Morgunblaðið - 01.09.1991, Side 2
EFIMI
2 FRETTIR/INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. SEPTEMBER 1991
Lýsti aðeins
rökum valda-
ræningjanna
- segirsovéski
sendiherrann
ÍGOR Krasavín, sendiherra Sov-
étríkjanna á Islandi, kveðst ekki
hafa stutt valdaránið í Moskvu og
segir að hann hafi aðeins haft það
að segja þegar Jón Baldvin
Hannibalsson utanríkisráðherra
kvaddi hann á sinn fund mánudag-
inn, sem valdaránið var framið,
að um innanríkismál væri að ræða
og mennirnir, sem reyndu að ná
völdum hefðu sagst fylgja ákvæð-
um sovésku stjórnarskrárinnar.
Hann hefði aðeins greint frá rök-
um valdaræningjanna, ekki sagt
athafnir þeirra löglegar.
Jón Baldvin hafði eftir Krasavín í
Morgunblaðinu 20. ágúst, daginn
eftir valdaránið, að sendiherrann
hefði sagt að valdaræningjarnir
hefðu farið að sové'skum lögum.
Krasavín kvaðst ekki hafa haft í
hyggju að styðja valdaránið á_ fundi
sínum með Jóni Baldvin. „Ég vil
leggja áherslu á að þær upplýsingar,
sem ég greindi utanríkisráðherranum
frá, voru tilvísanir til stjómarskrár-
innar, en ekki mín skoðun," sagði
Krasavín í viðtali við Morgunblaðið
í gær.
Krasavín kvaðst hafa haft litlar
upplýsingar í höndum þegar hann fór
á fund Jóns Baldvins að morgni
mánudagsins. Hann hefði engin boð
fengið frá sovéska utanríkisráðu-
neytinu. Krasavín kvaðst hafa sagt
Jóni Baldvin að hann myndi koma
yfirlýsingum ríkis?tjórnarinnar og
utanríkisráðherrans til skila.
Sjá viðtal á síðu 20.
*
Nemendur KHI
komi á mánudag
ÁKVEÐIÐ hefur verið að nemend-
ur í almennu kennaranámi við
Kennaraháskóla íslands komi í
skólann á morgun, mánudag.
I frétt frá Kennaraháskólanum
segir að eftir kynningu samkvæmt
stundaskrá á mánudag verði seinni
hluti dagsins og þriðjudagurinn not-
aður til að ræða þau neyðarúrræði
sem grípa þurfi til vegna tilskipunar
menntamálaráðuneytisins frá 20.
ágúst um að nýtt fjögurra ára kenn-
aranám hefjist ekki á þessu hausti,
eins og áður hafði verið ákveðið.
Kennsla samkvæmt útgefmni stund-
askrá hefst svo í KHÍ á miðvikudag.
Helgi Magnússon sláttumaður Landgræðslunnar með nýslegið melgresi á sandinum við Ölfusárósa.
Landgræðslan:
Metuppskera á fræi í ár
Selfossi.
FRÆUPPSKERA þessa árs stefnir í að yerða margfalt meiri en
var síðasta ár. Nú hefur verið safnað 16 tonnum af hreinu mel-
fræi og ljóst að rúm 20 tonn munu safnast í ár á móti 4 tonnum
í fyrra. Lúpínufræið nemur 3 tonnum í ár og nægir sú uppskera
til að heilsá í tíu ferkílómetra lands.
Landgræðslan notar sex sláttu-
vélar við melskurðinn og eru af-
köstin mun meiri en í fyrra þegar
aðeins voru tvær sláttuvélar í
notkun. Véiarnar er fluttar á milli
staða. Safnað var við Eyrarbakka,
við Þorlákshöfn, í Þingeyjarsýslu,
á Héraðssöndum, í Meðallandi, á
Mýrdalssandi, í Þykkvabæ og á
Landmannaafrétti.
Þessi mikia uppskera hjálpar
mikið við næstu landgræðsluáætl-
un þar sem mikil áhersla verður
lögð á það í áætluninni að stöðva
jarðvegseyðingu þar sem upp-
blástur er í gangi. Fræið er sett
í gáma á söfnunarstöðum og byij-
að að þurrka það þar með blásur-
um í gegnum þurrkunarútbúnað
í gámunum. Síðan er það flutt í
fræverkunarstöðina í Gunnars-
holti þar sem það er fullþurrkað
og húðað með steinefnum til að
þyngja það fyrir sáningu.
