Morgunblaðið - 17.08.1991, Side 26

Morgunblaðið - 17.08.1991, Side 26
AKUREYRI 26 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 1991 Öldnmarþjónusta í Norður-Þingeyjarsýslu: Þjónustuhús tekin í notkun Raufarhöfn. DVALARHEIMILI aldraðra sf. var stofnað 18. janúar 1976 af 13 sveitarfélögum í Suður- og Norður-Þingeyjarsýslu. A þessu ári eru liðin 15 ár frá stofnun félagsins og 10 ár eru liðin frá vígslu Hvamms sem er dvalarheimili aldraðra á Húsavík. í tilefni af þess- um tímamótum hjá félaginu var ákveðið að kynna fyrir almenningi í Þingeyjarsýslum þá starfsemi og uppbyggingu í öldrunarþjónustu sem fram fer á vegum þess. Hápunktur afmælisársins var sl. laugardag, 10. ágúst, þegar starf- semi félagsins í Norður-Þingeyjar- sýslu var kynnt bæði á Kópaskeri og Raufarhöfn. Hófst hátíðin með því að Öldrunarþjónustan Mörk á Kópaskeri var formlega tekin í notkun, en rekstur hófst þar á sl. ári, vígð var ný garðstofa sem verið hefur í byggingu við húsið. í Mörk er rekin dagvistun og mat- arþjónusta, sem allt að 10 aldraðir nýta sér reglulega, hefur þessi starfsemi farið í alla staði vel á stað. Öldrunarþjónustan Mörk á Kópaskeri er í gömlu húsi sem gefið var kvenfélaginu á staðnum til að koma þar upp þjónustu fyrir aldraða. Þetta húsnæoi hefui nú verið endurbætt til að uppfylla þær kröfur sem settar eru, sett nýtt eldhús, bað og ný tæki, búnaður og húsgögn. Gengið hefur verið frá umhverfi hússins, steypt bílastæði og hellulagðir göngustígar. Er húsið nú allt hið skemmtilegasta og nú síðast var byggð við það garðstófa sem vígð var við þetta tækifæri. Öldrunarþjónustan Mörk er rek- in í tengslum við Hvamm, heimili aldraðra á Húsavík, og hefur það samstarf gengið í alla staði mjög vel. Framkvæmdakostnaður frá upphafi er orðinn um 7,5 milljónir, sem fjármagnaðar hafa verið af sveitarfélögunum og með framlagi úr Framkvæmdasjóði aldraðra. Verkið hefur verið unnið af heima- aðilum og aðalverktaki var Trémál hf. en tæknileg ráðgjöf var í hönd- um Tækniþjónustunnar hf. á Húsavík. Tengiliður á staðnum við Dval- arheimili aldraðra sf. er Öldrunar- þjónustunefnd hreppsins, formað- ur hennar er Bryndís Helgadóttir nýja þjónustuhúsi aldraðra og það skoðað og formlega vígt. Formaður Dvalarheimilis aldr- aðra ávarpaði gesti og gerði grein fyrir byggingu hússins. Fram- kvæmdir hófust 1988 við grunn hússins og í ár hefur verið lokið við húsið innan sem utan ásamt lóð. Verkið hefur að mestu verið unnið af heimaaðilum eftir tilboð- um, aðalverktaki var J.J.R. — tré- smiðir sf. á Raufarhöfn, rafvirkja- meistari var Björn Friðriksson. Vinnustofa arkitekta hf. í Reykjavík hannaði húsið, en burð- arþol og lagnir teiknaði Tækni- þjónustan hf. á Húsavík. Húsið er um 310 fermetrar og 1.080 rúmmetrar og skiptist í tvær einstaklingsíbúðir og tvær hjóna- íbúðir ásamt 60 fermetra sameign sem ætluð er m.a. fyrir dagvist síðar. Hér er um leiguíbúðir að ræða í eigu Dvalarheimilis aldraðra sf. í Þingeyjarsýslu sem annast allan rekstur hússins, en leigu verður stillt mjög í hóf. Kostnaður við þetta glæsilega þjónustuhús er um 29 milljónir. Það hefur verið fjármagnað með framlagi eignaraðila, styrk úr