Morgunblaðið - 22.11.1991, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 22.11.1991, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1991 Áhrif breytinga á tekjustofnalögnm: Rekstrartekjur kauptúna og stærri hreppa jukust um 40% Tekjur Reykjavíkurborgar hækkuðu um 1,3% REKSTRARTEKJUR hreppa með yfir 300 íbúa hækkuðu um 40% á milli áranna 1989 og 1990, tekjur minni hreppa um 23%, kaupstaða utan Reykjavíkur um 12,6% og Reykjavíkurborgar um 1,3%. Þetta eru áhrif nýrra laga um verkaskiptingu og tekjustofna sveitarfélaga sem tóku gildi í byijun síðasta árs. Þetta kom fram í setningarræðu Vil- hjálms Þ. Vilhjálmssonar, formanns Sambands islenskra sveitarfélaga, á ráðstefnu um fjármál sveitarfélaga sem hófst í Reykjavík í gær. Vilhjálmur sagði að, rekstrartekjur kaupstaða annarra en Reykjavíkur hefðu hækkað um 10 þúsund kr. á íbúa á milli áranna 1989 og 1990, farið úr 77,5 þúsund kr. á íbúa áð meðaltali í 87,3 þúsund. Aftur á móti hækkuðu tekjur Reykjavíkur um 1.300 krónur á íbúa og urðu 99.500. Breytingarnar eru mjög mis- munandi eftir kaupstöðum og sést það m.a. á því að í Kópavogi hafa tekjur á íbúa hækkað um rúmlega 4.000 krónur, eða um 6%, en lækkað í Hafnarfirði um rúmlega 7.000 kr. VEÐUR á sama tíma og meðalhækkun hjá kaupstöðum er 10.000 kr. Rekstrartekjur hreppa með yfir 300 íbúa, þar á meðal kauptúna- hreppa; eru tæplega 95 þúsund kr. á íbúa árið 1990 en voru 67.700 árið áður og hafa því hækkað um rúmlega 27.000 á íbúa eða um 40%. Sagði Vilhjálmur að ástæða þessa væri m.a. sú að dreifbýlissveitarfélög með yfir 300 íbúa fengju nú tekju- jöfnunarframlög miðað við lands- meðaltal. Rekstrartekjur minnstu sveitarfélaganna, með færri en 300 íbúa, námu á liðnu ári 70.400 kr. á íbúa að meðaltali og hækkuðu um 12.000 eða 23% frá árinu á undan. Vilhjálmur vakti athygli á þeirri staðreynd að heildartekjur kaupstað- anna í nágrenni Reykjavíkur væru verulega neðan við meðaltal kaup- staða úti á landi. Það byggðist á því að þeir hefðu ekki nýtt að fullu heim- ildir tii útsvarsálagningar og komi því ekki til greina við ráðstöfun tekjujöfnunarframlags úr Jöfnunar- sjóði. Það leiddi aftur til þess, að meðaltal tekna kaupstaðanna úti á landsbyggðinni væri verulega hærra en meðaltalstekjur allra kaupstaða landsins, og væri í reynd 94,2 þús- und kr. á íbúa, nálægt því sem er hjá kauptúnum, og hefði hækkað um 20% frá árinu 1989. Sjá einnig fréttir af fjármála- ráðstefnunni á bls. 22 Aldrei rætt við Fríðrík - segja forsvarsmenn Stöðvar 2 FORSVARSMENN Stöðvar 2 líta svo á að aldrei hafi komið til yið- ræðna milli Friðriks Friðriksson- ar, hagfræðings, og þeirra' um þátttöku í nýju helgarblaði, eins og kemur fram í frétt í Morgun- blaðinu í gær. Af þeim sökum sé VEÐURHORFURIDAG, 22. NOVEMBER YFIRLIT: Skammt suðaustur af Hvarfi er 968 mb lægð sem þok- ast austur og frá henni liggur nærri kyrrstætt lægðardrag norðaust- ur um ísland. Yfir N-Grænlandi er 1.020 mb háþrýstisvæði. SPÁ: Lítur út fyrir austan- og norðaustanátt á landinu, allhvasst á annesjum norðvestantil, en hægari annars staðar. Dálítil snjókoma verður á Vestfjörðum, slydda norðan- og norðaustanlands en rign- ing eða súld með köflum um landið sunnanvert. Heldur kólnandi veður á Vestfjörðum og vestantil á Norðurlandi, en annars breytist hiti fremur lítið. