Morgunblaðið - 10.09.1991, Side 60

Morgunblaðið - 10.09.1991, Side 60
ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1991 VERÐ í LAUSASÖLU 100 KR. Landgræðsluskogar: Dregið í dilka í Miðfjarðarrétt ,Morgunblaðið/Arii\björn Fyrstu réttir haustsins voru um síðustu helgi, og í Miðfjarðarrétt í Miðfirði drógu menn hvergi af sér við að draga féð í dilka. Ætíð er fjölmenni í réttunum, því þær eru ekki aðeins nauðsynlegt haustverk, heldur einnig eftirsóttur mannfagnaður. Fjárlagagerðin: Sparnaðartillögnrnar hafa lækkað um 390 milljónir kr. Beinar greiðslur til bænda auka útgjöld ríkissjóðs um einn milljarð Útgjaldaniðurskurður landbúnaðarráðuneytisins vegna búvörusamn- ings í fjárlagadrögum næsta árs nemur samtals 1.135 milljónum kr. Þó mun útgjaldaauki ríkissjóðs vegna beinna greiðslna til bænda, sem þá verða teknar upp í stað niðurgreiðslna, nema um einum milljarði kr. Auk þess verður greitt upp í lán frá Seðlabankanum að upphæð einn milljarður kr. sem tekið hefur verið til að gera upp við sláturleyf- ishafa. Samkomulag stjórnarflokkanna um afgreiðslu fjárlagafrum- varpsins í síðustu viku fól í sér nokkra Iækkun á þeim sparnaðarmark- miðum sem ráðuneytin gerðu tillögu um í síðasta mánuði og voru upp á samtals rúmlega 14 milljarða kr. Var dregið úr niðurskurði og sparn- aði að upphæð 390 milljónir króna. Mest var dregið úr sparnaðar- áformum í heilbrigðisráðuneytinu eða um 230 millj. en ráðuneytinu var upphaflega falið að skera niður ^útgjöld eða finna sparnaðarleiðir upp á 3,8 milljarða kr. Þá lækkaði sparnaðarrammi sjávarútvegsráðu- neytisins um 163 millj., félagsmála- ráðuneytis um 15 millj. og mennta- málaráðuneytis um 50 millj. Hins vegar tók landbúnaðarráðuneytið á sig 63 millj. kr. viðbótarniðurskurð. Framlög landbúnaðarráðuneytis til Framleiðnisjóðs verða skert um 350 millj. kr. Dregið verður úr framlögum til að stöðva uppblástur ^Viðvörunar- kerfi af stað í Listasafninu Viðvörunarkerfi Listasafns ís- lands fór af stað um kl. 20 í gærkvöldi. Lögregla og slökkvi- Htið fóru á staðinn en þegar að var gáð reyndist um bilun í kerf- inu að ræða. samkvæmt áætlun landgræðslu- nefndar og niðurgreiðslur á mjólk- urdufti verða lækkaðar um 50 millj- ónir króna. Þessum auknu útgjöldum ráðu- neytanna á næstu fjárlögum á að PÉTUR Einarsson flugmálastjóri hefur sent öllum flugskólum bréf þar sem óskað er eftir tilboðum í bæði bóklegan og verklegan þátt atvinnuflugkennslu. Að sögn Péturs er þetta gert með það fyrir augum að samræma verk- lega og bóklega þætti kennslunn- ar, þannig að útkoman verði sem hagnýtust fyrir flugnemana, bæði hvað varðar kostnaðar- og fræðsluhliðina. Þeir sem annast hafa verklega kennslu í atvinnuflugnámi eru að mæta á tekjuhlið með því að lækka endurgreiðslur tekjuskattkerfisins og fækka undanþágum í virðisauka- skattkerfinu en þær aðgerðir eiga að gefa af sér um einn milljarð kr. auk þess sem reynt verður að afla frekari tekna með sölu ríkiseigna. Engin endanleg afstaða hefur enn verið tekin í ríkisstjórn um til hvaða aðgerða verður gripið á tekjuhlið fjárlagafrumvarpsins en verið er að útfæra þær hugmyndir sem fram hafa komið. Einnig hefur verið ákveðin upphæð sem samkomulag er um vegna jöfnunaraðgerða að kröfu félagsmálaráðherra en þær verða útfærðar tneð hliðsjón af sögn Péturs Flugskóli Akureyrar, Vesturflug í Reykjavík, Flugtak og Flugskóli Helga Jónssonar, en fleiri aðilar hafa þó flugkennsluleyfi. Bóklega kennslan var áður í fjöl- brautarskóla Suðurnesja, en hún var flutt til Reykjavíkur fyrir nokkr- um árum. Síðan hefur verið kennt í húsakynnum