Morgunblaðið - 17.08.1991, Blaðsíða 44
LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 1991
VERÐ í LAUSASÖLU 100 KR.
Góð kartöfhiuppskera:
Verðstríð
-er hafið
Selfossi.
GERA MA ráð fyrir að aðal upp-
tökuskriðan hjá kartöflubændum
fari af stað mun fyrr í ár en
áður, vegna góðrar sprettu.
Líkur eru á góðri uppskeru í ár
og þá um leið offramleiðslu og
einhverju verðstríði.
Verðstríðs hefur þegar orðið vart
en verslun í Reykjavík auglýsti nýj-
ar kartöflur á 85 krónur kílóið en
Tryggvi L. Skjaldarson kartöflu-
bóndi í Þykkvabæ sem selur kartöfl-
ur úr gám við Umferðarmiðstöðina
í Reykjavík auglýsti þær þá á 65
■*%rónur kílóið. Hann setti nýjar kart-
öflur á markað upp úr verslunar-
mannahelginni og selur þær
óþvegnar.
Kartöflusprettan hefur verið
óvenju hröð í sumar. Dæmi er til
þess á Kirkjubæjarklaustri að nýjar
kartöflur voru teknar upp 39 dögum
eftir að útsæðið var sett niður.
Sig. Jóns.
Rækjuveidar:
Viðræður við
Grænlendinga
ákveðnar
ísafirOi. Frá Kristjáni Jónssyni blaóa-
manni Morgunblaðsins.
ÞORSTEINN Pálsson, sjávarút-
vegsráðherra, sat í vikunni fund
norrænna starfsbræðra sinna sem
fór fram í Grænlandi. A eftir
ræddi hann óformlega við Kaj
Egede, sjávarútvegsráðherra
Grænlendinga, um rækjuveiðar
úr sameiginlegum stofnum.
„Ég óskaði eftir því að þeir kæmu
til viðræðna um skiptingu á rækju-
stofnum,“ sagði Þorsteinn. „Það
hefur lengi verið á döfinni að reyna
að koma slíkum viðræðum á en
ekki tekist. Fiskifræðingar frá báð-
um aðilum hafa verið að vinna að
úttekt á rækjustofninum. Þess er
að vænta að þeirri úttekt verði lok-
ið núna alveg á næstunni og niður-
staðan varð sú að það var ákveðið
að stefna að embættismannavið-
ræðum um þetta mál sem myndu
þá væntanlega fara fram í október.
i^orsætisráðherra segir koma til
greina að birta bréf Steingríms
hefur þvertekið fyrir það að hafa
haft afskipti af úthlutun sjóðanna,“
segir Davfð.
Steingrímur Hermannsson segir
það vera skoðun sína að sjóðirnir
hljóti að starfa í takt við atvinnu-
stefnu ríkisstjórnar á hveijum tíma
og kveðst telja þá miklu gagnrýni
sem fram hefur komið á stjórn sjóð-
anna undanfarið ákaflega vafasama.
' Guðmundur Malmquist, forstjóri
Byggðastofnunar, vildi ekki tjá sig
um málið í gær. „Mín viðbrögð verða
beint við forsætisráðherra," segir
Guðmundur og kveðst munu óska
eftir fundi með honum strax eftir
helgi.
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra segir Steingrím Hermannsson fyrr-
verandi forsætisráðherra fara með ósannindi þegar Steingrímur segist
ekki hafa haft afskipti af lánveitingum úr opinberum sjóðum. Davíð
segir að vel komi til greina að birta opinberlega bréf úr forsætisráð-
herratíð Steingríms sem staðfesti þetta. Steingrímur Hermannsson
kveðst aldrei hafa gefið opinberum sjóðum fyrirmæli um lánveitingar,
_og segir aukaatriði hvort bréf forsætisráðherra til Byggðastofnunar
■%erði birt eða ekki. Hitt sé aðalatriðið hvort breytt verði um stefnu í
rekstri sjóðanna.
