Morgunblaðið - 06.11.1991, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. NOVEMBER 1991
3
Hoechst
C3l.
FYRST VAR ÞAÐ
HAMPURINN
Allt frá því að HAMPIÐJAN var sett á laggirnar, árið 1934, hefur þar aðeins
verið notað besta fáanlega hráefni, til að tryggja gæði framleiðslunnar.
í þá daga var hampur álitinn besta hráefnið í gerð veiðarfæra og var hampur
notaður í framleiðslu þeirra fyrstu þrjá áratugina.
SVO KOM BYLTINGIN
Á sjöunda áratugnum varð mikil tæknibylting á þessu sviði og í kjölfar hennar
hóf HAMPIÐJAN notkun á gerfiefnum í veiðarfæri sín.
Þar með var plastið komið til sögunnar.
Enn sem áður var rík áhersla lögð á fyrsta flokks hráefni og árið 1966 hófust
viðskipti við þýska alþjóðafyrirtækið HOECHST.
HOECHST er einn stærsti framleiðandi heims á sviði efnaiðnaðar og telur
um 172 þúsund starfsmenn í 120 löndum. HOECHST stendur mjög framarlega
á sviði hvers kyns rannsókna og vöruþróunar. Sem dæmi má nefna, að
15 þúsund starfsmenn vinna á þeim sviðum eingöngu og hvern starfsdag er
að jafnaði varið 660 milljónum króna í vöruþróun og rannsóknir.
OG 25 ÁRUM SÍÐAR
Og nú, 25 árum síðar, fær HAMPIÐJAN enn stóran hluta af hráefni sínu
frá HOECHST.
Aldarfjórðungs samvinna þessara tveggja fyrirtækja hefur borið hróður
íslenskra veiðarfæra um heimsins höf, þar sem þau eru þekkt fyrir afbragðs
endingu og styrkleika.
VIÐ FÖGNUM ÁRANGURSRÍKRI SAMVINNU
VIÐ HAMPIÐJUNA í 25 ÁR
m
"