Morgunblaðið - 10.09.1991, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 10.09.1991, Blaðsíða 56
56 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1991 * Ast er... ... einskonar töfrahatt- ur. TM Reg. U.S. Pat Off. — all rights reserved ® 1991 Los Angeles Times Syndicate Með morgunkaffinu Afsakaðu hve seint við kom- um, en það tekur Dúllu allt- af langan tíma að komast í sparifötin ... Uns dauðinn aðskilur Hjónaskilnaður virðist vaxandi vandamál hér á Islandi sem annars staðar, nokkurs konar tískufyrir- brigði. Eg er ekki undrandi á þessu því engin virðing virðist borin fyrir hjúskaparloforðinu: „Að elska makann í blíðu og stríðu þar til dauðinn aðskilur okkur.“ í dag virðist nóg að annar makinn sé orðinn þreyttur á ábyrgðinni að vera með fjölskyldu og geti einfald- lega sagt við næsta prest: „Eg er orðinn leiður á maka mínum, ég vil skilnað.“ Það næsta sem gerist er að presturinn spyr hvort þetta sé eindreginn vilji viðkomandi og ef svo er þá er látið þar við sitja og skrifað undir skilnaðarpappíra. Sá sem eftir situr með börn, skuld- ir og alla ábyrgðina getur ekki rönd við reist og verður að sitja og standa eins og honum er sagt. Hvernig stendur á því að prestar geta leyft sér að gefa eftir skilnað á svona forsendu? Mér finnst óskiljanlegt hve auð- velt er fyrir annað hjóna að hlaupa frá skyldum sínum og ábyrgð. Hvernig stendur á því að prestar geta ekki skyldað hjón til að fara Hvar er Líf? Kisan Líf týndist frá Fífuhjalla 6 í Kópavogi 2. sept. sl. Líf er með hvíta bringu og hvítar framloppur en brúnbröndótt á baki. Þegar kisa hvarf var hún með hvítan háls- kraga, þess vegna gæti hún átt í erfiðleikum með að komast út hafi hún lokast einhvers staðar inni. Þeir sem hafa séð kisuna Líf eða vita hvar hún er eru vinsamlega beðnir um að hringja í síma 43938. í ráðgjöf í ákveðinn tíma þegar jafnmikið er í húfi eins og heilagt hjónaband? Nú er oft svo, áð beðið er um skilnað í fljótfærni en fólk er of þijóskt til að viðurkenna það. Mer finnst að prestar sem veita skilnað svona auðveldlega séu ekki starfi sínu vaxnir og taki ekki ábyrgð sína nógu alvarlega. Hjú- skaparloforð er gefið fyrir lífstíð og það hlýtur að vera skylda hverr- ar manneskju að virða þetta lof- orð, gefið frammi fyrir Guði, og reyna af fremsta megni, með hjálp, að bæta sjálfan sig og halda hjóna- bandinu áfram. Hjónaskilnaðir eru mannskemmandi fyrir alla aðila og börnin sem eru algjörlega sak- laus lenda alverst í þessu, verða oft bitbein milli foreldra, lifa í stöð- ugum ótta og óöryggi. Því miður er það svo þannig börnin lifa oft sama mynstri á sínum fullorðinsá- rum eins og foreldrarnir. Eg las mjög góða grein í Morgunblaðinu 25. janúnar síðast- liðinn: „Tjáskipti og kærleikur í hjónabandinu," og þar segir m.a: „Ef til dæmis ég og konan mín eigum í erfiðleikum í hjónabandinu okkar og erum ósammála þá er afskaplega auðvelt að segja — Eg á við vandamál að stríða, konan mín er vandamálið mitt og til þess að leysa vandamálið verð ég að losa mig við hana. Búið og gert. En auðvitað er engin lausn að hlaupa frá vandamáli." Eg hvet Morgunblaðið eindregið til að birta þessa grein aftur og einnig grein- ina „Listin að rífast rétt,“ sem birt- ist 9. ágúst síðastliðinn. Björg- Hrun kommúnismans í Sov- étríkjunum og Austur-Evr- ópu hefur vakið upp þær spurning- ar, hvort unnt væri að afla upplýs- inga um samskipti kommúnista- flokka þessara landa við skoðana- bræður þeirra hér hjá þeim stofnun- um í þessum löndum, sem önnuðust slík samskipti. Fyrir tæpum aldar- fjórðungi birtist í Staksteinum Morgunblaðsins svofelld lýsing á einum þætti þeirra: “Prentvélakaup Þjóðviljans voru annars býsna sögu- leg og bentu ekki til mikils fjárs- korts, þar sem þeir höfðu efni á að kaupa tvær prentvélar og láta aðra ryðga og eyðileggjast í Kaup- mannahöfn. I fyrstu keyptu þeir danska prentvél, sem aldrei kom til landsins. Ástæðan var sögð sú á fundum kommúnista, að hún hefði verið of stór og dýr í rekstri. Sann- leikurinn mun hins vegar sá, að hún hafi ryðgað og eyðilagst á hafnar- bakkanum í Kaupmannahöfn. Af þessum sökum festu kommúnistar kaup á annarri prentvél, að þessu sinni sænskri. Þegar spurt var að því á fundi í kommúnistaflokknum, hvernig flokkurinn færi að því að kaupa tvær prentvélar til þess að þrykkja Þjóðviljann gaf Steinþór Guðmundsson þær skýringar, að dönsku vélina væru þeir búnir að borga, þeir ættu megnið af gjald- eyrinum fyrir þeirri sænsku en við- bótina fengju þeir lánaða.