Morgunblaðið - 10.09.1991, Blaðsíða 36
36
MÖRGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1991
160 nemendur í
Haskólanum í vetur
VETRARSTARF er hafið í Háskólanum á Akureyri. Nemendur í vetur
eru um 160 talsins. Nú er í fyrsta sinn hérlendis boðið upp á tveggja
ára nám í gæðastjórnun. Stefnt er að því að haldnir verði allnokkrir
laugardagsfyrirlestrar í vetur.
Kennsla er hafin í öllum deildum
Háskólans á Akureyri. Nemendur
eru um 160 talsins, flestir, um 70,
í rekstrardeild, sem skiptist í iðn-
rekstrarbraut og rekstrarbraut. Á
þeim brautum er tveggja ára nám
en nú býðst nemendum í fyrsta sinn
Hraðakstur
og þjófnaður
LÖGREGLAN á Akureyri tók sjö
ökumenn fyrir of hraðan akstur
um helgina og tvo fyrir ölvun við
akstur. Þá var stolið útvarpstækj-
um úr fjórum bílum.
Meðal þeirra sem tekniur voru
fyrir of hraðan akstur var einn sem
ók á 133 km hraða á Ólafsfjarðar-
vegi, sunnan Fagraskógar, en þar
er leyfður 90 km hraði.
Á laugardagsmorgun var lögregl-
unni tilkynnt um að stolið hefði ver-
ið útvarps- og segulbandstækjum úr
fjórum bílum á Akureyri, við
Byggðaveg, Oddeyrargötu og
Helgamagrastræti.
hér á landi að setjast í tveggja ára
framhaldsnám í gæðastjórnun. Hing-
að til hefur aðeins verið hægt að
taka stök námskeið á því sviði við
Háskóla íslands og Tækniskóla ís-
lands. Að sögn Stefáns G. Jónsson-
ar, forstöðumanns rekstrardeildar,
er meirihluti þeirra sem hófu nám í
gæðastjórnun nemendur sem áður
höfðu lokið námi frá Háskólanum á
Akureyri, en auk þess eru þar m.a.
tæknifræðingur og nemendur, sem
áður höfðu iokið prófi frá Samvinnu-
háskólanum á Bifröst.
Við sjávarútvegsdeild verður í vet-
ur í fyrsta sinn kennsla á þriðja ári
af fjórum, sem námið tekur. Stefnt
er að því að fyrstu nemendur braut-
skráist af sjávarútvegsbraut um ára-
mót 1993-1994. Nám á hjúkruna-
rbraut heilbrigðisdeildar tekur einnig
ljögur ár, en þaðan voru brautskráð-
ir fyrstu hjúkrunarfræðingarnir á
síðastliðnu vori.
Háskólinn á Akureyri hefur á und-
anförnum árum af og til efnt til laug-
ardagsfyrirlestra um margvísleg efni
og í vetur er fyrirhugað að halda
áfram á þeirri braut.
Dagskrá svæðisút-
varpanna samtengd
UNNIÐ er að því að auka sam-
starf svæðisútvarpanna á Vest-
fjörðum, Norðurlandi og á Aust-
fjörðum. Meðal væntanlegra
breytinga að svæðisstöðvarnar
verði að einhverju leyti samtengd-
ar. Auk þess er þess freistað að
tengja svæðisbundið efni í aukn-
um mæli inn á Iandsrásir Ríkisút-
varpsins. Morgunútvarp Norður-
lands verður dægurmálaútvarp.
Bjarni Sigtryggsson, forstöðu-
maður svæðisútvarps á Norðurlandi,
sagði að vetrardagskrá Ríkisútvarps-
ins hæfist að vanda 1. október. Þar
sem þessi háttur væri hafður á sam-
kvæmt hefð færi ekki saman starfsár
útvarpsins og fjárhagsár, sem miðað-
ist við áramót. Þetta ylli dálitlum
vanda við skipulag starfsins.
Bjarni sagði að nú væri unnið að
hugmyndum um að efla samstarf
svæðisútvarpsstöðvanna og tengja
þær saman í meira mæli þegar út-
varpað er efni sem á erindi milli
svæða. í þessu efni væri meginvand-
inn sá að útsendingardagar á Vest-
fjörðum og Austfjörðum væru færri
en hér nyrðra. Auk þessa væri verið
að reyna að finna farveg fyrir aukið
efni frá svæðisstöðvunum inn á
landsrásirnar.
