Morgunblaðið - 22.11.1991, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1991
39
CITROÉN
Yináttudag-
ar í Breið-
holtshverfi
í SAMBANDI við verkefnið Vin-
átta ’91 verða haldnir vináttu-
dagar í Breiðholtshverfi um nk.
helgi dagana 23.-24. nóvember.
Félagsmiðstöðin Fellahellir hefur
opið hús fyrir alla aldurshópa laug-
ardaginn 23. nóvember kl. 14-17.
Nemendur í grunnskólum hverfis-
ins, Breiðholtsskóla, Fellaskóla,
Hólabrekkuskóla og Ölduselsskóla,
troða upp með dans, söng, hljóðfær-
aleik og leiklist, nemendur úr Jass-
ballettskóla Báru sýna dans og
nemendur úr tónskóla Eddu Borg
leika. Listaklúbbur Fellahellis
skreytir staðinn og sendur fyrir
ýmsum uppákomum. Þá munu
unglingar í Fellahelli bjóða uppá
kaffí og kökur.
í Fella- og Hólakirkju verður vin-
áttumessa sunnudaginn 25. nóv.
kl. 11. Þar verður samlestur 12 ára
barna og eldri borgarar syngja.
Eftir messuna verður boðið upp á
kaffi
í Seljakirkju verður vináttumessa
kl. 14. 12 ára börn úr Seljaskóla
verða með innlegg í messuna og
10 ára börn halda sýningu á mynd-
um tengdum vináttu.
Þá er ótalið það starf sem fer
fram í kyrrþey, en margar bekkja-
deildir skólanna hafa unnið þema-
vinnu með efnið og svo er einnig
með dagvistárstofnanir.
(Fréttatilkynning)
Myndirnar sem prýða jólakort
Styrktarfélags vangefinna eru
eftir listakonuna Sólveigu Eg-
gerz Pétursdóttur.
Hinir 12 sýna í Hafnarborg
OPNUÐ verður sýning nokkurra
hafnfirskra myndlistarmanna í
Hafnarborg, menningar og lista-
stofnunar Hafnarfjarðar laugar-
daginn 23. nóvember kl. 14 í
Sverrissal og kaffistofu.
Hópurinn nefnir sig Hinir 12 og
hann skipa listamenn úr ýmsum
greinum myndlista, bæði högg-
myndalist, textíl, grafík, málun og
leirlist. Að þessu sinni eru þrír lista-
menn í sýningarleyfi en hinir níu
eru: Aðalheiður Skarphéðinsdóttir,
Elín Guðmundsdóttir, Gestur Þor-
grímsson, Jamos Probstner, Jóna
Guðvarðardóttir, Rúna (Sigrún
Guðjónsdóttir), Sigríður Agústs-
dóttir, Sigríður Erla og Sverrir
Ólafsson.
Sýniiigin verður opin kl. 12-18
alla daga nema þriðjudaga.
(Frcttatilkynning)
Um félag Norðmanna
I kynningu á Else Miu Einarsdóttur
með grein hennar um bústað Félags
Norðmanna í Heiðmörk, sem birtist
í Morgunblaðinu í gær, var ranglega
sagt að hún væri formaður félags-
ins. Formaður þess er Tore
Skjenstad.
M SÝNINGU Þórdísar Rögn-
valdsdóttur í FÍM-salnum lýkur
sunnudaginn 24. nóvember. Á sýn-
ingunni éru 27 olíumálverk öll utan
eitt máluð á þessu ári. Opið er frá
kl. 14-18 daglega.
■ LOKA TONLEIKAR Todmo-
bile á hringferð sinni um landið
verða haldnir í Félagsbíói í Kefla-
vík í dag, föstudag 22. nóvember.
Auk Todmobile spila 4 aðrar hljóm-
sveitir. Tónleikarnir hefjast • kl.
20.30 og þeim lýkur kl. 1.00. Miðar
eru seldir í Félagsbíói. Nemendafé-
lag Fjölbrautaskóla Suðurnesja
sténdur fyrir tónleikunum.
