Morgunblaðið - 17.08.1991, Blaðsíða 30
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 1991
, 30
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Vinir hrútsins kunna að
íþyngja honum með vandamál-
um sínum núna. Hann ætti að
veita smáatriðunum í starfi
sínu sérstaka athygli um þess-
ar mundir.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Nautið freistast til að kaupa
eitthvað dýrt núna. Það ætti
ekki að blanda saman leik og
starfí. í kvöld væri tilvalið fyr-
ir það að bjóða til sín gestum.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní) 4»
Tvíburanum hættir til að láta
sér sjást yfir smáatriðin í dag.
Einhver í hópi tengdafólks
hans biður hann um greiða.
Hann verður að gæta sín á að
missa ekki út úr sér óviðeig-
andi athugasemd.
Krabbi
- '(21-júní - 22. júlí) Hír8
Starfsleiði dregur úr afköstum
krabbans í dag, en hann nær
sér á strik með sjálfsaganum
einum saman. Hann hefur
heppnina með sér á sviði fjár-
mála.
Ljón
(23. júlí - 22.j ágúst)
Ljónið er glaðlynt og bjartsýnt
í dag. Hlutimir fara að mestu
eftir óskum þess, en því hættir
til að eyða of miklu. Það er í
sviðsljósunum núna.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) M
Ovarkárt tal gæti komið meyj-
unni í klípu í dag. Hún ætti
að draga úr gagnrýni sinni á
einhvern í fjölskyldunni og
sýna tilfinningum annarra
meiri tillitssemi.
(23. sept. - 22. október)
Vogin nýtur þess að leika sér
með börnunum sínum í dag.
Hún ætti að gæta þess að hafa
taumhald á tungu sinni. Hún
eignast góðan vin.
Sporðdreki
(23. okt. — 21. nóvember) ®Kj0
Ættingja sporðdrekans geðjast
ekki að einum vina hans. Gott
tækifæri kemur upp í hendurn-
ar á honum núna.
Vog
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember) «0
Bogmanninum hættir til að
vanmeta möguleika sína núna.
Hann á fyrir höndum feikilega
skemmtilegt ferðalag.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar) m
Steingeitin er heppin í peninga-
málum í dag. Hún fær fjár-
hagslegan stuðning til að ráð-
ast í ákveðið verkefni. Þó að
hún sé óvenjuviðkvæm um
þessar mundir ætti hún að forð-
ast að bregðast illa við óþægi-
legri athugasemd.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) ðh
Vatnsberinn kann að nota láns-
kortið sitt einum of djarflega
núna. Hann lendir í smáþjarki
við vin sinn.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Fiskurinn sinnir verkefni sem
hann hefur með höndum um
þessar mundir, en honum bjóð-
ast ný tækifæri í dag. Hann
ætti að reyna að vera í takt
við vini sína.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
- byggjast ekki á traustum grunni
visindalegra staóreynda.
DYRAGLENS
SMÁFÓLK
The name of the
other teanv was
Pevil’s Advocate
Nafn hins liðsins var
Útsendarar Djöfulsins.
“Theyalways win,”
he said.“ ] hate to
play Devil’s e
Advocate!” |
„Þeir vinna alltaf,“
sagði hann. Mér er illa
við að leika við Útsend-
ara Djöfulsins!
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Arturo Pardo, einn liðsmaður
spönsku sveitarinnar á _ EM,
sýndi það í leiknum við ísland
að hann er hvergi smeykur í
sögnum. Hann komst ítrekað
upp með hörkuna í fyrri hálfleik
og skóflaði inn stigum fyrir þjóð
sína. Pardo hélt uppteknum
hætti í þeim síðari, en var ekki
eins „heppinn með biindan".
Norður gefur; allir á hættu.
Norður
♦ D109
¥ DG862
♦ 108
♦ 985
Austur
♦ 432
¥7
♦ DG73
♦ KG1043
Suður
♦ K765
¥ ÁK10954
♦ Á
♦ 62
Pardo fékk bartsýniskast í
þessu spili á móti Þorláki Jóns-
syni og Guðm. P. Arnarsyni:
Vestur Norður Austur Suður
Guðm. Lantaron Þorl. Pardo
— Pass Pass 1 hjarta
2 tíglar Dobl 3 lauf 3 spaðar
4 lauf 4 hjörtu 5 tíglar 6 hjörtu!
Dobl
Lantaron lagði grunninn að
dellunni með neikvæðu dobli,
sem hafði þann tilgang fyrst og
fremst að reyna að kaupa samn-
inginn í 4 hjörtum.
Pardo fann ekki spaðagosann
og fór þrjá niður: 800 til ís-
lands. Á hinu borðinu opnaði
Aðalsteinn Jörgensen á 1 hjarta,
vestur doblaði og Jón Baldurs-
son stökk í 3 hjörtu. Aðalsteinn
hækkaði í fjögur og þar við sat.
Hann hitti á réttu spaðaíferðina
og fékk 10 slagi; 620 til íslands
og 16 IMPa gróði.
SKÁK
Vestur
♦ ÁG8
¥3
♦ K96542
♦ ÁD7
Umsjón Margeir
Pétursson
Á öflugu opnu hraðmóti í Jyvá-
skylá í miðju Finnlandi, sem hald-
ið var í sumar, kom þessi staða
upp í viðureign júgóslavneska
stórmeistarans Lilic (2.510), sem
hafði hvítt og átti ieik, og sovézku
stúlkunnar Joseliani (2.445).
30. Bxg6+! - Hxg6, 31. Hxg6 -
Kxg6, 32. Hgl+ - Kf5 (Hvítur
vinnur einnig eftir 32. - Kf7, 33.
Hg7+ - Ke8, 34. Hg8+ - Kf8,
35. Bh6 - Kf7, 36. Hg7+) 33.
Ke3 - Rxe5 (Eina leiðin til að
hindra Hg5 mát.) 34. Bxe5 - h4,
35. f7 og svartur gafst upp. Á
mótinu tefldu tæplega 20 stór-
meistarar, langflestir frá A-Evr-
ópu. Aðeins voru tefldar sjö um-
ferðir og höfðu keppendur tvo
tíma á skákina. Lítt þekktur
sovézkur alþjóðameistari sigraði,
en slíkt er reyndar liætt að vekja
athygli. Röð efstu manna: 1.
Dragomaretskí 6‘A v.'af 7 mögu-
legum, 2-3. Pigusov og Ruban,
Sovétr. 6 v. 4-14. Westerinen og
Rantanen, Finnlandi, Adorjan,
Ungvl., Krasenkov, Monin, Bag-
irov, Savtsjenko, Kotsjev, Solotsj-
enkín og Palatnik, Sovétr. og
Veingold, Eistlandi 5'A v. Hinn
kunni eistlenski stórmeistari Jan
Ehlvest hlaut 5 v. ásamt 16 öðr-
um.