Morgunblaðið - 01.09.1991, Side 38

Morgunblaðið - 01.09.1991, Side 38
38 MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRt I É UM SUNNUDAGUR-1.- SEPTEMBER 1991 KARLAR Kynbundinn KR-ingur? X' élagslegir þsettir hafa mikil áhrif á mótun einstaklingsins, ekki bara í uppvextinum heldur einnig síðar meir. Snemma stendur einstakl- ingurinn frammi fyrir því að þurfa að velja, eins og t.d. ungir drengir með hvaða liði i íþróttum þeir ætla að halda eða ganga til liðs við. Félagslegur þáttur eins og búseta ein getur ráðið því að einn KR-ingurinn bætist í hópinn. Einn morguninn hér í vor birtist Styrmir á götunni í skín- andi fínum KR-galla. Það leið ekki langur tími þar til allir guttarnir í götunni voru komnir í samskonar galla. Þeir fóru hér um eins og hjörð af sebrahest- um og hafa sparkað í allt sum- ar. Eins og um aðra einkennis- búninga afmáðist einstakling- " .urinn út og það gat verið erfitt Vað finna „sinn“ þegar kalla átti einn úr stóðinu inn á kvöldin. Þeir voru allir orðnir eins, stutt- klipptir, sólbrúnir og ljóshærðir því sama hvað háralit þeir höfðu haft um veturinn, sólin var búin að lýsa hár þeirra allra. Ekki var lengur hægt að svipast um eftir rauðri peysu eða bláum jakka, það fór enginn úr KR-gal- lanum allt sumarið. Ef ekki hafði tekist að skola úr honum að kvöldi var farið i hann skít- jl^.ugan eða blautan ef hann var ekki orðinn þurr morguninn eftir. Þannig fjölgaði KR-ingun- um í tvo hér á heimilinu og náðist nokkur áfangasigur í mömmuliði hér á heimaveili: KR 2 - Fram 1. Ég bjó hins vegar í Kópavogi þegar ég gerðist KR-ingur fyrir mörgum árum. Þá var ég á góðri leið inn í „fyrri heimsstyrjöld- ina“, eða fyrra hjónaband eins og penna er víst að orða það. Þá var ég ung og barnlaus og fór á völlinn með kærastan- um og vinum hans. í byijun þessa sumars voru KR-ingar neðstir í deildinni. Þegar ég var búin að horfa á nokkra leiki og - ^ læra af strákunum „manngang- inn" fór ég ósjálfrátt halda með þeim sem þurftu mest á stuðn- ingi að halda, þ.e. KR-ingum. Mér fannst einhvern veginn al- gjör óþarfi að fara að halda með Frömmurum, þeim gekk hvort eð var svo vel í deildinni. Ég lét heldur ekki nægja að sitja stillt og prúð á áhorfendabekknum og styðja mitt lið í hljóði, heldur hvatti ég mína menn óspart og þeir fengu sko að heyra það bæði þegar vel og illa gekk. Þessu var ekki sérlega vel tekið af strákunum sem allir voru svarnir Frammarar. Um tíma létu þeir sér nægja að ég sæti nokkuð frá þeim en svo fór að „J^lokum að þeir hættu að taka mig með á völlinn. En það þarf auðvitað ekki að orðlengja það að KR-ingar unnu bikarinn þetta sumarið og ég þykist að sjálfsögðu vita af hverju! Var þetta hinn félags- legi þáttur kvenna að vernda líf sem færði KR-ingum þarna stuðningsmann á silfurfati? (Barátta KR-inga var þá upp á líf og dauða fyrir sæti sínu í 1. deild!) Sumir myndu segja að KR-ingar hafi þarna eignast stuðningsmann vegna með- "^fæddrar aumingjagæsku kvenna. Ég held samt að það sé ekki óalgengt að konur sem af tilviljun „detta niður" í að horfa á boltaleik, velji gjarnan að halda með þeim sem verr gengur. Félagsleg staða kvenna gerir þeim allavega ókleift að velja sér félagslið í fótbolta af því mamma var markakóngur (-drottning?) og amma ein af stofnendunum! eftir Helgu Thorberg UPPÁTÆKI Ætla að skemmta land- anum á íslensku Fyrir skömmu voru stödd hér á landi Chilemaðurinn Ricardo og spænska stúlkan Simone, hann um fimmtugt, en hún mun yngri. Þau gengu hér í málaskólann Mími og ferðuðust taisvert um landið og kynntu sér land og þjóð. Er þau fóru af landi brott kunnu þau orðið talsvert hrafl í málinu og þau voru þá orðir 8 eða 9 tungumálin sem Ricardo kann meira og minna að tala. Þetta væri í sjálfu sér varla í frásögur færandi nema vegna þess að Ricardo er skemmtanastjóri Green Oasis hótelsins á Kanaríeyj- um og Simóne er hans hægei hönd í þeim efnum. Veröld/Pólaris hefur sent þangað margan Islendingin og eru menn gjarnan á einu máli um að umræddur Ricardo sé ótrúlega snjall í sínu fagi og sé það sagt án þess að það þurfi að halla á Sim- one. Baldvin forstjóri í Becko sagði í samtali við Morgunblaðið í vik- unni, að er hann dvaldi á Green Oasis síðast liðinn vetur hafi það borið á góma við Ricardo hvers vegna hann léti ekki verða af því að koma til landsins og kynnast landi, þjóð og máli. Ricardo hafi tekið því líklega og svo hafi hann birst einn góðan veðurdag í sumar ásamt Simone og ætla þau nú að æfa prógramm á íslensku fyrir landa okkar sem munu dvelja á hótelinu á komandi misserum. Ricardo og Simone tóku meðal annars þátt í Reykjavíkurmara- þoninu og komust bæði í mark. Þeir Simon Kuran t.v. og Reynir Jóhannsson leika fyrir matargesti á Argentínu. MYNDLIST Islandsvinur enn hér á ferð Hollenski myndlistarmaðurinn Douwe Jan Bakker opnaði nýverið sýningu á verkum sínum í Nýlistasafninu við Vatnsstíg. Síðan árið 1971 ogtil ársins 1985 hefur Douwe oft sýnt verk sín hér á landi og fer því að skipa flokk Islandsvina ef hann er ekki þegar sestur þar að. Sagt er um verk Douwe að hann helgi sig einkum verkefnum sem oftast eru tengd tungu og merkingu. Tvö þessara verkefna hafa verið unnin út frá íslenskum aðstæðum: „Um hið einstaka fram- lag íslands og íslensks samfélags til sögu byggingarlistarinnar, og „A vocabulary scupture in the Ice- landic Iandscape“, eins og stendur í fréttatilkynningu Nýlistasafnsins um komu Douwe hingað til lands og sýningu hans. Morgunblaðið/Þorkell Gestir á opnun sýn- ingar Douwe Jan Bakker skrafa saman við hlið eins verka hans. EKTA SKINN Nýkomnar ítalskar dömu- og herraúlpur ái BE8 únúFi Glæsibæ - Sími 812922 ATIAS EIMSTAKT VERÐ Kalda - stríðinu er lokið! KÆLI- og FRYSTI- SKÁPAR Á TILBOÐSVERÐI • Endingargóðir • Stílhreinir • Sjálfvirk afþýðing • Eins árs ábyrgð • Ótrúlegt verð GERÐ ISOLA-KR. Gerð RFI 80/80 - Verð kr. 4 I .900,- stgr. 20.900,- RONNING Sundaborg I5 * Sími 814000

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.