Morgunblaðið - 22.11.1991, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1991
23
Fimm ár frá því að Lottóið hóf göngu sína:
Vinningar nálg-
ast tvær milljónir
LOTTÓIÐ hefur verið starfrækt hér á landi í fimm ár, en í dag eru
nákvæmlega fimm ár síðan fyrsti miðinn var seldur. A þessum tíma
hafa 229 Islendingar unnið meira en eina milljón króna og alls hafa
rúmlega 1,8 milljónir vinninga gengið út, allt frá nokkrum tugum
króna og upp í 13,7 milljónir. Eignaraðilarnir hafa fengið yfir þúsund-
falt til baka stofnframlag sitt á þessum stutta tíma.
, Morgunblaðið/RAX
Vilhjámur B. Vilhjálmsson framkvæmdastjóri íslenskrar getspár fylgist með í tölvusalnum í hinu nýja
húsnæði fyrirtækisins.
„Minnisstæðust er eflaust önnur
leikvikan okkar þegar einstæð móð-
ir á Akureyri fékk 3,2 milljónir í
fyrsta vinning,” segir Vilhjálmur
B. Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri
Islenskrar getspár,. sem rekur
Lottóið, þegar hann rifjar upp eftir-
minnilega atburði liðinna fimm ára.
Vinningar eru nú orðnir 1.816.914
talsins, sem samsvarar því að hvert
mannsbarn á íslandi hafi unnið
rúmlega sjö sinnum.
Aðdragandinn að Lottóinu var
stuttur. Lög nr. 26 frá 1986 um
talnagetraunir voru samþykkt á
Alþingi í maí árið 1986 og 22. nóv-
ember sama ár keypti Steingrímur
Hermannsson, sem þá var forsætis-
ráðherra, fyrsta Lottómiðann á ís-
landi. „Við bara byijuðum og prjón-
uðum síðan flíkina eftir því sem
barnið óx. Starfsmenn voru tólf í
upphafi og síðan var ráðið eftir
hendinni fyrstu mánuðina og nú
erum við 18 í föstu starfi og flestir
hafa verið hér frá fyrstu mánuðum
starfseminnar. Við erum einnig með
fjóra tæknimenn úti á landi og svo
eru þau íjögur sem sjá um útdrátt-
inn í sjónvarpinu,” segir Vilhjálmur
og bætti því við að auðvitað hafi
verið búið að vinna mikla undirbún-
ingsvinnu áður en lögin tóku gildi.
„Ætli megi ekki segja að barnið
sé fullvaxta núna miðað við óbreytt
ástand. Við höfum vissulega tækni-
búnað til að fjölga leikjum eða
breyta en við höfum viljað fara
varlega í sakirnar enda hefur Lottó-
ið skapað sér ákveðinn sess og sal-
an er jöfn og góð. Við höfum hald-
ið okkar hlut þrátt fyrir aukna sam-
keppni. Reiknisárið 1989-90 seldum
við fyrir 811,6 milljónir króna en á
þessu reiknisári var salan 983,4
milljónir, sem er rúmlega 20% aukn-
ing í krónum.
Eignaraðilarnir, sem eru Iþrótta-
samband íslands (46,67%), Ör-
yrkjabandalag íslands (40%) og
Ungmennafélag íslands (13,33%),
hafá fengið 1.249 milljónir króna í
sinn hlut þennan tíma og þá er
ekki framreiknað til núvirðis. Þetta
er rúmlega þúsundfalt stofnframlag
þeirra. Eignaraðilum er ekki greitt
ákveðið hlutfall af veltunni en það
lætur nærri að þeir fái um 31% af
innkomunni,” segir Vilhjálmur.
Hann sagði að vinsældir Lottós
mætti rekja til margvíslegra þátta.