“ Skiptar skoðanir: Skert sjálfsforræði Eg var utanbæjar nokkra daga og verð því sein til að svara til- skrifi Sigríðar Jóhannsdóttur sem birtist 20. ágúst. Hún svarar raunar ekki því sem ég spurði um en það var hvemig aðild að efnahagssvæði Evrópu- bandalagsins fylgdi skert sjálfsfor- ræði fyrir Norðmenn en ekki Islend- inga. Þetta virðist mér að hún vilji afgreiða með því að ekki sé um neitt réttindaafsal að ræða. Nú er það ein af staðreyndum málsins að Norðmenn láta ekki ein- faldan meirihluta atkvæða í Stór- þinginu nægja til að samþykkja aðildina. Það er einungis vegna þess að þeir telja að um réttindaf- sal sé að ræða. I öðru lagi segir Sigríður að EES-aðild (Evrópskt efnahags- svæði) sé alls ekki á stefnuskrá núverandi stjórnarflokka. Það held ég að sýni að þekking hennar á málunum mætti vera meiri. Hefur það farið fram hjá henni að Jón Baldvin hefur sagt að búið væri að semja um 98% þess sem þyrfti að semja um? Hitt er okkur sagt að aðild að Efnahagsbandalaginu sé ekki á dagskrá. Þó er það staðreynd að fyrir ári síðan ályktuðu ungliðar í Alþýðuflokknum að Islendingum væri ekkert að vanbúnaði að sækja um fulla aðild. Og núna um dag- inn ræddu ungir sjálfstæðismenn málið þó að tillaga um þátttöku- beiðni væri felld í það sinn. Þessir flokkar geta því varla sagt að málið sé ekki á dagskrá. Þetta mál er til umræðu og því er fyllilega tímabært að kynna sér það. Mér virðist að sannfæring Sigríðar sé ekki studd þeirri þekk- ingu og yfirsýn sem vera þyrfti. Hér þyrftu menn þó að kryfja mál til mergjar. Eg vona að þessi orðaskipti okkar megi verða þeim sem lesa áminning þess að hér er okkur skylt að vita staðreyndir áður en við ályktum. H.Kr. Víkverji skrifar Það er umhugsunarefni fyrir rík- isstjórnina, hvað mikið hefur borizt út af upplýsingum um ein- staka þætti væntanlegs Ijárlaga- frumvarps án þess, að almenningur hafi nokkra heildarmynd af því, sem í frumvarpinu kann að felast. Af- leiðingin verður sú, að vikum saman snúast umræðurnar um einstök at- riði, sem hugsanlega eru alls ekki veigamestu þættir frumvarpsins en kunna að valda stjórnarflokkunum óþarfa erfiðleikum vegna þess, að upplýsingarnar koma fram án sam- hengis við aðra efnisþætti frum- varpsins. í Bretlandi liggur við, að fjár- málaráðherra verði að segja af sér, ef slíkar upplýsingar leka út áður en hann hefur lagt frumvarpið fyr- ir þingið. Hér hefur það af skiljan- legum ástæðum verið afstaða fjár- málaráðherra áratugum saman, að þeir vilja ekki upplýsa um efni frum- varps fyrr en það er lagt fram á Alþingi þannig, að þingmenn sjái það fyrstir manna. Spurning er hins vegar, hvort þetta er haldbær afstaða úr því sem komið er, þar sem upplýsingar um einstaka efnisþætti berast jafnan út af fundum þingflokka stjórnar- flokka hveiju sinni. Er ekki betra fyrir fjármálaráðherra á einhveiju stigi málsins að hausti til að segja frá meginstefnu væntanlegs fjár- lagafrumvarps, svo að umræður um þaðj septembermánuði, meðan það er í vinnslu, geti farið fram með einhveijum skynsamlegum hætti? Annars hefur kunnugur maður sagt Víkveija, að í væntanlegu fjár- lagafrunvarpi felist raunverulegt skref til niðurskurðar en ekki eins stórt og ætla mætti af opinberum umræðum. xxx * Inokkur misseri hefur það orð leg- ið á, að erlendir fiskkaupendur væru að seilast til áhrifa í íslenzkum sjávarútvegi með lánveitingum til útgerðarmanna og þeir bindi lánin því skilyrði, að viðkomandi útgerð- armaður selji þeim þann fisk, sem hann hefur yfir að ráða. Það hefur verið nánast ómögulegt að fá þetta staðfest. I Ríkisútvarpinu í fyrradag stað- festi útgerðarmaður hins vegaf, að slíkar lánveitingar væru fyrir hendi, sagði þær ekki bundnar nokkrum skilyrðum og nefndi, að hér væri yfirleitt um að ræða eina til tvær milljónir króna til þess að bjarga mönnum fyrir horn eins og hann orðaði það. Hvað veldur því, ef ekki er um hærri upphæðir að ræða, að þessir útgerðarmenn fái slíka fyrir- greiðslu ekki hjá sínum viðskipta- banka?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.