Morgunblaðið - 19.09.1991, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. SEPTEMBER 1991
17
Imilend tónlistardagskrá
eftir Svein Einarsson
í Morgunblaðinu í dag, 17. sept-
ember, lætur Pétur Pétursson þul-
ur í ljós áhyggjur út af því hvaða
lög heyrist í Sjónvarpinu. Allur er
varinn góður og ábending hans
sjálfsagt þörf. Hann nefnir nokkur
dæmi, þar sem ekki hefur tekist
til sem skyldi og verður að segjast
eins og er, að dagskrárstjórn er
auðvitað ekki sett sem einhvers
konar rannsóknarréttur yfir sjálf-
stæðum þáttagerðarmönnum. Hitt
er svo annað mál, að margt hefur
tekist vel, og má Ííka benda á það.
En nú langar mig til að gleðja
Pétur. Ár söngsins fer í hönd og
vonandi sjást þess merki í dag-
„Hér er reyndar fátt
eitt talið, og- það eitt,
sem unnið er að einmitt
þessa daga, en margt
þessu líkt er í undirbún-
ingi.“
skránni. Strax fyrsta vetrardag
syngur t.d. ein helsta söngkona
okkar, Ólöf Kolbrún Harðardóttir,
í sjónvarpssal. Verið er að gera
þætti um þekkt tónlistarfólk, tón-
skáldin Jórunni Viðar, Jón Nordal
og Jón Leifs og Guðmund Jónsson
söngvara. Þá eru í vændum tónlist-
arþættir með píanóleikurunum
Eddu Erlendsdóttur og Önnu Mál-
friði Sigurðardóttur og í Tónstofu-
þáttunum verður annað tónlistar-
fólk sótt heim, t.d. Inga Back-
mann, Kolbeinn Bjamason, Selma
Guðmundsdóttir og Hilmar Örn
Hilmarsson.
Pétur minntist á tónlistarhúsið.
Nýlega er búið að taka up nokkra
þætti með tónlistarfólki, þar sem
það gefur vinnu sína til ágóða fyr-
ir tónlistarhúsið, en þættimir em
til þess gerðir að vekja áhuga á
því góða máli, að reisa þarf tónlist-
arhús á íslandi. Hér er reyndar
fátt eitt talið, og það eitt, sem
unnið er að einmitt þessa daga,
en margt þessu líkt er í undirbún-
ingi.
Sveinn Einarsson
Og sé minnst á það, sem heyrir
undir hina léttari tónlist, má nefna
Þitt fyrsta bros, kabarett með lög-
um Gunnars Þórðarsonar og þátta-
röð, Manstu gamla daga, þar sem
íslensk dægurlög í hálfa öld eru
rifjuð upp. Og sitthvað fleira
skemmtilegt.
Höfundur er dagskrársljóri /yá
Sjónvarpinu.
=VAPLEX=
TREFJAGIPSPLÖTUR
ÁVEGGI, LOFTOG GÓLF
KANTSKURÐUR SEM EGG
ÖRUGGT NAGLHALD
A BRUNAFLOKKUR
VIÐURKENNTAFELDVARNA-
EFTIRLITI Rl'KISINS
HOLLENSK GÆÐAVARA
Þ.ÞORGRfMSSON&CO
ÁRMÚLA29, SÍMI 38640
Eitt verka Steinþórs Marinós.
M STEINÞÓR Marinó Gunnars-
son listmálari opnar sýningu í kaffi-
húsinu Mílanó, Faxafeni 11, laug-
ardaginn 21. sept. nk. kl. 14.00.
Steinþór sýnir bæði olíumálverk,
pastel og myndir unnar með bland-
aðri tækni. Viðfangsefni hans er
náttúran, náttúrustemmningar,
fantasíur og hið abstrakta og dul-
magnaða í nærmynd náttúmnnar.
Steinþór á að baki íjölda einka- og
samsýninga hér heima og erlendis.
Verk eftir hann eru í eigu ýmissa
listasafna, stofnana og einkaaðila.
Hann hefur og hlotið listamanna-
laun. Sýningin er opin alla virka
daga kl. 9.00-19.00, laugardaga
9.00-18.00 og sunnudaga 13.00-
18.00.
0DEXIQN
léttir ykkur störfin
!a'i'
APTON-smíðakerfið
leysir vandann
• Svörtstálrör
• Grástálrör
• Krómuð stálrör
• Álrör - falleg áferð
• Allar gerðir tengja
Við sníðum
niður eftir máli
r
LANDSSMIÐJAN HF.
Verslun: Sölvhólsgötu 13
Sími (91)20680
Yeist þú hvað bíður þín fjárhagslega ef þú slasast eða
veikist? Kynntu þér máhð! Afkomutrygging
Sjóvá-Almennra tryggir fjárhagstöðu þína ef
starfsorkan skerðist af völdum slyss eða veikinda.
Par sem velferðarkerfinu sleppir taka Sjóvá-Almennar við.
* \
KRINGLUNNI 5 • SÍMI 692500
ÞAÐ ER ERFITT
AD RRÚA BILIÐ
ÞEGAR HEILSAN BILAR