Morgunblaðið - 10.09.1991, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 10.09.1991, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1991 Hringavitleysan við Hamrahlíð eftirHrafn Sveinbjarnarson Miklar furður gerast nú í kringum Menntaskólann við Hamrahlíð. Menn skrifa í blöðin af miklum til- fmningahita, þótt lesendur botni lík- lega hvorki upp né niður í því sem um er að vera, enda fer minna fyr- ir útskýringum á því. Islensku- kennsla er aðalumræðuefnið. Þó hangir fleira á spýtunni. Frelsi Með breyttu námsfyrirkomulagi var ætlunin að minnka skyldunám til stúdentsprófs í MH. Ekki aðeins í íslensku, heldur líka í raungrein- um, erlendum tungumálum o.fl. Brautum skyldi fækkað úr sex í fjór- ar. Með öllu þessu átti að sögn að auka valfrelsi nemenda. Þó fór nú svo að liður í þessu aukna valfrelsi var að leggja niður fornmálabraut skólans, fyrirvaralaust og án sam- ráðs við þá nemendur sem það varð- aði. Á sínum tíma afhentu þessir nemendur umsókn um skólavist og nám á þessari braut og voru boðnir velkomnir með elskulegu brosi. Sic transit gloria mundi. Vissu þeir ves- alingar síðan vart í hvom fótinn þeir áttu að stíga meðan allt útlit var fyrir sviplega burtsofnun braut- arinnar og afdrif aðalnámsgreina þeirra með öllu óviss. Sá ljóður er nefnilega á þessu ágæta valfrelsi að það er eins og margt fleira í þessu þjóðfélagi háð lögmálinu um framboð og eftir- spurn, sem hefur löngum þótt dálít- ið varasamt í menningarmálum. Námgreinar sem era ekki í brautar- kjarna og fáir stunda, þær sem njóta ekki sem stendur fylgis tísku og eftirspurnar, t.d. latína, eða stærð- fræði og eðlisfræði fyrir lengra komna, eru nefnilega ekki kenndar nema 15 nemendur skrái sig í áfangann. Hver maður getur séð hvernig það getur farið í skóla sem býður jafn margt skemmtilegt og MH gerir nú, t.d. japönsku, skák, lögfræði, yndislestur, íjölmiðla- fræði, áhugamannaensku, afbrota- fræði, esperanto, uppeldisfræði, mannfræði, barnabókmenntir, þjóð- fræði og margt fleira. Gengisfelling Breytingamenn tala eins og val- möguleikar séu nú mjög þröngir í MH. Þó hefur aldrei heyrst um tak- markanir á því að-taka einingar í frjálsu vali umfram þær 140 lág- markseiningar sem þarf til stúdents- prófs, svo framarlega sem tímarnir rúmast í stundatöflu. Á átta önnum geta umframeiningar orðið allmarg- ar. Og þeir sem hafa gaman af að velja o g nægir ekki fullskipuð stund- atafla í fjögur ár geta þá bara bætt við sig einni önn eða tveimur. Af þessu sést að val nemenda hefði ekki aukist við breytingamar nema á kostnað námskjarna, og hver var þá tilgangurinn? Hann var einfald- lega að minnka skylduna. Að þynna stúdentsprófið út. Gengisfelling þótti einkar handhæg lausn meðal stjórnmálamanna meðan Gunnlaug- ur Ástgeirsson, einn helsti talsmað- ur umræddra breytinga á náms- fyrirkomulagi í MH, var f þeirra hópi. Talað er um möguleika til að taka meira en skylduna í grunn- greinum eins og íslensku. En það breytir ekki þeirri staðreynd að gildi stúdentsprófsins hefði rýmað, ein- faldlega vegna þess að þetta var ekki skylda og margir hefðu ekki nýtt sér þennan möguleika. Tilgangurinn hefur vafalaust ver- ið frómur, að gefa öllum tækifæri til að taka stúdentspróf, líka þeim sem hafa eiginlega ekki ætlað sér að taka stúdentspróf. Finnst ein- hveijum þetta skrýtið? Það fínnst mér líka. En samt er þetta líklega svona. Mörgum hentar sjálfsagt ekki að taka jafn margar einingar í grunngreinum og krafist er til stúdentsprófs, þeir telja sig komast af með