Morgunblaðið - 06.11.1991, Blaðsíða 44
IBM PS/2
KEYRIR STÝRIKERFI
FRAMTÍÐARINNAR:
IBMOS/2
VÁTRYGGING
SEM BRÚAR
BILIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, ADALSTRÆTI 6, 101 REYKJAVÍK
SIMI 691100, FAX 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
MIÐVIKUDAGUR 6. NOVEMBER 1991
VERÐ I LAUSASOLU 110 KR.
Forseti Alþjóða handboltasambandsins:
Hús fyrir 7 þúsund
eða engin keppni
ERWIN Lanc, forseti Alþjóða handknattleikssambandsins (IHF), sagði
í samtali við Morgunblaðið í gær að Heimsmeistarakeppnin í hand-
knattleik árið 1995 færi ekki fram á íslandi nema íþróttahöll, sem
tekur 7.000 áhorfendur, verði til staðar.
Fyrir einu og hálfu ári gerðu ríkis-
valdið og Kópavogsbær samning
þess efnis að reist yrði íþróttahús í
Kópavogi vegna HM, sem fullnægði
kröfum IHF, þar sem meðal annars
var kveðið á um rými fyrir 7.000
áhorfendur. Framlag ríkissjóðs
skyldi vera 300 milljónir króna. Um
helgina var þessum samningi rift
með fyrirvara um samþykki bæjar-
fstjórnar Kópavogs á þeirri forsendu
að Kópavogsbær taldi framlag ríkis-
ins, 300 milljónir, ekki nægjanlegt
til að ráðast í eins dýrar fram-
kvæmdir, en áætlaður kostnaður er
sjö hundruð til þúsund milljónir.
í framhaldi af þessu viðraði Hand-
knattleikssamband íslands hug-
myndir í þá átt að hægt væri að
semja við IHF um byggingu húss
fyrir færri áhorfendur og hafa tölur
frá 5.000 til 6.500 verið nefndar.
Lanc sagði að slík breyting kæmi
ekki til greina. „Heimsmeistara-
keppnin fer fram á íslandi ef húsið
verður byggt, annars ekki.”
Sjá nánar bls. 43.
Búist við skæðum
inflúensufaraldri
INFLÚENSUFARALDUR sem búist er við að breiðist út um Evr-
^ópu á næstu vikum og mánuðum er talinn skæðari en flensufaraldr-
ar undanfarinna ára, að sögn Matthíasar Halldórssonar aðstoðar-
landlæknis. Miðað við reyslu undanfarinna ára ætti inflúensan að
berast hingað síðar í vetur. Byrjað er að bólusetja gegn henni.
stakar aðstæður, t.d. sjómönnum
og einum heimilismanni á hveijum
sveitabæ. Þá sagði aðstoðarland-
læknir að allir sem það vildu gætu
fengið bólusetningu á eigin kostn-
að. Bólusett er gegn inflúensu af
þremur stofnum, flensan sem nú
er að byija að stinga sér niður í
Evrópu er af einum þeirra.
í frétt í vikublaðinu The Europ-
ean segir að búist sé við skæðasta
inflúensufaraldri sem komið hafi
í Evrópu um árabil og Alþjóðaheil-
brigðismálastofnunin hvetji fólk til
að láta bólusetja sig, ekki síst
sjúklinga og gamalmenni.
Matthías Halldórsson sagði í
samtali við Morgunblaðið að fótur
væri fyrir því að inflúensufar-
aldurinn væri eitthvað skæðari en
faraldrar undanfarinna ára. Sam-
kvæmt upplýsingum sem land-
iæknisembættið hefur aflað sér er
inflúensan byijuð að heija á fólk
í Austur-Evrópu og í Bandaríkjun-
um er búist við skæðum inflú-
ensufaraldri í ár.