Lágmúla 5 ■ Sími 91-681555
Styrktarfélag vangefinna:
Jólakortasala hafin
SALA er hafin á jólakortum
Styrktarfélags vangefinna. Á
kortunum eru myndir eftir Sól-
veigu Eggerz Pétursdóttur og
hefur hún gefið félaginu frum-
myndirnar sem eru fjórar. Dreg-
ið verður um þær 27. janúar 1992
og birtast vinningsnúmer í fjölm-
iðlum.
Átta kort eru í hveijum pakka
og fylgir spjald sem er happdrætti-
smiði. Kortin verða til sölu á skrif-
stofu Styrktarfélagi vangefinna
Háteigsvegi 6, í versluninni Kúnst
Laugarvegi 40, Nesapóteki Eið-
storgi 17 og á stofnunum félagsins.
Verð pakkans er kr. 500,-
I fréttatilkynningu frá Styrktar-
félagi vangefinna segir að tekið
skuli fram að gefnu tilefni að kort-
in séu greinilega merkt félaginu.
Tómas Sturlaugsson, framkvæmd-
astjóri félagsins, segir ástæðuna þá
að vart hafi orðið við fólk er selji
ýmsan varning í nafni líknarfélaga
en afraksturinn renni ekki til þeirra.
Hann sagði að lögreglunni hefði
verið gert viðvart en hún telji sig
lítið geta gert.
AX Exeellenee
■ SPRÆKUR OG SPARNEYTINN
SMÁBÍLL FRÁ CITROÉN,
TILBUINN í VETRARAKSTURINN.
3,9 L
...á hundraðið miðað
við 90 km/ldst.
■ Einstakt vetrarverð!
6t7.U0 m.
■ Innifalið í verði:
11 OOcc 55 hö: vél. 5 gíra, litað gler, samlitir
stuðarar, afturrúðuþurrka, hliðarspeglar,
Ijóskastarar að framan, Excellence merkingar
á hliðum, útvarp segulband og snjódekk.
■ Til afgreiðslu strax.
2r7 G/obusp
Laufey Sigurðardóttir ' Páll Eyjólfsson
Tónleikar á Norðurlandi
LAUFEY Sigurðardóttir fiðlu-
leikari og Páll Eyjólfsson gítar-
leikari halda tónleika á Norður-
landi um helgina.
Tónleikar verða i kirkjunni á Dal-
vík föstudaginn 24. nóv. kl. 20.30,
laugardag 25. nóv. kl. 14.30 í kirkj-
unni í Hrísey og sunnudag 26. nóv.
kl. 15.00 í kirkjunni við Kópasker.
Á efnisskrá eru verk eftir Corelli,
Paganini, Kreisler, Villa Lobos, Sar-
asate Og fleiri. (Frcttatilkynning)
Kynning á
hrossarækt
á Hólum
UNDANFARIN ár hefur
kennsla í alhliða hrossabú-
skap, hrossarækt og reið-
mennsku verið stóraukin við
Bændaskólann á Hólum. Góð
aðstaða er á Hólum til að
stunda þessa kennslu. Auk
þess er mikið samstarf við
Hrossakynbótabú ríkisins,
sem bændaskólinn sér um
rekstur á, og stóðhestastöðv-
ar Norðurlands, sem er sam-
starfsverkefni Bændaskólans
og hrossaræktarsambanda á
Norðurlandi og starfa á Hól-
um.
Nám við Bændaskólann tekur
tvö ár og eru hluti þess verknám
hjá bændum/tamningamönnum
eða þrír mánuðir. Auk þess hef-
ur verklegi þáttur námsins á
skólanum sjálfum verið stórauk-
inn þannig að skólinn er í dag
öflugasti reiðskóli landsins,
samhliða kennslu í hrossarækt
og hrossabúskap.
Nemendur hrossaræktar-
brautar í samráði við skólayfir-
völd hafa ákveðið að kynna
þessa starfsemi með opnu húsi
sunnudaginn 24. nóvember nk.
Húsið verður opnað kl. 13.30
og verður opið til kl. 16.00.
Megin tilgangur er að kynna
uppbyggingu námsins og sýna
í verki þær aðferðir sem beitt
er við kennsluna.
Að lokinni sýningu og kynn-
ingu býður Bændaskólinn upp á
kaffi í mötuneyti skólans.
(Úr fréttatilkynningu)