Morgunblaðið - 22.11.1991, Síða 21

Morgunblaðið - 22.11.1991, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1991 21 og fáir hafa unnið af jafnmikiili elju- semi og Slania. Hann hefur ætíð lúpuna, stinginn og stálplötuna með sér á öllum sínum ferðalögum um heiminn. Og hann hefur þann óvenj- ulega hæfileika á listamannavísu að geta einbeitt sér við störfin á hinum ólíklegustu stöðum, við margvíslegustu skilyrði og um- hverfi. Hann hefur sést rista í stálið fyrir utan tjaldið sitt í útilegum. Graflistin — eða stungan — er unnin með hárbeittum sting, sem grefur línur í málmplötu, oftast úr kopar eða stáli. Graflistin er djúp- prentunaraðferð, sem byggist á því að línurnar eru fylltar með lit, plat- an hreinsuð og síðan er pappírnum þrýst af miklu afli niður í línurnar, þar sem hann sýgur í sig litinn. Aðferðin komst í gagnið á 15. öld samhliða háprentuninni (tréskurð- inum), þegar pappírsframleiðsla hófst í Evrópu. Þá höfðu gullsmiðir og vopnasmiðir lengi grafið munstur og myndir á skartgripi, bikara og vopnabúnað. En núna fara menn að gera eftirprentun og fjölfalda viðfangsefnin. Hafa ber í huga, að graflistamaðurinn verður að grafa spegilmynd þess sem prenta skal, þar á meðal textans. í meira en þrjár aldir var graflist- in ráðandi fjölföldunaraðferð og hún er enn í dag notuð af listamönnum, sem krefjast algjörrar nákvæmni í grafíska tjáningarforminu. Engin önnur grafísk aðferð getur komið í stað graflistarinnar, hvað varðar prentun á seðlum og frímerkjum. Listin að grafa frímerki er starf, sem krefst geysilegrar þolinmæði, hæfni og nákvæmni af graflista- manninum. Það getur tekið einn til tvo mánuði að stinga út eitt lítið frímerki í skala 1:1. Minnstu mistök geta þýtt að byija verður á öllu saman upp á nýtt. Slania hættir þó ekki að koma á óvart með að vinna á vikum það sem tekur aðra mán- uði. Markmiðið er að geta túlkað fyrirmyndina, hvort sem um er að ræða málverk, ljósmynd eða teikn- ingu, og fært yfir á lítinn flöt frí- merkisins og viðhalda samtímis skýrleika viðfangsefnisins og læsi- legum texta. Þrátt fyrir að línurnar geti orðið mjög fíngerðar, þá er það takmörkum bundið, hversu margar komast fyrir á litlum fleti. Þess vegna verður graflistamað- urinn að vera djarfur ef árangurinn á að fá þann frískleika, sem ein- kennir gott frímerki. Þegar litið er yfir störf Slania er sérstakt ánægjuefni að finna þá innlifun, sem hann hefur í viðfangs- efnum sínum. Rík reynsla hans í að nota línur og punkta sem boð- bera upplýsinga gera honum kleift að velja bestu útfærsluna í sér- hveiju verkefni fyrir sig. Sænska frímerkjaprentsmiðjan í Stokkhólmi .getur sameinað stál- stunguprentun með offsetprentun. Hægt er að nota 3 liti í stálstungu- prentuninni og 4 liti í offsetprentun- inni samtímis. Þessi samkeyrsla með mismunandi prentaðferðum gefur möguleika langt umfram það, sem kleift er með hvorri aðferðinni fyrir sig. Mörg af meistaraverkum Slania hafa líka fyrst litið dagsins ijós á þennan hátt og Svíar eiga mörg verk ástsælla listamanna sinna á frímerkjum. Meðal þeirra má nefna málverk eftir Hins-Anders Zorns, sem sýnir ríkisfiðlarann, en fyrir þetta frímerki fékk Slania hin virtu Robert Stoltz-verðlaun. Mörg fleiri dæmi er hægt að nefna, nú síðast túlkun Slania á fyrirmyndum Peters Dahl og Gösta Werners í tilefni hátíðaútgáfu frímerkja í minningu Bellmans og Evert Taubes. Íslendingar hafa átt því láni að fagna, að njóta hæfileika Slania um árabil. Þótt Slania sé nú 70 ára lætur hann engan bilbug á sér finna. Hann er þegar farinn að tala um, hvaða merki hann vill gera á áttræð- isafmælisdaginn! Ég hef við þessa samantekt stuðst við skrif Nils G. Stenqvist prófessors með leyfí hans og kann ég honum bestu þakkir fyrir. Einnig sænska póstinum fyrir leyfi á mynd- birtingum á verkum Slania. Höfundur rekur ásamt eiginkonu sinni, Ólöfu Baldursdóttur hönnuði, hönnunar- og auglýsingastofuna 99 Design í Stokkhólmi. Saga úr smiðju Alistairs MacLeans IÐUNN hefur gefið út bókina Ognin rauða sem Alistair MacNeill hefur skrifað eftir óunnu handriti Alistairs MacLeans, sem nú er látinn. í kynningu Iðunnar segir: „Sagan segir frá kaldrifjuðum hryðjuverkamönnum Rauðu herdeildanna sem gera árás á rannsóknarstofu í efnaverk- smiðju nálægt Róm. Kunnur vís- indamaður er drepinn og lítið glerhylki hverfur. Hylkið inni- heldur stórhættulega veiru sem drepið gæti milljónum manna. Það kemur í hlut UNACO, al- þjóðlegrar athafnasveitar sem berst gegn glæpastarfsemi og hryðjuverkum um heim allan, að hjálpa ítölsku stjórninni að takast á við ógnina rauðu. Þetta er æsileg, hröð og við- burðarík spennusaga þar sem enginn veit hveijum er að tre- ysta.” Sverrir Hólmarsson þýddi. Suzuki Swift SKEIFUNNI 17 SÍMI 68 51 00 Rúmgóður og sparneytinn Suzuki Swift 5 dyra GLi er sérstaklega rúmgóður og sparneytinn bíll. Hann er með aflmikilli vél, búinni rafstýrðri bensíninnsprautun og mengunarvarnarbúnaði af fullkomnustu gerð. Eyðslan er líka í sérflokki, frá 4.0 I á 100 km. NOKKRIR BÍLAR Á SÉRSTÖKU TILBOÐSVEROI Kr. 798.000. “* Stgr. eða útborgun kr. 208.000.- og 20.860.- króna afborgarnir í 36 mánuði. $ SUZUKI SUZUKI BÍLAR HF Úrval frábærra litmynda ásamt lifandi og fróðlegum texta á enshu gera sérkennum landsins og fjölbreyttu þjóðlífi okkar góð skil. Bókin er 96 síður og skiptist í sex kafla: Ströndin; náttúra og landslag; dýr ogfuglar; fólkið, saga og menning; atvinnulíf; borg og bær. Falleg bók frá útgáfufyrirtæki sem leggur metnað sinn í að framleiða vandað efni til landkynningar. Verð aðeins hr. 2,990.- lceland Review Höfðabakki 9, 112 Reykjavík, Sími 675700, Fax 674066

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.