Morgunblaðið - 22.11.1991, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 22.11.1991, Blaðsíða 41
41 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1991 Hjónaminning: Kristínn Sveinsson Nikólína Konráðsdóttír Kristinn Fæddur 19. júní 1909 Dáinn 15. nóvember 1991 Nikólína Fædd 12. maí 1912 Dáin 9. janúar 1991 Vetur konungur er nú genginn í garð með kulda og hríð og gróður sumarsins fallinn í moldu. Allt sem lifir, jafnt blómin sem mennimir, lýtur sama lögmáli, að leita aftur til uppruna síns. Mitt í skammdegis- myrkrinu kvaddi Kristinn Sveinsson skyndilega þennan heim. Hann varð bráðkvaddur aðfaranótt 15. þ.m. á Hrafnistu, dvalarheimili aldraðra sjómanna. Það er ákjósanlegur dauðdagi fyrir trúan verkmann að ganga til hvílu eftir langt, erfitt en vel unnið dagsverk og vakna upp á æðra til- verusviði og þessi umskipti senni- lega sársaukalaus. Kristinn var fæddur 19. júní 1909. Foreldrar hans vom María Guðnadóttir frá Hælavík og Sveinn Vopnfjörð Jónsson, ættaður frá Vopnafirði. Hann var því einn af fymhluta aldar kynslóðinni sem lagði grandvöllinn að velferðar þjóðfélagi því sem við lifum nú í. Við eigum stundum erfitt með að skilja hugsunarhátt þeirra er þá vom að alast upp, því að aldarhætt- ir þeirra tíma eru okkur framandi. Menn voru þá að vísu snortnir af hugsjónum skálda og annarra fram- úrstefnu manna um gróandi þjóðlíf og batnandi hag erfíðismannsins. En þrátt fyrir það undu menn glað- ir við sitt og gerðu varla meiri kröf- ur, en að hafa til hnífs og skeiðar. A þessum árum var tryggingakerfi óþekkt og fólki því betur ljós sú ábyrgð sem það bar gagnvart sam- ferðamönnunum. Það vora oftast margar útréttar hendur sem buðu hjálp, þegar hennar var þörf. Fjöl- skyldan var samhentari að vinna að hag allra sem henni tengdust og kynslóðabil nánast óþekkt fyrir- bæri. Kristinn var dæmigert barn þessara tíma. Hann var strangheið- arlegur til orðs og æðis og öllum hans skuldbindingum var treyst- andi, án þess að hafa þær skrifleg- ar og vottfestar eins og gerist í dag. Hann var harðduglegur til allra verka og ósérhlífinn, en húsverk fundust honum of einföld og létt til að vera samboðin fullorðnum karlmönnum. Oft ræddi hann um kjör fólks á kreppuárunum, þegar skipta þurfti vinnu á milli fyrirvinnu heimilanna, þannig að hver fékk nokkurra daga vinnu í senn. Kristinn stundaði ýmis störf um dagana, vann lengi hjá ullarverksmiðjunni Framtíðinni, en seinni ár ævi sinnar var hann verkstjóri hjá Reykjavíkurborg. Sá Minning: Þorkell Skúlason húsasmíðameistari Fædd 17. september 1923 Dáinn 14. nóvember 1991 Hann Þorkell er farinn yfír móð- una miklu. Með fáeinum orðum lagn- ar mig til að kveðja hann og þakka fyrir samfylgdina. Við hittumst fyrst á Reykjalundi'vorið 1986. Nokkur okkar er þar dvöldumst okkur til heilsubótar þetta vor, tókum okkur til seinna um sumarið og stofnuðum gönguklúbb er við nefndum Flæki- fót. Það sem við vildum með klúbb- num var eins og segir í stofnskrá: „að byggja upp líkama og sál með sameiginlegum stuðningi klúbbfé- laga”. Þessi klúbbur hefur nú verið í gangi í fímm ár, og þar áttum við Þorkell margar samvemstundir, í gönguferðum í allskonar veðri, úti- legum og við fleiri tækifæri. Þorkell var góður félagi, áhuga- samur, hlýr og stundum skemmti- lega glettinn. Þó Þorkell væri frekar hlédrægur maður, var hann mjög félagslyndur og einn sá alduglegasti að mæta í gönguferðir og halda klúbbnum