í sambandi við vetrarstarfið hjá
Útvarpi Norðurlands sagði Bjarni
fyrirhugað að morgunsendingartím-
inn milli átta og hálfníu á morgnana
yrði dægurmálaútvarp Norðurlands
en kvöldtíminn milli hálfsjö og sjö
fréttaútvarp Norðurlands. Auk þess
væri ætlað að bæta við útsending-
artímum á svæðinu en ekki þó á
föstum, reglulegum tíma.
Bjarni taldi að hlutdeild útvarpsins
á Akureyri í reglulegri dagskrá á
Rás 1 og 2 yrði svipuð og verið hefði.
Ilins vegar hefðu verið og væru enn
uppi hugmyndir innan yfirstjórnar
Ríkisútvarpsins að flytja umsjón
ákveðins dagskrárefnis frá Reykja-
vík til Akureyrar og við það efldist
starf útvarpsins nyrðra.
Álafoss, Akureyri:
Til vinstri sér á stafn nýja íþrótta-
hússins. sem er sambyggt félagsheim-
ili KA. Á innfelldu myndinni sér yfir
nýja íþróttasalinn.
Iþróttahús KA væntanlega
opnað um næstu mánaðamót
SMÍÐI íþróttahúss KA gengur samkvæmt áætlun og fyrirhugað
er að kennsla og íþróttastarf þar hefjist um mánaðamót sept-
ember-október. Verið er að klæða húsið utan og jafnframt er
unnið að ýmsum störfum innan húss. Alfreð Gíslason, handbolta-
maður og þjálfari, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri íþrótta-
svæðis KÁ.
Júdómenn í KA tóku svolítið
forskot á sæluna þegar þeir hófu
æfingar í júdósal nýja íþrótta-
hússins um helgina. Að sögn
Sigmundar Þórissonar, form-
anns KA, gengur smíði hússins
afar vel. Jafnframt því sem unn-
ið er að því að setja klæðningu
utan á húsið er unnið innanhúss.
Húsið hefur verið málað, flísa-
lögn er að mestu lokið, baðher-
bergi og búningsklefar nær full-
búin. Fyrirhugað er að menn
komi eftir næstu helgi til að
leggja efni á gólf aðalsalar húss-
ins. Verði því verki lokið sam-
kvæmt áætlun verður húsið til-
búið til notkunar um mánaða-
mót. Sigmundur sagði að þá yrðu
að vísu ekki komnir áhorfenda-
bekkir. Þeirra væri von í nóvem-
ber og þar með yrði húsið full-
búið. Þarna yrði rúm fyrir u.þ.b.
800 áhorfendur í sætum og
stæðum.
Að sögn Sigmundar hefur
Alfreð Gíslason, handboltaþjálf-
ari og leikmaður með KA, verið
ráðinn framkvæmdastjóri
íþróttasvæðisins ytra sem innra.
Næstráðandi hans hefur verið
ráðinn Pétur Ólafsson. Verið er
að ganga frá ráðningum annarra
starfsmanna við íþróttasvæðið,
en þar er um að ræða nýja
íþróttahúsið, félagsheimilið, sem
tengist því með millibyggingu,
og útisvæðið, íþróttavellina.
Einnig er verið að ganga frá
samningum við Akureyrarbæ um
leigusamning vegna kennslu í
húsinu og samning á tækjakaup-
um.
Alfreð Gíslason sagðist taka
formlega við framkvæmda-
stjórastarfinu 1. október en hann
ynni nú að ýmsum undirbúnings-
störfum. Hann sagði að bygg-
ingaverkið gengi afar vel. Litlu
salirnir væru nú tilbúnir hver af
öðrum og ef allt færi að vonum
yrði unnt að hefja kappleiki í
stóra salnum um miðjan október.
Starfsmenn lifa í voninni
um að starfsemi haldi áfram
NOKKRAR vonir hafa kviknað í brjóstum starfsfólks Álafoss á Akur-
eyri eftir að samningar tókust með Iðnþróunarfélagi Eyjafjarðar og
Landsbankanum um að stofnað yrði nýtt fyrirtæki til að taka við rekstri
vefdeildar og fatagerðar á Akureyri. Starfsmönnum hefur fækkað
nokkuð eftir að Landsbankinn yfirtók reksturinn í sumar.
Jóhann Bjarmi Símonarson, fjár- fundar við starfsfólk og sagt frá
reiðustjóri hjá Álafossverksmiðjunni
á Akureyri, sagði að Baldvin Valdi-
marsson, hinn nýi framkvæmdastjóri
fyrirtækisins sem fyrirhugað er að
taki við rekstrinum, hefði komið til
stöðu mála og því sem fyrirhugað
væri að gera og samið hefði verið
um til að rekstri yrði haldið áfram.
