Morgunblaðið - 17.08.1991, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 17.08.1991, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 1991 31 Afmæliskveðja: Bergur Arnbjörns- son, Akranesi Það var á bemskuárum bifreiðar- innar þegar allir vegir voru bugðótt- ir og ósléttir. Þá mátti sjá gráan rykmökk þyrlast upp og mynda langa reykjabólstra í landslaginu þar sem græn bifreið branaði áfram, þegar þeir allra djörfustu kitluðu pinnann á 100. Og unga fólkið horfði með aðdáun til þeirra sem óku bifreiðum og í golunni mátti heyra lágt væl síren- unnar þegar riddarar þjóðvegarins óku um byggðir. Þessir riddarar sem brunuðu um landið á drossíum fram- kvæmdavaldsins og holtasóleyjan á Holtavörðuheiði horfði á þá í undrun og spurn og velti því fyrir sér hvort eitthvað lægi á. Bifreiðin var að leysa þarfasta þjóninn af hólmi í byggð og bæ. Til varð ný stétt manna, bifreiðaeftirlits- menn. Hlutskipti þeirra var að ferð- ast um landið og líta eftir ökumönn- um og bílum. Það var ekki örgrannt um að loft- ið titraði dulítið af rafmagnaðri spennu. Landsbyggðin hefur löngum hýst litríka bændur og skrautlega sérvitringa við sjávarsíðuna. Þeir voru ófúsir að þýðast þessa nýju stétt manna. Höfðingjar, smákóngar og kotbændur hver í sínu plássi gengu ekki með lagabókstafinn í vasanum. Þeir voru alls ekki klárir á paragröf- um varðandi bifreiðamálefni. Þeir töldu þessa nýju herra vart umkomna þess að segja sér fyrir verkum. Þó var ekki laust við að ótta mætti greina í augum manna þegar hinir prúðbúnu eftirlitsmenn í græna uni- forminu birtust í heimabyggð þeirra. Það má segja að bifreiðaeftirlits- menn hafi eiginlega verið fyrstu lög- reglumenn dreifbýlisins. Níræður höfðingi í dag, Bergur Arnbjörnsson, er einn af frumherjum bifreiðaeftirlitsinanna á íslandi. Umdæmi hans náði frá Hvalfjarðar- botni norður í Skagafjörð að Strönd- um óg Dölum meðtöldum. Hann starfaði lengst af í náinni samvinnu við Geir Bachmann í Borgarnesi, Sigurð Guðjónsson, Akranesi, Gunn- ar Þórðarson á Sauðárkróki og oft var Jón Jónsson, bóndi í Stóradal, honum til aðstoðar. Það var ekki ónýtt fyrir mig sem ungan svein að fá að ferðast með þessum köppum nokkrar ferðir norð- ur í land. Verkefni Bergs vora margvísleg í bifreiðaeftirlitinu. Það þurfti að skoða bílana, láta menn taka bílpróf, standa fyrir meiraprófsnámskeiðum og alrnennt vegaeftirlit. Þá þurfti hann að vera sýslumönnum til halds og trausts við að góma bruggara og náunga sem óku á númerslausum jeppum og drossíum eða grindar- skökkum vörubílum, sem gátu staðið fastir á þröngum brúm. Bergur Arnbjörnsson lifði sig inn í starf sitt og gegndi því með ár- vekni og metnaði. Urlausnarverkefn- ið gat stundum verið erfítt og stund- um þurfti ef til vill að fara ómjúkum höndum um menn og málefni. En hann gerði sér grein fyrir því að til þess er valdið að beita því þegar við á öðrum til eftirbreytni. Hann var fljóthuga og skjótráður, kjarkmaður og slíkir eiginleikar koma sér vel þegar menn lenda í átökum við lög- bijóta. Á