„Mér finnst það afskaplega óvið-
felldið þegar opinber starfsmaður,
eins og forstjóri Byggðastofnunar er,
fer að dylgja um það opinberlega,
að ég hafi beitt hann og stofnun
hans þrýstingi," segir Davíð Oddsson
Smorsætisráðherra um þau orð Guð-
mundar Malmquist að hann hafi
fengið ábendingar og tilmæli frá for-
sætisráðherra varðandi lánveitingar
Byggðastofnunar. „Ég sá mig því
tilneyddan til að birta opinberlega
þau bréf sem ég hef sent Byggða-
stofnun sem forsætisráðherra," segir
Davíð.
Steingrímur Hermannsson fyrr-
verandi forsætisráðherra segir ekk-
ert óeðlilegt við það að forsætisráð-
herra sendi Byggðastofnun erindi.
Steingrímur andmælir því að hann
hafi haldið því fram að hann hafi
ekki haft afskipti af stofnuninni og
Framkvæmdasjóði. „En ég hef aldrei
gefið stjórnum sjóðanna fyrirmæli
um lánveitingar," segir Steingi-ímur.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
segir að í vörslu ráðuneytis síns sé
töluvert af skjölum og bréfum, sem
taki af öll tvímæli um það að fyrrver-
andi forsætisráðherra hafi beitt
þrýstingi á opinbera sjóði við lánveit-
ingar. „Það er því augljóst að
Steingrímur hefur farið með ósann-
indi undanfarna daga, þegar hann
Pálmi Vilhjálmsson stendur upp fyrir ökkla innan um húsgögn í íbúðinni sem hann var nýbúinn
að innrétta. Megnið af innbúinu eyðilagðist í vatnsflaumnum.
Vatn flæðir inn í kjallara í Reykjavík:
Hundruð óskuðu aðstoðar
vettvang. Þar hafði flætt inn í fjöl-
marga kjallara í húsunum við neðri
hluta götunnar. Slökkviliðið var
mætt á staðinn með einn dælubíl
og nokkrar litlar vatnsdælur til að
reyna að bjarga því sem bjargað
varð úr vatnselgnum.
„Þetta gerðist síðast hjá mér í
maí 1989,“ segir Pálmi Vilhjálms-
son. „Þá hafði sprungið rör ein-
hvers staðar uppi á Laugavegi og
flæddi inn í kjallarana hér. Þetta
er mjög slæmt mál, því það er
nýbúið að endurnýja alla þessa
kjallara."
Pálmi og kona hans, Guðrún
Jónsdóttir gátu lítið aðhafst annað
en að bíða þar til röðin var komin
að þeim. „Allt rafmagn sló út og
það er til lítils að reyna að ausa
upp svona miklu magni.“
Sigríður Stefánsdóttir stóð með
vasaljós í hendinni og beið meðan
slökkviliðsmenn voru að athafna
sig með dælu í kjallaranum hjá
henni. „Það er þijátíu sentímetra
djúpt vatn í kjallaranum hjá mér —
þetta er virkilega ógeðslegt, virðist
vera einhvers konar skólp eða
drullubrúnt vatn. Það er allt ónýtt
þama niðri, gólfklæðning og ann-
að.“
MIKIÐ tjón varð í húsum á höf-
uðborgarsvæðinu er vatn flæddi
í kjöllurum víðs vegar um borg-
ina í gærkvöldi. Nokkur hundr-
uð manns hringdu til Slökkviliðs-
ins í Reykjavík til að leita aðstoð-
ar. Slökkviliðsmenn og borgar-
starfsmenn reyndu eftir megni
að hjálpa fólki en ekki sá högg
á vatni.
