Morgunblaðið - 01.09.1991, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 01.09.1991, Qupperneq 6
6 FRETTIR/INNLENT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. SEPTEMBER 1991 AÐALFUNDUR STETTARSAMBANDS BÆNDA: Hagræðing á öllum stigum framleiðslunnar er megin- viðfangsefnið á næstu árum - segir Haukur Halldórsson, formaður Stéttarsambandsins Hvanneyri, frá Halli Þorsteinssyni, bladamanni Morgunblaðsins. HAUKUR Halldórsson, formaður Stéttarsambands bænda, sagði í ræðu sinni við setningu aðalfundar Stéttarsambandsins á Hvanneyri í gær, að hagræðing á öllum stigum búvöruframleiðslunnar hljóti að verða meginviðfangsefnið á næstu árum, þannig að verð innlendra búvara nálgist sem mest það verð sem neytendur í nágrannalöndunum þurfa að greiða fyrir sams konar vöru. Það sé eindregin krafa bænda að tryggt verði að sú verðlækkun sem þeim er ætlað að ná fram sam- kvæmt búvörusamningnum skili sér í gegnum kerfið í lækkuðu verði til neytenda, en þetta geti því aðeins tekist að hliðstæð hagræðing náist á öllum ferli vörunnar þar til hún er komin I hendur neytandans. Haukur sagði síðasta starfsár stjórnar Stéttarsambandsins hafa verið eitt hið annasamasta í sögu þess, og sumar þær ákvarðanir sem teknar hafi verið muni setja mark sitt á þróun landbúnaðarins á næstu árum. Þar bæri hæst undirbúningur og gerð nýs búvörusamnings, en einnig GATT-viðræðurnar og samn- ingaviðræður um Evrópskt efna- hagssvæði. Búvörusamningurinn Haukur sagði að afdrifaríkustu breytingarnar sem nýi búvörusamn- inginn hefði í för með sér værú þær að stuðningur ríkissjóðs við útflutn- ing landbúnaðarafurða félli niður, og jafnframt félli niður öll verð- ábyrgð ríkisins á fyrirfram ákveðnu magni mjólkur- og sauðfjárafurða. Þetta væri mjög veigamikil breyting sem krefðist nýrrar hugsunar hjá framleiðendum. Stuðningur ríkis- sjóðs við framleiðsluna væri nú minna hreyfanlegur en áður, og því yrðu bændur að meta það í nýju ljósi hvaða verðlagning á framleiðsl- unni gæfi þeim mestar heildartekj- ur, þar sem aðeins yrði um sölu á innanlandsmarkaði að ræða. Þetta kerfi gerði meiri kröfur og færði bændur nær markaðnum en undan- farin ár, og þeir yrðu nú að fara að yrkja markaðinn í bókstaflegri merkingu þess orðs. „Þetta gerir bændum einnig ljósara en áður hve allur kostnaður við framleiðslu, vinnslu og sölu afurðanna á innan- landsmarkaði hefur bein áhrif á launahluta þeirra, og hlýtur því að auka aðhald bænda að öllum kostn- aðarþáttum viðbúrekstur og rekstur afurðastöðva. í því sambandi hljóta að koma til skoðunar eignarhald og yfirráð eftir afurðastöðvunum, þannig að sá þáttur verði ekki hindr- un í vegi sameiningar og nauðsyn- legrar verkaskiptingar milli þeirra,“ sagði hann. Haukur vék að ullarmálunum í ræðu sinni, og sagði hann að margt benti til þess að sú ákvörðun ríkis- stjórnarinnar að grípa ekki til frek- ari ráðstafana til að forða Álafossi hf. frá gjaldþroti hafi verið vanhugs- uð. Rekstur fyrirtækisins hefði farið mjög batnandi undanfarið, og vandi þess fyrst og fremst verið afleiðing af rekstrarvanda fyrri ára, þar sem gífurlegur fjármagnskostnaður væri meginorsökin. „Það hlýtur að teljast ámælisvert af ríkisvaldinu sem aðal- eiganda fyrirtækisins að stefna því í gjaldþrot vitandi það að fyrirtækið skuldaði bændum meirihluta ullar- innleggs síðasta árs, sem þó er opin- ber verðlagning á, auk þess að kasta á glæ margra ára markaðsstarfsemi og ómetanlegri fagþekkingu starfs- manna. Þetta er hörmuleg