Morgunblaðið - 22.11.1991, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1991
53
ísland, heilsuparadís
í Dagblaðinu 12. nóvember er
kjallaragrein eftir Rafn Geirdal
skólastjóra einmitt um svipað mál-
efni og ég er búinn að skrifa um
meira og minna síðastliðin 30 ár
án árangurs. Þessi grein Rafns er
stórgóð á margan hátt, sérlega um
ræktunina og eins og ég hefí hugs-
að mér að hægt væri að gera ísland
að heilsuparadís.
Nú þegar útséð er um að álver
eða önnur stóriðjuver verði byggð
á íslandi í náinni framtíð þá þarf
auðvitað að athuga með aðrar at-
vinnugreinar. Ég veit að atvinnu-
lega séð er þetta afar mikið áfall
fyrir það byggðarlag þar sem álver-
ið átti að vera og líka fyrir landið
í heild en ekki trúi ég því að þetta
dugmikla fólk á Suðurnesjum leggi
árar í bát og finni ekki aðrar atvinn-
ugreinar sem gætu gefið mikla at-
vinnu, kannski meiri en álver, og
mikinn gjaldeyri.
Ég hefi það skriflegt frá fyrrver-
andi forsætisráðherra, Steingrími
Hermannssyni, og bækling þar sem
í stendur skrifað að rekstur heilsu-
hæla sé í athugun, þótt ekkert bóli
á niðurstöðum ennþá. Eins og Rafn
Geirdal réttilega bendir á er afar
auðvelt að rækta hér á iandi allt
það grænmeti og sennilega ávexti
(sumar tegundir) sem við þurfum
allan ársins hring. Eins og nú er
farið að gera í rósaræktuninni með
nægilegu rafmagni og sérstökum
rafljósum svo nú þarf ekki lengur
að flytja inn rósir frá útlöndum að
vetrinum eins og gert var áður, þær
voru heldur ekki betri né ódýrari.
Þessa ræktunaraðferð benti ég á
fyrir mörgum árum en það yar aldr-
ei hægt að framkvæma hana vegna
kostnaðar og rafmagnsskorts.. Ég
er búinn að vera við garðyrkjustörf
við allskonar ræktun frá fermingar-
aldri og er nú orðinn 74 ára (ungl-
ingur ennþá). Ég var fyrstur hér á
landi að rækta sveppi; lærði það í
Danmörku 1935 og ræktaði hér
heima í Hveragerði 1938 eða 1939
og er það afar auðvelt og mætti
spara innflutning á þeim. Ég hefí
ræktað banana þó nokkuð og voru
sumir klasarnir allt upp í 35 kg á
tré. Ég hefi líka ræktað appelsínur,
epli, gráfíkjur, vínber, kaffi, tóm-
ata, agúrkur og margt fleira með
góðum árangri en til þess þarf stór
gróðurhús, mikið rafmagn og sér-
staka raflýsingu.
Garðyrkjumenn hafa aldrei feng-
ið styrki frá ríkinu eins og margar
aðrar atvinnugreinar og hafa sjálfir
þurft að betjast fyrir sínu. Nú fínnst
mér gullið tækifæri fyrir Suður-
nesjamenn að byggja stórt og full-
komið heilsuhæli eða heilsuhótel
nálægt Bláa lóninu sem hefir.þá
eiginleika sem ekki eru til annars
staðar í heiminum. Nóg er til af
heilsusamlegu hveravatni og leir og
væri þá ekki hægt að halda áfram
með Blönduvirkjun ef ekki er til
nægilegt rafmagn. Því svona stofn-
un þarf mikið rafmagn og yfír-
byggja. þarf stór svæði og hita upp
svo hægt sé að iðka allskonar úti-
íþróttir allan ársins hring.
Nóg höfum við af læknum í öllum
greinum og margir læknar vinna
erlendis en vilja koma heim ef vinna
byðist hér. Við eigum líka mikið
af vel menntuðu hjúkrunarfólki sem
ynni við þetta ef það fengi viðun-
andi laun. Eins eigum við marga
góða matvælafræðinga og líklega
bestu matargerðarmenn í heimi.
Þessi starfsemi gæti ef vel væri
að staðið skapáð meiri atvinnu og
gjaldeyri en stóriðjuverin og væru
auk þess mikið árvissari og ekki
háð sveiflum á heimsmarkaði eins
og álið.
Þúsundir af ríkum útlendingum
ferðast á milli heilsuhæla land úr
landi með ýmsa sjúkdóma og
ímyndaða. Þeir myndu alveg eins
koma hingað ef fréttist af góðum
heilsuhælum. Ég hefí kynnst heilsu-
hælum á tveimur stöðum, í Dan-
mörku og dvaldi í þijár vikur á Silki-
borg bad sanatorium og líkaði vel
og er það byggt út frá kolviðaðri
Enn og aftur fara fréttamenn
rangt með heiti staða á landi okkar.
Skáldið sagði í þá veru að lands-
lag yrði ekki til fyrr en því hefði
verið gefið nafn.
En að uppnefna landið er verra
en að hafa það nafnlaust. Það er
ekki vansalaust að yfírmenn vega-
gerðar afmarkaðs svæðis skuli ekki
vita hvað landið heitir, sem þeir sjá
um vegalagnir um, en heldur ekki
afsakanlegt að fréttamaður, sem
jafnvel á að vita, skuli gleypa það
hrátt sem hann er mataður á.
