Morgunblaðið - 19.09.1991, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. SEPTEMBER 1991
31
Heimsmeistaramótið í brids að hefjast í Japan:
Gætum náð langt á mót-
inu með góðum straumum
- segir Örn Arnþórsson einn liðsmanna íslenska landsliðsins
Brids
GuðmundurSv. Hermannsson
ÍSLENSKA landsliðið í brids
heldur til Yokohama í Japan
um miðja næstu viku tii að
keppa um eftirsóttustu verð-
laun bridsmanna: Bermúda-
skálina. Þetta er í fyrsta skipti,
sem íslenskt lið keppir um
Bermúdaskálina, en íslenskt
bridspar var í úrvalsliði Evrópu
sem keppti á fyrsta mótinu fyr-
ir 41 ári.
„Þetta leggst vel í okkur og
með góðum straumum gætum við
allt eins náð langt á mótinu. En
það gæti svo auðvitað snúist við
ef við lendum í andstreymi," sagði
Örn Arnþórsson, einn liðsmanna
íslenska liðsins, sem undanfarið
hefur búið sig af kostgæfni undir
heimsmeistaramótið. Auk spila-
og kerfísæfínga hefur liðið þjálfað
úthald og þrek með fjallgöngum
og langhlaupum.
Mótið skiptist í riðlakeppni og
útsláttarkeppni. Fyrst spila 16
sveitir í tveimur riðlum og fjórar
efstu sveitirnar í hvorum riðli
komast í útsláttarkeppnina, en
hinar eru úr leik. íslendingar þurfa
að berjast við Evrópumeistara
Breta, A-sveit Bandaríkjanna,
Argentínumenn, Venezúelamenn,
Ástrali, Egypta og Japani í sínum
riðli.
Stefnan sett á 4. sætið í
riðlinum
„Við göngum til leiks með mun
meiri óvissu en til Evrópumótsins.
Þar erum við að fást við þekkt
andlit en í þetta skipti er keppt
við þjóðir sem við mætum mjög
sjaldan. En baráttuandinn hjá
strákunum er í lagi og þeir ætla
að beijast um 4. sætið í riðlinum.
Það er þó fyrirsjáanlegt að byijun-
in verður erfíð. í fyrstu fjórum
leikjunum spilar ísland við Banda-
ríkin, Breta, Argentínumenn og
Ástrali í þessari röð. Það má alveg
Það verður á brattan að sækja fyrir íslenska bridslandsliðið í Yokohama, og það hefur því undirbúið
sig með því að klífa öll hæstu fjöll í nágrenni höfuðborgarinnar undanfarna mánuði. Á þessari
mynd sést landsliðið á toppi Esjunnar. Frá vinstri eru Aðalsteinn Jörgensen, Þorlákur Jónsson,
Guðlaugur R. Jóhannsson, Björn Eysteinsson, Jón Baldursson, Örn Arnþórsson og Guðmundur Páll
Arnarson.
búast við áföllum og höggum
strax í upphafí og þá reynir á lið-
ið, getu þess og samheldni," sagði
Björn Eysteinsson.
Örn Árnþórsson sagði að þeir
gerðu ráð fyrir því að Bretar og
Bandaríkjamenn kæmust auðveld-
lega upp úr riðlinum en baráttan
yrði um hin sætin tvö. „Við gerum
ráð fyrir að ef við náum sömu
spilagetu og á Evrópumótinu á
írlandi í sumar [þar sem ísland
lenti í 4. sæti] ætti það að duga í
4. sætið,“ sagði Örn.
Aðstæður gætu þó sett strik í
reikninginn í Japan. íslenska liðið
hefur enga reynslu á mótum sem
þessu, og einnig er 9 klukkutíma
mismunur á Japan og íslandi. En
Örn benti á, að flestar hinna þjóð-
anna þyrftu einnig að venjast
tímamismuninum, og hvað reynsl-
una varðaði væri íslenska liðið síst
reynsluminna en önnur, þótt það
hefði ekki áður keppt um Bermúd-
askálina.
