Morgunblaðið - 22.08.1991, Blaðsíða 43
£>
■
I
I
I
I
1
I
.
>
>
MORGUNBLAÐIÐ
> - ^ •• ' ........................ ■
IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 1991
SUND / EVROPUMEISTARAMOTIÐ I AÞENU
Ragnheiður Runólfsdóttir tvíbætti eigið íslandsmet í 200 m bringusundi á Evrópumeistaramótinu í Aþenu í gær,
og varð í sjöunda sæti í greininni. Það er annar besti árangur íslendings í sundi fyrr og síðar.
KORFUKNATTLEIKUR / BANDARIKIN
Allir þeir bestu með
á ÓL í Barcelona?
MICHAEL Jordan, körfuknatt-
leikskappi frá Chicago Bulls,
og Larry Bird, Boston Celtics,
hafa báðir lýst yfir áhuga sínum
á að leika með bandaríska
landsliðinu á Óiympíuleikunum
i Barcelona næsta sumar, skv.
frétt í bandarísku blaði t gær.
Karl Malone og John Stockton
frá Utah, David Robinson, San
Antonio, Charles Barkley, Phila-
delphiu, Chris Muilin, Golden State
og Scottie Pippen, Chicago, hafa
einnig sagt að þeir væru tilbúnir
til að leika með ólympíuliðinu. Áður
höfðu Earwin.„Magic“ Johnson hjá
Los Angeles Lakers og Patrick
Ewing hjá New York Knicks sagst
tilbúnir að leika með liðinu.
Það verður síðan ákveðið 21.
september hvaða leikmenn komi til
með að skipa bandaríska liðið í
Barcelona.
KNATTSPYRNA / ÞÝSKALAND
Stuttgart sigraði
Hansa Rostock
Stuttgart sigraði Hansa
Rostock, 3:0, í 4. umferð Bun-
desligunnar í knattspyrnu á
Neckar-leikvanginum í gærkvöldi.
Þetta var fyrsta tap Hansa Rostock
i deildinni. Sammer skoraði fyrsta
mark Stuttgart í lok fyrri hálfleiks
og síðan bættu Walter og Gaudino
tveimur mörkum við í síðari hálf-
leik. Stuttgart hafði mikla yfirburði
og sigurinn sanngjarn. Eyjólfur
Sverrisson lék ekki með Stuttgart.
Hans Rostock heldur enn efsta
sætinu á markahlutfalli þrátt fyrir
tapið, hefur 6 stig eins og reyndar
Hamburger, Frankfurt, Kaisers-
lautern og Leverkusen. Stuttgan,
fylgir fast á eftir með 5 stig ásamt
Bayern Múnchen og Dortmund.
Ragnheiður tvíbætti
íslandsmetið í
200 m bringusundi
Hafnaði í 7. sæti, sem er næst besti árangur sem íslendingur hefur náð á EM
RAGNHEIÐUR Runólfsdóttir
stóð sig vel í 200 metra bringu-
sundi á Evrópumeistaramótinu
í Aþenu ígær. Hún tvíbætti
íslandsmetið og hafnaði í 7.
sæti, sem er næst besti árang-
ur sem íslendingur hefur náð
á EM. Það er aðeins Eðvarð
Þór Eðvarðsson sem hefur gert
betur er hann hafnaði í 4. sæti
íbaksundi á EM 1987. Bræð-
urnir, Arnar Freyr og Magnús
Már Ólafssynir, settu einnig
íslandsmet í gær, Arnar Freyr
í 400 m fjórsundi og Magnús
Már í 100 m flugsundi.
agnheiður Runólfsdóttir
tryggði sér rétt til að keppa í
úrslitasundinu með því að ná átt-
unda besta tímanum í undanrásun-
um á glæsilegu íslandsmeti 2:34,78
mín. Gamla metið sem hún átti sjálf
var 2:35.98 mín. í úrslitasundinu
gerði hún enn betur og kom í mark
SKIÐI
Landsliðið til
borgarinnar í dag
Skíðalandsliðsmennirnir sem
em að hjóla umhverfis landið
eru langt á undan áætlun og verða
væntanlega komnir að Borgar-
kringlunni kl. 10.00 í dag. Upphaf-
lega var gert ráð fyrír því að það
tæki strákana 7 sólarhringa að
hjóla þessa 3.000 km. í gærkvöldi
voru skíðakapparnir staddir í
Stykkishólmi og hafði meðalhraðinn
þá verið 25 km á klukkustund.
