Morgunblaðið - 22.11.1991, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1991
43
Minning:
Bjöm Magnússon
vélsmiður — Minning
Fæddur 15. október 1913
Dáinn 14. nóvember 1991
Björn Magnússon jámsmíða-
meistari lést á heimili sínu, Suður-
götu 18, Keflavík, fimmtudaginn
14. nóvember sl. Með honum er
genginn einn dugmesti og hæfíleik-
aríkasti járnsmiður Suðurnesja.
Hann var sonur Magnúsar heitins
Björnssonar járnsmiðs og konu hans
Kristínar Bjarnadóttur. Ungur að
árum missti Björn móður sína, en
ólst upp hjá vandamönnum þar til
hann hóf nám hjá föður sínum hér
suður í Keflavík, en þar rak hann
vélsmiðju.
Magnús heitinn var annálaður
hagleiksmaður, en það var eitt öðru
fremur, sem Björn minntist frá föð-
ur sínum, hve mikla virðingu hann
bar fyrir verkfærum, en þann eigin-
leika erfði Björn í ríkum mæli og
smíðaði mikið af sínum sérverkfær-
um sjálfur.
Eins og oft vill verða fetaði sonur
í fótspor föður og stofnaði Björn
sína eigin smiðju, Vélsmiðju Björns
Magnússonar, árið 1946 og fram-
leiddi þar aðallega miðstöðvarkatla
og hlutu þeir nafnið B.M. katlar og
urðu fljótt landsþekktir fyrir góða
nýtingu. En hann vann jafnframt
ýmis önnur nýsmíðaverkefni auk
þjónustustarfa og varð smiðjan í
Suðurgötunni fljótlega alltof lítil og
skömmu eftir 1950 hófst hann
handa um smíði á stóru og myndar-
legu iðnaðarhúsnæði upp á tvær
hæðir á Hafnargötu 90. Þar hélt
Björn katlasmíðinni áfram, en hóf
jafnframt smíðar á yfírbyggingum
báta og ýmsum hjálpartækjum til
báta og útgerðar almennt. Hann réð
til sín verkfræðinga, en hin almennu
skrifstofustörf annaðist yngri bróðir
hans sem nú er látinn fyrir mörgum
árum, Alexander Magnússon. Björn
stóð alltaf á verkstæðisgólfinu og
stjórnaði beint framleiðslunni og
átti ég oft erindi við hann í smiðj-
una meðan ég var vélaeftirlitsmaður
Islenskra aðalverktaka með ýmis
verkefni, sem hann leysti af hendi
með sinni alkunnu lipurð og
verklagni.
Á þessum árum var farið að ræða
það í alvöru innan Iðnaðarmannafé-
lags Suðumesja að nauðsyn bæri
til að stofna verktakafélög í iðn-
greinunum til þátttöku í varnarliðs-
framkvæmdum, sem voru orðnar
all umfangsmiklar. Stofnuð voru
fjögur verktakafyrirtæki sem síðar
störfuðu undir samheitinu Keflavík-
urverktakar.
Við vorum 19 talsins, allt fag-
lærðir meistarar, sem stofnuðum
Járn og pípulagningaverktaka
Keflavíkur hf. árið 1957. Árið eftir
var Björn kosinn stjómarformaður
og var endurkjörinn árlega næstu
þrjá áratugina eða þar til hann gaf
ekki lengur kost á sér fyrir aldurs-
sakir. Sem framkvæmdastjóri þess
fyrirtækis frá upphafí varð að sjálf-
sögðu að vera mikil samvinna milli
okkar Bjöms. í þeirri samvinnu fékk
ég að kynnast mannkostamanninum
Birni Magnússyni og hefði ég ekki
getað hugsað mér betri dreng en
hann til þess samstarfs.
Stjórnarformenn þessara fjög-
urra verktakafyrirtækja mynduðu
samvinnunefnd, sem fór með stjórn
Keflavíkurverktaka, sem snertu öll
mál þeirra sameiginlega og var
Björn þar einnig frá upphafí kosinn
formaður og endurkjörinn óslitið
næstu tvo áratugina. Á síðari hluta
sjöunda áratugarins voru miklir erf-
iðleikar hjá útgerðinni og henni til
verndar vom sett mjög stíf verðlags-
ákvæði á allan þjónustuiðnað ofan
á það að þau töpuðu miklum fjárm-
unum.
Þetta varð til þess að allar stærstu
vélsmiðjumar hér á skaganum rið-
uðu til falls og hefur járniðnaðurinn
enn þann dag í dag ekki borið sitt
barr með þjóðinni enda vilja ráða-
menn þjóðarinnar svo hafa og veita
öðmm þjóðum tugmilljarða í atvinnu
til þjónustu við íslenska sjávarútveg,
þótt hér stefni í meira og meira
atvinnuleysi.