Heimsmeistararnir með
óbreytt lið
Eins og áður sagði má búast
við því fyrirfram að Bretar og
Bandaríkjamenn séu öruggir með
sæti í útsláttarkeppninni. Þá er
argentíska liðið sennilega það leik-
reyndasta á mótinu, skipað spilur-
um sem allir hafa margoft keppt
á heimsmeistaramótum. Má þar
nefna Camberos, Scanavino og
Santamarina. Argentínumenn
háðu fyrr á þessu ári mikið ein-
vígi við Brasilíu um S-Ameríku-
meistaratitilinn og töpuðu með 2'A
stigi.
Ástralir hafa oft tekið þátt í
heimsmeistaramótinu en að þessu
sinni virðast þeir vera með veikara
lið en oft áður. Síðustu ár hefur
langsterkasta parið þeirra' verið
Steve Burgess og Pau! Marston.
Nú spilar Marston við Paul Lav-
ings, sem raunar hefur oft verið
í ástralska landsliðinu, en hinir
fjórir eru allir nýliðar.
Lið Venezúela er hins vegar
skipað mjög reyndum spilurum á
borð við Steve Hamaoui og Al-
berto Dhers, þótt þeir hafí aldrei
náð neinum sérstökum árangri á
alþjóðamótum. Um Egypta og ’
Japani er ei*fítt að spá, en vert
er að hafa það í huga, að Egyptar
þurftu að slá Indverja út til að
komast til Japans, og Indverjar
eru engir aukvisar í brids. Þá
komu Egyptar mjög á óvart með
góðri frammistöðu á síðasta
heimsmeistaramóti.
En íslensku landsliðsmennirnir
kunna líka sitthvað fyrir sér og
standa sig aldrei betur en í eldlín-
unni. Það gæti einnig orðið þeim
til framdráttar, eins og fleiri ís-
lenskum íþróttamönnum, að and-
stæðingunum hættir til að van-
meta þá. Og ef ísland kemst upp
úr riðlakeppninni ætti þrekþjálfun
undanfarinna mánaða að skila sér
í góðu úthaldi, eins og raunar kom
fram á Evrópumótinu í sumar. Því
er alls ekki fráleitt að ætla að
ísland komist langt á heimsmeist-
aramótinu.
Bermúdaskálin til Evrópu?
Það er hins vegar erfíðara að
spá fyrir um næstu heimsmeist-
ara. Brasilíumenn mæta með
óbreytt lið frá því þeir unnu
Bennúdaskálina fyrir tveimur
árum, þá Gabriel Chagas, Marcelo
Branco, Pedro Branco, Carlos
Camacho, Ricardo Janz og Ro-
berto Meilo. í millitíðinni hafa
Chagas og Branco unnið heims-
meistaramótið í tvímenning. Bras-
ilíumenn ættu því að eiga góða
möguleika á að verja titii sinn,
ekki síst þegar skipan hinna lið-
anna er skoðuð. Bandarísku liðin
virðast í veikara lagi, þótt göslar-
arnir Jeff Meckstroth og Eric
Rodwell seu að vísu í A-liðinu
ásamt íslandsvininum Alan
Sontag. Þá er Zia Mahmood einn
eftir af pakistanska liðinu sem
stundum hefur verið nærri því að
vinna heimsmeistaratitilinn.
En Brasilíumennimir hafa verið
sveiflukenndir gegnum árin og því
er spurning hvort þeir nái að sam-
stilla sömbutaktinn jafn vel og
síðast. Ég hef að minnsta kosti
þá trú, að helsta áhlaupið á titilinn
komi frá Evrópu að þessu sinni.
Ef Bretar verða í jafn miklu stuði
og á Evrópumótinu í sumar gæti
Bermúdaskálin sem best farið
þangað. Þá gætu Svíar vel komist
alla leið á seiglunni eins og raunar
Pólveijar. Og auðvitað má ekki
gleyma íslandi. Það er líka kominn m
tími til að Bermúdaskálin komi
aftur til Evrópu en þar hefur hún
ekki verið síðan Bandaríkjamenn
bundu enda á sigurgöngu Bláu
sveitarinnar ítölsku árið 1977.
Leiðrétting
í frétt í blaðinu í gær um vor-
fermingar í Reykjavíkurprófast-
dæmi eystra vorið 1992, féll niður
að þau börn í Kársnesprestakalli,
sem .ekki verður haft samband við
í skólanum, komi í kirkjuna mið-
vikudaginn 25. september kl.
15-17. Prestur í Kársnesprestakalli
er sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson.
■ KK-BAND leikur í kvöld,
fimmtudag, á veitingastaðnum L.A.
