Morgunblaðið - 22.11.1991, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 22.11.1991, Blaðsíða 1
80 SIÐUR B/C/D 267. tbl. 79. árg.________________________________FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1991 ____________________Prentsmiðja Morgunblaðsins Iðnveldin sjö: Sovétmenn fá greiðslufrest Bonn, Moskvu. Reuter. FULLTRUAR sjö helstu iðnvelda heims ákváðu í gær að leyfa Sovét- ríkjunum að fresta í eitt ár greiðslum af um það bil 70 milljarða doll- ara erlendum skuldum ríkjasambandsins sem virðist vera að leysast upp. I sameiginlegri yfirlýsingu fulltrúanna og ráðamanna átta Sovét- lýðvelda var lýst meginatriðum áætlunar um aðstoð ríkjanna sjö við Sovétmenn. Einnig var sagt að til greina kæmi að veita frekari lán gegn tryggingu í gullbirgðum landsins. Bandaríkin buðu Sovétmönnum í gær lán að andvirði 1.250 milljónir dollara til kaupa á matvælum í Bandaríkjunum og var því tekið með þökkum. Reuter Helmut Kohl, kanslari Þýskalands, tekur á móti Borís Jeltsín Rússlandsforseta í Bonn í gær. Fáni Rúss- lands blakti við hún og leikinn var nýr þjóðsöngur Rússlands í fyrsta sinn við slíkt tækifæri. Þetta er fyrsta opinbera heimsókn Jeltsíns til annars lands eftir að hann var kosinn forseti í þjóðkjöri. Talsmaður utanríkisráðuneytis Króatíu í samtali við Morgunblaðið: Lið SÞ væri það ofurefli sem gæti stöðvað Serba Rewters-fréttastofan dregur til baka fréttir af fjöldamorðum á serbneskum börnum ANTON Babic, talsmaður utan- ríkisráðuneytis Króatíu, sagði í gær í samtali við Morgunblaðið að stjórnvöld í Króatíu vildu að Sameinuðu þjóðirnar (SÞ) sendu friðargæslusveitir til landsins. Þannig væri hægt að stöðva sókn júgóslavneska hersins og serb- neskra skæruliða iun í Króatíu. Reuters-fréttastofan hefur dreg- ið til baka fréttir frá því í fyrra- kvöld um meint dráp Króata á 41 serbnesku barni. Ljósmyndar- inn sem þetta var haft eftir Haiti; Tugir flótta- manna drukkna Havana. Reuter. SEXTÁN manns drukknuðu og óttast var um 119 að auki eftir að bátur með um 200 Haitibúa á flótta til Bandaríkjanna fórst i gær. Slysið varð við austurodda Kúbu. Slysið mun hafa orðið aðfaranótt miðvikudags og var þá slæmt veður á þessum slóðum og mikill sjór. Kúb- verska fréttastofan AÍN sagði að 60 manns hefðu með vissu komist af. Kúbverskar hjálparsveitir leituðu áfram að skipbrotsmönnum en fréttastofan taldi litlar líkur á að fleiri væru á lífi. Fjölmargir Haitibúar hafa flúið sára fátækt og óstjórn undanfarin ár og reynt að komast til Bandaríkj- anna. Hafa mál þeirra valdið deilum þarlendis þar sem óljóst er hvort hægt er að líta á fólkið sem pólitíska flóttamenn. Eftir stjórnarbyltingu haítíska hersins nýlega getur flótta- fólkið þó vísað til pólitískra ofsókna heima fyrir. reyndist ekki áreiðanleg heimild. María Vujasin, starfsmaður upp- lýsingaráðuneytis Króatíu, hefur það hins vegar eftir flóttamönn- um frá austurhluta Króatíu, að fyrir þremur dögum hafi serbn- eskir skæruliðar og júgóslavnesk- ir hermenn myrt 27 óbreytta borgara í þorpinu Nadin og 14 í þorpinu Skapoljna. Erfiðlega gengur að flytja flótta- fólk frá borginni Vukovar sem féll í hendur Serbum í vikunni. Bardagar geisa umhverfis borgina og óttast Króatar að næst reyni júgóslavneski herinn að leggja undir sig borgina Osijek þar sem búa 150.000 manns. Sendiherra Þýskalands hjá Samein- uðu þjóðunum, Detlev zu Rantzau greifi, fór í gær fram á skyndifund í öryggisráðinu um málefni Júgó- slavíu. Fulltrúar í ráðinu hafa und- anfama daga reynt að ná samkomu- lagi bak við tjöldin um ályktun þar sem kveðið yrði á um víðtækara eft- irlit með vopnasölubanni, olíusölu- bann og loks að framkvæmdastjóri samtakanna, Javier Perez de Cuell- ar, kannaði möguleikana á því að friðargæslulið á vegum SÞ tæki sér stöðu á átakasvæðunum strax og vopnahlé kæmist á. Talsmenn aust- urrískra stjórnvatda sögðu í gær að yrði Ante Markovic, forsætisráð- herra Júgóslavíu, sem er Króati, leystur frá störfum og Serbi tæki við gæti svo farið að Austurríki og fleiri ríki viðurkenndu umsvifalaust sjálfstæði Króatíu og Slóveníu. Talið er líklegt að Markovic verði vikið frá á næstu dögum. Anton Babic sagði að þrátt fyrir þrettán