Morgunblaðið - 22.08.1991, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 1991
ÆL B1AGK&
DEGKER
ÖFLUG 0G
ENDINGARGÓÐ
STRAUJÁRN
BIACKSDECKER straujárn.
Fást í öllum helstu raftækja-
verslunum og stórmörkuðum.
SKEIFAN 8 - SlMI 812660
Dyrasímarfra
m FfTrTTT^
Smekklegt útlit og gæði dyrasíma-
búnaðarins frá Siedle er óþarfi að
kynna hér eftir áratuga frábæra
reynslu íslendinga af honum. Þau
þægindi og það öryggi sem hon-
um er samfara réttlæta það að
þú klippir út þessa auglýsingu og
hafir samband við okkur. Þar
færðu greinargóðar upplýsingar
og myndabæklinga.
m P^mrTTTn
SMITH OG NORLAND
Nóatúni4,
s. 28300.
0OEXION
IMPEX
hillukerfi
án
boltunar
'r
LANDSSMIÐJAN HF.
Verslun: Sölvhólsgötu 13
Sími (91)20680
OLOF NORDAL
Ólöf Nordal við verk sitt, Reisn (1991).
Myndlist
EiríkurÞorláksson
Gallerí Sævars Karls í Banka-
stræti 9 hefur fyrir venju að bjóða
upp á sýningar sem standa í mán-
uð í senn, þannig að það gefst
rúmur tími til að sjá sýningarnar,
vega þær og meta. Þetta er góð
tilbreyting frá því sem almennt
ríkir í sýningarsölum borgarinnar,
þar sem sýningar standa stundum
aðeins í viku, en upp í sautján
daga lengst. Menn mega því hafa
sig alia við til að missa ekki af
neinu merkilegu, svo ekki sé
minnst á ef einhver sýning er
þess virði að sjá hana oftar en
einu sinni. Því er sýningartíminn
í Galleríi Sævars Karls vel
þegin regla.
I ágústmánuði hefur staðið yfir
sýning _ á verkum ungrar lista-
konu, Ólafar Nordal. Olöf stund-
aði nám við Myndlista- og handíð-
askólann á árunum 1981-85, en
fór síðan utan til framhaldsnáms,
og hefur nú nýlokið meistaragr-
áðu frá bandrískum listaskóla.
Nám hennar hefur til þessa eink-
um verið á textílsviðinu, en hér
sýnir hún þó ekki textílverk, held-
ur pappírsþrykk og höggmyndir.
Því má segja að námið hafi leitt
Ólöfu í nokkuð aðra átt en hún
hafði ætlað í upphafi, og afrakst-
urinn sést að hluta í hinum litla
sýningarsal gallerísins.
Eins og eðlilegt er hjá ungu
listafólki, er Ólöf í þessum verkum
að leitast við að kanna undirstöð-
una, sem hún á eftir að vinna úr;
grunnformin, uppruna þeirra og
túlkunarmöguleika. Þetta gerir
listakonan í nokkrum teikningum
og höggmyndum, eins og fyrr
segir, og í sýningarskrá skilgrein-
ir hún leit sína með fáeinum orð-
um: „Teikningarnar eru form sótt
í landslag, skúlptúrarnir landslag
sótt í teikningarnar.
Þannig er sýningargesturinn á
vissan hátt leiddur í hálf-hring,
en sú líking á vel við í þessu til-
viki þar sem boginn er ríkjandi
form í verkum Ólafar, og hring-
formið undirstaða útfærslunnar.
Þetta sést vel í þeim myndum sem
eru unnar á pappír, en form þeirra
endurspeglast síðan á vissan hátt
í mjúkum bogamyndum högg-
myndanna. — Þau verk sem eru
mest grípandi eru á gólfinu. Ann-
ars vegar er „Reisn“, sem í lit og
formi vísar til hinnar lifandi nátt-
úru, og hins vegar „Skrið“, sem
frekast bendir til steinsins og jarð-
arinnar, þess sem aðeins máist
og mótast í eilífðinni.
