
keppinautunum Ör-
gryte, 1:2, á mið-
vikudaginn. Sænsku blöðin sögðu
frá því að með honum sé kominn
nauðsynlegur stöðugleiki í varnar-
leik liðsins.
Sigur Hácken var aldrei í hættu.
Grétar
Eyþórsson
skrifarfrá
Svtþjóð
Knattspyrnusérfræðingar eru nú
nánast á einu máli um að það verði
Gunnar og félagar sem leika um
eitt laust sæti í „Allsvenskan". Það
er ekki margt sem mælir á móti
þessu, liðið hefur þegar náð þriggja
stiga forystu eftir þrjá leiki og er
með níu stig. Þar að auki hefur
Hacken unnið útisigra gegn þeim
tveimur liðum sem talin eru helstu
keppinautarnir, Örgryte og Odde-
vold, þannig að útlitið er nokkuð
bjart þó enn séu eftir ellefu umferð-
ir af keppninni.
steinn Gunnarsson, Bergur Ágústs-
son, Ingi Sigurðsson, Nökkvi
Sveinsson, Hlynur Stefánsson, Leif-
ur Geir Hafstseinsson, Tómas Ingi
Tómasson, ÍBV. Ólafur Gottskálks-
son, Þormóður Egilsson, Atli Eð-
valdsson, KR.
Um helgina
Golf
Norðurlandamót unglinga fer
fram á golfvellinum á Hvaleyri í
Hafnarfirði um helgina.
Opna SR stigamótið fer fram á
Garðarvelli á Akranesi í dag.
Frjálsíþróttir
Lokamót stigakeppni FRÍ og
Sjóvá-Almennra verður haldið á
Varmárvelli í Mosfellsbæ í dag.
Mótið hefst kl. 16.30.
Maraþonhlaup
Reykjavíkurmaraþonhlaupið
verður háð á morgun. Hlaupið hefst
kl. 12 í Lækjargötu.
Knattspyrna
Fjórir leikir verða leiknir í dag
kl. 14 í 1. deild kvenna: ÍA - Breiða-
blik, Þór A. - Valur, Týr - KA,
Þróttur N. - KR.
FH - Fram mætast í 1. deild
karla á sunnudaginn kl. 19 og á
mánudag á sama tíma leika: IBV
- Valur, Viðir - KA, KR - Breiðablik.
Úrslitakeppni í 3. flokki kvenna
fer fram um helgina á KR-völlum
við Frostaskjól.
Keila
Laugardagsmót KFR og Öskjuhl-
íðar fer fram í kvöld kl. 20 í keilu-
salnum Öskjuhlíð.