blómaskeiði ævi sinnar átti Bergur heima á Jaðarsbraut 13, Akranesi. Þar hafði Sara kona hans búið honum fallegt heimili. Ég man hvað mér fannst til um glæsileika heimilisins. Þetta stóra hús, þessi fallegu húsgögn og hvítur sandurinn og fjaran fyrir neðan húsið, alveg eins og í bíómynd. Á ferðum sínum norður í land kynntist Bergur húnvetnskum lax- veiðiám og vötnum og heillaðist af þeim. Hann reyndist sleipur laxveiði- maður. Ég man að hann minntist oft á það þegar ég ferðaðist með honum á þessum árum og við vorum staddir í Þinginu, að hann sagðist hafa veitt lax yfir 40 pund rétt ofan eða við Hnausa. Hann hafði farið heim á bæinn og beðið leyfis að renna fyrir fisk og fengið það og þurfti ekkert að borga þar sem frúin taldi enga veiðivon. Bergur keypti jörðina Litlu-Borg í V-Hún. með vinum sínum af Akra- nesi fyrir margt löngu en jörðinni fylgir veiðiréttur í Vesturhópsvatni. Þar stendur nú allnokkur sumar- húsabyggð þeirra Akurnesinga og fleiri. Bergur dvelur nú á dvalarheimil- inu Höfða, Akranesi. Það er ekki sami hraðinn á honum og fyrrum en hugsunin er skýr og athyglin í lagi. Ég sendi föðurbróður mínum árn- aðaróskir í tilefni dagsins. Þorsteinn H. Gunnarsson Þann 17. ágúst 1991 er níræður Bergur Arnbjörnsson á Akranesi. Hann er fæddur að Galtarholti í Borgarhreppi, Mýrasýslu. Foreldrar Arnbjörn Árnason, Borgarnesi og kona hans Guðrún Sigurðardóttir. Ungur verður Bergur þátttakandi í borgfirskum bústörfum. Hann flytur til Reykjavíkur 1920 og þaðan aftur til Borgarness 1938, skipaður hrepp- stjóri 1939, fulltrúi sýslumanns og bifreiðaeftirlitsmaður í sinni æsku- byggð, Borgarnesi. Einnig stofnandi Lúðrasveitarinnar Svanir, í Karlakór Borgnesinga, einnig í Reykjavík karlakórsniaður. Bergur var búsettur í Reykjavík á árunum 1920-38. Þar var hann atvinnubílstjóri,. rak þar bifreiðastöð og bifreiðasöiu. Hann er skipaður bifreiðaeftirlitsmaður 1938 og er i því starfi samfellt til 1965. 2. október 1926 giftist hann Söra Ólafsdóttur, fæddri 24. rnars 1902. Foreldrar hennar vora Ólafur Þór- arinsson, steinsmiður í Reykjavík og Þorgerður Vilhelmína Gunnarsdóttir. Börn Bergs og Söru eru Ólafur fædd- ur 9. janúar 1927, starfsmaður hjá Sjóvá í Reykjavík, kvæntur Þóru Stefánsdóttur; Þorgerður fædd 24. maí 1928, gift Hannesi Hjartarsyni, Akranesi; Guðrún fædd 11. apríl 1933, gift Gunnari S. Jónssyni, húsa- smið í Rvík; Björn Arnar fæddur 13. júlí 1935, rafvirkjameistari, kvæntur Ingibjörgu Ingólfsdóttur kennara, Akranesi; Auðurfædd 30. apríl 1945, dáin 14. júlí 1963. Fyrst man sá er þetta skrifar Berg sem Borgnesing, vissi að hann var þar útlærður skósmiður, bifreiðaeft- irlitsmaður með fleiru. Ég minnist þess einnig þegar hann flutti til Akraness 1942 og bjó í sínu fallega húsi Guðnabæ. Þá hétu húsin hér á Skaga sínum nöfnum, sem er svo virðulegt. Síðar byggir Bergur glæsi- legt steinhús á tveimur hæðum við Jaðarsbraut 13, einum fegursta stað á Skaganum. Þaðan fluttu þau hjón í hjónaíbúð við Hrafnistu, dvalar- heimili aldraðra í