Morgunblaðið - 22.11.1991, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 22.11.1991, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1991 Á að fækka iðnnemum? Aðför að verkmenntun í landinu Það verður ekki séð að höfundar þessarar tillögu hafi á nokkurn hátt reynt að gera sér grein fyrir liugsan- eftir Kristin H. Einarsson í tillögum endurskoðunarnefndar um málefni LÍN sem menntamála- ráðherra skipaði og nýverið skilaði áliti er lagt til að þeir einir geti fengið námslán sem náð hafa 20 ára aidri. Sá fyrirvari er þó hafður að lækka megi þennan aldur ef stúd- entsprófsaidur lækkar. Nefndin metur það svo að þetta muni ekki hafa mikil áhrif þar sem lánþegar hjá sjóðnum undir 20 ára aldri séu einungis 320. ir enga tilraun til þess þó svo það hefi átt að vera hið minnsta mál. Það hefði einfaldlega þurft að biðja um þær uppiýsingar frá Lánasjóði íslenskra námsmanna. Tilfellið er að meirihluti lánþega hjá LIN undir 20 ára aldri leggur stund á iðnnám. Þarf að beina ungu fólki frá iðnnámi? Hverja á að skera? Þegar reynt er að meta það hvort og þá hvaða áhrif þessi tillaga gæti haft er nauðsynlegt að reyna að gera sér grein fyrir samsetningu þessa hóps viðskiptavina LÍN sem eru undir 20 ára aldri. Nefndin ger- Jón Hákon Magnússon formaður SYS Verði þessi tillaga að veruleika verður ekki annað séð en að stjórn- völd hafi tekið þá ákvörðun að beina ungu fólki inn á bóknámsbrautir frekar en verknámsbrautir. Allir lánþegar sjóðsins sem eru undir 20 ára aldri og leggja stund á iðnnám hafa þurft að fara í gegnum eitt námsár án námslána. Það helgast af því að grunndeildir iðnnáms eru einungis lánshæfar samkvæmt 20 ára reglunni. Sé iðnnemi hins vegar kominn í framhaldsdeildir þá á hann rétt á námsláni þó hann hafi ekki náð 20 ára aldri. A áttunda áratugn- um mótuðu stjórnvöld þá stefnu að gera visst nám lánshæft til að reyna auka í það aðsókn. Var það ekki síst gert vegna þrýstings frá atvinn- ulífinu. Ef ákveðið verður að enginn fái námslán nema viðkomandi verði 20 ára á almanaksárinu þá er verið snúa frá þessari stefnu. Skyldi það vera það sem atvinnulífið þarf á að halda? AÐALFUNDUR Samtaka um vestræna samvinnu (SVS) var haldinn í Atthagasal Hótels Sögu laugardaginn 9. nóvember sl. í skýrslu fráfarandi formanns, Kjartans Gunnarssonar, kom fram að á starfsárinu gengust samtökin fyrir tólf fundum og ráðstefnum með 21 ræðumanni. Auk þess stóðu sam- tökin að útgáfustarfsemi, ritgerða- samkeppni og fræðsluferðum. í fráfarandi stjórn áttu sæti Al- freð Þorsteinsson, Björn Bjarnason, Eiður Guðnason, Geir H. Haarde, Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, Gylfi Sigurjónsson, Jón Hákon Magnússon, Kjartan Gunnarsson (formaður), Kjartan Jóhannsson og Páll Heiðar Jónsson. Þeir voru allir endurkosnir nema Guðmundur Einarsson og Stefán Friðfinnsson sem kosnir voru í stað Eiðs Guðnasonar og Kjartans Jó- hannssonar. Nýr formaður var kjörinn Jón Hákon Magnússon. Hverjar verða afleiðingamar? bleiur passa best Vegna þess að Libero bleiur eru T lagu og þær einu með teygju að aftan og réttu buxnologi bleiur eru óbleiktar 0fnæmisprófDðar NÝTT Þær fóst nú einnig í stærðinni Maxi Plus 10-20 kg. Góð sem næturbleia „Þessi tillaga er aðför að verkmenntun í land- inu og möguleikum ungs fólks til að ljúka námi á skömmum tíma og vera orðnir fullgildir þátttakendur í atvinnu- lífinu upp úr 20 ára aldri, eða um það leyti sem meirihluti lántak- enda hjá LIN er að taka sín fyrstu lán.” halda áfram í bóknámi þá hafa þess- ar breytingar í för með sér að iðn- nemum fækkar. Akveði þessi hópur hins vegar ekki að halda áfram námi að loknum grunnskóla heldur að fara út í atvinnulífið þá er verið að fækka nemendum sem fara í framhaldsskóla að grunnskóla lokn- um á kostnað