Morgunblaðið - 19.09.1991, Page 1
64 SIÐUR B
212. tbl. 79. árg.
FIMMTUDAGUR 19. SEPTEMBER 1991
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Bandaríkin:
Viðbúnaðiir efld-
ur við Persaflóa
Bush kveðst ekki búast við að gripið
verði til hernaðaraðgerða
Grand Canyon í Arizona, Washington, Sameinuðu þjóðunum, Bagdad. Reuter.
GEORGE Bush Bandaríkjaforseti sagðist í gær ekki búast við því
að gripið yrði til hernaðaraðgerða gegn írökum á næstunni þótt
hann hefði gefið leyfi fyrir því að bandarískt herlið aðstoðaði
eftirlitssveitir Sameinuðu þjóðanna við að framfylgja ákvæðum
vopnahléssamningsins. „Við höfum ekki ákveðið neinn frest en
ég hef ákveðið að skilmálum bandamanna verði hlýtt,“ sagði for-
setinn.
Heimildarmenn í Hvíta húsinu
sögðu að hafinn væri undirbúning-
ur að því að flytja á næstu dögum
nokkrar sveitir herflugvéla til
Saudi-Arabíu til að gera írökum
Ijóst hver alvara væri á ferðum.
Dick Cheney varnarmálaráðherra
vildi hvorki játa né neita þessum
orðrómi.
Stjórnvöld í Bagdad skýrðu ekki
frá orðrómnum um liðsflutninga
Bandaríkjamanna í gær. Sam-
kvæmt fregnum síðdegis var talið
líklegt að írakar myndu samþykkja
kröfu öryggisráðs SÞ um að eftir-
litsmenn samtakanna fengju ótak-
markað leyfi til að fljúga yfir ír-
askt landsvæði til að kanna staði
þar sem grunur leikur á að gerðar
séu tilraunir með kjarnavopn, einn-
ig tilraunastöðvar þar sem hægt
er að framleiða efna- eða sýkla-
vopn. Stjóm Saddams Husseins
hefur áður hafnað þessari kröfu.
Fulltrúar SÞ segja Iraka torvelda
eftirlitsstarf þeirra með ýmsum
hætti. Eftirlitið er í samræmi við
vopnahléssamninginn sem írakar
samþykktu.
Enn eru um 33.000 bandarískir
hermenn í löndunum við Persaflóa
auk fimm þúsund manna úr flug-
hernum. Þegar Persaflóastríðinu
lauk 28. febrúar sl. voru um
540.000 bandarískir hermenn á
svæðinu. Flugvélamóðurskipið
Abraham Lincoln er á Persaflóa
og annað skip af sama tagi, Forr-
estal, á Miðjarðarhafi. Hvort skip
ber um 150 flugvélar og þyrlur.
Heimildarmenn í Washington
sögðu að hermenn í ýmsum sveit-
um bandaríska flughersins hefðu
fengið fyrirmæli um að vera við-
búnir því að fara til Persaflóa með
skömmum fyrirvara. Fyrirmælin
hefðu meðal annars náð til sveita,
sem hafa yfir Stealth-orrustuþot-
um og árásarþotum af gerðinni
F-15E að ráða.
Reuter
Georgíuþing ræðir tillögur stjórnarandstöðunnar
Drengur gengur á götuvígi í miðborg Tbilisi, höfuð-
borgar Georgíu, þar sem andstæðingar og stuðnings-
menn Zviads Gamsakhurdia forseta hafa skipst á
um að efna til útifunda síðustu vikur. Lögregla reyndi
að rífa götuvígi í borginni í gær en lét undan síga
fyrir fólkinu eftir nokkuð karp. Fregnir bárust af
því að þingið, þar sem liðsmenn forsetans hafa naum-
an meirihluta, hefði slakað til og ákveðið að ræða
í dag tillögur stjórnarandstæðinga um hraðari einka-
væðingu, umbætur í landbúnaði, fjölmiðlafrelsi til
handa öllum flokkum og jafnframt að almenn um-
ræða yrði um stjórnmálaspennuna í landinu. Einn
helsti leiðtogi andstöðunnar er í haldi, sakaður um
samsærisáform.
Sjá „Sílajev segir brýnt ... “ á bls. 22.
Kína:
Bann lagt við
kossaflensi
Peking. Reuter.
NÁMSMENN við háskólann
í Peking verða að nota tím-
ann til 5. október vel til að
kyssast, faðmast og haldast
í hendur, því frá og með þeim
degi verður slíkt athæfi
bannað.
Kínversk yfirvöld telja að
atlot af þessu tagi „spilli sið-
gæði almennings“, samkvæmt
opinberri tilkynningu sem sett
hefur verið upp við háskólann.