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á LAUGARDAG OG SUNNUDAG: Norðaustan strekking- ur og él á norðanverðum Vestfjörðum, en fremur hæg austan- og suðaustanátt og víða rigning eða slydda í öðrum landshlutum. Heldur kólnandi veður. Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600. TAKN: x, Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- ■j 0 Hitastig: 10 gráður á Celsíus stefnu og fjaðrirnar • Skúrir )■ Heiðskírt vindstyrk, heil fjöður V J. er 2 vindstig. * V Él T Léttskýjað / / / / / / / Rigning = Þoka / / / = Þokumóða 'b Hálfskýjað j * / * 9 5 5 Súld k Skýjað / * / # Slydda / * / oo Mistur * * * —j- Skafrenningur k Alskýjað * * .* * Snjókoma * * ■ *. m Þrumuveður VEÐUR VIÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma Akureyri Reykjavík hití veður 2 alskýjað 5 rigning á síð. klst. Bergen 4 rigníng Helsinki +1 hálfskýjað Kaupmannahöfn 2 skýjaö Narssarssuaq 0 skýjað Nuuk +3 logn, heiðskí Ósló +3 snjókoma Stokkhólmur 0 skýjað Þórshöfn 9 súld Algarve 14 heiðskirt Amsterdam 0 þokumóða Barcelona 10 skýjað Berlín S léttskýjað Chlcago +3 heiðskirt Feneyjar 10 rigning Frankfurt S skýjað Glasgow 9 rigning Hamborg 4 léttskýjað London 2 mistur LosAngeles 12 skýjað Lúxemborg 3 skýjað Madríd vantar Malaga vantar Mallorca 14 léttskýjað Montreal 4 skýjað NewYork 18 alskýjað Orlando vantar Parfs 4 skýjað Madeira 18 skýjað Róm 15 skýjað Vín 4 rigning Washington 17 alskýjað Wínnipeg +5 haglél ekki um það að ræða að þessar viðræðuivséu í biðstöðu meðan forsvarsmenn Stöðvar 2 eigi í við- ræðum við Nýmæli um þátttöku í hugsanlegri útgáfu dagblaðs. Jón Olafsson, varaformaður stjómar í Islenska útvarpsfélaginu sem rekur Stöð 2 og Bylgjuna, sagð- ist í tilefni af ummælum Friðriks Friðrikssonar í frétt í Morgunblaðinu vilja koma því á framfæri að það hafí verið Friðrik Friðriksson sem hafí haft samband við forsvarsmenn Stöðvar 2 um það leyti sem hann skrifaði undir samning við Alþýðu- flokkinn um kaupin á Pressunni. Hafi Friðrik óskað eftir viðræðum um hugsanlega þátttöku Stöðvar 2 í útgáfunni. Þessi beiðni var borin upp í stjóm íslenska útvarpsfélagsins og samþykkt að ganga til viðræðna við Frfðrik Friðriksson. Jón segir hins vegar að strax daginn eftir hafí Frið- rik Friðriksson komið á fund þeirra og sagt að forsendur væra breyttar. Þar af leiðandi væri svo litið á innan Stöðvar 2 að þessi þáttur málsins væri úr sögunni. Líkan af Grafarvogskirkju. Grafarvogskirkja: SH-verktak- ar buðu lægst í uppsteypu SH-verktakar áttu lægsta tilboð í uppsteypu Grafar- vogskirkju og hefur verið gengið til samninga við fyrir- tækið á grundvelli tilboðsins, sem hljóðar upp á um 53,4 milljónir króna, eða um 67,7% af 78,8 milljón króna kostnaðaráætlun. Alls bámst sjö tilboð í verk- ið. Sveinbjörn Sigurðsson h.f bauð um 58,2 milljónir, Fjarðar- mót hf. 58,7 milljónir, Ár- mannsfell 62,5 milljónir, Byggðaverk 68,6 milljónir, ís- tak 