Reykjavík. Þar lést Sara kona Berg. Hugur Bergs leitaði upp á Akra- nes og þangað flutti hann stuttu síð- ar á Dvalarheimilið Höfða, þar sem hann býr síðan í notalegri eins- mánnsíbúð við þolanlega heilsu, minnugur, hress og glaður. Hann lít- ur í anda yfir langa fjölbreytta lífs- göngu, stundum erilsama. Löggæsl- ustörf eru misjafnlega vinsæl af hin- um ólöghlýðnu Islendingum. Það fylgir hinu mikla frelsi til orða og athafna, að vilja ráða sér sjálfur. Þess vegna er erfitt starf að vera samviskusamur löggæslumaður á íslandi. Þessu kynntist Bergur eins og fleiri. Bergur var aðsópsmikill í sínu starfi og lét að sér kveða, þó maður vænn og drengilegur. Hann vildi gera skyldu sína. Bergur er hár maður vexti, reistur og fasmikili maður sem tekið er eft- ir og setur svip á samtíðina. Þrátt fyrir ekki alltaf vel'séð ábyrgðar- starf og vissulega margar aðfinnsl- ur, hygg ég Berg mann vinsælan af sinni samtíð og marga góða vini hefur hann átt í gegnum tíðina. Þótt sumum þætti hann stundum of stressaður í starfi, sem ég hygg vera vegna mikillar samviskusemi. Ég minnist skipstjóra sem ég var með sem var hinn mesti ljúflingur í landi en önugur og stressaður á sjónum. Þetta kallaðist að vera sjókaldur, vanlíðan vegna ábyrgðar. Bergur hefur margt borið við um dagana eins og fram er komið. Þó er margt ótalið. Eins og margir sam- tíðarmenn hans varð hann að bijót- ast áfram til manns af meðfæddum dugnaði, metnaði og hæfileikum. Aldamótakynslóðin bar stóra drauma í bijósti, hvergi deig til átaka. í upp- hafi aldarinnar voru atvinnuhættir og áhöldin, til verka fornfáleg, að miða við nútímann. En það ber að hafa í huga, að nútímatækni og vel- megun á öllum sviðum mannlífsins er afrakstur dyggilegra unninna verka fyrri kynslóða, þá ekki síst þeirrar sem er að skila ævistarfinu af sér, aldamótakynslóðarinnar. Bergur var ákafa maður og víða dyggur þátttakandi á framfarabraut sinnar kynslóðar. Bergur átti sæti í fjölmörgum stjórnum og nefndum. Stjórnarmaður Slysavarnafélags ís- lands í 4 ár og í 12 ár í Akranes- deild félagsins. Þarna er hann ævifé- lagi. í umferðarnefnd, bamaverndar- nefnd og verðlagseftirlitsmaður, allt á Akranesi. Bergur er heiðursfélagi bifreiðaeftirlitsmanna íslands'. Einn- ig heiðursfélagi í Félagi stangveiði- manna á Akranesi. Á þessu sést að hann er virtur af verkum sínum. Hann var um árabii kennari og for- stöðumaður námskeiða til meirabif- reiðastjóraprófs, auk þess að prófa fjöldann allan af nýjum bifreiðastjór- um. Bergur var um langa tíð umboðs- maður Sjóvá á Akranesi. Hann var bílasali, umboðsmaður Ford á Akra- nesi. Bergur var mikill laxveiðimuð' ur, átti margar ánægjustundir með góðum vinum við gjöfular veiðiár. Á þessu sést að víða kom þessi athafna- sami maður við sögu. Er þó ekki allt upp talið, en hér verður tíund lokið að sinni. Eitt er víst að þeir menn sem eru vandir að virðingu sinni og heiðursmenn í hvívetna eiga að lokum allra hylli fyrir ævistarfið. Það er ánægjulegt fyrir níræðan mann að geta litið yfir liðna tíð