Árið 1968 neyddist Björn til að
selja hús sitt, vélar og verkfæri og
það voru þung spor fyrir hann og
þar tók engin önnur vélsmiðja við
rekstri, heldur var það húsnæði síð-
ar notað sem tollvörugeymsla fyrir
innflutning.
Björn var mikill dýravinur og
unni hestum mikið og eignaðist
margan góðan gæðinginn og reisti
þeim hesthús og undi þar vel hag
sínum í frítímum, með börnum sín-
um og tengdabörnum.
Björn réðst síðan til starfa hjá
Jám og pípulagningaverktökum
Keflavíkur hf. og lauk starfsferli
sínum þar, þá kominn á áttræðisald-
ur, aðallega við það að halda verk-
færum og áhöldum í lagi og búa í
haginn fyrir starfsmenn. En þar var
einmitt fyrir sonur Björns, Einar,
sem verið hefur verkstjóri járn-
smíðadeildar um langt árabil og
hafði meistararéttindi eins og faðir
hans og afí á undan honum.
Björn kvæntist efírlifandi eigin-
konu sinni, Guðrúnu, árið 1939, en
hún var-dóttir Einarg Quðbergs Sig-
urðssonar, skipstjóra í Keflavík, og
konu hans, Maríu Guðmundsdóttur.
Hófust þau fljótlega handa um
byggingu framtíðarheimilis á Suð-
urgötu 18 í Keflavík og hafa búið
þar alla tið síðan. Þau eignuðust
einn son ári síðar, en hann dó
skömmu eftir fæðingu og var þeim
að því mikill harmur kveðinn.
Þau tóku og ólu upp þijú kjör-
böm og var mikið ástríki þeirra í
millum, en þau eru Lúðvík Guðberg,
nú refabóndi í Garði, kvæntur Þór-
dísi Garðarsdóttur, Einar Guðberg,
sem áður er getið, járnsmíðameist-
ari, kvæntur Júlíönnu Maríu Nílssen
og eru þau búsett í Keflavík, og
María Kristín, gift Jens Elíssyni,
vélamanni hjá íslenskum aðalverk-
tökum, og em þau búsett úti í Garði.
Barnaþörnin og barnabarnabörnin
em nú orðin 14 talsins. Það er mik-
ill harmur kveðinn að Guðrúnu að
missa lífsförunaut sinn því öllu sam-
rýndari hjónum hefi ég ekki kynnst
um ævina, en hún er mikil mann-
kosta kona og sterkur persónuleiki
og þótt hún hafi þurft um áratuga-
skeið að glíma við mjög erfíðan sjúk-
dóm, oft sárþjáð, brast kjarkinn
ekki né hið góða skaplyndi. Björn
sýndi í þessum veikindum hennar
hversu mikils hann mat hana og
annaðist hana af mikilli umhyggju
fram til síðustu stundar.
Með þessum orðum vil ég og fjöl-
skylda mín kveðja góðan vin og
samstarfsmann og votta Guðrúnu
og hennar fjölskyldu allri innilega
samúð.
Ingvar Jóhannsson, Njarðvík.
Björn Magnússon, mágur minn
og vinur, lézt snögglega 14. þ.m.,
degi fyrr en mánuður væri liðinn frá
78. afmælisdegi hans og aðeins
skorti ijóra daga á fímmtugasta og
annan brúðkaupsdag hans og Guð-
rúnar, systur okkar bræðra, Gunn-
ars og mín. Þau Björn höfðu því lif-
að langa ævi saman.
Hér verður aðeins um að ræða
fáein og fátækleg kveðjuorð til þessa
kæra mágs míns.
Björn fæddist á Emmubergi á
Skógarströnd, en missti móður sína
barn að aldri. Var honum þá fengið
fóstur hjá ágætu vinafólki fremst í
Hnappadal. Þaðan fluttist hann síð-
an ungur að aldri til Keflavíkur þar
sem faðir lians, Magnús Björnsson,
mikill hagleiksmaður, rak vélsmiðju.
Þar hóf Björn störf og iðnnám í jám-
smíði eins og það var þá nefnt, hlaut
sveinsréttindi og síðar meistara-
réttindi í iðngrein sinni. Björn bjó í
Keflavík alla tíð síðan.
Og þannig bar að kynni fjölskyldu
minnar við Björn og þau nánu kynni
hans og Guðrúnar, systur minnar,
sem fyrr er getið. En í Keflavík
voram við systkinin borin og barn-
fædd.
Þau Björn eignuðust fljótlega son,
sem dó fárra vikna gamall. Var ég
staddur á heimili þeirra er þann
sorgaratburð bar að um miðjan dag.
Sú stund var þungbærari en svo að
orð fái lýst.
