Morgunblaðið - 22.11.1991, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 22.11.1991, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1991 37 Minning: Sigrún Jónasdóttir frá Siglufirði Fædd 17. júní 1907 Dáin 11. nóvember 1991 „Og hvað er að hætta að draga andann annað en að frelsa hann frá friðlausum öldum lífsins, svo að hann geti risið upp í mætti sínum, og ófjötraður leitað á fund guðs síns?” (Ur Spámanninum eftir K. Gibran.) Okkur langar að minnast ömmu okkar, Sigrúnar Jónasdóttur, með nokkrum orðum en hún andaðist á hjartadeild Borgarspítalans þann 11. þessa mánaðar eftir nokkra sjúk- dómslegu. Amma var fædd í Beingarði í Hegranesi en bjó lengst af á Siglu- firði. Amma var mjög sjálfstæð og ákveðin kona. Hún vann mikið alla sína daga og var fyllilega karlmanns- maki í þeirri verkamannavinnu sem hún vann. Hingað til Reykjavíkur kom hún árið 1964 og kom þá inn á heimili okkar þar sem ætlunin var að hún litil til með okkur tveimur elstu systr- unum í einhveijar vikur. Það teygð- ist þó úr þeim tíma og nutum við þess að hafa ömmu á heimilinu í tæp fímmtán ár. Þá flutti hún í íbúð í næsta nágrenni við okkur þannig að þau miklu og góðu tengsl sem mynd- ast höfðu milli okkar systkinanna og ömmu héldust vel. Áhugi á fræðslu og menntun var henni í blóð borinn og var hún mik- ill uppfræðari og uppalandi. Hún fylgdist vel með nýjustu hugmyndum og var fróð um marga hluti, ekki síst hvað varðaði vísindi og fræði, svo og sögu og menningu landsins. Hún kunni ógrynnin öll af ljóðum og var óþreytandi að miðla okkur fróðleik og kenna okkur Ijóð þegar við vorum yngri og búum við að því alla tíð. Hún fylgdist mjög grannt með skólagöngu okkar og hafði mikla ánægju af að ræða við okkur um viðfangsefni okkar og hugðar- efni. Amma var alltaf'öpin fyrir nýjum hugmyndum þó gömul og góð gjldi og dyggðir hafi alla tíð haldið sínu hjá henni. Hún var framfarasinnuð félagshyggjukona og afar fráhverf því lífsgæðakapphlaupi og eftirsókn eftir vindi sem er svo áberandi í dag. Amma lagði alla tíð lítið upp úr veraldlegum hégóma og óþarfa. Andleg verðmæti voru henni hin einu sönnu verðmæti og af þeim átti hún meira en nóg. Hún hugsaði ekki mikið um sjálfa sig en þeim mun meira um aðra og var óþreytandi að gefa af sjálfri sér. Við nutum þeirra forrréttinda að eiga ömmu sem var alitaf til staðar fyrir okkur og aðra. Það var alltaf einhver heima til að tala við svo ekki sé minnst á soðna brauðið og flatkökurnar sem alltaf stóðu til boða. Það er dálítið undarlegt til þess að hugsa að sá tími er liðinn að hægt sé að koma við hjá ömmu. Þessi fasti punktur í tilverunni er horfinn, kletturinn í hafinu sokkinn, hluti af okkar rótum visnaður. Eftir stendur í hugum okkar þakklæti fyr- ir að hafa notið hennar eins vel og lengi og við þó gerðum. Sigrún, Steinunn, Guðrún og Valgeir. Vegna mistaka við vinnslu þess- arar greinar birtist hún hér íiftur. Við opnuðum í morgun á Eiðistorgi og í tilefni þess bjóðum við KRINGLUNNI • EIÐISTOR í KÓKÓ Eiðistorgi og KÓKÓ Kringlunni afslátturinn gildir til 27. nóv. afslátt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.