Morgunblaðið - 01.09.1991, Page 20

Morgunblaðið - 01.09.1991, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. SEPTEMBER 1991 SOVÉTLÝflVELDIH f kjölfar misheppnaðs valdaráns í Sovetríkjunum virðist upplausn ríkjasambandsins standa fyrir dyrum. Það litla sem tengdi hessi ðlíku lýðveldi saman er nú að mestu leyti horfið og við blasir óviss framtíð - bæði í efnahagslegu og pðlitísku tilliti. Sögulegur bakgrunnur hinna 15 ríkja er mjög ólíkur, svo ðlíkur í raun, að furðu sætir að Sovétríkin skuli hafa lifað af sem ein heild svo lengi sem hau gerðu. eftir Urði Gunnarsdóttur og Guðmund Löve Armenía Stjórnarsetur: Jerevan. Flatarmái: 29.800 km2. Fólksfjöldi: 3,3 milljónir. Armenar 93,3%, Rússar 1,5%, Kúrdar 1,7%, aðrir 3,5%. Að hluta fjalllendi. Sum fjallanna eru eldvirk og jarðhræringar tíðar. Landið er auðugt af jarðefn- um, einkum kopar. Helstu atvinnu- vegir eru landbúnaður, verslun og iðnaður. Um 600 f.Kr. settust Armenar sem eru indóevrópsk þjóð, að þar sem áður var ríkið Urartú. Persar réðu landinu um tíma en það varð sjálfstætt frá 189-69 f.Kr. Þá komst landið undir stjóm Rómvetja. Kristni gerð að ríkistrú um árið 300 og Armenía því fyrsta kristna ríkið í sögunni. Armenía var undir yfir- ráðum Persa, Býsansm'ánna og araba til um 900 en þá varð landið sjálfstætt á nýjan leik. Seldjúkar unnu Armeníu á síðari hluta 11. aldar og á 16. öld náðu Tyrkir land- inu á sitt vald. Hluti þess var á valdi Persa en Rússar innlimuðu i þann hluta árið 1828. Armenar hófu sjálfstæðisbaráttu undir lok 19. aldar en Tyrkir svör- uðu með fjöldamorðum sem náðu hámarki í fyrri heimsstytjöldinni er rúmlega ein milljón Armena var j drepin og þjóðinni að mestu útrýmt j á yfirráðasvæði Tyrkja. Rússneska Armenía var lýst sjálfstætt ríki 1918 en sameinaðist Sovétríkjunum 1920, varð sovétlýð- veldi 1936. Upp úr 1970 hófu Arm- enar að krefjast sjálfstæðis og fyrir í þremur árum kom fram krafan um ! að Nagorno-Karabak-hérað í Az- j erbajdzhan, sem er að mestu byggt I Armenum, yrðu sameinað Armeníu. j Átök blossuðu upp milli þjóðanna ; og var sovéski herinn sendur á vett- ; vang árið 1990. Að Armeníu liggja ríki sem hafa átt í átökum við þjóðina og með ! því að yfirgefa ríkjasambandið eykst hættan á að nágrannaríkin seilist til valda. Þrátt fyrir þetta er öflug þjóðernishreyfing í Armeníu.' Stjórnarsetur: Bakú. Flatarmái: 86.600 km2. Fólksfjöldi: 7,145 milljónir. Azerar 78%, Rússar 8%, Armenar 8%, aðrir 6%. ÍAzerbajdzhan er fjölbreytilegt landslag, láglendi er um 40% svæðisins og um helmingur landsins er í 400-1.500 metra hæð. Helstu atvinnuvegir eru olíuvinnsla, olíu- iðnaður, orkuframieiðsla og land- búnaður. Fornleifarannsóknir hafa sýnt fram á að Azerar voru mikil menn- ingarþjóð til forna. Þeir voru undir ■■ stjórn Persa frá áttundu öld f.Kr. Arabar réðust inn í Azerbajdzhan • árið 642 og náðu landinu á sitt \ vald. Þegar arabíska heimsveldið leið undir lok á miðöldum urðu Azerar, sem