minna. En af einhveijum undarlegum ástæðum eiga þeir samt endilega að taka stúdentspróf, próf sem lengst af hefur ekki komið að miklu gagni nema sem lykill að háskólanámi. íslenskt stúdentspróf hefur líka dugað til inngöngu í há- skóla um allan heim. En nú á að breyta því, gera prófið veigaminna en áður. Um leið er framtíð þeirra sem ætla að setjast í háskóla, hér- lendis eða erlendis, orðin fremur óljós — komast þeir inn? verður próf- ið tekið gilt? Það kann hins vegar að vera að einhveijum þyki þetta útþynnta stúdentspróf betra, að það Hrafn Sveinbjarnarson „Skóli sem skilgreinir ekki markmið sín betur en gert var með nýja fyrirkomulaginu í MH er hrópleg móðgun við nemendur, bæði þá sem ætla að fara í háskóla- nám og hina sem hyggj- ast veija kröftum sín- um á öðrum vettvangi.“ veiti þeim „betri þjónustu". Það finnst mér ekki og þess vegna er þetta skrifað. Húfa handa öllum Vissulega er breiddin í nemenda- hópnum sem sest í menntaskóla orðin mikil eftir þá þjóðflutninga sem menntamálaráðuneytið hefur stefnt þangað. Þeir sýna reyndar algjöra uppgjöf þeirrar stofnunar gagnvart því sem er að gerast í þjóðfélaginu. Það er víst orðið nauð- synlegt að halda ungu fólki inni í skólum fram að tvítugsaldri til að það fari nú ekki að þvælast út á vinnumarkaðinn og skapa atvinnu- leysi og önnur vandræði. En er lausnin sú að koma stúdentshúfu á kollinn á 80% þjóðarinnar? Kannski mætti búa til nýtt próf með hljómm- iklu nafni, prófið sem þá langaði svo til að koma á í Hamrahlíðinni, og því gæti líka fylgt falleg húfa. Hins vegar ætti að iofa gamla prófinu að vera í friði vegna gamalgróinna tengsla þess við ýmsa háskóla. Þess- um tengslum mætti kannski líkja við það sem bissnessmenn kalla við- skiptavild og meta oft til ríflegra fjárhæða. Möguleikinn að eiga greiða inngöngu í háskóla í mörgum löndum er nefnilega nokkuð mikils virði^bæði fyrir einstaka nemendur og þjóðina alla, og ráðamenn MH ættu ekki að vera að kasta honum á milli sín eins og tröllskessur íjör- eggi sínu. Skólaspeki Einn af hugmyndafræðingum þessarar útþynningar, Gunnlaugur Ástgeirsson íslenskukennari í MH, ritaði grein í Beneventum, skólablað MH, 2. tbl. 1991: „Eins konar hug- vekja um skóla, menntun og fram- tíð.“ í henni koma fram ýmsar nýst- árlegar uppgötvanir Gunnlaugs um skólamál. Hann virðist nefnilega hafa komist að þeim stórasannleik að í útlöndum séu menntaskólar farnir að bjóða upp á almenna undir- stöðumenntun, sökum þess að störf þar breytist svo ört að ekki taki því að læra neitt til neinnar hlítar. Um lög um framhaldsskóla segir Gunn- laugur: „Það má hæglega færa rök að því að leggja megi nýjan skilning í markmiðsgreinar laganna og líta svo á að besti undirbúningurinn undir óvissa framtíð sé góð almenn menntun, en hún getur vissulega verið mismunandi og við hæfí hvers og eins. Hér verður því slegið föstu .' lfsvÖrn Kven^ júDÓ^ tek* “r AK.DO KABAT^. ISigurjón Gunnsteinsson, landsliðsmaður í KARATE, og margfaldur íslandsmeistari i KATA og KUMETE Vibar Gubjohnsen, júdókennari. Islandsmeistari, Open Skandinavian meistari, Norðurlandameistari, Islandsmeistari í vaxtarrækt '82. Debora Blaiden sér um líkamsrækt. Fullkomin líkamsrsektartæki á staBnum Ath. oögongur ab líkamsrækt er innifolinn í námskeiboverbi. Fjölskyldudagar miðvikudaga og laugardaga. Foreldrar geta æft líkamsrækt meðan krakkarnir æfa JÚDÓ og KARATE. Fjölskylduafsláttur SPORT Mörkinni 8, austast við Suðurlandsbraut, simi: 679400

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.