Nokkuð er um að melfræi sé
handsafnað og fást 50 krónur
fyrir kílóið af fræi. Þeir dugleg-
ustu ná að safna 200 kílóum á
dag á góðu svæði. Nokkuð er um
melskurð í höndum í Meðallandi
og á Þykkvabæjarklaustri.
Ljóst er að fræupskeran verður
verulega mikil í ár af öllum teg-
undum enda tíðarfarið verið mjög
hagstætt fræbúskap Landgræðsl-
unnar.
— Sig. Jóns.
Auknar og nýjar sértekjur og þjónustugjöld:
Spamaður ríkissjóðs verði
hálfur þriðji milljaröur króna
Ráðherrar reyna að ná endanlegu samkomulagi um ríkisútgjöld yfir helgina
RÁÐHERRAR beggja stjórnarHokka vinna þessa dagana að því að
ná óformlegu samkomulagi um útgjaldaramma fjárlagafrumvarpsins
fyrir mánudag en þá er ráðgert að halda ríkisstjórnarfund auk þess
sem fundir verða hjá báðum þingflokkunum. Er stefnt að því að
afgreiða gjaldahlið fjárlaganna endanlega á ríkisstjórnarfundi á
þriðjudag. Talsverður ágreiningur er enn innan þingflokka og ríkis-
stjórnar um sparnaðarleiðir sem stefnt er að. Tillögur ráðuneytanna
gera ráð fyrir að rekstrarútgjöld verði skorin niður um 2,6 millj-
arða og auknar eða nýjar sértekjur og þjónustugjöld leiði af sér
rúmlega 2,5 milljarða kr. sparnað fyrir ríkissjóð.
Tekjuhlið fjárlaganna hefur ekki
verið tekin til umræðu á ríkisstjórn-
arfundum en ágreiningur snýst ekki
síst um hvort eigi að afgreiða niður-
skurðarrammann í heild áður en
farið er að huga að tekjujöfnunar-
þáttum tekjuskattskerfísins. Þing-
menn Alþýðuflokksins eru flestir
sagði hlynntir því að tekjutengja
frádráttarliði tekjuskattsins í ríkara
mæli en nú er gert. Hugmyndir um
að skerða sjómannaafsláttinn um
500 milljónir kr. mættu harðri and-
stöðu í báðum þingflokkunum en
eru þó enn upp á borðinu og er sú
leið talin einna líklegust til að bæta
ríkissjóði tekjutap á næsta ári auk
hugmyndar um að breikka virðis-
aukaskattinn. Fáist það ekki samn-
þykkt er talið að grípa verði til lán-
töku en það stangast á við mark-
mið ríkisstjómarinnar um að halda
lánsfjárþörf ríkissjóðs undir sex
milljörðum á næsta ári.
Þá er einnig til skoðunar að fella
niður barnabætur hjóna sem hafa
yfir 350 þúsund kr. tekjur á mán-
uði en bætur fólks með tekjur und-
ir meðallagi hækki að sama skapi.
Einnig á ríkisstjórnin eftir að
ákveða hvort gripið verður til skerð-
ingar á tekjuviðmiðun vaxtabóta,
sem myndi spara ríkissjóði 200-300
milljónir kr. skv. þeim útreikningum
sem þegar hafa verið gerðir.
Þrátt fyrir að sparnaðartillögur
á sviði heilbrigðis- og skólamála
hafi mætt mikilli mótspyrnu í þing-
flokkum hefur skólagjöldum, innrit-
unargjöldum á sjúkrahúsum og
gjaldtöku á heilsugæslustöðum ekki
verið hafnað. Heimildir Morgun-
blaðsins herma að þótt gerðar verði
breytingar á þessum tillögum muni
þær ekki skipta háum fjárhæðum.
Menntamálaráðuneytið hyggst
skera mest niður í rekstrarkostnaði
en aukningu sértekna á að halda
undir 200 milljónum. Heildarsparn-
aður ráðuneytisins nemur um 1.800
millj. í heilbrigðisráðuneytinu á að
minnka tilfærslur um tvo milljarða
en þar er einkum um að ræða bóta-
greiðslur almannatryggingakerfis-
ins af 3,6 millj. heildarsparnaði sem
ráðherra gerði tillögu um.