upphaflega voru af írönskum stofni, fyrir auknum tyrk- neskum áhrifum. Mongólar herjuðu á Azerbajdzhan og náðu yfírráðum 1236-1498. Landið var undir stjórn 8W— Persa fram á nítjándu öld en þá seildust Rússar til áhrifa í Asíu og náðu hluta þess á sitt vald 1813 og 1828. Meirihluti Azera var áfram undir persneskri stjórn. Azerbajdzhan var lýst sjálfstætt lýðveldi árið 1918. Árið 1920 réðst Rauði herinn inn í landið og innlim- aði það í Sovétríkin, en gengið var frá formlegum sambandssáttmála 1936. Azerar hafa átt í blóðugum átök- um við nágrannalýðveldið Armeníu vegna Nagorno-Karabak. Forseti landsins var eini leiðtogi lýðveld- anna sem lýsti yfir stuðningi við valdaránið og er ekki vitað til þess að Azerar hyggist óska sjálfstæðis. Eistland Stjórnarsetur: Tallinn. Flatarmál: 45.10O km2. Fólksfjöldi: 1,57 milljónir. Eistar 61,5%, Rússar 30,3%, Úkr- aínumenn 3,1%, Hvítrússar 1,8%, Finnar 1,1 %, aðrir 2,2%. Eistland er láglent og votlent, við strönd landsins eru um 1.500 eyjar. Helstu atvinnuvegir eru land- búnaður og iðnaður. Tunga Eistlendinga er af finnsk- úgrískri ætt. Fyrstir til að heija á Eistland voru víkingar, sem fóru yfir landið á leið sinni til Kænu- garðs. Það voru afturámóti Danir og krossfararegla Sverðriddara sem lögðu Eistland undir sig 1208-27 og komu þar á kristni en Eistlend- ingar eru mótmælendatrúar. Þýska riddarareglan yfirtók hluta Sverð- riddara og keypti hlut Dana 1346. Svíar hertóku landið á 16. og 17. öld en árið 1721 náðu Rússar því á sitt vald. Eftir rússnesku byltinguna var Eistland lýst sjálfstætt ríki 1918 og 1918-20 tókst Eistlendingum að veijast bolsévíkastjórninni sem reyndi að hertaka landið. Óstöðug- leiki í stjórnarfari og hótanir ná- grannastórveldanna leiddi til valda- ráns og einræðis Páts forseta 1934. Árið 1940 var Eistland innlimað í Sovétríkin og um 60 þúsund Eist- lendingar herleiddir til afskekktra hluta Sovétríkjanna. Eistland var hersetið af Þjóðveijum 1941-1944 er Sovétmenn unnu það aftur og síðan hefur fjöldi Rússa flutt þang- að. Upp úr 1985 hófu Eistar að krefjast sjálfstæðis. Landið lýsti yfir sjálfstæði 20. ágúst 1991. Georgía Stjórnarsetur: Tíblísí. Flatarmál: 69.700 km2. Fólksfjöldi: 5,5 milljónir. Georgíumenn 68,8%, Armenar 9%, Rússar 7,4%, Azerar 5,1 %, aðrir 9,7%. Georgía er hálend og þekja skógar tæp 40% landsins. Mikil verð- mæt jarðefni eru í landinu, mang- an, kol, olía og járn. Helstu atvinnu- vegir eru landbúnaður, námagröft- ur og iðnaður. íbúar Georgíu eru m.a. komnir af Assyríu- og Úrartúbúum. Georg- ía varð konungsríki á 4. öld f.kr en Persar réðu landinu á 3. og 4. öld e.Kr. Georgíumenn tóku kristni árið 330. Á næstu þremur öldum flæktust þeir inn í átök býsanska og persneska hejmsveldisins og þjóðin sundraðist. í lok níundu ald- ar sameinuðust þjóðir Georgíu á nýjan Ieik og veldi þeirra náði há- marki á 12. og 13. öld. Við tók tímabil sviptinga; fall Konstantínópel í hendur Tyrkja 1453 einangraði