Morgunblaðið - 19.09.1991, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. SEPTEMBER 1991
Vífilfell gefur Háskólanum 10 milljónir:
Rannsóknarstofa í Haga verð-
ur kennd við Björn Ólafsson
nÞAÐ fer ekki illa á að lyfjafræði Iyfsala verði kennd í Haga.
Ymsir muna að Coca Cola-drykkurinn, sem framleiddur er í Vífil-
felli, var upphaflega lyf,“ sagði Sveinbjörn Björnsson háskólarekt-
or þegar hann þakkaði peningagjöf Verksmiðjunnar Vífilfells til
skólans. í tilefni af 80 ára afmæli Háskóla íslands gaf Vífilfell
10 milljónir í minningu Björns Ólafssonar, sem hóf rekstur fyrir-
tækisins í Haga fyrir um hálfri öld.
Háskólinn keypti Haga nýlega
af Vífilfelli og verður vinnustofa
í húsinu kennd við Bjöm Ólafsson,
stofnanda Vífilfells og fyrrum
menntamálaráðherra. Lyfjafræði
lyfsala verður til húsa í Haga en
starfsemi deildarinnar hefur hing-
að til verið á víð og dreif um borg-
ina. Þegar er farið að nota þriðju
hæð hússíns, til fyrirlestra og fyr-
ir lesstofu nemenda.
Pétur Björnsson forstjóri Vífíl-
fells afhenti háskólarektor gjöfína
í minningu föður síns við athöfn
í Skólabæ í gær. Rektor lét þess
getið í þakkarorðum sínum að
rætt hefði verið að heiðra minn-
ingu Bjöms Ólafssonar með því
að kenna vinnustofu erlendra
gesta í húsi lyfjafræði lyfsala við
hann.
Vilhjálmur Skúlason prófessor
í lyfjafræði gat um aðra hugmynd,
sem ekki væri síður í anda Bjöms.
Hún væri að tengja rannsóknar-
stofu í lyfjafræði náttúmefna
nafni Bjöms. Hann hafí verið mik-
ill ferðamaður og eitt það fyrsta
sem menn gerðu þegar farið væri
út um landið væri að skoða grös
og plöntur.
Sveinbjöm Bjömsson segir að
gjöf Vífílfells verði notuð í ýmis-
legt sem enn er ófrágengið í Haga.
Rannsóknarstofur hafa ekki verið
innréttaðar þar, en gert er ráð
fyrir að þær verði tilbúnar næsta
haust. Verkleg kennsla í lyfjafræði
fer nú fram í kjallara aðalbygging-
ar Háskólans, á lofti íþróttahússins
og á 4. hæð í húsi Reykjavíkurapó-
teks.
4
Nemendur í lyfjafræði lyfsala
eru um 100 talsins og fá nú í fyrsta
sinn samastað. Deildin hafði auga-
stað á Haga fyrir um fímmtán
ámm, en þá var húsið ekki falt.
Síðan hafa ýmsir möguleikar verið
athugaðir um aðsetur deildarinnar
og segja má að nú hafí hringnum
verið lokað.
1/EÐURHORFUR íDAG, 19. SEPTEMBER
YFIRLIT: Um 300 km austur af landinu er 969 mb lægð á hreyf-
ingu norðaustur en 990 mb lægð um 700 km suðvestur af Hvarfí
fer austnorðaustur.
SPÁ Minnkandi norðvestanátt og skúrir eða slydduél norðaustan-
lands en hæg norðan- og norðaustanátt og víða léttskýjað á Suð-
ur- og Vesturlandi. Fremur svalt, einkum norðanlands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG: Austan- og suðaustanstrekkingur og rign-
ing á sunnan- og vestanverðu landinu en hægari vindur og þykkn-
ar upp norðaustantil. Hlýnandi veður.
HORFUR Á LAUGARDAG: Nokkuð stíf norðaustanátt og rigning á
Vestfjörðum en hægari suöaustan- og austanátt í öðrum landshlut-
um. Víða skúrir en þó líklega þurrt norðanlands. Hiti 5-12 stig.
Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600.
TAKN:
Q Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
y, Norðan, 4 vindstig:
Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* r *
f * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* *. *
•j 0 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
V Skúrir
*
V H
= Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
CO Mistur
—Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hlti veður Akureyri 7 súld Reykjavík 8 úrkoma i gr.
Bergen 12 rlgning
Helsinki 11 léttskýjaö
Kaupmannahöfn vantar
Narssarssuaq 2 léttskýjað
Nuuk 3 skýjað
Osló 12 alskýjað
Stokkhólmur 14 hálfskýjað
Þórshöfn 11 skúr
Algarve 32 heiðskírt
Amsterdam 1 þokumóða
Barcelona 27 léttskýjað
Berlín 17 skýjað
Chlcago 12 alskýjað
Feneyjar 25 þokumóða
Frankfurt 20 léttskýjað
Glasgow 16 skúr á s. klst.
