Morgunblaðið - 22.11.1991, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 22.11.1991, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1991 Suður-Afríka: Stj órnar skrárviðræð- ur hefjast í desember Deilt um hverjir skipi bráðabirgðasljórn Jóhannesarborg. Reuter. STJÓRN Suður-Afríku og tvær helstu hreyfingar blökkumanna í landinu, Afríska þjóðarráðið (ANC) og Inkatha-frelsis- flokkurinn, skýrðu frá því í gær að í ráði væri að hefja samningaviðræður í næsta mánuði um nýja stjórnarskrá, sem myndi binda enda á kyn- þáttaaðskilnað í landinu. Undir- búningsviðræður verða 29. þessa mánaðar en samningavið- ræðurnar sjálfar 20. og 21. des- ember. Þetta verða fyrstu formlegu samningaviðræður þessara aðila um afnám lögbundins kynþáttaað- skilnaðar. Fréttaskýrendur í Suður-Afríku sögðu að þessi ákvörðun markaði tímamót í sam- skiptum kynþáttanna í landinu þótt ljóst væri að erfitt yrði að sætta sjónarmið þeirra. „Því fyrr sem viðræðurnar heíjast því betra, þar sem það er mikilvægt að fram komi sem fyrst hvort það sé grund- völlur fyrir samkomulagi milli ANC og stjómarinnar,” sagði stjórnmálafræðingurinn Willem Kleynhans. Stjórnina og ANC greinir eink- um á um hveijir eigi að mynda bráðabirgðastjórn, sem færi með völdin þar til blökkumenn fengju fullan kosningarétt, og hvort setja eigi ákvæði í stjórnarskrána til að vernda réttindi minnihlutahópa. Kleynhans sagði að svo hægt hefði ■ BÚKAREST - Þing Rúmeníu samþykkti í gær nýja stjórnar- skrá, sem tryggja á fjölræði, mann- réttindi og fijálsan markaðsbúskap. Forsetinn verður æðsti maður fram- kvæmdavaldsins og kjörinn á fjög- urra ára fresti en má ekki gegna embættinu lengur en í tvö kjörtíma- bil. Þingið verður einnig kjörið á fjögurra ára fresti. Stjórnarskráin var samþykkt eftir hartnær 18 mánaða umræður, sem urðu oft heitar vegna deilna um réttindi minnihlutahópa, stöðu kirkjunnar og völd forsetans. ■ MOGADISHU - Harðir bar- dagar geisuðu í gær í Mogadishu, höfuðborg Afríkuríkisins Sómalíu, ------—------- og starfsmenn Rauða krossins í borginni sögðu að hundruð særðra manna lægju fyrir utan sjúkrahúsin þar. Fregnir hermdu að hersveitir á bandi Mohamed Farah Aideed hershöfðingja og aðrar hollar Ali Mahdi Mohamed, setts forseta, berðust enn um borgina. gengið í samningaumleitunum til þessa að ólíklegt væri að ný stjórn- arskrá gengi í gildi fyrir næstu þingkosningar, sem eiga að fara fram ekki síðar en árið 1994 sam- kvæmt núgildandi stjórnarskrá. Stjómin birti fyrr í mánuðinum drög að frumvarpi, sem kveður á um að blökkumenn geti tekið þátt í þjóðaratkvæðagreiðslum. íhalds- flokkurinn, sem er talinn njóta stuðnings 40% hvítra Suður-Afr- íkumanna, gagnrýndi drögin harð- lega, en hann vill að stofnað verði sérstakt ríki undir stjórn hvítra manna. Margaret Thatcher var í essinu sínu í þingumræðum I fyrradag um aukið samstarf Evrópubandalags- rlkja. Lagði hún áherslu á andstöðu sína við frekara fullveldisafsal með því að ota gleraugunum að ----------- andstæðingum sínum. Thatcher „sveiflar veskinu” í þingumræðum: Major andvígur þjóðaratkvæða- greiðslu um Evrópusamrunann London. Reuter. The Daily Telegraph. JOHN Major forsætisráðherra Bretlands sagðist í gær andvígur þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild Breta að samningum sem nú standa fyrir dyrum um pólitíska einingu, nánara efnahagssam- Reuter Dick Cheney, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, og Lee Jong-koo, starfsbróðir hans