Morgunblaðið - 19.09.1991, Blaðsíða 43
MORGTJNBLAÐIÐ PIMMTUDAGUR 19. SEPTEMBER 1991
43
VELVAKANDI
SVARAR I SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Visthrun yfirvofandi
Þar kom að því! Vísindamenn eru
farnir að tala um „endurhannað"
gildismat í orkusparnaðarskyni, af
því að visthrun er fyrirsjánlegt á
Jörðinni! Reyndar þarf kraftaverk,
tii að koma í veg fyrir það. Það er
búið að sanna það svo að óyggjandi
er, að „gróðurhúsaáhrif“ og eyðing
ósónlags, eru beint af mannavöld-
um. Aður vissu menn um um-
hverfismengun, skóga- ogjarðveg-
seyðingu. Bandaríkjamenn eru
farnir að tala um óhjákvæmilega
breytingu á matarvenjum, og sérs-
takt umhverfisgjald á allt búfé á
jörðinni, til að draga úr frekari
ijölgun þess. Um árþúsundir lifðu
menn í samhjálpar-, en ekki sam-
keppnisþjóðfélögum. Slík samfélög
voru umhverfisvæn, þau síðustu
voru ríkjandi í Ameríku og Eyja-
álfu, en þeim _var flestum tortímt
með blóðbaði. Áhugasamir trúboðar
lögðu sig alla fram um að eyði-
leggja þann trúarkjarna sem allt
gildismatið og afstaðan til umhverf-
isins byggðist á. Herbergið sem
þetta er ritað í, þarf enga sérstaka
upphitun. Að mati raunsærra vís-
indamanna liggur ekki annað fyrir
en að kjarnafjölskyldur sofi í einni
kös, eins og tíðkast í ríkjum „þriðja
heiimsins", til að halda á sér hita.
Fátæktina sem Jesús lofsöng, var
að finna í sveitaþorpum Galileu og
á auðninni við Qumran. Fátækt
þessarar tegundar með rausn og
gistivináttu við ókunnugt fólk, er
enn að finna víða um heim.
Ferðabæklingur ætlaður fótgang-
Vörn ógæfumanna
I Velvakandadálki Mogunblaðs-
ins hafa birst þrjár greinar þar sem
ráðist er á nokkra ógæfumenn. Síð-
ast greinin birtist fimmudaginn 12.
september þar sem talað er um
þrælavinnubúðir sem góða lausn
fyrir þessa ógæfumenn. Það vekur
þó nokkra undiun hjá mér þar sem
flestir af þessum ógæfumönnum
dvelja nótt og nótt í gistiskýli Fé-
lagsmálastofnunar í Þingholts-
stræti 25 en það er gamla Farsótt-
arhúsið. Undrun mín er sú að rekst-
ur þess er með nokkurs konar mið-
aldafyrirkomulagi, næturgestur
verður að fara þaðan út kl. 10 að
morgni og má koma aftur inn kl.
7 að kveldi ef hann er ódrukkinn
og pláss fyrir- hann. Það skiptir
engu máli þótt úti sé stórhríð og
hörkugaddur.
Samhjálparmenn hafa reynt að
fá breytingu á þessu fyrirkomulagi
sem er það lélegt að engin samiík-
ing finnst á landinu. Á þessu
ástandi ber Félagsmálastofnun í
Síðumúla 39 alla ábyrgð. — En
þessir ógæfumenn bera líka ábyrgð
á sínu eigin sjáifskaparvíti.
Þorgeir Kr. Magnússon
andi fjallamönnum varar beinlínis
við því „að éta fjölskyldu út á gadd-
inn, í bókstaflegri merkingu“, við
Ausankutu fjall í Perú, svo rausnar-
lega mun af skortinum veitt.
Vöntun nútíma stórborgarbúans
er alis annars eðlis, eftir steinkassa-
húsnæði, alls konar skammtíma
drasli, þungarokki, krydduðu
skrumkenndum auglýsingum,
vændi, vímuefnum, peningum og
glæpum, er öðruvísi, og opnar enga
leið til himnaríkis, hvernig sem
guðspjöllin eru lesin.