þeirra sem ella hefðu farið í iðnnám. legum afleiðingum af samþykki þessarar tillögu öðrum en þeim hversu marga lánþega LÍN þeir gætu losnað við. Þessi tillaga er aðför að verkmenntun í landinu og möguleikum ungs fólks til að ljúka námi á skömmum tíma og vera orðnir fullgildir þátttakendur í at- vinnulífinu upp úr 20 ára aldri, eða um það leyti sem meirihluti lántak- enda hjá LÍN er að taka sín fyrstu lán. Iðnnemar fái sinn fulltrúa í Lánasjóði ísl. námsmanna Kristinn H. Einarsson Eiga námslán bara að vera fyrir nám að loknu stúdentsprófi? Afleiðingarnar munu tvímæla- laust verða þær að iðnnám og verkn- ám munu ekki hafa sama aðdráttar- afl og hingað til fyrir unglinga. Lík- legt verður þá að teljast að þeim sem velja iðnnámið fram yfir bókn- ámið (menntaskólanámið) fari fækkandi og að sama skapi fari þeim fjölgandi sem velja bóknámið fram yfir iðnnámið. Hvatningin til að velja frekar iðnnám hefur verið numin burt. Síðan má velta því fyr- ir sér hvort sá fjöldi sem hugsanlega hefði valið iðnnám ef það hefði ver- ið lánshæft fyrir 20 ár aldur velji það er þeir hafa náð 20 ár aldri. Ef þeir gerðu það eru stærstu áhrif þessara breytinga þær að þær seinka því um allt að 3-4 ár að við- komandi nemendur velji sér eitt- hvert starfssvið og komi sem þátt- takendur útí atvinnulífíð. Velji þeir hins vegar ekki að fara í iðnnám er þeir hafa náð 20 ára aldri heldur Það verður einnig að teljast at- hyglisverður fyrirvari sem nefndin setur um 20 ára aldurstakmarkið. Þ.e. að hugsanlega verði það lækkað ef stúdentsprófsaldur verði lækkað- ur. Með þessari athugasemd kemur skýrt í ljós að nefndin virðist fyrst og fremst sjá námslánakerfið í bein- um tengslum við nám að loknu stúd- entsprófi. Iðnnemasamband íslands varar við að viðhorf sem þessi verði látin vera ráðandi við endurskoðun á námslánakerfinu. Þetta eru hættuleg sjónarmið sem miða fyrst og fremst að því að steypa alla í sama mót. „Allir skulu taka stúd- entspróf, sem á annað borð ákveða að halda áfram náminu að loknum grunnskóla.” Þetta eru ein- strengingsleg viðhorf manna sem ekki geta séð fyrir sér annað nám en það sem þeir lögðu stund á. Vegna þess hversu oft komið hefur í Ijós vanþekking á iðn- og verknámi í tengslum við Lánasjóð íslenskra námsmanna samþykkti þing Iðnnemasambands íslands, sem haldið var helgina 26.-27. okt., að gera kröfu til þess að iðnnemar fengju sinn fulltrúa innan stjórnar sjóðsins. En iðnnemar hafa aldrei átt beina aðild að stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna. Menntamálaráðherra hefur einn- ig verið sent bréf þar sem farið er fram á að iðnnemar fái sinn fulltrúa í þeirri endurskoðunarvinnu sem framundan er hjá Lánasjóði ís- lenskra námsmanna. Það verður ekki við það unað lengur að iðn- og verknámsnemendum sé sífellt ýtt til hliðar og að litið sé á nám þeirra sem einhverskonar annars flokks nám. Höfundur er framkvæmdastjóri Iðnnemasambands Islands. Lífsnauðsyn að minnka kostnað o g lækka skuldir Opið bréf til Davíðs Oddssonar eftir Hallgrím Sveinsson Kaupsel hf. Heildverslun, sími 27770. (k íslendingar unna sér enn engrar hvíldar 1 bruðlinu. Það skal kaupa og kaupa sama hvað kostar. Það vita allir að gengið er rangt skráð, en það má ekki leiðrétta því þá verð- ur allt vitlaust, segja menn. Ein afleiðing þessa er að tilkostnaður í sjávarútvegi er of mikill. Fiskiðju- verin eru að stöðvast hvert af öðru. Þegar svo er komið hlýtur að vera spurt hvar taka eigi gjaldeyri fyrir eyðslunni. Og almenningur spyr: Hvernig stendur á því að sjávarút- vegurinn er alltaf á hausnum? Segja má að við tvennskonar vanda sé að etja í sjávarútvegi, ytri og innri vanda. Ytri vandinn að undanfömu hefur verið of hátt verð á rekstrarfé, of mikill tilkostnaður innanlands og uppsöfnun