Að sögn Matthíasar má búast
við að inflúensan berist hingað
síðar í vetur. Ekki taldi hann
ástæðu til sérstakra aðgerða. Byij-
að er að bólusetja og er öldruðu
fólki og sjúku ráðlagt að láta bólu-
setja sig að sögn Matthíasar, einn-
ig fólki á vinnustöðum með sér-
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Þeir voru búralegir skipverjarnir á Klakki þegar þeir lönduðu búranum í Eyjum í gær.
Drýgja kvótann með veiðum á búra
Vestmannaeyjum.
KLAKKUR VE landaði í gær 40 tonnum af búra sem skipið fékk
í síðustu veiðiferð. Klakkur landaði einnig búra að Iokinni veiði-
ferðinni á undan og var hann fluttur á markað í Frakklandi þar
sem gott verð, 110 krónur á kílóið, fékkst fyrir hann.
Búri er djúpsjávarfiskur sem
lítið hefur veiðst af hér við land.
Vaxtarhraði físksins er afar hæg-
ur og verður hann ekki kynþroska
fyrr en um fimmtugt. Páll Þór
Guðmundsson, stýrimaður á
Klakki, sagði í samtali við Morg-
unblaðið að þeir hefðu fengið 10
tonn af búra í einum túr í vor og
hefði sá afli verið unnin hér heima.
„Við fengum 15 tonn af búra í
þar síðasta túr og núna fengum
við 40 tonn af þessu. Þetta fékkst
allt á smá bletti, en það verður
ekki gefíð upp hvar hann er. Við
fengum ágætis höl þarna, upp í
20 tonn,” sagði Páll. Hann sagði
að fyrir utan þessa túra hefðu
þeir einungis fengið einstaka
búra.
Búri er utan kvóta og því góð
búbót ef hægt er að ná í eitthvert
magn af honum þar sem verð
fyrir hann er hátt.
Grímur
Lítið miðar í kjaradeilu háseta á kaupskipaflotanum:
Útflytjendur keppast við að
koma fiski úr landi í vikunni
ISLENSKIR fiskútflytjendur | dag, komi afar illa við hagsmuni
segja að boðað verkfall háseta á þeirra vegna lítilla birgða erlend-
kaupskipaflotanum sem hefjast á is og breytinga sem orðið hafa á
kukkan 13 næstkomandi föstu- | viðskiptaháttum á undanförnum
Bakkafiskur á Eyrarbakka segir upp 90 manns:
"Tekið hefur verið tilboði
í eina bát fyrirtækisins
BAKKAFISKUR hf. á Eyrarbakka sagði upp öllu starfsfólki sínu, um
90 manns, um síðastliðin mánaðamót. Þá hefur verið tekið tilboði í
eina bát fyrirtækisins Stakkavík AR 107, en það er um 250 tonna
stálbátur, sem hefur kvóta sem jafngildir um 600 þorskígildum. Sala
bátsins er nú til umfjöllunar í sveitarstjórn Eyrarbakkahrepps. 500-600
manns eru búsettir á Eyrarbakka og er Bakkafiskur stærsta atvinnu-
^^yrirtækið á staðnum.
Hjörleifur Brynjólfsson, fram-
kvæmdastjóri Bakkafisks, segir að
til uppsagnanna sé gripið vegna fjár-
hagslegrar endurskipulagningar fyr-
irtækisins, en það hafí ekki lengur
verið rekstrarhæft miðað við aðstæð-
ur. Astæður þess séu meðal annars
þær að fyrirtækið hafi ekki setið við
—r*sama borð og önnur sambærileg fyr-
irtæki að stærð og mikilvægi fyrir
byggðarlög, en það hafí nær enga
fyrirgreiðslu fengið úr Atvinnutrygg-
ingarsjóði. Vandi fyrirtækisins væri
meðal annars fólginn í óhagstæðri
skuldasamsetningu. Þeir væru nú að
fara yfir stöðuna með endurskoðend-
um fyrirtækisins og stæðu í viðræð-
um við lánastofnanir í Reykjavík og
viðskiptabanka fyrirtækisins um
skuldbreytingar og niðurfellingu
skulda, en það væri ljóst að til þess
þyrfti að koma til að rekstur fyrir-
tækisins teldist lífvænlegur.