staða og stóráfall fyrir ullarframleiðsluna, ekki síst með tilliti til þess mikla starfs sem unnið hefur verið á und- anfömum árum til þess að bæta gæði og meðferð íslenskrar ullar,“ sagði hann. Haukur sagði að sá rammasamn- ingur varðandi mjólkurframleiðsl- una sem væri í búvörusamningnum breytti stöðu mjólkurframleiðenda mjög mikið, en þeir koma til með að bera alla ábyrgð á útflutningi mjólkurvara og framleiðslu fyrir innlendan markað frá og með 1. september 1992. Þessi staða kallaði á meiri tiifinningu framleiðenda fyr- ir markaði og yfirráð þeirra yfír mjólkuriðnaðinum, og með hagræð- ingu hjá framleiðendum og bættri nýtingu fjárfestinga, lækkun skatt- heimtu og síðast en ekki síst alls- heijar endurskipulagningu mjólkur- iðnaðarins, væri hægt að auka veru- lega samkeppnishæfni mjólkur- framleiðslu á Islandi. Evrópska efnahagssvæðið Varðandi viðræðurnar um Evr- ópskt efnahagssvæði sagði Haukur meðal annars, að fyrir lægi að samn- ingamenn íslands hefðu gefið ádrátt um niðurfellingu á öllum gjöldum af suðurevrópskum landbúnaðar- vörum á svokölluðum Cohesion lista, sem EB hefði lagt fram í nóvember síðastliðnum, með árstíðabundnum magntakmörkunum á nokkrum þeirra, þar á meðal tómötum og gúrkum. Garðyrkjubændur hefðu í s^imvinnu við landbúnaðarráðuneyt- ið unnið að athugun á því hvernig slíkum innflutningi yrði best stýrt, en gífurlega miklu skipti hvemig frá málefnum garðyrkjunnar yrði geng- ið ef EES samningur yrði að veru- leika, þannig að hún ætti möguleika á að standast þá samkeppni, sem af slíkum innflutningi myndi leiða, og að þróunarmöguleikar hennar yrðu ekki heftir. Garðyrkjan væri þriðja stærsta búgreinin í landbún- aði hér á landi, og alveg væri ljóst að óheftur innflutningur grænmetis og blóma myndi leggja þessa atvinn- ugrein í rúst á örfáum árum. Hins vegar væru góðar líkur á því að hún gæti dafnað hér áfram og staðist erlenda samkeppni ef rekstrarskil- yrði hennar yrðu löguð, og árstíða- bundinni innflutningsvernd beitt af skynsemi og skilningi. Haukur sagði að ljóst væri að sá vörulisti, sem lagður hefði verið fram af hálfu annarra EFTA-þjóða en Austurríkis og íslands í mars síðastliðnum, og tekur til viðskipta með unnar landbúnaðarvörur innan EES, lægi nú fyrir sem formlegt tilboð hinna EFTÁ-landanna í samn- ingaviðræðunum. Þama er meðal annars um að ræða unnar mjólkur- vörur eins og jógúrt, kókómjólk og efni til ísgerðar, en einnig hefur ríki- stollstjóri úrskurðað að vörur eins og Smjörvi og Létt og Laggott myndu flokkast undir óskilgreint tollnúmer á listanum ef þær yrðu fluttar inn. Haukur sagði ljóst að ísland hefði enga fyrirvara gert við Iistann og ekki tekið þátt í viðræðum um hann, en veruleg hætta væri á því að litið yrði á vörulistann sem hluta af EES-samningnum, sem ís- land kæmist ekki hjá því að sam- þykkja ef samningar tækjust í haust, en slíkt yrði mikið áfall fyrir mjólkurframleiðsluna. Um 14,5 milljónir lítra af mjólk færu til fram- leiðslu á Smjörva og Létt og Lagg- ott, og auk þess mætti gera ráð' fyrir að innflutningur þessara vara hefði áhrif á smjörsölu, en alls færu um 30 milljónir lítra af mjólk í fram- leiðslu viðbits, og þar með gæti um helmingur af vinnsluvörum mjólkur- iðnaðarins verið í uppnámi. Haukur sagði að allur aðdragandi þessa máls væri með miklum ólík- Haukur Halldórsson, formaður Stéttarsambands bænda. indum og allt fram í miðjan júlí hefðu embættismenn utanríkisráðu- neytisins staðhæft að ekki væri ver- ið að semja um