Georgíubúa frá kristnum þjóðum í vestri og Tyrkir og Rússar heijuðu á þjóðina næstu aldir. Á átjándu öld náðu Rússar yfirráðum í Georgíu. Undir stjórn Rússa náði efnahagur og menning Georgíubúa sér á strik en á síðari hluta nítjándu aldar óx óánægja með stjórn zarsins. Árið 1917 lýsti Georgía yfir sjálf- stæði en lýðveldið var fyrst viður- kennt af Bandamönnum 1921. So- véskar hersveitir lögðu landið undir sig sama ár og Georgía varð sjálf- stætt sovétlýðveldi 1936. Georgíubúar hafa horft til dýrð- ardaga ríkisins á 13. öld og sjálf- stæðisins 1917 - 1921. Upp úr 1985 fór að bera á kröfum um sjálf- stæði en þeim var mætt af hörku í Moskvu, sem beitti hervaldi 1989 í Tíblísí. Georgía hefur óskað sjálf- stæðis. Hvíta-Rússland Stjórnarsetur: Mínsk. Flatarmál: 207.600 km2 Fólksfjöldi: 10,2 milljónir. Hvítrússar 79,4%, Rússar 11,9%, Pólverjar4,2%, Úkraínumenn 2,4%, aðrir2,1%. Hvíta-Rússland er láglent og um 46% er ræktað land. Helstu at- vinnuvegir eru landbúnður og iðn- aður. Hvíta-Rússland er eitt mesta hörræktarhérað Sovétríkjanna en auk þess er þar verkfæra- og véla- framleiðsla, gler- og matvælaiðnað- ur. Hið slavneska Hvíta-Rússland var hluti Kænugarðs frá 9. öld, laut Litháen 1300-1500, síðar Póllandi, og Rússlandi 1772-93. Lýðveldið var stofnað 1919 og gekk í ríkja- sambandið 1922. 1921-39 var vest- urhluti landsins undir yfirráðum Pólveija og það varð hroðalega úti í síðari heimsstyijöldinni. Hvíta-Rússland er sjálfstæður aðili að Sameinuðu þjóðunum. Sjálf- stæðisyfirlýsing þeirra á sunnudag, sem harðlínumenns studdu, er aðal- lega talin eiga að forða Kommúni- staflokknum frá því að vera bann- aður. Kazakhstan Stjórnarsetur: Alma Ata. Flatarmál: 2.717.000 km2. Fólksfjöldi: 16,54 milljónir. Rússar40,8%, Kazakhar36%, Úkraínumenn 2,1 %, tatarar 2,1 %, aðrir 19%. Kazakhstan er næststærsta lýð- veldi Sovétríkjanna. Þriðjungur þess er láglendi, þriðjungur sléttur og þriðjungur fjalllendi. Helstu at- vinnugreinar eru landbúnaður, iðn- aður og námagröftur. í Baikonur eru aðal geimskotpallar Sovét- manna. Kazakhar eru af tyrkneskum uppruna og forn hirðingjaþjóð. Kaz- akhstan komst fyrst undir yfirráð Rússa um 1730 en Kazakhar gerðu uppreisn undir lok átjándu aldar. Rússar tryggðu yfirráð sín frekar í byijun nítjándu aldar og um 1830 hófu þeir að flytja Úkraínumenn og Rússa til Kazakhstan. Þetta vakti ólgu meðal Kazakha sem börðust gegn rússneskum yfirráð- um. Árið 1917 kröfðust þeir fulls sjálfstæðis en Rauði herinn náði landinu á sitt vald og Kazakhstan varð sjálfstætt lýðveldi innan sov- éska ríkjasambandins 1920 og lýð- veldi í sovéska ríkjasambandinu 1936. Forseti landsins, Nursultan Naz- arbajev, er náinn samstarfsmaður og skoðanabróðir Jeltsíns Rúss- landsforseta. Hugsast getur að Kazakhstan og Rússland leiki aðal- hlutverkið í nýju og lausbundnara ríkjasambandi sem kann að mynd- ast á rústum Sovétríkjanna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.