Morgunblaðið - 10.09.1991, Page 19
MORGUNBM.ÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1991
19
muna vííTsamruna og slynsamlega
skiptingu starfa, gagna og gæða,
og samanlagt yrði hún þeim mun
meira en tvíefld og nýtanlegri en
nú er.
2. Margumtalaðar „dýrar“ fjár-
festingar vegna rannsóknartækja,
lækningatækja og lækningaaðferða
myndu nýtast mun skynsamlegar,
þegar ekki væru um „tvöfaldanir“
að ræða, eins og nú er, og eins og
myndi verða áfram og í enn ríkari
mæli ef úr yrði sameining Bsp. og
Landakots.
3. Nýting og efling sérmenntaðs
mannafla á öllum stigum heilbrigð-
isstétta yrði mun betri og hagkvæm-
ari. Ég sé jafnvel fyrir mér, að nýlið-
un til starfanna myndi aukast svo
og að einstökum skipulagsheildum
haldist betur á starfsliði. Þetta síð-
astnefnda tel ég að muni gerast
fyrst og fremst vegna þess, að með
vaxandi gæðum og gæðamarksetn-
ingu muni metnaður starfsmanna
enn aukast og virkni þeirra þar með.
4. Kennsla heilbrigðisstétta og
hverskonar vísindastarfsemi yrði
mun virkari og hnitmiðaðri.
5. Reksturinn yrði, þegar fram
líða stundir, ijárhagslega hagkvæm-
ari; í fyrsta lagi vegna þess að dreg-
ur úr dýrum tvöföldunum og launa-
kostanaði, t.d. vegna margföldunar
vakta, og í öðru lagi, vegna þess,
að metnaðarfullt og vel upplýst
starfsfólk með hágæði að markmiði
mun einnig halda mun betur utanum
þá íjármuni, sem það hefur handa
milli.
Miklar breytingar hafa orðið í
öllu samfélaginu, jafnt í heilbrigðis-
þjónustu sem á öðrum sviðum. Sjúk-
dómsmynstur hafa breyst, viðhorf
til sjúkdóma og heilsu sömuleiðis.
Upplýsing alls þorra manna um
sjálfa sig og umhverfið gerir kröfur
þeirra síbreytilegar, og heimsmynd
öðruvísi. Hið eina, sem við sjáum
fyrir og vitum með vissu er, að með
vaxandi tæknivæðingu og nýtingu
hennar í þágu læknandi og fyrir-
byggjandi starfs verð mynstur og
uppbygging sjúkrahúsakerfls allt
önnur en við höfum þekkt allt fram
til þessa. Vægi fyrirbyggjandi
heilsuaðgerða og „frumheilsu-
gæslu" eykst. Heimahlynning fer
vaxandi; meira eða minna í tengsl-
um við stofnanir, sjúkdómsgreining
og læknisaðgerðir verða æ skilvirk-
ari; sumar draga úr vistunarþörf,
aðrar krefjast „dýrari" og hátækni-
legra umhverfis. Það er einmitt þessi
þróun sem við verðum að mæta af
skynsemi. Sú viðleitni felst í þvi að
sameina og skipuleggja „dýru“
þættina í dugmikinn og metnaðar-
fullan, stórvirkan kjarna, svo sem
hér er lýst, en jafnframt styðja við
bakið á öðrum formum sjúkrahúsa-
þjónustu, eins og t.d. að viðhalda
um alllangt skeið ennþá Landakots-
spítala sem algildings eða hálfgild-
ings einkaspítala, með þeim kostum
sem fylgja valfrelsi og tiltölulega
litlum rekstrareiningum.
Enn mætti rita langt og mikið
mál til skýringar; það má bíða um
sinn; ég lýk máli mínu með því að
vísa til þess, sem áður var sagt:
Gæði, vaxandi gæði, aukin þjónusta
á nútímavísu verða að sitja í fyrir-
rúmi í skipuiagningu „dýru“ læknis-
fræðinnar. Með því að stefna að
þeim markmiðum fæst af sjálfu sér
mesta og besta rekstarlega hag-
kvæmnin..
Höfundur er prófessor og
forstöðulæknir röntgendeildar
Landspítalans.
; ! D/ugDyND
Lystug skólasamloka:
Stórbrauðssamloka
með grófri lifrarkæfu
og rauðkáli.
Gott fyrir alla nemendur
-og suma kennara!
- matur frá morgni til kvölds
Hringur Bogason stærðfræðikennari
Kjarngott skólanesti
- skerpir athygli
Goldstar símkerfi, þar sem ekkert er gefið eftir.
ffl ístel
Traust fyrirtœki sem tekur réttar
ákvarðanir, og er í góðu sambandi
við viðskiptavini sína. Það velur
traust, fullkomið og tœknilegt
símkerfi frá Goldstar.
Gœði, þœgindi og tœkni.
GoldStcir
Örugg þjónusta.
Rúmlega 800 fyrirtœki og stofnanir,
hafa kosið símkerfi frá ístel.
Komdu við í Síðumúlanum, eða
sláðu á þráðinn.
Og tryggðu góðan árangur.
SIÐUMULA 37 SIMI 687570