Morgunblaðið - 17.08.1991, Blaðsíða 40
- 40
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17: ÁGÚST 1991
// öKiLclíJ efóir ncimerií fitt og </'é
JkuLum íccta. þig t/iba..*
Ást er ...
TM Reg. U.S. Pat Off. —all rights reserved
° 1991 Los AngelesTimesSyndicate
Með
morgimkaffinu
Þú verdur orðinn grá-
skeggjaður og ég hvíthærð
áður en þú ákveður brúð-
kaupsdaginn okkar___
r>
HÖGNI HREKKVISI
„AMMA BfZAUT H£l--GÆTiœou h'AP
EIHUM NÚ/MER 3? ?"
Reisum heimspekingn-
um frekar miimisvarða
Nú er rétt lokið við sprenging-
arnar miklu á bílastæðahornlóðinni
við Hverfisgötu og Smiðjustíg og
mikil steypuvinna hafín sem ekki
fer framhjá neinum sem þar á leið
hjá. Þar á enn eitt bílastæða-
skrímslið að rísa ásamt hæfilegum
fermetraskammti fyrir viðskipta-
lífíð. Okkur er talin trú um að
miðbærinn deyi verði ekki þessi
steinsteypumusteri hespuð upp um
alla borg sem allra fyrst og það
sem allra stærst. Það var og.
En væri ekki samt miklu
skemmtilegra og meira viðeigandi
á þessari umræddu Hverfisgötu-
hornióð að reisa þeim manni
minnisvarða sem einmitt bjó
lengstan hluta ævi sinnar á þeim
stað í lifanda lífi hér? Manni sem
helgaði mestallt líf sitt, æru og
heilsu hugsjónastarfi því sem hann
lagði fram og trúði svo staðfast-
lega á? En það var auðvitað dr.
Helgi Pjeturss jarðfræðingur (f.
1873,- d. 1949) sem setti fram
Nýjalskenningarnar í samnefndum
sex bókum sínum (Nýjall, Ennnýj-
all, Framnýjall, Viðnýjall, Sannýj-
all og Þónýjall).
Án alls efa er dr. Helgi einn af
mestu hugsjónamönnum sem ís-
lenska þjóðin hefur alið af sér og
er stórlega vanmetinn hugsuður
um líffræðiheimspeki lífsins á jörð-
inni og í alheimi.
Dr. Helgi áleit strax árið 1920
í bók sinni Nýjal að alheimurinn
væri fullur af lífi og hlaut aðhlátur
mikinn fytir. Það hlær engin leng-
ur að þessari lítt umdeildu stað-
reynd vísindanna í dag. Hann áleit
líka eftir skoðunum forn-Grikkja
að framlíf allra jarðarbúa færi
fram á öðrum hnöttum annarra
sólkerfa ýmist í okkar vetrarbraut
eða öðrum. Eða eins og Grikkirnir
orðuðu það að lífið á jörðinni kæmi
frá stjörnunum og færi aftur til
stjarnanna.
En kjarnann í kenningum sínum
orðaði Helgi á þann veg „að það
sem þúsundir - milljóna hafa
haldið véra líf í Goðheimi eða
andaheimi er lífið á öðrum
hnöttum“. Svo mörg voru þau
orð. Og fleiri þurftu þau líklega
ekki að vera.
En hvað sem mönnum finnst
annars um sérvitringinn Helga
Pjeturss þá er hann og brautryðj-
andastarf hans bæði í jarðfræði
(doktorsritgerð hans um landslag
Islands og ógnarverk ísaldaijökl-
anna; Om Islands Geologi — við
Kaupmannahafnarháskóla rétt í
bytjun aldarinnar) sem og heim-
speki slíkt gullaldarafrek að fáu
verður til jafnað í hugsun, víðsýni,
frumleika og dirfsku hér á landi.
Það eitt ætti örugglega að nægja
til að halda minningu meistarans
á loft. Enda á ailan máta viðeig-
andi í dag í ljósi nálgunar nútíma-
vísinda til skoðana dr. Helga.
Magnús H. Skarphéðinsson
Gleraugri
Ungur piltur á Akureyri hjólaði
á íþróttavöllinn þann 4. júlí sl. Á
ieiðinni varð hann fyrir því óhappi
að týna gleraugunum sínum. Þau
hafa trúlega verið í appelsínugulu
hulstri. Ef einhver hefur orðið
þeirra var er viðkomandi vinsamieg-
ast beðinn að koma gleraugunum
til skila á Lögreglustöðina á Akur-
eyri.
Læra stalínistar
ekkertaf
Frólegt væi’i það ef gerður yrði
sagnfræðilegur samanburður á
þessum tveimur stjórnarbyltingum
sem gerðar voru á þessari öld. Bylt-
ingarinnar í Rússlandi 1917 og svo
þeirrar á Spáni. í Rússlandi var
komið á stjórnarfari sem afmáði öll
mannréttindi en á Spáni var bylt-
ingin gerð til þess að þjóðin fengi
aftur lýðræði og mannréttindi.
Frankó stjórnaði sem einvaldur
til að byija með og fékk svo þjóð-
inni fullt sjálfræði með þingbund-
inni konungsstjórn. Þetta gat
Frankó þrátt fyrir að England setti
viðskiptabanná Spán. Lenín og hans
félagar fengu aftur á móti matvæli
og annan fjárhagslegan stuðning
en hvernig skyldi svo marx-lenin-
stalínisminn við þjóðina? Spánn var
orðið frægt ferðamannaland með
sæmilegum lífskjörum þegar
Frankó hætti að stjórna. En hvern-
ig eru lífskjör almennings núna í
Rússlandi?