Sparnaðaraðgerðir félagsmála-
ráðherra eru upp á 2,6 milljarða
kr. og snúa eingöngu að aðhaldsað-
gerðum í Byggingarsjóði verka-
manna. Upphæðin er miðuð við
óbreytt útlán á næsta ári og fram-
lag ríkissjóðs vegna skuldbindinga
ríkisins. Hefur þá verið miðað við
að upphæðin verði öll gjaldfærð á
næsta ári þótt hún falli á ríkissjóð
á næstu 40 árum. Sömu aðferð á
að beita varðandi Lánasjóð ísl.
námsmanna en þar er ráðgert að
draga úr framlagi ríkissjóðs um 200
milljónir til viðbótar skerðingu sem
ákveðin var sl. vor. Aðgerðir í hús-
næðismálum beinast að því að ná
jafnvægi í sjóðnum og koma á að-
haldi m.a. með lækkun meðallána
af byggingarkostnaði en vaxta-
hækkanir munu heldur ekki vera
útilokaðar.
A þröskuldi nýrrar
tæknialdar
►Rætt við dr. Róbert Magnússon,
prófessor við Texasháskóla í Arl-
ington í Bandaríkjunum./lO
Stór-Serbía í smíðum
með vopnavaldi
►Króatísk stjórnvöld hafa hótað
stríðsyfirlýsingu á hendur Serbum
nú um helgina ef þeir leggja ekki
niður vopn ogjúgóslavneski herinn
snýr ekki í herbúðir sínar./12
Borgarkerfið eins og
vei smurð vél
►Viðtal við nýjan borgarstjóra,
Markús Örn Antonsson./ Í4
Sovétlýðveldin
► Flest bendirtii að Svoétríkin séu
nú að leysast upp og að lýðveldin
sem þau mynda verði fijáls og
fullvalda ríki í næstu framtíð./20
Vátnið
►Vatnið gerir lífíð á jörðinni
mögulegt. Líkur eru taldar á að
styrjaldir framtíðarinnar verði um
vatnið, einkum á svæðum þar sem
það er takmarkað eins og á óróa-
svæðum í Mið-Austuriöndum./28
Batvinna/
RAÐ/SMÁ
► 1-12 .
fornsögurnar
►Eru hetjur fornsagnanna að
fjarlægjast almenning? Er þörf á
námskeiðum til að færa fomsög-
urnar nær fólkinu? /1
Kem til að
kveðja fjöllin
► Sesselja Einarsdóttir fluttist til
Danmerkur fyrir tæpum 40 árum
og hefur ekki séð ættlandið í 27
ár en nú er hún á leiðinni á níræð-
isaldri til þess að vitja þess enn
einu sinni./8
Lífið sjálft er mesta
leikhúsið
►Bragi Asgeirsson myndlistar-
- maður segir frá heimsóknum á
listasöfn í Lundúnum./ 12
Mikil gersemi
►Aldarafmælis Ölfusárbrúar
minnst á Selfossi. /14
Að lausnin liggi I
augum uppi
►Benedikt Jóhannesson stærð-
fræðingur sýslar með tölur allan
liðlangan daginn. Hann ræðir hér
um hugmyndir sínar um breyting-
ar hjá lífeyrissjóðunum ogtrygg-
ingakerfi, nýlega könnun sína á
fiskeldi og hugðarefni sitt, stærð-
fræðina. /18
Dheimili/
FASTEIGNIR
►1-28
Stálgrindahús
►Rætt við Þorgeir Þorgeirsson
hjá Héðni í Garðabæ. /14
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/6/bak Karlar/Konur 38
Dagbók 8 Útvarp/sjónvarp 40
Hugvekja 9 Gárur 43
Leiðari 22 Mannlífsstr. 6c
Helgispjall 22 Fjölmiðlar 20c
Reykjavíkurbréf 22 Dægurtónlist 22c
Myndasögur 24 Kvikmyndir 23c
Brids 24 Bíó/dans 30c
Stjörnuspá 24 A fómum vegi 32c
Skák 24 Velvakandi 32c
Minningar 31/36/37 Samsafnið 34c
Fólk í fréttum 38
INNLENDAR FRÉTTIR:
2—6—BAK
ERLENDAR FRÉTTIR:
1-4