Café. L.A. Café hefur nýverið tekið
þá stefnu að bjóða gestum sínum
upp á lifandi tónlist og hefur það
mælst mjög vel fyrir. KK-band
skipa þeir Kristján Kristjánsson,
Þorleifur Guðjónsson og Kristján
Edelstein. Aðgangur er ókeypis.
■ AÐALFUNDUR Félags ása-
trúarmanna 1991 var haldinn í
Norræna húsinu 14. sept. sl. Á
fundinum var mynduð Lögrétta sem
fer með skipulag félagsins. í henni
sitja fjórir goðar og fimm manna
framkvæmdastjórn. Lögréttu sitja
nú Sveinbjörn Harðarson, Halla
Arnardóttir, Þorri Jóhannsson,
Hilmar Orn Hilmarsson og Ey-
vindur Eiríksson. Ályktað var um
jafnan rétt allra trúfélaga og trúar-
bragða hér á landi.
(Úr fréttatilkynningu.)
§ f ÉiSt? ‘ ll 1
■’v 81
Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir
Verðlaunahafar með viðurkenningar fyrir fegurstu garða og lóðir og snyrtilega umgengni í Rangár-
vallahreppi.
Verðlaun veitt fyrir feg-
urstu ffarða osr lóðir á Hellu
Hellu.
NÝLEGA voru veittar viðurkenn-
ingar fyrir fegurstu garða og lóð-
ir og góða umgengni á Hellu.
Veitt voru verðlaun fyrir fegursta
garðinn annars vegar á Hellu og
hins vegar í dreifbýli, snyrtilega
lóð og góða umgengni við fyrir-
tæki og í fyrsta sinn voru veitt
verðlaun fyrir sumarbústaðarlóð.
Viðurkenningu fyrir góða um-
gengni og fallegan garð á Hellu
fengu Erla Hafsteinsdóttir og Garðar
Jóhannsson, Heiðvagi 21, Hellu, en
í dreifbýli Guðný Sigurðardóttir og
Þórir Jónsson, Selalæk.
Leikskólinn á Hellu hlaut viður-
kenningu í flokki fyrirtækja fyrir
góða umgengni og snyrtilegt um-
hverfi.
Þá var ákveðið að veita í fyrsta
sinn viðurkenningu fyrir vel unna og
fallega sumarbústaðarlóð í hreppn-
um. Kom hún í hlut hjónanna Sigur-
jóns Ágústssonar og Sigrúnar Grétu
Guðráðsdóttur, en þau eiga sumarbú-
staðinn Fossnes við Hróarslæk á
Rangárvöllum. - A.H.
_____________Brids___________________
Umsjón Arnór Ragnarsson
Bridsfélag Sauðárkróks
Vetrarstarfsemi félagsins hefst
mánudaginn 23. september með eins
kvölds tvímenningi. Spilað verður í
félagsheimilinu Bifröst og hefst spila-
mennska stundvíslega kl. 19.1-5______
Stjórn félagsins í vetur skipa: formað-
ur Jón Orn Bemdsen, varaformaður
Kristján Blöndal, gjaldkeri Sigrún
Angantýsdóttir, meðstjórnendur
Þórdís Þormóðsdóttir og Ágústa Jóns-
dóttir.
Jöklatvímenningur BH
Að morgni 15. september höfðu 23
pör skráð sig í Jöklatvímenning Brids-
félags Hornafjarðar sem hefst á Hótel
Höfn á föstudaginn kemur. Það eru
spilarar af Reykjavíkursvæði, Austur-
landi og heimamenn. Hámarksfjöldi
er 40 pör'. Fern peningaverðlaun eru
í boði og hægt er að skrá sig hjá BSÍ'
(Elín), á Hótel Höfn og hjá formanni
Bridsfélags Hornafjarðar Sigurpáli
Ingibergssyni.
Jöklahlaupatvímenningurinn
Spilaður var tvímenningur 15. sept.
Úrslit:
1. MagnúsJónasson-GesturHalldórsson 228
2. KolbeinnÞorgeirsson-JónG.Gunnarss. 188
3. GunnarP.Halldóræ.-GuðbrandurJóhannss. Í83 ■
4. JónSveinsson-ÁmiStefánsson 175
5. Svava Amórsdóttir— AuðurJónasdóttir 165
Meðalskor 165. JGG