saman, þrátt fyrir að heilsan væri oft léleg og kraftamir takmarkaðir. Hann var meðal ann- ars mjög natinn að halda saman skrá yfír allar gönguferðir og aðrar uppákomur þessi fimm ár. I okkar hópi verður hans sárt saknað og við þökkum fyrir sameiginlegar ánægju- stundir. Okkar innilegustu samúðarkveðj- ur til fjölskyldu hans og vina. F.h. göngufélaga í Flækjufæti, Sólveig. Það eru eindregin tilmæli rit- stjóra Morgunblaðsins til þeirra, sem rita minningar- og afmælis- greinar í blaðið, að reynt verði að forðast endurtekningar eins og kostur er, þegar tvær eða fleiri greinar eru skrifaðar um sama einstakling.Þá verða aðeins leyfð- Nú er hann Þorkell, vinur okkar, fallinn frá. Heilsu hans tók að hraka fyrir um það bil sjö ámm, sem og ágerðist á þessu ári. Þrátt fyrir það mætti hann flesta sunnudagsmorgna í göngufélagsskap, sem hann ásamt fleirum stofnaði fyrir 5 ámm. Að undangenginni rannsókn á sjúkra- húsi tjáði hann vinum sínum af mesta æðmleysi að hann ætti eftir aðeins nokkrar vikur, mesta lagi fáeina mánuði. Guðrún dóttir hans, sem er búsett í London, náði að birt- ast með börnin sín þijú kvöldið síð- asta, sem hann lifði. Hann hafði til að bera andlegt jafnvægi og styrk til þess að mæta sínum örlögum ótrauður. Foreldrar Þorkels vom Valgerður Jónsdóttir frá Hópi í Grindavík, f. 26. september 1890, d. 25. apríl 1948 í Reykjavík, og Skúli Þorkels- son húsasmíðameistari, f. 24. júní 1891 í Smjördölum i Sandvíkur- hreppi, d. 8. febrúar í Reykjavík. Margir smiðir geta rakið ætt sína til Smjördala. Þrír bræður Skúla voru húsasmiðir. Þorkell ólst upp í foreldrahúsum við Framnesveginn ásamt systkinum sínum, Sigríði og Gunnari, sem lát- inn er fyrir nokkmm ámm. Sigríður er gift Gísla Jónhannessyni útgerð- armanni og eru þau búsett í Reykja- vík. Þorkell lærði húsasmíði hjá föður sínum, sem útskrifaði marga í þeirri iðngrein um dagana. Þeir feðgar byggðu í lok stríðsáranna íbúðarhús við Hátún 27. Þar bjó Þorkell til æviloka. Þorkell reisti þar verkstæði ar stuttar tilvitnanir í áður birt ljóð inni í textanum. Almennt verður ekki birtur lengri texti en sem svarar einni blaðsíðu eða fimm dálkum í blaðinu ásamt mynd um hvern einstakling. Ef meira mál berst verður það látið bíða næsta eða næstu daga. og starfrækti síðan. Síðar byggði hann við Nýbýlaveg 4 í Kópavogi allstórt verkstæði og flutti starfsem- ina þangað á árunum 1964 til 1970 og starfaði þar meðan heilsa entist. Þorkell var virtur í félagasamtökum iðnaðarmanna og með vandvirkni að leiðarljósi útskrifaði hann að minnsta kosti 7 nemendur í húsa- smíði. Þann 17. desember 1949 kvæntist Þorkell Jónu Margréti Sólmunds- dóttur, ættaðri frá Stöðvarfírði. Þeim varð ekki bama auðið, en fengu til ættleiðingar tvö böm, Skúla, f. 28. maí 1957, og Guðrúnu, f. 17. ágúst 1960. En harmur sækir marg- an heim. Jóna Margrét lést þann 1. júlí 1973. Skúli var þá orðinn 16 ára og Guðrún 13. En gott uppeldi og þroski hjálpuðu til á sorgarstundu að mæta mótlætinu. Nú er Skúli starfandi byggingartæknifræðingur í Reylqavík og á dóttur, sem orðin er 13 ára. Sambýliskona hans er Ilelga Þórsdóttir. Guðrún er búsett í London. Maki hennar er Martin Huntingdon Williams og er hann við nám í arkitektúr. Börn þeirra eru William Freyr, 4ra ára, Geoffrey Þór Karl, 3ja ára, og Jóna Sjöfn, 18 mánaða. Auk þess sem hér er upp talið eigaðist Þorkell dóttur árið 1946 sem Elín heitir með Agnesi Agústsdóttur frá