neitt sem snerti hinn hefðbundna landbúnað, annað en Cohesionlistann yfir vörur frá Suður-Evrópu. „Þetta gerist á sama tíma og landbúnaðar- og íjármála- ráðuneyti undirrita samning við Stéttarsambandið um þróun mjólk- urframleiðslunnar til ársins 1998. Fyrir liggur að landbúnaðarráðu- neytið tilkynnti utanríkisráðuneyt- inu í byijun apríl um ákvæði 9. greinar búvörusamningsins um að ekki yrði raskað jafnvægi innlendrar framleiðslu og heimamarkaðar. Þá liggur það fyrir að landbúnaðarráð- uneytinu var haldið utan við þessa samningagerð allt fram á siðustu stundu, er Stéttarsambandið krafð- ist þess að fulltrúi frá því færi til Brussel til þess að fylgjast með samningunum, þar sem fullyrðingar embættismanna og aðrar upplýsing- ar sem við höfðum undir höndum stönguðust á. Öll framvinda þessa máls vekur óhjákvæmilega upp spurningar um þekkingu og yfirsýn þeirra sem bera ábyrgð á þessari samningagerð af íslands hálfu og hæfni þeirra til að annast slíkt verk,“ sagði Haukur. GATT-viðræðurnar Haukur sagði að það sem komið hefði á óvart í tilboði íslensku ríkis- stjórnarinnar, sem lagt var fram í GATT-viðræðunum í október síðast- liðnum, hafi verið fyrirheit um að rýmka innflutningsheimildir á unn- um mjólkur- og kjötvörum. Þessi þáttur tilboðsins hafi verið tilkominn án nokkurs samráðs við Stéttarsam- bandið, og af því væri nánast ekk- ert hægt að ráða um það hvernig framkvæmdinni við hugsanlegan innfiutning yrði hagað, enda væri slíkt í stærstum dráttum háð því hvernig um það yrði samið innan GATT. Hann sagði að nauðsynlegt væri að átta sig á því að aðildarþjóð- ir GATT yrðu í aðalatriðum að sæta því heildarsamkomulagi sem gert yrði, og um sérsamninga eða fyrir- vara virtist ekki vera að ræða nema í mjög takmörkuðum mæli. Bein og óbein áhrif þessa væntanlega sam- komulags væru þegar farin að koma í ljós, og á hinum Norðurlöndunum og hjá þjóðum innan Evrópubanda- lagsins væri nú unnið að breytingum á landbúnaðarstefnunni með tilliti til þeirrar niðurstöðu, sem vænta mætti í GATT-samningunum. Þá tækju ýmis atriði í nýgerðum búvör- usamningi mið af þessari þróun, til dæmis að niðurgreiðslur á kindakjöt væru færðar yfir í beinar greiðslur til bænda. Undir lok ræðu sinnar sagði Haukur að höfuðvandamál íslensks landbúnaðar hefði um all langa hríð verið samdráttur í sauðfjárrækt, og sú hætta á byggðáröskun sem hann skapar þar sem ekki tekst að bæta hann upp með annarri atvinnu. „Öll- um þeim sem annt er um að dreif- býli hér á landi fái að dafna tekur sárt til þessa ástands. Þó er þessi mynd ekki alsvört. Nefna ber að samdráttur í innanlandssölu kinda- kjöts hefur stöðvast. Aukin þátttaka sláturleyfíshafa og framleiðenda í markaðssetningu afurðanna gefur vonir um að bjartara sé framundan. Þá er þess að geta að samstaða fjöldahreyfinga launþega og atvinn- urekenda ásamt ríkisvaldinu og bændum er um það að niðurfærsla framleiðsluréttarins fari þannig fram að röskun á högum bænda verði sem minnst, og þeim gefist kostur á að finna sér ný viðfangs- efni heima fyrir eða á nýjum stað,“ sagði Haukur Halldórsson. Bændur hljóta að svara kalli tímans um frjálsa viðskiptahætti - segir Halldór Blöndal landbúnaðarráðherra Hvanneyri, frá Halli Þorsteinssyni, blaðamanni Morgunblaðsins. HALLDÓR Blöndal landbúnaðarráðherra sagði í ræðu sem hann flutti á aðalfundi Stéttarsambands bænda á Hvanneyri, að fijálsir viðskiptahættir og viðurkenning á gildi markaðarins væri krafa okkar tíma, og þegar aðalfundur