Frankó notaði sér kaldastríðið
út í yrstu æsar. Bandaríkin urðu
sögnmu?
að hafa „keflavíkurflugvöll" á
Spáni, og lét Frankó þá borga og
það vei og sagði sem satt var, að
allt sem ameríkanarnir þyrftu að
byggja yrði kyrrt á Spáni þegar
þeir færu. Og þó að einhverjh'
hernámsandstæðingar hefðu getað
galað um hættuna af veru Banda-
ríkjamanna á Spáni, þá var því
ekki ansað.
Aftur á móti lét Frankó allt það
fé sem Bandaríkjamennn greiddu
honum fara í vegagerð, sem marg
borgaði sig. Og ferðamenn
streymdu til Spánar, ekki síst vegna
góðra vega.
Við fórum öðruvísi að. Ekki mátti
leggja góðan veg frá Keflavík til
Hvalijarðar, því. það átti að vera
niðurlæging fyrir þjóðina. íslenskan
var í hættu og ég veit ekki hvað.
Öll þessi vitleysa var gerð undir
yfirskini þjóðrækninnar. Á bak við
þessa frelsisbaráttu stóð KGB. Geta
stalínistarnir ekkert lært af söguni?
Húsmóðir
Víkverji skrifar
Víkveiji hefur verið tíður gestur
í Perlunni undanfarnar vikur
og hefur flest gott um þær heim-
sóknir segja. Þangað er bæði gaman
og gott að koma með erlenda sem
innlenda gesti. Allir sainferðamenn
Víkveija í þessum heimsóknum hafa
verið dolfallnir yfir hönnun þessa
liúss og lýst undrun sinni og ánægju
með hversu vel hefur tekist til. Lítill
linokki í för með Víkvetja varð agnd-
ofa þegar liann kom inn um snún-
ingshurðina og leit í kring um sig:
„Vá! Þetta er flottara en höll!“ hróp-
aði hann. ítalskur blaðamaður sem
Víkveiji vildi endilega sýna þetta
nýjasta stolt Reykvíkinga sagðist
viss um að Perlan yrði sökum sér-
stæðni og hönnunar heimsfræg inn-
an tíðar.
XXX
að er ákaflega skemmtilegt á
fögrum sumardögum eins og
við höfum notið í sumar að fá sér ís
í veitingasalnum og rölta svo úti
eftir útsýnishring Perlunnar og njóta
þess sem fyrir augu ber. Frágangur
við útsýnisskífurnar og þær upplýs-
ingar sem þar hefur verið komið svo
smekklega fyrir er einnig til fyrir-
myndar. Það hefur verið fróðlegt að
leggja við eyrun úti á pallinum og
heyra undrun erlendu ferðamann-
anna þegar þeir komast að raun um
að það kostar ekkert að skoða útsýn-
ið í hinum ágætu sjónaukum útsýnis-
pallsins. Engin myntrifa neins stað-
ar! Víkveiji ætlar rétt að vona að
þar sé ekki um tímabundið ástand
að ræða, heldur varanlegt.
xxx
Starfsfólk Perlunnar er ungt, lip-
urt og elskulegt fólk, en eitt á
það ólært, samkvæmt reynslu
Víkveija. Það er vinnulag og að
haga vinnuhraða sínum í samræmi
við annríki hverju sinni. Flest skiptin
sem Víkveiji hefur sótt Perluna heim
hefur verið mikið annríki. Mest er
biðröðin við ísafgreiðsluna, þar sem
fá má ljúffenga kúluísa eða mjúka
ísa. Ekkert er yfir bragðinu að
kvarta, síður en svo. En afgreiðslu-
fólkið virðist einfaldlega ekki geta
haft hröð handtök, það er alltaf í
fyrsta gír, jafnvel þótt ísröðin nái
út að lyftu.
Það sama á við um kaffiafgreiðsl-
una. Sem betur fer er boðið upp á
prýðiskaffi í Perlunni, hefðbundið,
expresso og svo cappucino. Víkveiji
er í hópi cappucino-aðdáenda. En
að fá sér cappucino í Perlunni er
sannkallað þolinmæðisverk. Það er
með ólíkindum að fylgjast með verk-
laginu, eða öllu heldur verkleysunni
þegar lagaður er einn bolli af þessu
ítalska sælgætiskaffi. Ekki minna
en tíu mínútur tekur það, og stúlk-
urnar vandræðast í gegnum verkið,
án þess að kunna til þess, og nota
ekki einu sinni þægilegustu áhöldin.
Þetta verður allt að skrifast á kostn-
að þess sem rekur veitingasöluna í
Perlunni. Hann hefur ekki undirbúið
ungt og óreynt starfsfólk sitt sem
skyldi, eða veitt því þá starfsþjálfun
sem það ætti réttilega að fá, áður
en því er fleygt út í afgreiðsluna.
Þetta finnst Víkveija miður, því það
er augljóst af Ijúfmannlegri og glað-
legri framkomu starfsfólksins að
efniviðurinn er fyrir hendi.
x x x
Raunar hallast Víkveiji að því
að þetta vandamál sé ekkert
einkavandamál Perlunnar, því mjög
algengt virðist vera i afgreiðslu- og
þjónustufyrirtækjum yfir sumar-
tímann, að skólafólkinu sé þjálfunar-
og eftirlitslaust kastað út í hringiðu
starfsins, án þess að fá lágmarkstil-
sögn. Auðvitað er þetta miður, því
það er margsannað að miklum mun
erfiðara er að kenna gömlum hundi
að sitja en livolpi.