Morgunblaðið - 22.08.1991, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. AGUST 1991
31
gerð hún er, veit ég að hún sem
önnur skyldmenni þakka að Ásdís
hefur nú fengið hvíld, en geyma
minningu um sterka og merka konu.
Blessuð sé minning hennar.
Margrét Þorsteinsdóttir
Þegar erfiðu dauðastríði er lokið
og helsjúk manneskja hefur fengið
frið og lausn finnur maður fyrst til
feginleika. Svo taka minningarnar
að sækja á og söknuður eftir því
sem var, en verður ekki aftur. Þann-
ig er um mig nú þegar Ásdís Sveins-
dóttir er öll.
Ásdísi kynntist ég fyrst fyrir 13
árum þegar ég hóf búskap með
bróðursyni hennar í næsta nágrenni
við hana. Frá fyrstu kynnum var
mér ljóst að þarna fór stórbrotin
mannkostakona og ekki breyttist sú
skoðun mín á henni eftir að kynnin
urðu lengri og meiri.
Lengst af hefur Ásdís búið og
starfað á Egilsstöðum og þegar ég
kynntist henni hafði hún tekið við
rekstri Gistihússins á Egilsstöðum
af foreldrum sínum og bjó þar ásamt
þeim. Það er afskaplega tómlegt að
hugsa sér þennan stað án hennar
því svo stóru hlutverki gegndi hún
hér. Flestir ef ekki allir þeir sem
staðnum tengjast voru líka tengdir
Ásdísi og hún lét sér annt um allt
sitt fólk, vini og venslamenn og til
hennar var gott að leita.
Ekki er svo að Ásdís hafi alltaf
verið bljúg og blíð. Hún var eins
og ég sagði fyrr stórbrotin og því
fylgdi líka stórbrotið skap. Það gat
staðið gustur af Ásdísi ef henni
mislíkaði, en hún tókst á við eigið
skap og var iðulega tilbúin til að
bæta fyrir ef henni fannst hún ekki
hafa breytt rétt og ber það vott um
stórmennsku hennar.
Hún var mikil kjarkmanneskja
og tókst á við mörg og mikil verk-
efni um ævina sem ég ætla ekki að
telja upp hér, enda aðrir sem þekktu
hana lengur betur til þess fallnir.
Kjarkur hennar kom ekki síst fram
nú er hún í nærri 3 ár barðist við
sín erfiðu veikindi. Hún hélt sitt
heimili á meðan stætt var og naut
þar aðstoðar Ingunnar dóttur sinnar
síðustu mánuðina. Þar hélt hún til
hins síðasta sínum venjum og safn-
aði um sig sínu fólki og hélt þeim
boð hvenær sem tilefni gafst til.
Þannig hafði það alltaf verið hjá
henni.
Það var ávallt mikill gestagangur
hjá Ásdísi. Bæði var að til hennar
var gott að koma og eins var henni
afar ljúft að fá fólk í heimsókn og
stóð hennar heimili alltaf opið. Unga
fólkið og börnin voru henni sérstak-
lega kærkomnir gestir. Hún var
bæði góð og örlát við þau og gerði
sér far um að þekkja þeirra innri
mann. Hún átti oft til að koma
færandi hendi að tilefnislausu.
Yngri sonur minn kallaði hana á
tímabili „Ástí ísfrænku“ og bílinn
hennar „ísbílinn". Það var nefnilega
svo oft á góðviðrisdögum að.Ásdís
kom brunandi til okkar á bílnum
sínum — það var ekki hennar háttur
að fara mjög hægt — steig út og
kallaði: Hverjir vilja ís? Það þurfti
ekki að bíða lengi eftir að öll börnin
sem voru að leik í nágrenninu hóp-
uðust í kringum hana og hún út-
deildi ís á alla. Enginn mátti verða
útundan. Það var einn stór þáttur
í fari hennar að passa alltaf að eng-
inn yrði útundan og ef henni fannst
einhveijum mismunað einhvers
staðar þá tók hún ævinlega þann
hinn sama undir sinn verndarvæng
og ef henni fannst á einhvern hallað
í umræðum tók hún hiklaust hans
málstað. Sem dæmi um þetta vil ég
nefna að þegar yngri sonur minn
veiktist alvarlega og allra athygli
beindist að honum fannst henni sem
eldri bróðirinn stæði í skugganum
og naut. hann þá umhyggju hennar.
Þau voru sérstakir vinir og fór hann
oft að finna frænku sína.
Ásdís Sveinsdóttir er frá okkur
farin fyrr en við hefðum viljað. Við
hefðum öll viljað njóta nærveru
hennar og góðs félagsskapar leng-
ur. Ég er þakklát fyrir að hafa feng-
ið að kynnast Ásdísi og njóta vin-
áttu hennar þann tíma sem ég
þekkti hana. Enn þakklátari er ég
þó fyrir hönd bamanna minna að
þau skuli hafa átt Ásdísi frænku
og það er ósk mín og von að minn-
ingin um hana megi geymast með
þeim þó þau séu enn ung að árum.