Stéttarsambandsins kæmi nú saman til að meta stöðu umbjóðenda sinna þá hlyti hann að svara þessu kalli tímans. Nýi búvörusamningurinn væri staðfesting á því að bændastéttin vildi taka ábyrgð á framleiðslu sinni, en sauð- fjárbændur hefðu tekið á sig miklar skuldbindingar með honum og raunar lýst því yfir að þeir væru reiðubúnir að endurmeta frá grunni stöðu sína í íslenskum þjóðarbúskap, skipulag afurðastöðva og markaðssetningu kindakjöts. Halldór sagði að það væri ekki aðeins krafa sauðfjárbænda, heldur væri það einnig krafa neytenda að að sami árangur næðist á vinnslu- og sölustigi dilkakjöts. Fyrir því væru sterk rök að búvörusamning- urinn kippi stoðunum undan lög- ákveðinni verðlagningu búvara. „Um leið og sauðljárbændur taka sjálfir ábyrgð á því, að framleiðsla þeirra svari til innanlandsmarkað- ar, hljóta þeir að taka það í sínar hendur Iíka, hvemig brugðist verði við breytingum markaðarins á hveijum tíma. Að öðrum kosti hljóta þeir að verða undir í sam- keppninni til lengri tíma litið,“ sagði hann. Halldór greindi frá því að hann hefði skipað nefnd þriggja manna til að kanna markaðsverðmæti ís- lensku ullarinnar, og sú staðreynd lægi þegar fyrir að bændur gætu ekki vænst þess að fá tekjur af ullinni nema spunnið væri úr henni hér á landi. Þess vegna hefði nefnd- in beint því til hans og ríkisstjórnar- innar að greitt yrði fyrir stofnun ullarvinnslufyrirtækis með því að samningar takist um afnot af tækj- um og búnaði. Landbúnaðarráðherra gat þess að á þessari stundu væri fullkomin óvissa um hvert yrði framhald samningsviðræðnanna um evr- ópskt efnahagssvæði, og vegna hraðrar atburðarrásar í heimsmál- unum beindist áhugi og athygli þjóða Evrópubandalagsins ekki að EFTA-löndunum í sama mæli og áður. Hann rakti gang mála varð- andi viðræðurnar undanfama mán- uði, en hann sagðist vera þeirrar skoðunar að málefnum landbúnað- Halldór Blöndal arins hafi verið sýnt tómlæti í við- ræðunum, og hann hefði tekið ákvörðun um að sérfræðingar land- búnaðarráðuneytisins sæktu samn- ingafundi í haust þegar ástæða væri til. Hann sagðist hafa falið Verðlagsstofnun í samráði við Samtök afurðastöðva í mjólkuriðn- aði að meta samkeppnisstöðu ís- lensks mjólkuriðnaðar ef takmark- aður innflutningur unnina mjólkur- vara kæmi til með álagningu jöfn- unargjalda. Svör yrðu að fást við ýmsum grundvallarspumingum í þessu sambandi. „Ég hlýt að viður- kenna að staða mín í þessu máli er mér • ekki að skapi. Ég hefði kosið að koma að málinu eins og það lá fyrir síðastliðið haust. Það er óhjákvæmilegt að spyija sig spurninga eins og þeirra, hvers vegna staða landbúnaðarins í samningaviðræðunum var ekki rædd opinberlega fyrr en í vor og þá eftir kosningar, og hvers vegna þróun viðræðnanna kom bænda- samtökunum í opna skjöldu, seint og um síðir,“ sagði Halldór. í máli sínu vék Halldór að áætl- unum um aðgerðir til að stöðva eyðingu jarðvegs og gróðurs á ís- landi þar sem þess væri kostur. Hann gat þess að hann hefði í sam- ráði við Stéttarsambands bænda, Samband íslenskra sveitarfélaga og umhverfisráðuneytið skipað nefnd er geri tillögu um næstu skref sem stigin verði til að friða viðkvæm landssvæði og stöðva lausagöngu búfjár þar sem umferð sé hröð og þung. Þá sagði hann að þrátt fyrir knappa stöðu ríkis- sjóðs hefði tekist að auka fjárveit- ingar á næsta ári til landgræðslu og skógræktar um 22%, og færu þeir fjármunir einkum til verkefna er unnin yrðu af bændum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.