Námsmenn við skólann, sem
létu mjög til sin taka í mótmæl-
unum 1989, taka því þó eflaust
verr að jafnframt verður bann-
að að púa og flauta á almanna-
færi og hið sama gildir um að
safnast saman án sérstaks leyf-
is. Ennfremur verður bannað
að bijóta flöskur því litið er á
slíkt athæfi sem andóf gegn
valdamesta manni kommún-
istastjórnarinnar, Deng Xiaop-
ing, þar sem nafn hans hljómar
eins og orðin „litlar flöskur" á
kínversku.
Carrington segir hörmulegt
stríð vofa yfir í Júgóslavíu
ÁgTeiningnr innan EB um hvort senda eigi friðargæslusveitir á vettvang
Zagreb, Belgrad, París. Reuter.
CARRÍNGTON lávarður, sem vinnur nú að því að koma á friði í
Júgóslavíu, sagði í gær enn of snemmt að útiloka að vopnahléssam-
komulagið, sem undirritað var á mánudag og gekk í gildi á hádegi
í gær, nægði til að koma á friði þrátt fyrir að harðir bardagar hefðu
enn einu sinni brotist út í Króatíu. Hann bætti þó við að ástandið
væri því miður þannig að „hörmulegt stríð“ vofði yfir í Júgóslavíu.
„Það hefði verið mikil bjartsýni
að ætla að klukkan tólf linnti öllum
skærum. Við verðum að bíða í sólar-
hring' og sjá hvernig staðið verður
við samkomulagið," sagði lávarður-
inn í viðtali við Radio France Inter-
national. Hann lét einnig þau orð
falla að þetta vopnahléssamkomu-
lag væri síðasta tækifærið til að
koma í veg fyrir allsheijar borgara-
styijöld í Júgóslavíu.
Stipe Mesic, forseti landsins, sem
er Króati, sagði í útvarpsviðtali í
gær að hann hefði ekki trú á því
að serbneskir skæruliðar myndu
hætta að beijast við sveitir Króata.
Króatar væru reiðubúnir að virða
vopnahléð en það ætti hins vegar
ekki við um Serba. Hann sagði
Júgóslavíu nú einungis vera til að
nafninu til og að hann myndi segja
af sér 7. október nk. þegar sjálf-
stæðisyfirlýsingar Króatíu og Slóv-
eníu ganga í gildi.
Júgóslavneski fTotinn og flugher-
inn héldu í gær uppi harðri skot-
hríð, frá sjó og úr lofti, á sveitir
Króata í hafnarborginni Split. Þá
börðust sveitir Króata og sam-
bandshersins í fjölmörgum borgum,
þar á meðal Sibenik, Vukovar og
Osijek. Króatískir fjölmiðlar sögðu
að 25 manns hefðu fallið á einum
sólarhring. Luka Bebic sagði af sér
embætti varnarmálaráðherra Kró-
atíu, að því er virðist vegna ágrein-
ings við Franjo Tudjman forseta
um þá ákvörðun hans að króatískir
þjóðvarðliðar skyldu hætta að ioka
vegum að stöðvum júgóslavneska
hersins í lýðveldinu.
Leiðtogar EB voru ekki á einu
máli um hvort senda ætti vopnaðar
friðargæslusveitir tii Júgóslavíu
eins og Hollendingar, sem nú fara
með forystuna innan bandalagsins,
lögðu til á mánudag. Ruud Lubb-
ers, forsætisráðherra Hollands,
sagði að ekki stæði til að fela friðar-
gæslusveitum að koma á friði, held-
ur að fylgjast með því að staðið
yrði við samkomulag um vopnahlé.
John Major, forsætisráðherra Bret-
lands, tók í sama streng eftir fund
með Lubbers.
Þjóðveijar, ítalir og Frakkar eru
hins vegar þeirrar skoðunar að á
fundi utanríkisráðherra EB í dag
eigi að fela Vestur-Evrópusam-
bandinu að senda lið til Júgóslavíu
Reuter
Niðurlútir Króatar bíða eftir því að geta farið úr neðanjarðarbyrgi
í Zagreb, höfuðborg Króatíu, eftir að loftvarnaflautur höfðu enn
einu sinni verið þeyttar þar í gær.
til að binda enda á bardagana.
Vopnahléssamkomulagið, sem
undirritað var af fulltrúum Serba,
Króata og sambandsstjórnarinnar á
mánudag, er það níunda í röðinni
frá því bardagarnir hófust fyrir
tæpum þremur mánuðum og það
fjórða sem EB hefur haft milligöngu
um.
Franskur embættismaður skýrði
frá því í gær að Roland Dumas,
utanríkisráðherra Frakklands,
kynni að leggja til á fundi allsheij-
arþings Sameinuðu þjóðanna í
næstu viku að samtökin sendu frið-
argæslusveitir til Júgóslavíu. Til-
lagan yrði lögð fram ef Evrópu-
bandalagið skærist ekki í leikinn.