Háöldruð móðir Ásdísar, Sigríður
Fanney, sér á bak umhyggjusamri
dóttur og ber hún missi sinn með
reisn eins og hennar er von. Dóttir-
in Ingunn kveður móður sem var
tilbúin til að fóma henni öllu. Ásdís
Gríma hefur misst ástríka ömmu
sem var henni afar kær. Ég votta
þeim samúð mína.
Megi minningin um Ásdísi lifa í
hjörtum okkar allra sem þekktum
hana.
Vigdís M. Sveinbjörnsdóttir
Sveinn Péturs-
son - Kveðjuorð
Fæddur 30. september 1973
Dáinn 3. ágúst 1991
Mig langar með nokkrum orðum
að kveðja besta vin bróður míns og
góðan vin minn. Ég ,mun alltaf
minnast hans sem virkilega hress
og skemmtilegs Eyja-peyja sem
alltaf hafði grínyrði á vörunum.
Sveinn var mikið fyrir að
skemmta sér og öðrum með alla-
vega uppákomum. Hann var alltaf
mjög hreinskilinn og gat maður því
alltaf treyst því að fá hans álit í
ljós, sama hversu skömmustulegt
það var. Svo man ég alltaf þegar
við fórum fjögur saman í bílnum
hans uppá hraun — hvað við hlógum
að því hversu fyndinn hann var og
hreinskilinn. Ef hann gerði ein-
hverjum grikk og viðkomandi fór í
fúlt skap, þá bað hann mann alltaf
fyrirgefningar, sama hversu lítið
það var. Hann kom mér alltaf til
að hlæja, sama í hvernig skapi ég
var. Hann var það orðheppinn og
sniðugur.
En núna er hann farinn og ég
get ekki hugsað til þess að geta
ekki skemmt mér með honum og
hlustað á hann tala. Hann er far-
inn, en maður skilur ekki að hann
komi ekki aftur. Ég skil ekki að
þetta sé endanlegt.
Ég vil votta fjölskyldu hans og
vinum mína dýpstu samúð og ég
vona að góður guð styðji við bak
þeirra í framtíðinni. Þetta er virki-
lega sár missir fyrir þau öll.
Guðrún Ágústa Ágústsdóttir
HITACHI
HJÓLSÖG
•185inm blað •
• Aðeins 4 kg •
• 1.150 W mótor •
• 5000 snúningo •
•Verð 17.900.-*
VÖLUSTEINN
Faxafen 14, Sími 679505
Umboðsmenn um allt land.
IVýll skrifstofutæknináni
Tölvuskóli Reykjavíkur gerir þér kleift að auka við
þekkingu þína og atvinnumöguleika á skjótan og
hagkvæman hátt.
Þú lærir bæði á Macintosh- og PC-tölvur, auk al-
mennrar skrifstofutækni, bókfærslu, tölvubókhalds,
verslunarreiknings og toll- og verðútreikninga.
Innritun stendur yfir.
Hringið og fáið sendan ókeypis bækling.
Erum við til kl. 22
.MjSWijSsB,,
MEÐ
HYBREX
FÆRÐU GOTT SÍMKERFI
OG ÞJÓNUSTU
SEM HÆGT ER
AÐ TREYSTA.
H YBREX AX er eitt fullkomnasta tölvustýrða sím-
kerfið á markaðnum í dag. Auðvelt er að koma
því fyrir og það er einfalt í notkun. HYBREX er
mjög sveigjanlegt í stærðum.
DÆMI: (AX 8)1- 4bæjarlínur-Alltað8símtæki
(AX32) 1 -32 bæjarlínur-Allt að 192 símtæki
Möguleikarnir eru ótæmandi.
HELSTU KOSTIR HYBREX
• Islenskur texti á skjám tækjanna.
•Beint innval.
•Hægt er að fá útprentaða mjög nákvæma sundurliðun
þ.e. tími, lengd, hver og hvert var hringt osfr.
•Sjálfvirk símsvörun.
•Hægt er að láta kerfið eða tæki hringja á fyrirfram-
ákveðnum tíma.
•Hjálparsími ef skiptiborðið annar ekki álagstímum.
•Sjálfvirk endurhringing innanhúss sem bíður þar til númer
losnar.
•Mjög auðvelt er að nota Hybrex fyrir símafundi.
•Hægt er að tengja Telefaxtæki við Hybrex án þess að það
skerði kerfið.
• Hægt er að loka fyrir hringingar í tæki ef menn vilja frið.
• Innbyggt kallkerfi er í Hybrex.
Heimilistæki hf
Tæknideild, Sætúni 8 SÍMI 69 15 00
L satMtitiguiK,
•Langlínulæsing á hverjum og einum síma.
OKKAR STOLT ERU ÁNÆGÐIR VIÐSKIPTAVINIR |
Borgarieikhúsið Morgunblaðið, augl.
Gatnamálastjóri Samband Islenskra
Reykjavíkur sveitarfélaga
Gúmmívinnustofan Securitas
Islenska óperan Sjóvá-Almennar
Landsbréf hL ofl. ofl. ofl.
^m'nndt»r
'soo