Framkvæmdasjóði aldraðra og láni frá Húsnæðisstofnun. Sóknar- presturinn á Raufarhöfn, séra Ragnheiður Erla Bjarnadóttir, blessaði húsið og gaf því nafnið Vík. Húsið var að mati viðstaddra allt hið glæsilegasta og er það ósk þeirra sem að hafa komið, að aldr- aðir Þingeyingar eigi ánægjulegt ævikvöld í þessu nýja húsi. Eftir athöfnina var gestum boðið til veislu á Hótel Norðurljósum. Húsið var opið almenningi til sýnis síðari hluta dagsins. - segir Kristín Hjálmarsdóttir formaður Iðju „EG fagna því mjög að menn telji möguleika á að ullariðnaður geti gengið hér áfram,“ sagði Kristín Hjálmarsdóttir formaður Iðju, fé- lags verksmiðjufólks, eftir þá ákvörðun bæjarráðs að Akureyrarbær gerist eignaraðili að nýjum fyrirtækjum um rekstur ullariðnaðar í bænum. og kollsteypur verið teknar, en hún hefði ætíð haft trú á að hann gæti gengið. Erfiðleikar hefðu steðjað að öðrum iðngreinum í bænum, eins og skó- og skinnaiðnaði, en þessar iðngreinar hefðu rétt úr kútnum og til að mynda væri. skinnaiðnaður orðin blómlegur nú. „Mér líður mun betur eftir þessa ákvörðun bæjarráðs og eins er sjálf- sagt farið um okkar félagsmenn. Eg held að fólk sé bjartsýnna á framtíðina og ekki veitir af,“ sagði Kristín. Kristín sagði að vissulega væri margt eftir óunnið áður en málið yrði endanlega í höfn og hún sagð- ist ekki á þessari stundu gera sér fyllilega grein fyrir hvaða aðilar kæmu til liðs við bæinn. „Það eru alltaf til aðilar sem tilbúnir eru að taka áhættu, en ég vona svo sann- arlega að einhverjir séu reiðubúnir til þátttöku og hafi trú á þessum iðnaði,“ sagði Kristín. Hún sagði að vissulega hefði á ýmsu gengið varðandi þennan iðnað Hótel Stefanía: Hreinn Pálsson skipaður bústjóri HREINN Pálsson héraðsdóms- lögmaður hefur verið skipaður bústjóri í þrotabúi Hótels Stef- aníu, sem úrskurðað var gjald- þrota fyrir nokkru. Skiptafundur í búinu verður hald- inn 13. nóvember næstkomandi, en ekki liggur Ijóst fyrir hversu miklar kröfur eru í búið. Búnaðarbankinn óskaði eftir að hótelið yrði tekið til gjaldþrotaskipta. Frá upphafi voru tvö hlutafélög um reksturinn, Hafn- arstræti 83, 85 og 88 sem átti fast- eignir þær þar sem starfsemin fór fram og Hótel Stefanía sem var rekstraraðili hótelsins. Hafnarstræti 83, 85 og 88 sagði upp leigusamningi við Hótel Stef- aníu 30. júlí síðastliðinn og nýr rekstraraðili tók við, þannig að hót- elið er í fullum rekstri. Morgunblaðið/Helgi Þjónustuhús fyrir aldraða hef- ur verið tekið í notkun á Rauf- arhöfn, en því var gefið nafnið Vík. En á myndinni t.v. séstEg- ill Olgeirsson formaður Dvalar- heimilis aldraðra sf. Fólk er bjartsýnna á framtíðina en áður og í forsvari fyrir rekstrinum er Þói'unn Pálsdóttir. Óhætt er að segja að tekist hafi að skapa í Mörk einstaklega heimilislegt um- hverfi sem er aðstandendum öllum til sóma. Við vígsluna var mikill fjöldi gesta, m.a. fulltrúi heilbrigðisráðu- neytis, alþingismenn kjördæmis- ins, sveitarstjórnarmenn víða úr Þingeyjarsýslu og aðrir sem að málinu hafa komið ásamt mökum. Sóknarpresturinn, séra Eiríkur Jó- hannsson á Skinnastað, fór með bæn og blessaði starfsemina í Mörk. Að lokinni athöfn var opið hús í Mörk, þar