í Morgunblaðinu 15. nóvember
sl. er frétt um nýlögn vegar um
Öxnadalsheiði. Er þar, skv. upplýs-
ingum umdæmisverkfræðings, ver-
ið að gera umtalsverðar breytingar
á vegarstæði, þar sem vegurinn
vestan heiðarinnar er fluttur „niður
á eyrarnar meðfram Norðurá”.
Nú hefur áin, sem fellur af Öxna-
dalsheiði til vesturs til Skagafjarð-
ar, heitið Heiðará svo lengi sem
menn muna og skjöl eru til um
nema hvað hún heitir Króká síðasta
spölinn frá því hún rennur um eyr-
arnar áður en hún fellur í Norðurá
uppsprettu sem er ódrekkandi, samt
komast þar að færri en vilja. Einn-
ig hefi ég skoðað heil'suhæli á Spáni
sem er yfír hundrað ára gamalt en
er vel sótt ennþá og margir hafa
sóst eftir að fá að kaupa það og
gera það nýtískulegara en það hef-
ur ekki verið til sölu.
Ég legg til að byijað yrði á að
byggja heilsuhæli við Bláa lónið og
auglýsa vel úti í löndum og ef vel
gengi mætti byggja í dalrium inn
af Hveragerði. Þar er nægur hiti
til að hita upp stóra borg og þar
er fegurð mikil og allt til alls. Það
eru til margir staðir á landinu sem
eru heppilegir fyrir heilsuhæli svo
sem Krísuvík, Akureyri, Sauðár-
krókur og Laugarvatn. Eins og
Rafn bendir réttilega á erum við
afar rík þjóð en mjög kröfuhörð
með alla lífshætti.
Þjóðin er vel menntuð og við
höfum mikla möguleika til þess að
vera framarlega á ýmsum sviðum.
En um margt er eins og ráðamenn
hugsi ekki um annað en ferðalög
og veisluhöld og margan annan
óþarfa og kynna sér oft ekki nægi-
lega vel það sem þeir eru að ráðsk-
ast með, samanber refa-, minnka-
og laxeldi svo fer allt í gjaldþrot.
Hugleiðið þetta vel með að gera
Island að heilsuparadís og eins
ræktunarmálin og þá mun okkur
vel farnast í framtíðinni og nægileg
atvinna yrði fyrir alla sem vilja
vinna. Missið ekki kjarkinn þó svona
færi með álverið, hugsið um hvað
við eigum mikið af auðæfum í iðrum
jarðar þar sem okkar góða vatn er
og óspillt ennþá. Tiltölulega óspillt
land enn og fegurra en flest önnur
og ríkir útlendingar munu koma
hingað með fulla vasa af gjaldeyri.
Paul V. Michelsen,
garðyrkjumaður.
skammt neðan við brúna, sem nú
er ekið yfir á þjóðvegi 1, en Norð-
urá fellur af Hörgárdalsheiði og
víðar af suðurenda Tröllaskaga. Við
þurfum að einbeita okkur að því
að kynna sjálfum okkur landið okk-
ar og forðast að örnefni ruglist og
brenglist.
Benedikt Gunnarsson
------M-t-----
Silfurhring-
ur með svört-
um steini
Stór þungur silfurhringur með
svörtum hálfmánalaga steini tapað-
ist í sumar. Annaðhvort á Aðalsól-
baðsstofunni Rauðarárstíg eða á
Laugaveginum. Þetta er eini hring-
ur sinnar tegundar sem til er hér.
Ef einhver hefur upplýsingar um
hringinn er hann vinsamlegast beð-
inn að hafa samband við Eddu í
síma 676018.
Að uppnefna landið
Spádómarnir rætast 1
5
] NOTUÐ s nF[
I HÚSGÖGN I
Við bjóðum upp á margskonar húsgögn
s.s. sófasett, borðstofusett, skrifborð, stóla,
barnarúm, hillur, skápa og margt fleira.
Seljum á góðum kjörum.
Kaupum gegn staðgreiðslu.
GA>!LA
KRONAN
BOLHOLTI 6
" .
BOLHOLTI 6, 105 REYKJAVÍK, SÍMI 679860
ER HÆÐ EÐA LÆGÐ
ÍLÍFIÞÍNU?
Nýtt „persónulegt veðurkort”
Nýja framtíðarkortið lýsirþróun
mála í sambandi við:
PERSðNULEIKA- 06 KEGflUNARMYNSTUR: þú gengur í gegnum 2]h
árs tímabil, en persónuleiki þinn og hegðun breytist frá einu
tímabili til annars.
ATHAFNIR 06 MARKMIB: Orka þín sveiflast frá einum mánuði til
annars. Kortið lýsir hverjum mánuði fyrir sig.
HEIMILI, TILFINNIN6AR 06 SAMSKIPTI: Kortið lýsir þenslu, sam-
drætti og breytingum í sambandi við tilfinningamálin.
HÝTT FRAMTtÐARKORT: Það fyrsta í heiminum, sem tekur bæði mið
af framvindu og persónulegri þróun (transits og progressions).
Bent er á athafnir til að forðast það neikvæða.
Yfirlit yfir hvert ár á einni síðu.
Gunnlaugur Guðmundsson,
atvinnumaður í stjörnuspeki i 10 ár.
STJÖRNUSPEKISTÖÐIN, KJÖRGARÐI,
LA UGA VEGI59, SÍMI10377.
STJÖRNUSPEKI: SJÁLFSÞEKKING OG UMBURÐARLYNDI