suður-kóresku, á fréttamannafundi í Seoul. * Ottast kjarnorku- áætlanir N-Kóreu ■ ASTORIA, Oregon - Frakk- inn Gerard d’Aboville varð í gær fyrsti maðurinn til að róa einn á báti yfir Kyrrahafið. Hann hóf róðurinn frá Japan í júlí og steig á land í Washington-ríki í Bandaríkj- unum í gærkvöldi eftir 133 daga ferð. D’Aboville er 46 ára og reri að meðaltali 75 km á dag á átta metra báti sínum. ■ GRANTHAM, Englandi - Fyrrverandi hjúkrunarkona á barnaspítala í Englandi var í gær ákærð fyrir að hafa myrt fjögur ungabörn og reynt að myrða átta til viðbótar er hún starfaði á sjúkra- húsinu. Morðin voru framin með Iyfjagjöfum á fyrri helmingi ársins. Tókýó, Scoul. Reuter. HUGSANLEGAR áætlanir Norður-Kóreumanna um smíði kjarnorku- vopna og langdrægra eldflauga er mesta ógnunin, sem að Japönum steðjar. Lét Akira Hiyoshi, aðstoðarvarnarmálaráðherra Japans, svo um mælt í gær og þá var einnig skýrt frá því, að Bandaríkjastjórn hefði ákveðið að fresta fyrirhugaðri fækkun í bandaríska herliðinu í Suður-Kóreu af þessum sökum. ERLENT „Japan yrði innan skotsviðs eld- flauganna og ef rétt er, að verið sé að vinna að smíði kjarnaodda í Norð- ur-Kóreu er þar um að ræða mestu ógnina, sem að okkur steðjar,” sagði Hiyoshi. í japönskum dagblöðum er því haldið fram, að N-Kóreumenn hafi endurbætt sovéskar Scud-B-eld- flaugar þannig, að unnt sé að skjóta þeim á Vestur-Japan. Dick Cheney, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, sagði í gær, að með tilliti til hættunnar á uppbyggingu kjarnorkuherafla í Norður-Kóreu hefði verið ákveðið að fresta því að fækka í bandaríska herliðinu í Suður-Kóreu. Sagði hann, að kæm- ist Norður-Kórea, sem ætti að baki „40 ára sögu yfirgangs og hryðju- verka”, yfir kjamorkuvopn yrði þar um að ræða mikla ógn við frið og stöðugleika í allri Austur-Asíu. I Suður-Kóreu eru nú 39.000 banda- rískir hermenn en þeim átti að fækka í 36.000 fyrir lok næsta árs. Grunur leikur á, að Norður-Kóre- umenn vinni að smíði kjarnorku- spréngju í Yongbyon, 95 km norður af Pyongyang, og Lee Jong-koo, vamarmálaráðherra Suður-Kóreu, telur þá geta lokið henni á tveimur eðaþremur árum. Sjálfir segja Norð- ur-Kóreumenn, að rannsóknirnar séu í friðsamlegum tilgangi en hafa samt neitað alþjóðlegri eftirlitsnefnd að koma til landsins. Krefjast þeir þess, að Bandaríkjamenn flytji fyrst burt kjarnorkuvopn sín frá Suður- Kóreu, sem líka verður gert í sam- ræmi við þá yfirlýsingu George Bush forseta frá í september, að öll banda- rísk kjarnorkuvopn á erlendri grund verði flutt til Bandaríkjanna. Frá Suður-Kóreu eiga þau að vera farin fyrir árslok,_______________ starf og myntbandalag Evrópu- bandalagsríkja. Kom þetta fram hjá ráðherranum I umræðum í neðri málstofu breska þingsins í gær. A miðvikudag hafði Marg- aret Thatcher, forveri hans í embætti forsætiráðherra, flutt tilfinningaþrungna þingræðu þar sem hún hvatti til þess að þjóðaratkvæðagreiðsla yrði hald- in. Thatcher sýndi. allar sínar bestu hliðar í þingumræðunum á miðviku- dag. „Það sem um er að ræða er réttur bresku þjóðarinnar til að ráða sínum málum með eigin lögum sem hennar eigin þing setur...