Sonarmissinn bættu þau sér með
því að taka smám saman þijú kjör-
böm, sem þau ólu upp í miklu ástríki
og góðri umönnun. Umbunar þessa
nutu þau bæði síðar, ekki sízt er
ellin seig að, í endurgoldnu ástríki
þessara barna sinna, tengdabarna
og bamabarna.
Björn Magnússon var völundur
og þjóðhagi í járn- og vélsmíði. Fyrst
starfaði hann um skeið í smiðju föð-
ur síns, sem síðar rann saman við
Dráttarbraut Keflavíkur hf., og
starfaði þar um skeið, unz hann setti
á stofn eigin vélsmiðju í Keflavík,
fyrst í smáum stíl, en síðar í stærra
mæli, og varð hún þekkt víða um
land, kannski ekki sízt og einkum í
upphafi, fyrir miðstöðvarkatla, sem
hann smíðaði og sem hitaðir vora
með gasolíu, og sem nefndir voru
BM katlar. Þá hannaði Björn sjálfur
af hagleik sínum og þóttu þeir bera
af um hagkvæma orkunýtingu og
seldust um nánast land allt. Hann
vann og mikið við nýsmíði í sam-
bandi við endurbætur og endumýjun
á fiskiskipum og sitthvað annað, sem
hér verður ekki tíundað. Einnig
vöktu athygli ýmis tæki, sum stór í
sniðum, sem hann hannaði og smíð-
aði til nota í vélsmiðju sinni. Þessa
starfsemi sína dró Björn í land, er
efnahagsáföllin miklu dundu yfir
1967 til 1969, þegar aflabrestur og
stórfellt verðfall á sjávarafurðum
erlendis drógu þrótt úr útgerð og
fiskvinnslu, bæði framkvæmdagetu
og greiðslugetu.
Þegar hér var komið og lengst
af síðan var Björn einn af máttar-
stólpum Keflavíkurverktaka, sem
önnuðust og annast enn margvísleg
viðhaldsverkefni á Keflavíkurflug-
velli, en sú starfsemi hefír verið lyfti-
stöng í atvinnulífi á Suðumesjum
og hefír fyrirtækið þar fyrir utan léð
mörgu góðu máli lið.
Björn Magnússon var öndvegis-
maður á öllum sviðum, en bezt kom
það fram í því hversu góður heimil-
isfaðir hann var. Umönnun hans
snerist frá upphafi og til hinzta dags
um heimilið, um eiginkonuna, börn-
in, tengdabörnin og barnabörnin.
Guðrún, systir okkar, hefír átt við
langvarandi heilsubrest að stríða og
seinustu árin svo mjög að jaðrað
hefir við örkuml, þótt hún hafí ætíð
staðið upprétt og aldrei látið bug-
ast; við hefír blasað ættgengt ska-
príki og kjarkur og, þrátt fyrir allt,
meðfætt glaðlyndi sem oftar hefír
birzt í smitandi hlátri. Við þessar
aðstæður reyndist Bjöm, bóndi
hennar, bjargið trausta í umönnun
sem hér verður ekki reynt að lýsa.
Ég leyfi mér aðeins að segja, að ég
hygg að fáum sé gefín sú gæzka
og fórnfýsi, sem hann sýndi í þessu
sem öðru mótlæti. Fyrir þetta vil ég
þakka honum svo og fyrir trygga
og óbrigðula vináttu sem aldrei bar
skugga á.
Björn Magnússon var drengskap-
armaður, hallmælti engum, lagði
ekki dóma á menn.
Ég og fjölskylda mín kveðjum
Björn með trega, þótt aldraður væri
og slitinn eftir eljusama ævi, en
hann lét sér aldrei verk úr hendi
falla.
Guð blessi minningu hans og veiti
honum hlýjar viðtökur í ríki sitt ofar
jörðu.
Ingimar Einarsson
í
Hlutabréfaútboð
Útboðsfjárhæð 900.000.000,00 kr.
Útboðið hefst 22. nóvember 1991 og lýkur 16. desember 1991
Gengi 1,5
Aðeins núverandi hluthafai' bankans eiga kost á hlutabréfakaupum
Útboðslýsing hefur verið send öllum hluthöfum en er auk þess fáanleg hjá
hluthafaskrá bankans, Bankastræti 5, Reykjavík
s
... Islandsbanki hf.
kt. 421289-5069
Kringlunni 7, Reykjavík
SIEMENS
Litlu raftœkin frá
gleðja augað!
«nil8
SIEMENS
Kaffivélar. hrœrivélar, brauðristar, vðfflujárn.
strokjárn, handþeytarar, eggjaseyðar,
hraðsuðukönnur, áleggshntfar, veggklukkur,
vekjaraklukkur, djúpstelklngárpottar o.m.fl.
SMITH&
NORLAND
Nóatúni 4-Sími 28300