og hugsað glaður til gömlu áranna. Bergur á ljúfar og kærar endurminn- ingar um látna eiginkonu. Sara var vel gefin og vel gerð kona, stillt og prúð, hornsteinn heimilisins eins og góðar konur eru ætíð. Hún bjó manni sínum fallegt heimili, ól honum góð börn, sem reynst hafa mannkosta fólk. Það er ómetahleg lífshamingja og styrkur að eiga gott heimili og traustan lífsföranaut, sem léttir áhyggjum hins erilsama dags af vin- um sínum. Þökkin til slíks fólks er eilíf og af hjartanu gefin. Nú er Bergur sestur í friðarstól ellinnar sáttur við allt og alla, dagfarsprúð- ur, oft glaður i góðra vina hópi, gam- ansamur, hress og virðulegur. Hann er vinur vina sinna, vellátinn vist- maður á Höfða. Hann nýtur viðriflgf ar fyrir langt og farsælt ævistarf. Margur mun hugsa hlýtt til Bíla- Bergs á þessum tímamótum, en und- ir því virðulega nafni þekkist hann vítt um landið. Þeir verða margir sem votta honum hlýhug, virðingu og þökk fyrir góð kynni. Ég hefi lengi þekkt Berg að góðu einu og ber hlýjan hug til þessa sóma- manns. Eins og svo margt aldamóta- fólkið á Bergur þjóðarþökk fyrir far- sælt ævistarf í þágu lands og þjóð- ar. Megi heill og hamingja fylgja honum til hinstu stundar. V algarður L. Jónsson JMtááur r a morgun f-. ■■ . . - ■. ; i ;T> A Guðspjall dagsins: Mark. 7.: Hinn daufi og málhalti. Reykjavíkurprófasts- dæmi vestra: ÁSKIRKJA: Vegna sumarleyfa starfsfólks Áskirkju er minnt á guðsþjónustu í Laugarneskirkju sunnudag kl. 11. Sóknarprestur. BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Organisti Guðni Þ. Guðmundsson. Pálmi Matthíasson. DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11. Dómkórinn syngur. Organisti Marteinn H. Friðriksson. Sr. Jakob Á. Hjálmarsson. GRENSÁSKIRKJA: Messa kl. 11. Altarisganga. Prestur sr. Halldór S. Gröndal. Organisti Árni Arinbjarnarson. HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl. 11. Sr. Karl Sigurbjörnssonh. Tónleikar kl. 17. Blásarasveit Paul Schim. Þriðjudag: Fyrirbænaguðsþjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10. Sr. Jón Bjarman. HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11. Sr. Arngrímur Jónsson. Kvöldbænir og fyrirbænir eru í kirkjunni á miðvikudögum kl. 18. LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guðbrands biskups. Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Flóki Kristinsson. Organisti Jón Stefánsson. Kór Langholtskirkju syngur. Molasopi að guðsþjónustu lokinni. LAUGARNESKIRKJA: Guðsþjónusta í dag í Hátúni 10b. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson. Sunnudag: Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson. Organisti Ronald V. Turner. Heitt á könnunni eftir guðsþjónustu. Fimmtudag: Kyrrðarstund kl. 12. Orgelleikur, altarisganga, fyrirbænir. NESKIRKJA: Messa kl. 11. Orgel og kórstjórn Reynir Jónasson. Sr. Guðmundur Óskar Ólafsson. Fermdir verða: Þorsteinn Freyr Jóhannsson, Kópavogsbraut 12, Kópavogi og Arnljótur Bjarki Bergsson, Selási 17, Egilsstöðum. Miðvikudag: Bænamessa kl. 18.20. Sr. Guðmundur