Slökkviliðinu tóku að berast til-
kynningar um vatnsflóð um tíuleyt-
ið í gærkvöldi. Frárennslislagnir
höfðu ekki við rigningunni. Flestar
tilkynningarnar bárust úr gamla
bænum, Norðurmýri og vesturbæn-
um um flóð upp úr niðurföllum auk
þess sem flóð voru á götum í Kópa-
vogi, Faxafeni og víðar.
Aðkoman var ljót í Hátúninu í
Reykjavík um ellefuleytið í gær-
kvöldi þegar blaðamaður kom á
Morgunblaðið/Þorkell
Vatni dælt upp úr kjallaranum í Hátúni 5.
RUV al-
mennings-
hlutafélag?
ísafirði. Frá Kristjáni Jónssyni blaða-
manni Morgunblaðsins.
RÁÐHERRAR SjálfstæðisHokks-
ins sátu fyrir svörum á opnum
fundi sem Samband ungra Sjálf-
stæðismanna efndi til á Isafirði
í gærkvöldi. Þar kom meðal ann-
ars fram að Ólafur G. Einarsson,
menntamálaráðherra, hyggst
láta endurskoða framhaldsskóla-
lögin og jafnframt sagði hann
aðspurður að hann væri hlynntur
þeirri hugmynd að Ríkisútvarpið
yrði gert að almenningshlutafé-
lagi.
„Ég hef tekið ákvörðun um það
að skipa nefnd til þess að endur-
skoða útvarpslögin. Fyrirrennari
minn, Svavar Gestsson, kom á lagg-
imar stórri nefnd sem skilaði áliti.
Ég.verð að viðurkenna að ég hef
ekki kynnt mér það mjög náið, ekki
haft tíma til þess en mér er sagt
af þeim sem þekkja það best að það
álit sé best komið í ruslakörfunni.
Ég er mjög skotinn í þeirri hug-
mynd að Ríkisútvarpið verði gert
að hlutafélagi. Og það hiýtur að
verða einn af þrem kostum sem
verða rækilega kannaðir hjá þeirri
nefnd sem ég hyggst koma á lagg-
irnar nú alveg á næstunni," sagði
Ólafur G. Einarsson.
Sjá frétt af þingp SUS á bls. 4.
Eskifjörður:
Endastakkst
24 metra
FÓLKSBIFREIÐ fór út af þjóð-
veginum og endastakkst niður
24 metra brekku á Hólmahálsi
við Eskifjörð um hálftíuleytið í
gærkvöldi.
Lögreglumenn á Eskifirði urðu
sjónarvottar að slysinu sem átti sér
stað um 4 km frá bænum. Ungur
Eskfirðingur sem ók bílnum var
færður til læknis á Eskifirði en
ekki talinn mikið meiddur. Bifreiðin
er ónýt. Ekki er vitað um orsakir
óhappsins.
Akureyri:
Áform um yfir-
töku Álafoss
BÆJARRÁÐ Akureyrar sam-
þykkti í fyrradag áætlanir Iðnþró-
unarfélags Eyjafjarðar þar sem
gert er ráð fyrir stofnun tveggja
hlutafélaga til að taka yfir rekstur
Álafoss á Akureyri. Fyrirtækin
tækju yfir rekstur fata- og vef-
deildar annars vegar, og markaðs-
og hönnunardeildar hins vegar.
Bærinn hefur ákveðið að gerast
eignaraðili, og senn mun hefjast
leit að fleiri samstarfsaðilum.
Ásgeir Magnússon, framkvæmda-
stjóri Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar,
segir að miðað við gefnar forsendur
virðist grundvöllur vera fyrir áfram-
haldandi ullariðnaði nyrðra. Tillögur
Iðnþróunarfélagsins miðast þó við
mun minni umsvif en áður.
Óvíst er um hversu mikið fjármagn
þurfi að leggja í hin nýju fyrirtæki,
það verði að ráðast þegar fram í
sækir, segir Ásgeir, en Landsbanki
íslands hefur reksturinn með hönd-
um til áramóta.
Sjá frétt bls. 26.