69,8 milljónir og Hagvirki - Klettur bauð 79,4 milljónir króna. Kirkja Grafarvogssóknar verður reist á lóð niður við vóg- inn við götuna Fjörgyn. Arki- tektar kirkjunnar eru Finnur Björgvinsson og Hilmar Þór Björnsson. Verkfræðivinnu, út- boðs- og samningsgerð annað- ist verkfræðistofan Hönnun. Framkvæmdasljóri Kaupmannasamtakanna: Ekkisamiðum meiri hækkanir en í öðrum greinum Lengri afgreiðslutími til marks um harðari samkeppni en ekki góða afkomu MAGNUS E. Finnsson, framkvæmdastjóri Kaupmannasamtakanna, segir hugmynd Magnúsar L. Sveinssonar, formanns Versiunarmanna- félags Reykjavíkur, um sérstaka kjarasamninga fyrir hverja tegund verslana ekki standast og hún hljómi eins og aftan úr fortíð. Um könnun þá sem Magnús L. Sveinsson vitnaði til um að á síðasta ári hefði hagnaður í verslun að meðaltali numið 16%, segir Magnús E. Finnson að þar hafi verið um að ræða frumhlaup Verslunarráðs, sem gert hafi ófullkomna úttekt á örfáum innflutningsverslunum, og könn- unin segi alls ekkert um hag smásölufyrirtækja. Verslunin sé alls ekki í stakk búin til að senya um meiri launahækkanir en aðrar atvinnu- greinar í landinu. Magnús sagðist ekki sjá hvernig Mangús L. Sveinsson ætlaði að láta framkvæma atkvæðagreiðslur og ná samstöðu í verslunarmannafélögum um sérstaka samninga fyrir hvetja tegund verslunar þar sem til dæmis væri samið um mismiklar hækkanir fyrir afgreiðslufólk í stórmörkuðum annars vegar og byggingavöruversl- unum hins vegar. Magnús E. Finnsson sagði það ranga ályktun hjá formanni VR að rýmri afgreiðslutími verslana í Reykjavík sanni að kaupmenn hafí fullar hendur fjár og geti greitt starfsfólki sínu hærri laun. Magnús sagði ljóst að kaupmenn gætu ekki samið um ndinar . launahækkanir umfram aðrar stéttir, afkoma í mat- vöruverslun væri ákaflega slæm enda samkeppnin síharðnandi á sam- dráttartímum í þjóðfélaginu. Magnús sagði að þessa þróun til lengri afgreiðslutíma mætti rekja til harðrar og mikillar samkeppni í kjöl- far þess að borgarstjórn Reykjavíkur undir forsæti Magnúsar L. Sveins- sonar hefði gefið afgreiðslutímann fijálsan. Lengri afgreiðslutími þurfi hins vegar ekki að þýða aukinn laun- akostnað enda sníði hver sér stakk eftir vexti og sumir telji sig geta lækkað launakostnað með lengri af- greiðslutíma og færra fólki. Þá sagði Magnús E. Finnsson að kaupmenn hefðu oftsinnis vakið máls á því að gera vaktavinnusamn- inga við afgreiðslufólk en verkalýðs- forystan hefði ekki verið til viðræðu um annað en að semja um vinnutím- ann frá 9-18. Verkalýðshreyfíngin þyrfti að gera sér grein fyrir breytt- um tímum og breyttu umhverfi og taka upp nútímaleg vinnubrögð í samræmi við það. Magnús sagði kaupmenn ávallt tilbúna í viðræður um hagræðingu og samninga sem miðuðust við bætt kjör í tengslum við framleiðniaukn- ingu í verslun. Hingað til hefði sú formúla ekki fundist í versluninni enda væru slíkir samningar afar flóknir og háðir löngum og kostnað- arsömum undirbúningi og rannsókn- um eins og sæist á aðdraganda hóp- , bónussamninganna í fískvjnnslunni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.