Þessi sýning ber vott um nokk-
uð mótaða formhugsun, og úr-
vinnslan er einnig góð í verkunum
sem hér ber fyrir augu. Það verk-
svið, sem listakonan hefur kosið
að binda sig við á sýningunni,
skilar henni nokkuð vel áleiðis
í myndlistinni.
Sýningu Ólafar Nordal í Gallerí
Sævars Karls lýkur 30. ágúst.
FileMaker • Macintosh
©
<%>
Námskeið fyrir alla sem vinna úr upplýsingum! v
12 klst hagnýtt gagnasafnsnámskeið!
*<?
%
Tölvu- og verkfræöiþjónustan
Grensásvegi 16 - fimm ár í forystu
GIVENCHY
snyrtivörur
Kynnum í dag haustlitina frá GWENCHY kl. 13-17
Clara, Austurstræti
Fasteigna- 8t fírmasalan
Nýbýlavegi 20
®42323 ®42111 ®42400
Vegna mikillar sölu undanfarið vantar
okkur allar gerðir af fyrirtækjum á skrá
Sýnishorn af söíuskrá:
★ Heildverslun með sælgæti.
★ Heildverslun með matvöru.
★ Skiltagerð (Ijósaskilti - messing).
★ Búsáhaldaverslun og leikföng.
★ Sérhæfð húsgagnaverslun.
★ Skóverslanir.
★ Gistiheimili.
★ Skyndibitastaðir.
★ Veitingastaðir.
★ Matvöruverslanir.
★ Söluturnar.
★ Gleriðja.
★ Verslun sem selur notað og nýtt.
★ Pylsuvagnar.
★ Bónstöð.
★ Og fleira og fleira.
Hafið samband. Látið drauminn rætast.
Veitum faglega þjónustu.
Kristinn Kjartansson, Friðrik Gunnarsson,
Þorbjörg Karlsdóttir ritari, Guðmundur Þórðarson hdl.
Samtök gegn aðild Islands
að EES og EB stofnuð
STOFNFUNDUR samtaka gegn
aðild Islands að Evrópska efna-
hagssvæðinu og Evrópubanda-
laginu verður haldinn að kvöldi
29. ágúst að Hótel Borg.
í fréttatilkynningu frá hópi sem
unnið hefur að undirbúningi stofn-
fundarins er því fagnað að dráttur
hefur orðið á samningum Íslend-
inga um aðild að Evrópsku efna-
hagssvæði. Jafnframt er boðuð
söfnun almennra undirskrifta und-
ir áskorun til ríkisstjórnarinnar um
að hætta við frekari samnings-
gerð.
NEÐSTALEITI - 3ja
Vorum að fá í sölu sérlega vandaða ca 85 fm íbúð á
3. hæð. Parket. Sérþvottaherb. í íb. Stæði í bílskýli.
Stór og góð sameign. Svalir í suðvestur. Mikið útsýni.
Lyngvík hf., fasteignamiðlun,
Síðumúla 33,
símar 679490 - 679499.
Ármann H. Benediktsson, Geir Sigurðsson lögg. fastsali.
Barðavogur - 4ra herb
Glæsileg 4ra herb. rishæð í þríbýli. Stofa, borðstofa,
sólstofa, 2 svefnherb. og svefnloft. íbúðin svo til öll
endurnýjuð. Parket. Stór, ræktuð lóð. Verð 7,8-7,9 millj.
Upplýsingar gefur:
HUGINNt fasteignamiðlun,
Borgartúni 24,
sími 625722.
SVERRIR KRISTJÁNSSON, LÖGG. FAST.
HÚS VERSLUNARINNAR 6. HÆÐ
if <F
Hverafold
Falleg 155 fm efri sérhæð ásamt bílskúr. Þar af
er 35 fm herb. í kjallara. Staðsetning og útsýni
mjög gott. Áhv. langtlán ca 5,0 millj.