Aðspurður hvort fyrirtækið hefði
ekkert komið inn í þær sameininga-
•viðræður fískvinnslufyrirtækja sem
átt hafa sér stað á þessu svæði, sagði
hann að þeir hefðu lýst yfir vilja til
að taka þátt í þessum viðræðum en
hefðu þrátt fyrir það ekki verið tekn-
ir með í þær ennþá.
Magnús Karel Hannesson, oddviti
Eyrarbakkahrepps, sagði að sveitar-
stjórnin myndi taka þessa viku til
að skoða málið. Hann sagðist gera
ráð fyrir að sveitarstjórnin myndi
gera allt sem í hennar valdi stæði
til að halda þessum kvóta í byggðar-
laginu, en hann væri um helmingur
af öllum kvóta Eyrbekkinga.
árum. Birgðir eru litlar meðal
annars vegna lítillar veiði að und-
anförnu og er keppst við að koma
eins miklum fiski úr landi og
kostur er áður en verkfallið skell-
ur á. Stöðug fundahöld hafa ver-
ið hjá ríkissáttasemjara vegna
kjaradeilunnar undanfarna daga
og var fundað í allan gærdag og
áfram í gærkveldi, en lítið hefur
enn miðað til samkomulags.
„Það er mjög alvarlegt mál fyrir
okkur ef við komum ekki frá okkur
vörum vegna þess einfaldlega að
það er búin að vera tiltölulega litil
framleiðsla að undanförnu þannig
að birgðastaðan er tæp og við þurf-
um því á mjög reglubundnum sigl-
ingum að halda,” sagði Bjarni Lúð-
víksson, framkvæmdastjóri hjá
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna.
Hann sagði að ef verkfallið dræg-
ist á langinn myndi það hafa veru-
legar truflanir í för með sér. „Það
er orðið stutt til jóla og þessi tími
er hefðbundinn sölutími margra
fisktegunda. Hann getur runnið
okkur úr greipum, en það er eins
og alltaf er að það eru kannski hin
saklausu fórnarlömb verkfallanna
sem mestu tapa,” sagði Bjarni.
Sæmundur Guðmundsson, að-
stoðarframkvæmdastjóri íslenskra
sjávarafurða, sagði að verkfallið
kæmi sér mjög illa eins og við væri
að búast því í hverri einustu viku
væri verið að senda eitthvað út.
Með gámavæðingunni hefði salan
gjörbreyst og nú sendi fyrirtækið
megnið af sínum vörum út í gámum
til Bretlands, meginlands .Evrópu
og Japans. Hins vegar væri skip
nýfarið til Bandaríkjanna með fryst-
an físk.
Hann sagði að þeir reyndu að
senda eins mikið út og þeir gætu i
þessari viku. Ef verkfallið yrði langt
gæti það skaðað fyrirtækið mikið.
Síldarvertíð stæði yfir og öll hús á
Austfjörðum væru að vinna síld upp
á hvern dag. Þau hefðu ekki sérstak-
lega stórar frystigeymslur og ætlun-
in hefði verið að flytjá' síldina í hús
annars staðar á landinu, en nú
lokaðist sá möguleiki vegna verk-
fallsins. Það væri ekki gott að segja
hve fyrirtækin þar gætu starfað
lengi við þessar aðstæður. Magn-
ús Gunnarsson, framkvæmdastjóri
Sölusambands íslenskra fískfram-
leiðenda, sagði að verkfallið kæmi
sér illa. Nú væri að hefjast fram-
leiðsla á físki sem þyrfti að komast
á markað fyrir jólin og ef verkfallið
yrði langt þá drægi úr möguleikum
að koma framleiðslunni á markað.
A móti kæmi að staða á mörkuðum
væri í jafnvægi.