birgða. Innri vandinn er svo of mörg skip í rekstri og of mörg frystihús sem haldið er gangandi hvað sem tautar og raular. Síðan er það sem erfiðast er: Fyrirtækin em allt of skuldsett. Til að ráð fram úr þessum vanda þjóðarinnar þarf skynsamlega verk- stjórn. Sambærilegur vandi hefur oft áður komið upp frá því að lýð- veldið var stofnað. Forsætisráðherra er verkstjóri á stjórnarheimilinu og ráðherrar húskarlar hans. En hvað er til ráða? Eins og stundum áður er lífsnauðsyn að minna kostnað og lækka skuldir. Það má meðal ann- ars framkvæma á eftirfarandi hátt. 1. Sjávarútvegsfyrirtæki sem sannarlega geta sýnt fram á rekstr- arhagræðingu með því að leggja fiskiskipum, taka frystihús úr rekstri eða með samvinnu við önnur sjávarútvegsfyrirtæki, fái niðurfelld útistandandi lán hjá Atvinnutrygg- ingarsjóði útflutningsgreina. Fast- gengistefna áranna 1987 og 1988 gerði það að verkum að fiskvinnslan tapaði milljörðum króna á örskömm- um tíma. A þeim tíma hækkaði lán- skjaravísitalan um 23,3% og launa- vísitalan um 28,1% milli ára. Ríkis- stjórn Steingríms Hermannssonar lét lána fyrirtækjunum fjármagn til að halda þeim gangandi um tíma í gegnum áðurnefndan sjóð. Réttast hefði þó verið að fyrirtækin hefðu fengið þetta sem óafturkræft fram- lag vegna hinnar óhagstæðu gengis- skráningar. Það er algjörlega óraunhæft að ætla sjávarútvegsfyrirtækjum að greiða skuldir við Atvinnutrygging- arsjóð til baka, því segja má að hér hafi verið um að ræða eigið fé fyrir- tækjanna sem brann upp við óraun- hæfa gengisskráningu. 2. Lánstími lána í Fiskveiðasjóði verði lengdur og afborgunum jafn- vel frestað. Þetta verði þó eingöngu gert hjá þeim fyrirtækjum sem sannarlega verða endurskipulögð, sbr. það sem sagt er hér að fram- an. Samkvæmt fyrirliggjandi upp- lýsingum nam eiginfjárstaða Fisk- veiðasjóðs 31. desember 1990 3.683.000.000 króna. Útistandandi kröfur sjóðsins samkvæmt skulda- bréfum námu sama dag 21.444.000.000 króna. Hér virðist því nokkurt borð fyrir báru. Sjóðurinn ætti að gefa mönn- um svolítinn tíma til að anda, taka minna af hverjum físki sem kemur um borð í skipin en hann gerir í dag. 3. Engin lán verði veitt til ný- smíða úr Fiskveiðasjóði næstu þrjú árin. Er eitthvert vit í því að lána til nýsmíða þegar fiskveiðiflotinn er allt of stór, miðað við fyrirliggjandi verkefni? Sjávarútvegsfyrirtæki lands- manna eru nú mörg hver nánast komin upp í harða ijöru og verður ekki bjargað með fleiri lánum, held- ur með almennum aðgerðum og skuldaniðurfellingum. Einnig þarf að skilgreina byggðastefnu upp á nýtt, svo nátengd sem hún er sjávar- útveginum. Fólki sem hangir úti á landi vegna þess að það á fasteign þar, en á sér þann draum æðstan að komast „suður”, á vitanlega að veita aðstoð til að komast burt, ef hægt er. Forsætisráðherra hefur bent á að þetta þurfi að athuga og er það auðvitað, sjálfsagt ;máj. Það Hallgrímur Sveinsson „Fólki sem hangir úti á landi vegna þess að það á fasteign þar, en á sér þann draum æðstan að komast „suður”, á vit- anlega að veita aðstoð til að komast burt, ef hægt er. Forsætisráð- herra hefur bent á að þetta þurfi að athuga og er það auðvitað sjálfsagt mál.” (! i I kann aldrei góðri lukku að stýra þegar fólk er neytt til að hanga á einhveijum stað alla sína tíð við mikla óhamingju. Það er sönn byggðastefna að gera fólki kleift að búa og bardúsa þar sem það óskar sjálft. Allt annað er öfug byggðastefna og dæmt til að mistakast. Að lokum skal það fullyrt, að það er löngu tímabært fyrir íslendinga að þeir átti sig á því, á hvetju þjóð- in byggir efnahagslega tilveru sína. Sjávarfang og það sem fyrir það fæst er undirstaðan. Ilöfundur er formaðurstjórnar Kaupfélags Dýrfirðinfra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.