Morgunblaðið - 10.09.1991, Qupperneq 4
xeei 5iaaM3TS38 .015iuoAöJiaiH<j ajaAjsMuoaoM
4 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR ÍÖTSEPTEMBÉRT99r
Bandarísk flugfélög auka umsvif sín í Evrópu:
Eigum von á að sam-
keppnin verði erfiðari
- segir framkvæmdastjóri markaðssviðs Flugleiða
„VIÐ ERUM að sumu leyti ánægðir og að sumu leyti óánægðir. Við
erum viðkvæmir fyrir Delta á þýska og franska markaðinum og eins
á Skandinavíumarkaðinum,“ sagði Pétur Eiríksson, framkvæmdastjóri
markaðssviðs hjá Flugleiðum þegar Morgunblaðið spurði hann hvaða
augum Flugleiðir litu aukna samkeppni á Atlantshafsfiugleiðinni.
Bandarísk flugfélög, sérstaklega Dclta Air Lines, hafa sýnt þessari
flugleið aukinn áhuga að undanförnu og sum þeirra hafa stóraukið
flug sitt til Evrópu eða hafa það í hyggju. Hingað til hefur þessi aukn-
ing verið bundin við Bretland að miklu leyti, en nú er útlit fyrir að hún
sé að færa sig til meginlandsins.
„Delta er gæðafiugfélag og keppir
kannski meira í þjónustu heldur en
Pan Am og Trans World Airlines
(TWA) gerðu, þannig að þeir verða
að því leytinu til erfiðari keppinaut-
ar,“ sagði Pétur. „Hins vegar erum
við að vonast til þess að þeir verði
ekki jafn glannafengnir í verðlagn-
ingu eins og Pan Am og TWA voru.“
- En eru þeir ekki einmitt að
bjóða lág fargjöld í Bretlandi?
„Jú, þeir eru að gera það núna
og United Airlines líka. Ég held að
það stafi helst af því að þeir séu að
nota ódýrustu og fljótvirkustu að-
ferðina tii að vinna sér nafn á mark-
aðinum þar sem þeir eru að byrja.
Ég á von á því að innkoma Deita
verði til þess að bæta stöðugleika í
verðlagningu."
- Hafa United Airlines og Am-
erican Airlines ekki líka aukið flug
sitt til Evrópu?
„United keypti leiðir TWA til Bret-
lands og ég veit ekki um áform þeirra
til meginlands Evrópu, en American
hefur haft þá stefnu að stórauka sitt
flug til meginlandsins og leggja þá
jafnvel áherslu á minni borgir. Við
eigTjm von á því að í kringum Lúxem-
borg verði þessi bandarísku flugfélög
búin að hreiðra um sig.“
- Er þetta þá hrein aukning eða
er verið að taka yfir flugleiðir ann-
arra flugfélaga?
„Hvoru tveggja. Flug American
er hrein aukning, en Delta er aðal-
lega að taka yfír fiug Pan Am og
United að taka yfir leiðir TWA.“
Aðspurður um hver viðbrögð Flug-
leiða við þessari breytingu á Evrópu-
markaðinum yrðu sagði Pétur að það
yrði að koma í ljós með tímanum.
„Við fylgjum á eftir frekar en að við
komum einhveijum hlutum af stað.
Við erum það litlir. Við höldum að
samkeppnin verði erfiðari, en von-
andi verður hún meira í þjónustu en
verðlagningu.“
VEÐUR
VEÐURHORFUR íDAG, 10. SEPTEMBER
YFIRLIT: Yfir Grænlandi er 1.028 mb hæð sem þokast suðsuðaust-
ur en 1.008 mb lægð skammt norður af Færeyjum á hreyfingu
austsuðaustur.
SPÁ: Hæg norðlæg og síðar vestlæg átt og fremur svalt, einkum
á Norður- og Norðausturlandi. Skýjað og slydduél á Norðaustur-
landi sem smámsaman dregur úr. Þurrt í öðrum landshlutum og
víða léttskýjað sunnanlands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á MIÐVIKUDAG: Hæg norðvestlæg átt um landið suð-
vestanvert. Skýjað og lítilsháttar súld vestanlands og við norður-
ströndina, en annars þurrt og sennilega léttskýjað suðaustantil.
HORFUR Á FIMMTUDAG: Fremur hæg breytileg átt á landinu.
Líklega dálítil rigning eða súld norðanlands og austan, en þurrt
sunnanlands og vestan.
Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir; 990600.
0 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
SJ Skúrir
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—|- Skafrenningur
Þrumuveður
TAKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
x Norðan, 4 vindstig:
" Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
r . * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
hlti veður
Akureyri 6 skýjað
Reykjavik 9 léttskýjað
Bergen 13 skýjað
Helsinki 12 skýjað
Kaupmannahöfn 17 skýjað
Narssarssuaq 14 alskýjað
Nuuk 6 skýjað
Ósló 18 skýjað
Stokkhólmur 14 skýjað
Þórshöfn 12 rigning
Algarve 25 léttskýjað
Amsterdam 19 skýjað
Barcelona 26 hálfskýjað
Berlín 17 skýjað
Chlcago 22 mistur
Feneyjar 24 léttskýjað
Frankfurt 22 skýjað
Glasgow 16 mistur
Hamborg 16 skúr
London 22 hálfskýjað
Los Angeles 18 alskýjað
Lúxemborg 20 léttskýjað
Madrid 29 heiðskfrt
Malaga 27 léttskýjað
Mallorca 29 léttskýjað
Montreal 13 léttskýjað
NewYork 22 mistur
Orlando 23 úrkoma
Parfs 25 skýjað
Madeira 27 hálfskýjað
Róm 27 léttskýjað
Vín 19 skýjað
Washington 21 þokumóða
Winnipeg 17 alskýjað
Morgunblaðið/Álfons Finnsson
Duflið undarlega híft upp á bryggjuna í Ólafsvík í fyrrinótt.
