Morgunblaðið - 17.08.1991, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 1991
25
Gamla hvalstöðin á Suðureyri sem Norðmenn létu reisa um aldarmótin síðustu.
Leifarnar af bryggjunni eru aðeins fimm stólpar
með einni þverspýtu.
Tálknafj örður:
Svipmyndir frá gömlu
hvalstöðinni á Suðureyri
Tálknafirði.
UM OG eftir aldamótin síðustu létu Norðmenn reisa hvalveiðistöð
á Suðureyri, sem er vestasti bær sunnan Tálknafjarðar, um 7 km
fyrir innan Tálknatá. Eyrin er nú í eyði enda var þar afskekkt
og ekki um nútímasamgöngur á landi að ræða.
Frá Tálknafirði séð er það stór
og mikill strompur sem vekur
eftirtekt, þegar horft er yfir til
Suðureyrar. Vegurinn er mjög
torfær og ekki ráðlagt að fara
þangað á fólksbílum. Jörðin er í
einkaeign og þar er búið að reisa
sumarhús við rústir hvalstöðvar-
innar.
Stöðin var aftur rekin á árun-
um milli 1930 og 1940 en þá
voru það innlendir aðilar sem
keypt höfðu mannvirki Norð-
manna er lengi höfðu legið ónot-
uð. Var hvalstöðinn á innanverðri
eyrinni og bryggja fram af Eyrar-
oddanum en þar er mjög aðdjúpt.
Útbeit er góð við Suðureyri og
jörðin liggur vel við sjósókn. Var
hún fyrrum talin ein bezta útveg-
sjörð við Tálknafjörð.
1 dag eru rústirnar einu merkin
um að þarna hafi verið rekin hval-
stöð. Hár múrhlaðinn skorsteinn
græfir yfir rústunum, litlir skúrar
eru að hruni komnir, og þar sem
áður var myndarleg bryggja eru
aðeins fáeinir stólpar eftir í
flæðarmálinu. Víða má þó sjá
verksummerki hvalvinnsiunnar
því þar er að finna hvalbein, bæði
stór og smá. Einnig má sjá mikil
mannvirki hlaðin úr gijóti yst á
Eyrinni. En nú er staðurinn sælu-
reitur og myndarlegt sumarhús
stendur þar til staðfestingar.
R. Schmidt
Stórt hvalbein á hlöðnum vegg sýnir að þarna var áður hvalstöð.
Háskólabíó:
Þórarinn Sigurbergsson og Anna Júlíana Sveinsdóttir.
Sýningar á „Alice“ hafnar
HÁSKÓLABÍÓ hefur tekið til sýn-
inga myndina „Alice“. Með aðal-
hlutverk fara Joe Mantegna og
Mia Farrow. Leikstjóri og höfund-
ur er Woody Allen.
Alice (Mia Farrow) er gift forrík-
um manni, Doug (William Hurt), og
búa þau hjón í lúxusíbúð við Park
Avenue í New York. Þau eiga tvö
börn sem sækja fína einkaskóia en
móðirin er alltaf önnum kafin við
sitt amstur; sækja snyrtistofur, fara
í búðir, skipuleggja veislur og standa
fyrir þeim en þó fyrst og fremst
nuddstofur því Alice þjáist af stöðug-
um bakverk. Henni er bent á jurta-
lækninn Yang og þangað leitar Alice.
En Yang er annað og meira en rétt-
ur og sléttur jurtalæknir. Jurtir hans
hafa ýmis og óvænt áhrif og með-
ferð hans verður til þess að Alice fer
að endurmeta líf sitt og lifnaðar-
hætti, Þau Alice og Doug hafa verið
Brúarfoss
ekki Bakkafoss
í frétt í blaðinu á miðvikudag skol-
aðist til nafn þess skips þar sem fíkni-
efnalögreglan fann fimm grömm af
hassi á farþega. Um var að ra?ða
Brúarfoss en ekki Bakkafoss eins og
sagði í fréttinni. Beðist er velvirðing-
ar á mistökunum.
gift í 16 ár þegar hér er komið sögu
og hefur hún aldrei látið sér detta í
hug framhjáhald þar til hún sér Joe.
Hann á dóttur í sama skóla og börn
Alice sækja og brýtur hún ísinn og
ávarpar hann og ákveða þau að hitt-
ast. Alicé heldur áfram að leita til
Yang læknis og fær hjá honum m.a.
jurtir sem gera hana ósýnilega og
kemst hún að ýmsu misjöfnu um
manninn sinn, einnig fær hún jurtir
til að blanda með ástardrykk og verð-
ur að ákveða hvorn þeirra, Doug eða
Joe, hún eigi að láta drekka drykk-
inn.
ANNA Júlíana Sveinsdóttir mez-
zósópran og Þórarinn Sigur-
bergsson gítarleikari halda tón-
leika í Þorlákskirkju í Þorláks-
höfn sunnudaginn 18. ágúst nk.
kl. 16.00. Flutt verða íslensk,
þýsk og spænsk sönglög við gít-^
arundirleik.
Þetta er endurtekning á tónleik-
um sem þau Anna Júlíana og Þórar-
inn héldu í Hafnarborg, menningar-
miðstöð Hafnarfjarðar fyrir fullu
húsi áheyrenda nýlega við góðar
undirtektir. Tónleikaskránni fylgja
íslenskar þýðingar á öllum ljóða-
textunum til þess að tónleikagestir
Eitt atriði úr myndinni „Alice“.
megi frekar njóta hinnar heitu og
ástríðafullu spönsku tónlistar.
Það er von þeirra sem fyrir þess-
um tónleikum standa að sem flestir
sjái sér fært að koma og hlýða á
tónlist þessara listamanna. I sumar
hefur mikill fjöldi ferðafólks komið
til að skoða Þorlákskirkju en hún
hefur verið opin alla laugardaga og
sunnudaga milli kl. 15 og +7 auk
þess sem hún hefur verið opnuð ef
óskað er eftir. Nú á sunnudaginn
gefst gott tækifæri til að sameina
skoðunarferð í kirkjuna og hlýða
um leið á góða tónlist, segir í frétta-
tilkynningu.
Tónleikar í Þorlákskirkju
Slökkviliðið
með sýningu
í TILEFNI af 200 ára afmæli
slökkviliðsins og afmælisdegi
Reykjavíkur verður slökkviliðið
með sýningu í miðbænum 18.
ágúst. Verður hún á bílastæði við
Faxaskála og hefst kl. 13.30 og
stendur í u.þ.b. 45 mínútur. Sett
verður á svið umferðarslys, eit-
urefnaslys og gasleki.
Auk sýningarinnar mun slökkve"
liðið fara í hópakstur um bæinn á
milli 11.00 og 12.00 um morguninn
sama dag.