Óskar Ólafsson. SELTJARNARNESKIRKJA: Helgistund kl. 11. á vegum sóknarnefndar. Organisti Þóra Guðmundsdóttir. Reykjavíkurprófasts- dæmi eystra: ÁRBÆJARKIRKJA. Guðsþjónusta sunnudag kl. 11. árdegis. Sr. Guðmundur Þorsteinsson. Organisti Jón Mýrdal. SAFNKIRKJAN í Árbæjarsafni: Messa kl. 16. Sr. Kristinn Ág. Friðfinnsson. BREIÐHOLTSKIRKJA: Engin guðsþjónusta vegna sumarleyfa sóknarprests, en bent á guðsþjónustur í Árbæjarkirkju kl. 11 og Fella- og Hólakirkju kl. 20.30. Sr. Gísli Jónasson. ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Stefán Lárusson. Organisti Kjartan Ólafsson. FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Kvöldguðsþjónusta sunnudag kl. 20.30. Organisti Guðný M. Magnúsdóttir. Prestur sr. Guðmundur Karl Ágústsson. GRAFARVOGSSÓKN. Guðsþjónusta kl. 11 í félagsmiðstöðinni. Organisti Sigríður Jónsdóttir. Ath. gengið um bakdyr félagsmiðstöðvarinnar vegna framkvæmda við aðalinngang. Vigfús Þór Árnason. KOPAVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Þorbergur Kristjánsson. SELJAKIRKJA: Engin guðsþjónusta verður í Seljakirkju en vísað á guðsþjónustur í Árbæjarkirkju kl. 11 og Fella- og Hólakirkju kl. 20.30. Sóknarprestur. HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía: Brauðsbrotning kl. 11. Almenn samkoma kl. 20. Æskulýðskór frá Kanada tekur þátt í samkomunni. HJÁLPRÆÐISHERINN. Utisamkoma Lækjartorgi kl. 16. Hjálpræðissamkoma kl. 20.30. Kaft. Ben Eivind Nygaard frá Noregi talar. KRISTKIRKJA Landakoti: Lágmessa kl. 8.30, stundum lesin á ensku. Hámessa kl. 10.30. Lágmessa kl. 14. Rúmhelga daga lágmessa kl. 18, nema laugardaga kl. 14. Ensk messa laugardagskvöld kl. 20. MARÍUKIRKJA Breiðholti: Messa kl. 11. Rúmhelga daga 18.30 nema fimmtudag kl. 18.30 og laugardag kl. 14. SJÓMANNAHEIMILIÐ Örkin, Brautarholti, (Færeyska sjómannaheimilið): Samkoma kl. 17. Jens Pétursson talar. HAFNARFJARÐARKIRKJA: < Messa kl. 11. Fyrstamessa eftir stækkun söngpalls og gefst færi á að skoða hann eftir messu. Organisti Helgi Bragason. Sr. Gunnþór Ingason. BESSASTAÐAKIRKJA. Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Bjarni Þór Bjarnason. Organisti Þorvaldur Björnsson. Sóknarnefnd. KAPELLA ST. Jósefssystra Garðabæ: Hámessa kl. 10, lesin á þýsku. KÁPELLAN St. Jósefsspítala: Hámessa kl. 10.30. Lágmessa rúmhelga daga kl. 18. KARMELKLAUSTUR: Hámessa kl. 8.30. Rúmhelga daga messa , kl. 18. KAÞÓLSKA kapellan, Keflavík: Messa kl. 16. GRINDAVÍKURKIRKJA: Messa kl. 11. Organisti Ester Ólafsdóttir. Kór kirkjunnar syngur. Soknarprestur. KAPELLAN NLFÍ, Hveragerði: Messa kl. 11. Sigrún Óskarsdóttir prédikar. HRAUNGERÐISKIRKJA: Messa kl. 13.30. Sr. Kristinn Ág. Friðfinnsson. STÓRA NÚPSKIRKJA: Messa kl. 21. Sr. Axel Árnason. ÞINGVALLAKIRKJA: Messa kl. 14. Organisti Einar Sigurðsson. Sóknarprestur. ÓLAFSVÍKURPRESTAKALL: Messa í Ingjaldshólskirkju kl. 11. Organisti Friðrik Stefánsson. Messa í Ólafsvíkurkirkju kl. 14. Organisti Nanna Þórðardóttir. Sr. Friðrik Hjartar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.