Patreksfirði. Elín Þorkelsdóttir er gift Ólafi Péturssyni múrara og em þau búsett í Reykja- vík. Þeirra börn em þijú og eitt barnabam að auki. Skömmu eftir fráfall Jónu Margr- étar kynntist Þorkell Skúlason konu sem misst hafði mann sinn. Þessi kona heitir Bergþóra Gísladóttir og hefir verið honum tryggur lífsföru- nautur þar til yfir lauk. Við sendum hér með öllum að- standendum innilegustu samúðar- kveðjur. Til greinahöfunda: Minningar- og afmælisgreinar hann um viðhald á rólu- og leikvöll- um. Var hann þá oft með unglinga í vinnuflokki sínum. Hafði hann gaman af að vinna með ungu fólki og hafði gott lag á að fá það til samstarfs með því að veita því hæfílegt aðhald af hreinskilni með íblandi af Iéttu gríni en ákveðni. Kristinn var vel greindur, þó að skólagangan væri ekki löng bætti hann það upp með lestri góðra bóka og átti gott bókasafn á seinni árum. Áhugasvið hans var ekki síst þjóð- legur fróðleikur, enda var hann rammíslenskur í hugsun og lét sér nægja að kynnast eigin landi og þjóð, en hafði ekki áhuga á að ferð- ast til annarra landa. Þegar ég lít til baka minnist ég þess hvað það var alltaf hressandi að fá Kristinn í heimsókn. Hann hafði góða frá- sagnarhæfileika og var fundvís á það spaugilega í tilvemnni. Hann var mjög skoðanafastur svo sam- ræður okkar eru mér hugstæðar þó sjaldan væmm við sammála. Ég man hann á hjólreiðatúram hér í Laugarneshverfínu og á skautum niðri á Tjörn með yngra fólkinu. Þá hefi ég fyrir satt að á yngri árum hafí hann spilað á harmoniku fyrir dansi. Kristinn var gæfumaður í einka- lífí sínu, átti góða konu, Nikólinu Konráðsdóttur, sem var ættuð úr Vestmannaeyjum. Hún lést fyrir tæpu ári eftir þung veikindi. Eftir þann sára missi náði hann ekki sinni fyrri lífsgleði. Þau áttu einn son, Svein, sem er húsasmiður og af fyrra hjónabandi átti Kristinn ann- an son, Þorkel, sem er rafvirki. Báðir eru synimir kvæntir og barnabörnin eru 12 og barnabarna- börnin 8. Kristinn og Lína voru mjög sam- stillt að fegra og gera heimili sitt notalegt. Þau voru bæði áhugafólk um garðrækt og áttu sinn þátt í að rækta fallega garða við þau íbúðahús sem þau bjuggu í. Þau voru bæði mjög ættrækin og sýndu frændfólki sínu mikla ræktarsemi í hvívetna, enda stóð heimili þeirra opið öllum í frændgarðinum. Gest- risni var í heiðri höfð og aldrei skorti umræðuefni, því hjónin voru fróð um menn og málefni. Bæði voru þau listræn og á efri árum sinntu þau listþörf sinni með því að skapa fallega muni. Lína lagði stund á málaralist, en Kristinn smíðaði li- stafallega muni aðallega úr kýr- hornum og harðviði. Mér finnst það gera tilveruna öllu bærilegri að hafa átt að vinum slíkt ágætisfólk, sem þau hjón voru. Ég þakka þeim alla hlýju og hjálpsemi í garð minnar fjölskyldu. Ég samgleðst Kristni vini mínum að fá hvíldina áður en elli kerling léki hann svo grátt að hann hefði þurft að vera algerlega upp á aðra kominn. Ég bið honum guðsbless- unar á nýjum leiðum. Allri fjöl- skyldu hans votta ég dýpstu samúð. Guðrún Ingibjörg Jónsdóttir Verð )rá kr. 5.100,- ({///</rs/ BORGARKRINGLUNNI, SÍMI 677230. SIEMENS ■ Fjölhœf hrœrivél! MK 4450 Blandari, grænmetiskvöm og hakka- vél fylgja með. • Allt á einum armi. • Hrærir, þeytir, hnoðar, blandar, brytjar, rífur, hakkar og sker. • ísl. leiðarvísir og uppskriftahefti. • Einstakt verð: 15.300,-kr. SMrTH&NORLAND NÓATÚNI4 - SÍMI28300 ■ :
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.