Þeir eru því tveimur sólarhringum
á undan áætlun.
á 2:34.08 mín. og varð sjöunda.
Þessir tímar eru undir ólympíulág-
markinu og er hún eini íslenski
sundmaðurinn sem náð hefur lág-
mörkum. Magnús Már var aðeins
0,20 sek. frá ól-lágmarkinu í 200
m skriðsundinu á þriðjudag.
„Mjög ánægð“
„Ég er mjög ánægð með sundið
og það var gott að bæta sig aftur
í úrslitunum. Ég var búin að hvíla
fyrir þetta mót í tíu daga og stefndi
á að bæta mig og það gekk upp,“
sagði Ragnheiður eftir sundið. Hún
var eina stúlkan frá Norðurlöndum
sem náði inní A-úrslit og undirstrik-
ar það enn frekar árangur hennar.
„Nú er næsta verkefni að bæta sig
í 100 metra bringusundinu líka, en
sú keppni fer fram á föstudag."
Hún sagði að allur aðbúnaður kepp-
enda væri góður nema að maturinn
mætti vera betri.
Bræðurnir settu Islandsmet
Arnar Freyr Ólafsson setti ís-
landsmet í 400 m fjórsundi er hann
synti á 4:39,43 rtlrn. Hann bætti
met Arnþórs Ragnarssonr, sem var
4:48,31 mín. - sett á meistaramóti
íslands í júlí. Arnar Freyr var í 17.
sæti af 20 keppendum í undanrás-
um. Hann bætti fyrri árangur sinn
um 10 sekúndur.
Arnþór Ragnarsson varð í átj-
ánda sæti í sama sundi á 4:48,05
mín. sem var einnig undir gamla
íslandsmetinu.
Magnús Ólafsson setti íslands-
met í 100 m flugsundi á 57,78 sek.,
en gamla metið var 59,90 sek. og
átti hann það sjálfur. Hann varð
27. af 30 keppendum, en þetta er
aukagrein hjá Magnúsi.
Helga Sigurðardóttir varð 29. af
32 keppendum í 200 m skriðsundi,
synti á 2:09,77 mín.
Danir á uppleið
Mette Jaconbsen frá Danmörku
varð Evrópumeistari í 200 m skrið-
sundi á 2:00,29 mín. Þetta voru
önnur gullverðlaun Dana á mótinu
því kvennasveitin sigraði í 4X200
m fjórsundi á þriðjudag. Danir
höfðu ekki unnið gullverðlaun á EM
í 53 ár.
Sovétmenn sigursælir
Sovétmenn hafa verið sigursælir
á mótinu og í gær unnu þeir fern
gullverðlaun. Vladislav Kulikov
varð Evrópumeistari í 100 flug-
sundi karla á 54,22 sekúndum.
Elena Rodkovskaia sigraði í 200
metra bringusundi kvenna, synti á
2:29.50 mín. Andrei Semeniyk sigr-
aði 1 dýfingum og sovéska karla-
sveitin sigraði í 4X200 m skrið-
sundi.
URSLIT
Knattspyrna
1. DEILD KVENNA
Týr - Þór..............2:6
Slcfanía Guðjónsdóltir, Sara Ólafsdóttir -
Ellen Óskarsdóttir 2, Inga Huld Pálsdóttir,
Þórunn Sigui'ðardóttir, Lára Eymundsét|*-*
ir, Iris Thorleifsdóttir.
VINÁTTULANDSLEIKIR
Gdansk, Póllandi:
Pólland - Svíþjóð..............2:0
Wojciech Kowalczyk (59.), Miroslaw Trzec-
iak ;(90.). Áhorfendur: 7.000
Prag, Tékkóslóvakiu:
Tékkóslóvakía - Sviss..........1:1
Milan Luhovy (18.) - Kubilay Turkyilmaz
(25.) Áhorfendur: 4.000.