„Lottóið er alls staðar vinsælasta
happdrættisformið, eða talnaleikja-
formið, og með tölvuvæðingu og
beinni sjónvarpsútsendingu þegar
dregið er fellur Lottó vel að óskum
nútímamannsins. Hann fær
ákveðna spennu og fær einnig fljótt
svar við því hvort hann hefur hlotið
vinning eða ekki. Það má auðvitað
ekki gleyma því að menn styðja
gott málefni og ég held að við höf-
um verið farsæl hvað varðar rétt
leikform og gert breytingar á leikn-
um á réttum tíma.
Rætt um norrænt Lottó
Ég á ekki von á að gerðar verði
breytingar á leiknum á næstunni
enda hefur gengið vel og við erum
í 11. sæti í heiminum hvað varðar
sölu á hvern íbúa, en Lottó er leikið
í 53 löndum. Finnarnir eru í efsta
sæti og talsvert fyrir ofan aðra.
Óformlegar viðræður eru reyndar í
gangi milli Norðurlandanna um að
hefja norrænt Lottó. Ef af því verð-
ur þá er stefnt að því árið 1993 og
í slíku Lottói ættu um 23 milljónir
manna aðgang og möguleika á að
vera með. Oft hefur verið rætt um
að breytinga væri þörf á sjónvarps-
útdrættinum en við viljum fara okk-
ur hægt í þeim efnum' enda er Lottó-
ið þriðja vinsælasta sjónvarpsefnið
og við höfum því hreinlega ekki
lagt í að breyta til,” segir Vilhjálm-
ur.
Sölukerfi Lottósins er víðfeðmt.
Það eru 173 umboðsaðilar um land
allt með 183 beinlínutengda kassa.
Um 300 manns eru á biðlista eftir
slíkum kassa en íslensk getspá tel-
ur ekki grundvöll fyrir að stækka
sölukerfið mikið að svo komnu
máli. Alltaf er þó eitthvað um að
skipt sé um umboðsmenn þótt ekki
sé það algengt og því verða menn
að bíða enn um sinn. Þess má til
gamans geta að vel á þriðja þúsund
manns hafa sótt námskeið hjá ís-
lenskri getspá til að læra á sölu-
kassana.
Fyrir ekki margt löngu tók ís-
lensk getspá í notkun nýtt hús-
næði, eða hluta þess húsnæðis sem
fyrirtækið er að byggja í samvinnu
við ISI. Vilhjálmur segir ánægjulegt
að geta fagnað því á fímm ára af-
mælinu að tölvubúnaður fyrirtækis-
ins, sem er fullkominn, sé kominn
í öruggt og fullnægjandi húsnæði
en_ tölvurnar voru áður í kjallara
ISI-hússins í Laugardal.
Hlutur stjórnarinnar mikill
Hlutur stjórnar fyrirtækisins er
mikill í allri uppbyggingunni. Fimm
menn sitja í stjórninni og skiptast
eignaraðilarnir á um að skipa
stjórnarformann til tveggja ára í
senn. Sigurbjörn Gunnarsson frá
UMFÍ er núverandi stjórnarformað-
ur en aðrir í stjórn eru Alfreð Þor-
steinsson og Þórður Þorkelsson frá
ISÍ og þeir Arinbjörn Kolbeinsson
og Björn Ástmundsson frá Öryrkja-
bandalaginu. Sigurbjörn kom inn í
stjórnina eftir fyrsta árið og tók
þá sæti Hauks Hafsteinssonar. Hin-
ir fjórir hafa verið í stjórn frá upp-
hafí.
Stjórnin fylgist mjög náið með
framvindu mála hjá fyrirtækinu og
á síðasta reikningsári hélt stjómin
32 fundi.
Opnum kl. 2.00 í dag, nýja og stórglæsilega
leikfangaverslun í Borgarkringlunni.
Jólasveinar útbýta gjöfum og blöðrum til barnanna
í dag og á morgun.
Verið velkomin í jólaland Tómstundahússins.
Borgarkringlunni 6 © 67 84 04