• Jóhann Bjarmi sagði að allir sem
nú störfuðu við verksmiðjurnar væru
Félagsstofnun stúdenta á Akureyri:
Smíði hafin á stúdentagörðum
Á VEGUM Félagsstofnunar stúd-
enta á Akureyri er hafin vinna
við að reisa nýja stúdentagarða.
Að ári verða tilbúnar 9 nýjar íbúð-
ir fyrir stúdenta við Háskólann á
Akureyri.
Félagsstofnun stúdenta á Akur-
eyri hefur yfir að ráða einu húsi í
Glerárhverfi, Útsteini. I þessum stúd-
entagarði eru 10 íbúðir og 14 ein-
staklingsherbergi. Að sögn Valtýs
Hreiðarssonar, forstöðumanns Fé-
lagsstofnunar stúdenta, hefur Út-
steinn verið fullsetinn frá upphafi. Á
sumrin hefur Fjórðungssjúkrahúsið
á Akureyri haft húsnæði, sem þar
er laust, á leigu fyrir sumarstarfs-
fólk og sagði Valtýr að samstarf við
sjúkrahúsið væri afar gott.
Nýlega hófust framkvæmdir við
nýja stúdentagarða á mótum Þór-
unnarstrætis og Klettastígs. Að sögn
Valtýs verða þar alls þijú hús, eitt
með 12 einstaklingsherbergjum og
tvö með 9 íbúðum hvort. Áætlað er
að annað þessara síðarnefndu húsa
verði tilbúið að ári. Óvíst er um hin
tvö.
Á vegum Félagsstofnunar stúd-
enta á Akureyri er viðhöfð ýmis þjón-
usta við stúdenta Háskólans. Þar
má nefna kaffistofu, námsmanna-
þjónustu og á þessu hausti tók Fé-
lagsstofnun við rekstri bóksölu stúd-
enta, en hún er til húsa í kjallara
Háskólans.
ráðnir af Rekstarfélagi Álafoss, sem
starfaði á vegum Landsbankans.
Þetta væru þeir sem áður störfuðu
hjá Álafossi og hefðu verið endur-
ráðnir hjá þessu félagi í mislangan
tíma. Sá ráðningartími hefði þegar
runnið út hjá sumum og nálgaðist
það hjá öðrum. Jóhann sagði að
starfsmönnum hefði því fækkað
smátt og enda þótt hann vissi ekki
nákvæmlega hver fjöldi þeirra væri
þessa dagana mætti telja að þeir
væru orðnir eitthvað nálægt því
marki sem hið nýja fyrirtæki hefði
sett sér, um 130 manns. Segja mætti
að starfsemin, eins og hún hefði ver-
ið ákveðin af Landsbankanum, væri
að komast á síðasta snúning, enda
hefði bankinn ekki stefnt að áfram-
haldandi rekstri. Nú stæði öll starf-
semin eða félli með því að hinu nýja
fyrirtæki yrði sem fyrst komið á legg.
Jóhann Bjarmi sagði að menn
gerðu sér nú nokkuð góðar vonir um
að áfram héldi starf við verksmiðj-
umar og það væri mikilvægt, ekki
síst í ljósi þeirrar sorglegu staðreynd-
ar að mikill hluti fólks sem þar ynni
ætti ekki í önnur hús að venda með
að fá vinnu á Akureyri. Hann sagð-
ist hafa orðið nijög var við kvíða,
einkum hjá því fullorðna fólki sem
ekki hefði átt þess kost að flytja
burtu úr bænum til að fá starf við
sitt hæfi. Nú væri farginu nokkuð
að létta af mönnum og enda þótt
málið væri í mótun og enginn vissi
nákvæmlega hvað framundan væri
eða hvort þeir yrðu ráðnir til starfa
hjá hinu nýja fyrirtæki vonuðu menn
hið besta.
♦ ♦ ♦
Fyrirlestur í
Háskólanum
ANNAÐ kvöld, miðvikudagskvöld,
flytur dr. Berys Gaut, kennari við
Háskólann í St. Andrews í Skot-
landi, fyrirlestur í Iláskólanum á
Akureyri um samband listar og
siðferðis.
Háskólinn á Akureyri og Félag
áhugamanna um heimspeki standa
fyrir fyrirlestrinum, sem er opinn
öllum meðan húsrúm leyfir. Fyrir-
lesturinn verður fluttur á ensku og
hefst í stofu 24 í Háskólanum á
Akureyri annað kvöld klukkan 20.1B.
(Fréttatilkynning)