ENGLAND
1. deild í gærkvöldi:
Aston Villa - Manchester litd....0:1
- Steve Bruce (vsp. 39.)
Manchester City - Liverpool......2:1
David White 2 (24., 64.) - Steve McMana-
man (75.)
Coventry - Luton.................5:0
Kevin Callagher 2, David Smith, Paui4|f.i j
long, Robert Rosario.
Oldham - Chelsea...................3:0
Ian Marshall, Rick Holden, David Currie.
QPR - Norwich....................0:2
- Dale Gordon, Rob Newman.
ÞÝSKALAND
Úrvalsdeildin, 4. umferð:
Mönchengladbach - Werder Bremen..0:2
Dortmund - Diisseldorf...........3:1
Bayern Miinchen - Schalke........3:2
Nurnberg - Dynamo Dresden........1:1
Wattenscheid - Karlsruhe.........1:1
Leverkusen - Duisburg............2:1
■Uif Kirsten gerði bæði mörk Lverkusen.
Kaiserslautern - Stuttgart Kickers.4:3
Hamburger - Köln.................1:1
Frankfurt - Bochum.......... ....2:1
Stuttgart - Hansa Rostock..........3:0
EVRÓPUKEPPNI FÉLAGSLIÐ&
Forkeppni Evrópumótsins, fyrri leikir.
Vín, Austurríki:
SV Stockerau - Tottenham.........0:1
Gordon Durie (39.). Áhorfendur: 15.000
Galway, írlandi:
Galway - OB (Danmörku)...........0:3
- Morten Donnerup (38.), Steen Ned-
ergárd (46.), Lars Elstrup (68.)
Áhorfendur: 7.000
HOLLAND
Deildarkeppnin:
Ajax — FC Volendam................3:0
FC Den Haag — Vitesse Arnhem.......0:3
FC Twente — MVV Maastricht.........1:0
Willem II - WV Venlo...............4:0
Roda JC — SVV/Dordrecht.........ggr.h
De Graafschap — FC Groningen......0:o
Belgía
1. deildin:
Waregem - Molenbeek...............1:0
Aalst - Kortrý'k..................0:1
Gen - Anderlecht..................0:0
Lierse - Antwerpen...............,0:1
Club Brugge - Ghent...............5:1
FC Liege - Standard Liege.........
Lokeren - Cercle Brugge...........TnHr^
Ekeren - Mechelen.................0:1
Beveren - Charieroi...............0:0
KNATTSPYRNA / ENGLAND
Man. City sigradi Liverpool
Manchester City sigraði Li-
verpool á heimavelli í ensku
1. deildinni í gærkvöldi. David
White var hetja liðsins, gerði
bæði mörkin. Hinn ungi Steve
McManaman minnkaði muninn
fyrir Rauða herinn og síðan fékk
Dean Saunders gullið tækifæri til
að jafna, er Liverpool fékk víta-
spyrnu sjö mín. síðar en hann
þrumaði í þverslá.
City hefur þar með sigrað í
tveimur fyrstu leikjum sínum og
er efst ásamt nágrönnum sínum
í Man. United, sem unnu Aston
Villa í gærkvöldi, 1:0. Steve Bruce
gerði eina mark leiksins á Villa
Park úr vítaspyrnu á 39. mín. sem
dæmd var eftir að Steve Staunton
felldi Bryan Robson.
Oldham, sem leikur í 1. deild á
ný eftir 68 ára fjarveru, burstaði
Chelsea, 3:0, á heimavelli og Lu-
ton, sem veðmangarar telja líkleg-
asta liðið til að falla í 2. deild,
fékk háðuglega í Coventry, þar
sem heimaliðið vann 5:0. Sean
Farrell, leikmaður Luton, var rek-
inn af velli á 18. mín. og staðan
var þá orðin 1:0.
■Tottenham sigraði aust-
urríska liðið SV Stockerau 1:0 í
Austurríki í gærkvöldi, í fyrri leik
liðanna í Evrópukeppni bikarhafa.
Norðmaðurinn Erik Thorstvedt
var hetja enska liðsins; varði víta-
spyrnu í síðari hálfleik. Gordon
Durie gerði eina mark leiksins.
Guðni Bergsson lék ekki með
Tottenham.