Reynslan sýnir að margfalt erfið-
ara er að byggja upp, en að tortíma
og rífa niður. Vandamálið er allur
sá skari ríkra og snauðra (skóla-
kerfin meðtalin), sem vinna „dauð
störf“, er ekki á nokkurn hátt tengj-
ast frumþörfum mannsins, sem
enginn getur verið án. Með stuttu
millibili fáum við fréttir um spillingu
yfirstétta, hérlendis sem erlendis,
það er að segja græðgi þeirra í flott-
ræfilshátt á kostnað almennings!
Það var ekki bara fyrir seinni
heimsstyrjöldina! Takmarkalaus
óheilindi lýðræðislegra leiðtoga
vekja engar vonir, af grúanum:
Kjör Reagans og gíslarnir í íran,
og sala Breta á „kjarnorku-
sprengjuhráefni“ til írak, allt fram
að Persaflóastríði.
Halldór Laxness sagði íslendinga
þrefa um flesta hluti, en þá setti
jafnan hljóða, þegar að komið væri
að kjarna máls. Svo. létt er þeim
um að skruma. Sighvatur Bjþrg-
vinsson sagði þá hvorki stjórnast
af auð- eða félagshyggju, heldur
óskhyggju. Hvoru tveggja mun rétt.
Kannske áttu einhveijir þagnar-
stund að afloknum þætti Sjónvarps,
„Vá í lofti“, 11. september 1991.
Bjarni Valdimarsson
GOÐIR SKILMALAR
TRAUST ÞJÓNUSTA
irQniX
HÁTÚNI 6fl REYKJAVÍK SÍMI (91)-24420
ESTEE LAUDER
KYNNUM A MORGUN, FÖSTUDAG
20/9, NÝJU HAUSTLITINA
FRÁ ESTÉE LAUDER í
SNYRTISTOFUNNI HRUND
FRÁ KL. 13.00-18.00.
Sny/ttisto^cm ^ékmd
Grænatúni 1,
200 Kópavogi, sími 44025.
Auk þess: Make up línur - bað og body línur - naglasnyrtivörur -
varaliti - mascara - blýanta - o.m.fl.
Látid fagfólk í eftirtöldum verslunum leiðbeina yður:
Clara, Kringlu, Laugavegi og Austurstræti - Snyrtivöruversl., Glæsibæ - Snyrtivörubúðin, Laugavegi 76 - Holts Apótek -
Gullbrá, Nóatúni - Hygea, Austurstræti - Soffía, Hlemmtorgi - Andorra, Hafnarfiröi - Apótek Keflavíkur - Apótek Akureyrar
- Hilma Húsavik - Ninja, Vestmannaeyjum - Snyrtihúsið, Selfossi - Ósk, Akranesi.
ELLEN BETRIX er eitt af virtustu snyrti-
vörufyrirtækjum Þýskalands. ELLEN
BETRIX kappkostar að fylgjast vel með öllum
nýjungum í sambandi við snyrtivöruiðnaðinn
og efnafræðingar fyrirtækisins eru í stöðugu
sambandi við hinar ýmsu þróunar- og rannsóknar-
stofur heims. í snyrtivörum ELLEN BETRIX er því
að finna allar nýjungar sem koma húðinni til góða,
hvort sem þær heita -liposome-ceramides-collagen-
eða hin ýmsu vítarhín. í áratugi hefur ELLEN BETRIX
kappkostað að framleiða hina vönduðustu vöru á viðráðan-
legu verði og ásamt hinni þekktu þýsku vöruvöndun og
gæðakröfum fyrirtækisins, hefur ELLEN BETRIX orðið eitt af
leiðandi snyrtivörufyrirtækjum Þýskalands.
ELLEN BETRIX framleiðir m.a.:
ANTI AGE LINE
EXCLUSIVE LINE
PURE & NATURAL LINE
SENSITIVE LINE
BIO MOIST LINE
VITA BALANCE LINE
CLEAR FACE LINE
fyrir eldri húð
fyrir kröfuharða húð
fyrir ofnæmis húð
fyrir viðkvæma húð
fyrir þurra húð
fyrir blandaða húð
fyrir óhreina húð
SIEMENS
Lítið ihn til okkar og skoðið vönduð
vestur-þýsk heimilistœki!
Hjá SIEMENS eru gœði, ending og
fallegt útlit ávallt sett á oddinn!
SMITH&NORLAND
NÓATÚNI 4 • SlMI 28300