Hamborg 19 skýjað
London 20 skýjað
Los Angeles 17 þokumóða
Lúxemborg 20 heiðskírt
Madrid 32 heiðskírt
Malaga 28 heiðskírt
Mallorca 29 léttskýjað
Montreal 14 skýjað
NewYork 23 skýjað
Orlando vantar
París 24 heiðskirt
Madeira 26 rykmistur
Róm 27 léttskýjað
Vín 18 hálfskýjað
Washington 24 þokumóða
Winnipeg 2 alskýjað
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Pétur Björnsson forsljóri Vífilfells afhenti Sveinbirni Björnsyni há-
skólarektor 10 milljónir króna að gjöf til skólans í tilefni 80 ára
afmælis hans.
Kröfur í þrotabú Fjör-
eggs nær 300 milljónir
Húsavík.
SKIPTAFUNDUR í þrotabúi
Jónasar Halldórssonar í Svein-
bjarnargerði, sem rak alifugla-
búið Fjöregg, var settur á Húsa-
vík í gær. Lýstar kröfur í búið
nema samtals 291,7 milljónum
króna en óljóst er um eignir.
Stærstu kröfuhafar eru Kaupfé-
lag Eyfirðinga, íslandsbanki og
Búnaðarbanki.
Fundurinn var haldinn af skipta-
ráðanda Halldóri Kristinssyni sýslu-
manni að viðstöddum settum bú-
stjóra Arnari Sigfússyni hdl. sem
fundurinn samþykkti sem áfram-
haldandi bústjóra. Arnar gaf
skýrslu varðandi starf sitt og voru
lýstar kröfur í búið sem hér segir:
Forgangskröfur 4,2 milljónir,
veðkröfur 197 milljónir og almenn-
ar kröfur 90,5 milljónir. Samtals
291,7 milljónir.
Stærstu kröfuhafarnir eru Kaup-
félag Eyfirðinga með 96 milljóna
kröfu, Islandsbanki hf. með 45
milljónir og Búnaðarbanki íslands
með 35 milljónir. Rekstur búsins er
í fullum gangi og hefur Kaupfélag
Eyfírðinga það á leigu til 31. októ-
ber. Næsti fundur þrotabúsins var
ákveðinn 5. nóvember.
Fréttaritari
-----*-*-»--
Leiðbeiningar
fyrir erlenda
ferðamenn
STJÓRN Strætisvagna Reykjavík-
ur hefur samþykkt tillögu Sig-
þrúðar Gunnarsdóttur um að út-
búin verði skilti á ensku, dönsku,
þýsku og frönsku til upplýsingar
fyrir erlenda ferðamenn sem vilja
notfæra sér þjónustu vagnanna.
Á skiltunum komi fram hvað farið
kostar og að vagnstjóri gefí ekki til
baka. í greinargerð með tillögunni
kemur fram að borið hafí á því í
sumar að vagnstjórar hafí lent í
vandræðum með erlenda ferðamenn
sem ekki kunna á vagnana.
Hanna María Péturs-
dóttir skipuð þjóðgarðs-
vörður á Þingvöllum
SÉRA HANNA María Péturs-
dóttir hefur verið skipuð í emb-
ætti sóknarprests í Þingvalla-
prestakalli að tillögu Þingvalla-
nefndar. Hanna María mun
jafnframt gegna starfi þjóð-
garðsvarðar á Þingvöllum.
„Mér líst afskaplega vel á þetta,
og það er sérstakt tilhlökkunar-
efni að geta hafið störf á Þingvöll-
um 1. október. Mér fínnst sérstak-
lega gott að verða aftur sóknar-
prestur því ég hef ekki starfað
sem prestur í fímm ár,“ sagði
Hanna María Pétursdóttir við
Morgunblaðið. Hún hefur undan-
farið starfað við Skálholtsskóla
þar sem eiginmaður hennar, sr.
Sigurður Árni Þórðarson, er rekt-
or. Að sögn Hönnu Maríu munu
þau hjónin segja störfum sínum á
Skálholti lausum og flytja til Þing-
valla ásamt börnum sínum þrem-
ur.
Hanna María Pétursdóttir
sagðist vera afskaplega þakklát
fyrir það traust sem sér hefði
verið sýnt með þessari skipun.
„Það er mikil tilhlökkun að koma
að þessu búi, því að Heimir Steins-
son hefur unnið þar gott starf.
Þama bíða spennandi viðfangs-
efni, sérstaklega næstu árin þar
sem aldamótin nálgast og þessi
mikla afmælishátíð kristnitökunn-
ar,“ sagði hún.
Þegar Hanna María var spurð
hvort hún hygði á einhveijar
breytingar á Þingvöllum og starf-
seminni þar, sagði hún að ekki
væri tímabært að tjá sig um það.
Þingval.lanefnd hefði sent frá sér
Sr. Hanna María Pétursdóttir
nýskipaður þjóðgarðsvörður á
Þingvöllum.
ákveðna stefnumörkun í skipu-
lagsmálum staðarins og eftir
henni yrði unnið, annað leiddi
tíminn í ljós.
Sr. Hanna María Pétursdóttir
útskrifaðist úr guðfræðideild Há-
skóla íslands árið 1980 og var
ári síðar vígð til Ásaprestakalls í
Vestur-Skaftafellssýslu. Hún var
síðar skipuð sóknarprestur í Háls-
prestakalli í Suður-Þingeyjarsýslu
en árið 1987 fluttist hún til Skál-
holts ásamt fjölskyldu sinni.
Hanna María er gift Sigurði Árna
Þórðarsyni rektor og eiga þau
tvajr dætur og einn son.