þetta snýst um það að vera breskur, um tilfinningar okkar til fóstuijarðar- innar, þingsins, hefða okkar og frelsis,” sagði Thatcher meðal ann- ars í 37 mínútna langri ræðu. „Utanríkisráðherrann minn” Thatcher var í slíkum ham að einu sinni gleymdi hún því að hún er ekki lengur við stjórnvölinn og talaði um Douglas Hurds utanríkis- ráðherra sem „utanríkisráðherrann minn”. Sagði hún að Hurd væri á stundum eilítið reikull í spori þegar um breskt fullveldi væri að ræða. Hurd féllst nefnilega á það í vik- unni að í sumum tilfellum gætu utanríkisáðherrar EB tekið sameig- inlegar ákvarðanir með atkvæða- greiðslu þar sem meirihlutinn réði. Slíkt fyrirkomulag er að mati Frakka og Þjóðveija forsenda fyrir sameiginlegri utanríkisstefnu EB. í ströngum kennslukonutóni las Thatcher Major pistilinn: „Það eru sumar tillögur [um einingu Evrópu] sem ríkisstjórnin getur alls ekki fallist á. Verkefni hans verður að útiýma þessum tillögum áður en hann sýnir sig aftur í neðri málstof- unni.” Hætta væri á að ef Major sýndi ekki aðgát þá yrði hann fyrr en varði kominn á „færibandið sem leiddi til sambandsríkis” Evrópu. Tuttugu þingmenn íhaldsflokks- ins hafa Iagt fram tillögu um að halda skuli þjóðaratkvæðagreiðslu um samninga þá sem nást á leiðtog- afundi EB í Maastricht í desember áður en þeir verða lagðir fyrir þing- ið. Thatcher tók undir þetta og beindi um leið spjótum sínum að stjórnarandstöðunni sem hún sagði að hegðaði sér eins og „sauða- hjörð”: „Við eigum að leyfa fólkinu að tala,” sagði hún.í yfirlýsingu _for§ætisráðhejrans sem _g<jfin var út eftir ræðu Thatcher segir að ekki komi til greina að halda þjóðar- atkvæðagreiðslu strax eftir leiðtog- afundinn í Maastricht. En Major geti ekki talað fyrir munn seinni ríkisstjóma. „Að sjálfsögðu mun þingið taka ákvörðun um slíkt þeg- ar þar að kemur,” sagði talsmaður forsætisráðherrans. Bar lof á Major Thatcher bar þó smyrsl á sárin með því að segjast ætla að styðja ríkisstjórnina í atkvæðagreiðslu sem fram fór í gær um umboð til að ganga til samningaviðræðnanna í Maastricht. Hún bar lof á Major fyrir að halda vel á Evrópumálunum í reiptoginu við sameiningarsinna á meginlandinu. „Hefði ég verið við völd þá hefði stundum verið þörf á því að sveifla veskinu,” sagði That- cher og vísaði til brandara sem þá gengu um að hún tugtaði andstæð- inga sína til með því að „sveifla veskinu”. „Núna er það ugglaust krikketkylfan. En það er ekki sem verst því högg hennar eru þyngri,” sagði Thatcher en alkunna er að Major er einlægur aðdáandi krik- ketíþróttarinnar. í ræðu sinni við upphaf þingfund- ar á miðvikudag sagðist Major ein- dregið hlynntur því að samkomulag næðist á leiðtogafundinum í Ma- astricht um pólitískan samruna, mynteiningu og nánara samstarf í efnahagsmálum. Þrír kostir blöstu við Bretum: Að segja skilið við Evrópubandalagið sem kæmi niður á hagsæld og áhrifum þjóðarinnar; að vera áfram með hálfum huga í EB og láta aðra um forystuna þar, eða taka að sér forystuhlutverk í EB. Fór hann ekki leynt með að þriðji kosturinn væri sá rétti. Hann kvaðst hins vegar andvígur sam- bandsríki Evrópu og að strax yrði tekinn upp sameiginlegur gjaldmið- ill og pundinu þarmeð varpað fyrir róða. Thatcher hins vegar útilokaði með öllu möguleikann á því að Bret- ar afsöluðu sér stjórn efnahagsmála í hendur stjórnvöldum í Brussel. „Þá höfum við afsalað okkur möguleik- anum á að móta meginstefnuna en til þess erum við hér.” Þegar ræðu Thatcher lauk risu þingmenn íhaldsflokksins úr sæti og klöppuðu henni lof í lófa. Vart heyrðust því frammíköll þingmanna Verkamannaflokksins sem sögðu að nú loksins léti hún í sér heyra í þinginu eftir að hafa þegið greiðslu í útlönduin undanfarið ár fyrír að tjá' síg um hugðarefiii sfn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.