Morgunblaðið - 06.11.1991, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. NÓVEMBER 1991
Skipulögð s1 j órn
fiskveiða næstu árin
eftirKarl Ormsson
í fyrri grein minni um stjórnun
fiskveiða fjallaði ég aðallega um
veiðileyfi og kvótasölu og sitthvað
er laut að skefjalausu ranglæti í
skiptinu fiskveiða um byggðir
landsins. í þessari grein langar mig
að fjalla meira um breyttar stjórn-
valdsaðgerðir ef vera mætti til að
varpa fleiri flötum upp í sambandi
við þau vinnubrögð er margnefndur
vinnuhópur, sem marka á. okkar
nýja sjávarútvegsstefnu, þarf að
hafa til hliðsjónar.
Þær breyttu aðferðir ríkisstjórn-
ar Davíðs Oddssonar frá stefnu
fyrri stjórna að láta nú aðeins fjár-
muni til þeirra fyrirtækja er hafa
fullnægjandi veð fyrir þeim lánum
sem þau fá og þau tíðindi að þeir
einir borgi til baka sem fá þá fjár-
muni sem lánaðir eru úr sameigin-
legum sjóði hljóta að vera öllum
skattborgurum ánægjuefni. Tími
sukks og óráðsíu er einfaldlga liðinn
ef marka má þessa breyttu stefnu
stjórnvalda, tími sem hinn sauð-
svarti almúgi var látinn borga refja-
laust í hærri sköttum t.d. allskonar
gæluverkefni stjórnmálamanna. Nú
er þeim einum ætlað að greiðí sem
njóta lánanna, á sama hátt og okk-
ur er ætlað að standa við okkar
skuldbindingar. Nú er ekki lengur
hægt að varpa skuldum yfir á herð-
ar almennings. Þetta hlýtur að kalla
á sameiningu og hagræðingu og
stórbreytta stefnu hjá sjávarútvegs-
fyrirtækjum. Með heilbrigðari
stefnu stjórnmálamanna ætti þjóðin
að rétta fyrr úr kútnum. Ef nefnd
sú sem skipuð hefur verið vinnur
heiðarlega að stefnumótun fisk-
veiða og vinnslu (sem maður hefur
alla ástæðu til að ætla) ætti ekki
að líða langur tími þar til þjóðin fer
að njóta afraksturs skynsamlegrar
fiskveiðistjórnunar, sem svo sann-
arlega hefur skort mikið á síðustu
árin. Það er aðalatriðið hvernig fisk-
urinn er veiddur, hann verður að
skiptast sem réttlátast niður á
landsbyggðina, berast á land sem
hágæðavara fyrir verðmætustu
markaðina, og að ísland geti með
því alltaf boðið bestu og ómenguð-
ustu sjávarafurðir sem völ er á. Við
höfum gullið tækifæri ef okkur ber
gæfu til að nýta það á skynsamleg-
an hátt. Það hefur oft verið sagt
að betra sé að geyma fiskinn í sjón-
um en að gera hann að verðlitlu
hráefni. E.t.v. hefur það aldrei átt
betur við en einmitt nú þegar sjáv-
arafli fer þverrandi í öllum höfum
og við verðum (hvort sem okkur
líkar betur eða verr) að byggja upp
fiskistofnana með skynsamlegri
friðun um stund.
eftir Guðrúnu
Lilju Nordahl
Hefur þú upplifað þá reynslu að
vera t.d. á starfsmannafundi og
langa að leggja eitthvað til málanna
en vita ekki hvernig þá átt að bera
þig að?
Af hverju geta sumir alltaf kom-
ið sínum málum á framfæri en ekki
ég? Ég hef mig einhvern veginn
ekki til þess, það er eitthvað sem
vantar, svo ég geti tjáð mig.
Hvað er að, brást skólakerfið
þegar ég var í skóla? Kannski var
ég ekki tilbúin eða hafði ekki áhuga,
á því að geta tjáð mig í hópi fólks.
Margir íslendingar geta spurt sig
þessara spurninga er verður svara-
fátt og ýta málinu frá sér. Það
kemur alltaf að því fyrr eða síðar
að maður finnur þörf til að koma
einhveiju hjartans máli á framfæri.
