Morgunblaðið - 11.12.1991, Blaðsíða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 1991
Sigurlið Árbæjarskóla.
GRUNNSKOLAR
Arbæjarskóli sigraði í
„SKREKK ’91“
Hópur frá Árbæjarskóla sigr-
aðií„SKREKK ’91“, hæfí-
leikakeppni grunnskólanna sem
nýlega var haldin að undirlagi
nemendaráða skólanna og
íþrótta- og tómstundaráðs
Reykjavíkur. Árbæjarskóli flutti
sviðsverkið „Krossfesting“, en
^reiðholtsskóli varð annar, flutti
' söngstykkið „Útúrsýrðir". Haga-
skóli hafnaði í þriðja sæti mef)
verkið „Kennararapp". Sérstök
aukaverðlaun voru veitt fyrir
vönduðustu uppfærsluna og bestu
sviðsframkomuna og þau verð-
laun féllu í hlut Hvassaleytisskóla
sem flutti söngleikinn „Rokkaður
hryllingur".
Forkeppni að lokakeppni hefur
staðið yfir undanfarnar vikur og
fjöldi unglinga hefur reynt með
sér í hinum ýmsu og fjölbreytileg-
ustu uppákomum. Alls fór keppn-
in af stað með 13 skólum, en
hver hafði leyfi til að senda eitt
lið til keppni. Vettvangur loka-
keppninnar var Háskólabíó og var
það troðfullt er keppt var til
þrautar. En látum heldur mynd-
irnar tala.
Hvassaleytisskoli hreppti sérstök aukaverðlaun.
TÍSKA
Eggert sýnir pelsa
úr selskinni
Eggert feldskeri sýndi nýjustu
línuna í pelsum á Hótel ís-
landi fyrir skömmu. Tískusýningar-
fólk kom fram á sviðið í flíkunum
og fylgdist fjöldi manns með. At-
hygli vakti, að Eggert sýndi þó
nokkra pelsa sem unnir eru úr sels-
skinni. Voru það bæði stuttir, milli-
stuttir og síðir pelsar. Eggert sagði
í samtali við Morgunblaðið að þetta
væri í fyrsta sinn sem hann sýndi
selskinnspelsa hér á landi og væri
sýningin „liður í að ná upp íslensku
pelsasnobbi", eins og hann komst
að orði.
Morgunblaðið/Sverrir
Iklæddar selskinni í bak og fyrir, tóku sýningarstúlkurnar á móti
gestum með piparkökum og rauðvíni.
SIEMENS
Með SIEMENS heimilistœkjum verður lífið léttara!
Traustir umboðsmenn okkar eru víðs vegar um landið!
Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs, Skagabraut 6.
Borgarnes: Glitnir, Fálkakletti 13.
Borgarfjörður: Rafstofan Hvítárskála.
Hellissandur: Verslunin Blómsturvellir, Munaðarhóli 25.
Grundarfjörður: Guöni Hallgrímsson, Grundargötu 42.
Stykkishólmur: Skipavík, Hafnargötu 7.
Búðardalur: Versl. Einars Stefánssonar, Brekkuhvammi 12.
ísafjöröur: Póllinn hf., Aðalstræti 9.
Blönduós: Hjörleifur Júlíusson, Ennisbraut 1.
Sauðárkrókur: Rafsjá hf., Sæmundargötu 1.
Siglufjöröur: Torgið hf., Aðalgötu 32.
Akureyri: Sír hf., Reynishúsinu, Furuvöllum 1.
• Húsavík: öryggi sf., Garðarsbraut 18a.
• Þórshöfn: Norðurraf, Langholti 3.
• Neskaupstaöur: Rafalda hf., Hafnarbraut 24.
• Reyðarfjörður: Rafnet, Búðareyri 31.
• Egilsstaðir: Raftækjav. Sveins Guðmunds., Kaupvangi 1.
• Breiðdalsvík: Rafvöruv. Stefáns N. Stefánss., Asvegi 13.
• Höfn í Hornafiröi: Kristall, Hafnarbraut 43.
• Vestmannaeyjar: Tréverk hf., Flötum 18.
• Hvolsvöllur: Kaupfélag Rangæinga, Austurvegi 4.
• Selfoss: Árvirkinn hf., Eyrarvegi 29.
• Garður: Raftækjav. Sigurðar Ingvarssonar, Heiðartúni 2.
• Keflavík: Ljósboginn, Hafnargötu 25.