misheppnuð vopnahlé væru króatísk stjórnvöld enn reiðubúin til að finna friðsamlega lausn á stríðinu milli Serba og Króata. „Við myndum . fagna vopnahléi sem tæki strax gildi, en þegar á okkur er ráðist hljótum við að vetja hendur okkar.” Babic sagði að eina leiðin til að binda enda á átökin væri að SÞ sendu friðar- gæslulið á vettvang. „Serbar láta sér ekki segjast fyrr en þeir mæta ofur- efli.” Babic sagði að slíkt lið þyrfti ekki að vera mjög fjölmennt því Serbar myndu vart ráðast gegn frið- argæsluliðum SÞ. Babic taldi að vopnasölubannið á Júgóslavíu væri ranglátt því þar væri ekki gerður greinarmunur á árásaraðila og þeim sem veija þyrftu hendur sínar. Serbar nytu ennfremur góðs af því að hergagnaverksmiðjur Júgóslavíu væru á þeirra landi auk þess sem þeir hefðu fengið vopn erlendis frá. Babic vildi þó ekki nafn- greina þau ríki eða aðila sem sent hefðu vopn til Serbíu. Babic sagði að breska sjónvarpið Ríkin sem ekki rituðu undir yfir- lýsinguna voru Úkraína, Az- erbajdzhan, Úzbekístan og Georgía og báru þau því við að ekki hefði enn náðst samkomulag um skiptingu skuldabyrðarinnar milli lýðveldanna. Borís Jeltsín, forseti Rússlands, kom í opinbera heimsókn til Þýska- lands í gær. Hann sagðist ekki ætla hefði í vikunni sýnt myndir af komu Cyrus Vance, sendimanns SÞ tii borgarinnar Vukovar. Í bakgrunni hefðu verið serbneskir skæruliðar sem sungu: „Milosevic [forseti Serb- íu], sendu okkur salat, af kjöti verð- ur nóg, því við ætlum að drepa Kró- ata.” María Vujasin, starfsmaður króa- tíska upplýsingaráðuneytisins, segir í samtali við Morgunblaðið, að Ser- bar hafi fyrir nokkrum vikum haldið því fram að Króatar hafi myrt tugi bænda í Bilogora. Króatar hafi beð- ið sendinefnd Evrópubandalagsins að rannsaka málið og niðurstaða hennar hafi verið sú að það hafi verið serbneskir skæruliðar sem drápu Króata en Serbarnir hafi reynt að láta líta svo út sem það væru serbneskir bændur er lægju í valn- um. að biðja um fjárhagsaðstoð en vildi treysta tengslin milli landanna. Hann sagði þó að auðveldara yrði fyrir Rússa að þreyja veturinn ef hjálp bærist en Þjóðveijar yrðu sjálf- ir að ákveða hvernig þeir brygðust við. „Þetta er upphafið að nýrri og milliliðalausri samvinnu milli hins nýja Rússlands og hins nýja Þýska- lands,” sagði Jeltsín eftir að hafa kannað heiðursvörð hermanna á 'flugvellinum með Helmut Kohl kanslara. „Við verðum að ryðja burt rústunum og hefja uppbyggingu,” sagði hann. Jeltsín ferðaðist með venjulegri farþegaþotu og sagði Rússland ekki enn hafa efni á að eignast sérstaka forsetaþotu: Theo Waigel, fjármálaráðherra Þýskalands, sagði í viðtali við dag- blaðið Die Welt að Þjóðveijar yrðu að byggja upp tengsl er byggðust á trausti milii þeirra og Jeltsíns, á sama hátt og samband þeirra við Míkhaíl Gorbatsjov Sovétforseta. Áhrif Jeltsíns vaxa stöðugt og segir breska blaðið The Independent að hann varðveiti að staðaldri í svartri tösku éinn af þrem dulmálslyklum sem notaðir yrðu ef kjarnorkuher- aflanum yrði beitt. Hinir tveir cru í vörslu Gorbatsjovs og sovéska varn- armálaráðherrans. Talsmaður þýskra iðnrekenda, Heinrich Weiss, sagði að rangt væri að hefja fjárfestingar í Sovétríkjun- um áður en búið væri að koma þar á raunverulegu markaðskerfi og um fjárhagsaðstoð sagði Weiss: „Allar gjafir [til þeirra] detta enn sem kom- ið er ofan í botnlausan pytt.” Fulltrú- ar þýskra banka tóku ákvörðuninni um frest á afborgunum sovéskra lána kuldalega og sögðust ekki myndu feta í fótspor ríkisstjórnar- innar heldur krefjast vaxta og af- borgana. Peres vill ræða við PLO Shimon Peres, formaður Verka- mannaflokksins í ísrael, til- kynnti í gær, að flokkurinn vildi taka upp beinar viðræður við PLO, Frelsissamtök Palestínu- manna. Er um að ræða mikil- væga stefnubreytingu þótt ólík- legt sé að hún nái einnig til helsta stjórnarflokksins, Likud- flokksins, og Yitzhaks Shamirs forsætisráðherra. Nokkurrar bjartsýni gætir þó meðal Israela og Palestínumanna á framgang samningaviðræðnanna um frið í Miðausturlöndum og er sagt, að í fyrsta sinn trúi hvorirtveggju, að hinir vilji í raun ná samning- um. Reuter
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.