En hvað þá? Sama vandamálið;
maður getur það ekki!
Lífsnauðsynlegt er að gera hvert
kíló að verðmætari vöru þegar ver-
ið er að móta fiskveiðistefnu e.t.v.
til næstu áratuga. Að endingu skora
ég á alla þá er hafa áhuga á sjávar-
útvegi að lesa stórfróðlega grein
hins mikla afla- og athafnamanns
Hrólfs Gunnarssonar í Morgunblað-
inu 5. september sl. Einkum þar
sem hann skrifar um aflamagn það
sem við hendum aftur í hafið. Og
ekki síður frásögn hans um fjöida
vannýttra fiskistofna hér við land
sem litlir fjármunir eru til að rann-
saka, hvers virði eru þeir og hvern-
ig mætti nýta þá. Manni virðist á
grein hans að nógur fiskur sé fyrir
Hvað er til ráða?
Það eru margar leiðir færar og
misjafnt hvað hentar hveijum. Mig
langar að benda á eina leið, sem
hentar mörgum.
Leið sem breytir áhyggjum í upp-
byggjandi orku, leið sem bætir
sjálfsímynd og eykur sjálfsöryggi,
leið sem eykur kjark og þor, leið
sem allir geta farið ef þeir bara vilja!
ITC (International Training in
Communication, eða þjálfun í sam-
skiptum) eru samtök á Islandi og
jafnframt í mörgum öðrum löndum,
sem hjálpa fólki að breyta áhyggj-
um í uppbyggjandi orku, að bæta
sjálfsímynd og auka sjálfsöiyggi.
ITC er félagsmálaskóli fyrir fólk
eins og þig. Það er aldrei of seint
að takast á við sjálfan sig og þroska
persónuleika sinn á ákveðnari hátt.
Það eru til margar sannar sögur
af ITC-félögum, sem hafa eftir tíma
með ITC fikrað sig ofar í virðingar-
og tekjustiga þjóðfélagsins. Margir
ITC-félagar hafa uppgötvað leynda
Karl Ormsson
alla ef lögum og reglum væri fylgt
eftir.
Höfimdur er raltækjavörður,
fyrrv. sjómaður og áhugamaður
um sjávarútveg.
„Það er aldrei of seint
að takast á við sjálfan
sig og þroska persónu-
leika sinn á ákveðnari
hátt.”
hæfileika, sem þeir búa yfir, sjálfum
sér og öðrum til gagns og gamans.
Býrð þú yfir leyndum hæfileikum?
Ef þig langar til að meira mark
sé tekið á þér, hlustað á þig, þá er
hér ein leið til þess: Farðu á fund
hjá ITC! Það fylgja því engar skuld-
bindingar, en hugsanlega gætir þú
hagnast á því. Það skilar arði að
vera í ITC!
ITC er fyrir allskonar fólk, af
báðum kynjum og á öllum aldri,
fyrir þá sem ekki þora, fyrir þá sem
þora ens skortir æfinguna, fyrir þá
sem langar að vera virkir þátttak-
endur í félagsmálum, fyrir þá sem
langar að vera með á sínum hraða
og fyrir alla hina líka.
■ / ÞJÓÐLEIKHÚSINU er haf-
inn undirbúningur að æfingum á
barnaleikritinu Emil í Kattholti eft-
ir Astrid Lindgren, sem sýnt verð-
ur á síðari hluta leikárs. Leit stend-
ur nú yfir að börnum í hlutverk
systkinanna í Kattholti, Emils og
ídu. Þjóðleikhúsið tekur gjarnan við
ábendingum um börn í þessi hlut-
verk. Leitað er að stúlku á aldrinum
8-10 ára og 10-12 ára dreng. Börn-
in þurfa að vera ófeimin, skýrmælt
og raddsterk og geta sungið vel. Þá
er nauðsynlegt að þau standi sig vel
í skóla, þar eð æfingar á leikritinu
kalla á einhver leyfi frá kennslu.
Leikstjóri sýningarinnar, Emil í
Kattholti, verður Þórhallur
Sigurðsson, leikmynd gerir Karl
Aspelund og í öðrum stærstu hlut-
verkum eru Bessi Bjarnason (pabbi
Emils), Margrét Guðmundsdóttir
(mamma Emils) og Margrét K.