Flugmálastjórnar, en undir stjórn Fjölbrautaskóla Suður- nesja og Flugmálastjórnar. Að sögn Péturs ljúka árlega á milli 20 og 30 manns atvinnuflugmannsnámi. „Við höfum verið að vinna að því kjarasamningum á næstu vikum. Jón Baldvin Hannibalsson ut- anríkisráðherra staðfesti í samtali við Morgunblaðið að sparnaðar- og niðurskurðarrammi utanríkisráðu- neytisins næmi 203 millj. kr. en þar af á að spara 103 millj. í rekstri ráðuneytisins. Útgjöld dóms- og kirkjumálaráðuneytisins í Ijárlaga- frumvarpinu nema samtals 4,6 milljörðum kr. en sparnaðartillögur ráðuneytisins nema samtals 700 millj., þar af eiga nýjar sértekjur að verða 425 millj. og er þar m.a. gert ráð fyrir umtalsverðri hækkun dómsmálagjalda. Sjá einnig frétt á bls. 33. æðilanga hríð að reyna að tvinna saman verklega og bóklega at- vinnuflugnámið. Ég hef sent bréf til allra flugskóla þar sem ég bað þá um tilboð í að framkvæma þessa kennslu, bæði bóklega og verklega. Það er ekki verið að hugsa um’ það að ríkið greiði þessa kennslu, heldur er verið að finna ódýrasta tilboð fyrir hugsanlega nemendur. Þar að auki er nú á döfinni í Evrópu sam- ræming á reglum um menntun at- vinnuflugmanna, sem mun þýða Övenju mikið um flækinga af skordýra- ætt í sumar ÓVENJU mikið hefur verið um að flækingar af ýmsum tegund- um skordýra, sem að jafnaði lifa ekki hér á landi, hafi sést hér í sumar. Erling Ólafsson, dýra- fræðingur hjá Náttúrufræði- stofnun, segir að oft hafi verið haft samband við Náttúrufræði- stofnun vegna óvenjulegra skor- dýra í sumar, sérstaklega eftir miðjan júll. Hagstætt veðurfar hafi þarna áhrif á, enda Iifi dýr- in lengur ef hlýtt sé í veðri og stillt eins og í sumar. Óvenjulegur gestur sást á sjöttu hæð Sjávarútvegshússins við Skúla- götu, gamla útvarpshússins, í gær. Var þar um að ræða óvenju skraut- legt flðrildi, svokallað netlufiðrildi. Erling Ólafsson skoðaði dýrið og segir hann að netlufiðrildi sjáist að jafnaði einu'sinni á ári hér á landi, en þau berist hingað frá Evrópu með varningi. Erling segir að að töluvert hafi borið á flækingum af ýmsum teg- undum skordýra víða um land í sumar. Hlýtt hafi verið í veðri og stillt og ljóst sé að við slíkar aðstæð- ur lifi dýrin lengur hér og frekar verði því vart við þau. Einnig hafi vindáttir áhrif á þetta, þar sem sum dýrin berist hingað með vindum. Sem dæmi um það megi nefna þist- ilfiðrildi og aðmírál, sem hafi sést hér í sumar. íslenskra atvinnuflugmanna verða gild hvar sem er í Evrópu. Við verð- um að laga kröfurnar alveg ná- kvæmlega að því til þess að námið komi mönnum að fullu gagni, en hingað til hafa menn með atvinnu- flugmannsskírteini þurft.að fá sér- staka fullgildingu í öðrum löndum, t.d. með því að undirgangast próf. Ég reikna með að þetta verði kom- ið í kring á næstu tveimur árum, en Svíþjóð er þó þegar búin að við- urkenna okkur eitt ríkja,“ sagði Flugmálasljórii óskar eftir tilboðum í atvinnuflugkennslu það í framtíðinni að skírteini Pútur. * • Ovæntur ár- angur eftir fyrsta árið UM 90% af þeim milljón plöntum, sem gróðursettar voru í Land- græðsluskógaátaki árið 1990, lifðu af fyrsta árið, en algengt er að fyrstu árin séu afföllin um 20% til 25%. Þetta kom fram á aðalfundi Skógræktarfélags ís- lands. Á fundinum kynnti Ása Aradótt- ir, vistfræðingur, niðurstöðu úttekt- ar sem hún vann ásamt Sigurði Magnússyni, vistfræðingi hjá Rann- sóknastofnun landbúnaðarins, í lok maí og byijun júní á þessu ári. Hún sagði niðurstöðuna hafa komið á óvart og um glæsilegan árangur væri að ræða. Sjá nánar á miðopnu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.