í, JjLaúágjEr ]
Undarlegt dufl
í troll Dalrúnar
TOGARINN Dalrún ÍS 9 fékk undarlegt dufl í trollið, þegar
skipið var að veiðum í KoIIuálnum vestur af Snæfellsnesi á sunnu-
dagskvöld. Starfsmenn Landhelgisgæslunnar fórú um borð I
togarann og náðu í duflið, sem var flutt til Reykjavíkur. í gær
var enn ekki ljóst hverrar gerðar duflið var.
Gylfi Geirsson, sprengjusér- „Duflið er bandarískt og það er
fræðingur Landhelgisgæslunnar,
sagði í samtali við Morgunblaðið
að við fyrstu lýsingu skipshafnar-
innar á Dalrúnu hefðu menn hald-
ið að um hluta eldflaugar væri
að ræða. „Það er ljóst að þessi
hlutur hefur verið mjög stutt í
sjó, en þetta er örugglega ekki
hiuti eldflaugar," sagði Gylfi.
ekki sprengihleðsla í því. Við
bjuggum vel um duflið og fluttum
það til Reykjavíkur, en það er
ekki komið í Ijós hvert hlutverk
þess hefur verið.“
Gylfi sagði að í dag ætti að
skýrast hvaða hlutur það var sem
Dalrún fékk í trollið.
Beðinn um úttekt á sil-
ungaeldi í Rússlandi
OSSUR Skarphéðinsson fiskeldisfræðingur hefur verið fenginn til
að gera úttekt á möguleikum til silungaeldis í rússneska lýðveldinu.
„Það er ráðuneyti gulls og dýrra málma sem biður um þessa um-
sögn en staðurinn er um 50 kilómetra fyrir austan Moskvu," sagði
Össur. Hann heldur til Sovétríkjanna ásamt fjórum fulltrúum ráð-
gjafaþjónustufyrirtækisiins Virkir-Orkint hf. í lok þessarar viku til
áframhaldandi viðræðna um aðstoð við jarðhitaleit og fiskeldisfram-
kvæmdir í Kákasuslýðveldunum og fleiri ríkjum Sovétríkjanna.
Svavar Jónatansson, stjórnar-
formaður Virkis-Orkint, segist eiga
von á að ferðin skili árangri og að
gengið verði frá samkomulagi um
fiskeldisráðgjöf í Rússlandi en
óvissan eystra geri það að verkum,
að óvíst sé hvort gengið verði frá
samingum um önnur ráðgjafarverk-
efni.
„Þarna eru mikil verkefni í fram-
tíðinni en hvort hægt verður að
koma þeim af stað við þær aðstæð-
ur sem nú ríkja veit enginn. Við
erum boðnir suður í Kákasushéruð-
in til að líta á aðstæður en þar er
ennþá órói og því er óljóst hvort
við komumst á alla þá staði sem
til stendur að heimsækja. Síðast lið-
ið vor voru undirritaðar viljayfirlýs-
ingar en við vonumst til að koma
með eitthvað meira til baka úr þess-
ari ferð,“ sagði Svavar.
Lambakjöt frá því í fyrra selt úr landi:
Þarf að ganga betur frá
tryggingum samningsins
- segfir landbúnaðarráðherra
HALLDÓR Blöndal landbúnað-
arráðherra segir að ganga þurfi
betur frá tryggingum á greiðsl-
um fyrir 800 tonn af árs gömlu
dilkakjöti sem ætlun er að selja
til Ameríku. Fundað verður með
fulltrúum kaupenda í dag, að
sögn ráðherrans.
Halldór kveðst leggja á. það
áherslu að fljótt verði gengið frá
samningi við kaupendur kjötsins,
bandaríska fyrirtækið Rupari food.
Það vill borga 80 krónur á kíló af
lambakjötinu, sem ella hefði þurft
að urða að sögn landbúnaðarráð-
herra.
Rupari food hyggst selja kjötið
til Mexíkó og er kaupandinn, José
Buendia, umsvifamikill kjötkaup-
maður og eigandi matsölustaða þar
í landi. Hann sérhæfir sig í sölu til
veitingahúsa og verður dilkakjötið
komið á matseðla suður þar á næsta
ári ef saman gengur. Fulltrúar land-
búnaðarráðuneytis funda með tals-
mönnum beggja fyrirtækjanna í
dag.
------»_♦_*----
Yfirvinnubann
afboðað og síð-
an boðað aftur
Sjómannafélag Reykjavíkur
afboðaði í gær vegna formgalla
yfirvinnubann í heimahöfnum
sem boðað hafði verið frá mánu-
deginum 16. þessa mánaðar. Um
leið var yfirvinnubannið boðað
aftur frá sama tíma klukkan 17
þann 16. september.
Yfirvinnubannið gildir í höfnum
á Stór-Reykjavíkursvæðinu og hef-
ur það í för með sér að skip geta
ekki látið úr höfn nema á tímabilinu
frá kl. 8-17 mánudagtil föstudags.