Pétursdóttir (Lina vinnukona).
Þeim sem vilja koma ábendingum á
framfæri við leikstjóra sýningarinn-
ar er bent á að hafa samband við
skrifstofu Þjóðleikhússins.
Guðrún Lilja Norðdahl
Á íslandi eru starfandi ITC-
deildir víðsvegar á höfuðborgar-
svæðinu og á landsbyggðinni.
ITC-deildir halda reglulega
fundi tvisvar í mánuði, sem eru
öllum opnir. í dagbókum blað-
anna má finna tilkynningar um
fundatíma ITC-deilda.
Höfundur er einn af
blaðafulltrúum ITC.
Viltu breyta áhyggjum
í uppbyggjandi orku?
Morgunblaðið/Arnór
Svipmynd af spilakvöldi hjá Bridsfélaginu Muninn í Sandgerði.
___________Brids_______________
Umsjón Arnór Ragnarsson
„Blöndumót” á Hornafirði
Sl. sunnudag var spilaður eins
kvölds tvímenningur og voru pör dreg-
in saman.
Lokastaðan:
Guðmundur Guðjónsson - Gunnar P. Halldórss. 188
Svava Amórsdóttir - Ingólfur Baldvinsson 176
Jón Axelsson - Kristjón Elvarsson 172
BjömGíslason-KolbeinnÞorgeirsson 167
Jón Níelsson - Ólafur Jónsson 164
Jón G. Gunnarsson - Svava Gunnarsdóttir 164
Síðasta kvöldið í Landsbankamótinu
verður nk. sunnudag.
Bridsfélag lijóna
Nú er hausttvímenningnum lokið
með sigri Huldu og Ágústs, sem unnu
með 1 stigi. Annars varð lokastaðan
þessi:
Hulda Hjálmarsdóttir - Ágúst Helgason 732
Ásta Sigurðardóttir - Ómar Jónsson 731
Dóra Friðleifsdóttir—Guðjón Ottósson 712
Kristín Pálsdóttir - Vilhelm Lúðvíksson 711
Guðrún Reynisdóttir—RagnarÞorsteinsson 708
Gróa Eiðsdóttir—Júlíus Snorrason 702
Jónína Halldórsdóttir - Hannes Ingibergsson 678
Dröfn Guðmundsdóttir - Ásgeir Ásbjömsson 678
Næsta keppni félagsins verður 3ja
kvölda hraðsveitakeppni, hægt er að
skrá sveitir í síma 22378 (Júlíus).
Bridsfélagið Muninn
Nú er lokið tveimur umferðum af
þremur í hausttvímenningnum og er
staða efstu para nú þessii
Lárus/Vignir - Garðar Garðarsson 247
Halldór Aspar - Sumarliði Lárusson 241
EyþórJónsson- VíðirJónsson 233
Karl Karlsson - Hermann/Karl 228
Hæsta skor síðasta spilakvöld:
EyþórJónsson- VíðirJónsson 131
Maron Björnsson - Ingimar Sumarliðason 125
Halldór Aspar - Sumarliði Lárusson 116
Dagur Ingimundarson - Hallgr. Arthúrsson 112
Aðalfundur félagsins var haldinn
31. október og var kosin ný stjórn.
Hana skipa Eyþór Jónsson formaður,
Dagur Ingimundarson gjaldkeri, Garð-
ar Garðarsson ritari, Varamenn í
stjórn eru Reynir Óskarsson og Björn
Dúason.
gardeur
- dömufatnaður
Síðbuxur - margar gerðir
str. 36-48
Gallabuxur 3 gerðir
Stretch-buxur
ull og riflaflauel
Hnébuxur 3 gerðir
-58 cm síðar
65 cm síðar
70 cm síðar
Bein pils
3 lengdir
Felld pils
Stakir
jakkar
Peysur
ull/angóra
OÓtmtV
HF fataverslun,
Skerjabraut 1 v/Nesveg, Seltjarnarnesi.
Opið daglega kl. 9-18,
laugardaga kl. 10-16.