sem starfsemin var kynnt almenningi og gestum boðið upp á veitingar. Að lokinni athöfn á Kópaskeri var haldið til Raufarhafnar. Þar var fyrst haldinn aðalfundur fé- lagsins á Hótel Norðurljósum, en það er í fyrsta sinn sem hann er haldinn utan Húsavíkur. Að fund- inum loknum var haldið að hinu Úr verksmiðjum Álafoss. Morgunblaðið/Guðmundur Hrafn BÆJARRÁÐ Akureyrar hefur samþykkt að fela Iðnþróunarfélagi Eyja- fjarðar, IFE, að vinna að stofnun tveggja fyrirtækja, framleiðslufyrir- tækis og markaðsfyrirtækis er tæki við rekstri fata- og vefdeildar Álafoss annars vegar og sæi um sölu og markaðsmál hins vegar. Starf- semin kemur væntanlega til með að verða smærri í sniðum en starf- semi Álafoss var, einkum í Ijósi þess hversu ótryggur Sovétmarkaður er, en félagið treysti sér ekki til að byggja tillögur sínar á því að sala jiþangað yrði með svipuðum hætti og verið hefur. Á fundi bæjarráðs í fyrradag gerðu starfsmenn Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar ráðinu grein fyrir þeirri vinnu sem unnin hefur verið síðustu vikur varðandi möguleika þess að stofna fyrirtæki til að taka við rekstri Álafoss af Landsbanka íslands um næstu áramót. Á grundvelli tillagna IFE samþykkti bæjarráð að fela fé- laginu að vinna að stofnun fram- leiðslufyrirtækis og markaðsfyrir-' tækis vegna áframhaldandi reksturs á þessu sviði í bænum. Framleiðslufyrirtækið mun taka við rekstri fata- og vefdeildar Ála- foss á Akureyri, en markaðsfyrirtæk- ið mun sjá um sölu- og markaðs- mál. Bæjarráð samþykkt jafnframt að Akureyrarbær gerðist eignaraðili að þessum fyrirtækjum. Ásgeir Magnússon framkvæmda- stjóri Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar nú yrði unnið hratt að stofnun fyrir- tækjanna tveggja. Hann sagði að ástæða þess að lagt var til að stofn- uð yrðu tvö fyrirtæki væri sú, að það fólk sem unnið hefði að markaðsmál- um á vegum Álafoss væri búsett syðra. Það myndi hætta störfum inn- an skamms, en vænlegast hefði þótt að reyna að fá það til samstarfs aft- ur. „Við gáfum okkur ákveðnar for- sendur og miðað við hvernig við sett- um dæmið upp þá bendir allt til þess að grundvöllur sé fyrir áframhald- andi rekstri. Það sem við reynum að gera er að tryggja sem flestu af því fólki sem starfað hefur að þessari framleiðslu atvinnu áfram. Það er ljóst að ufn verður að ræða talsvert minna fyrirtæki að umfangi en Ála- foss var,“ sagði Ásgeir. Hann sagði að markaður í Sov- étríkjunum væri ótryggur og óvíst væri hver salan þangað gæti orðið í framtíðinni, menn treystu sér ekki til að stilla upp tillögum sem gerðu ráð fyrir svipaðri sö.lu á þann markað og yerið hefði. Ásgeir sagðist ekki vilja nefna á þessu stigi hversu mikið fjármagn leggja þarf í fyrirtækin. Það kæmi betur í Ijós er starfsemin hæfist. „Ef okkur tekst að koma markaðs- og hönnun^rdeildinni strax af stað, þá er vel og við munum þá halda ótrauð áfram,“ sagði Ásgeir. Akureyrarbær mun leita eftir samstarfsaðilum varð- andi reksturinn, en hann sagði að þreifingar í þá veru væru enn ekki hafnar. Framleiðslu- og* markaðsfyrírtæki verði stofnuð á rústum Alafoss

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.