Morgunblaðið - 12.01.1992, Qupperneq 4
4 FRÉTTIR/YFIRLIT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. JANÚAR 1992
ERLEIMT
INNLENT
Veröld
gjaldþrota
Forsvarsmenn Ferðamiðstöðvar-
innar Veraldar hafa lýst fyrirtæk-
ið gjaldþrota. Daginn eftir rekstr-
arstöðvunina fluttu Flugleiðir 78
farþega til Kanaríeyja sem voru
með farseðla frá Veröld. 120 far-
þegar Veraldar voru á Kanaríeyjum
fyrir, en fólkinu hafði hvorki verið
tryggð heimferð né höfðu greiðslur
fyrir gistinguna borist hótelum
ytra. Eftir samninga var farþegun-
um tryggð gisting án viðbótar-
greiðslu og ákveðið að Flugleiðir
önnuðust heimflutning sem kostað-
ur yrði með rekstrartryggingu Ver-
aldar hjá samgönguráðuneytinu.
Vilja skerða loðnuheimildir
Norðmannaog
Grænlendinga
Útvegsmenn vilja skera niður veiði-
heimildir Norðmanna og Grænlend-
inga samkvæmt samningi um
skiptingu loðnustofnsins. Þorsteinn
Pálsson sjávarútvegsráðherra segir
að stjómvöld séu enn að leggja
málið niður fyrir sér.
77 millj. viðbótaskattar á FF
Ríkisskattstjóri hefur að lokinni
skoðun á vegum embættisins á
bókhaldi Frjáls Framtaks hf. frá
1985-1988 lagt um 77 millj. kr.
áætluð viðbótargjöld á fyrirtækið.
Magnús Hreggviðsson stjómar-
formaður þess segir að málið snú-
ist ekki um undanskot heldur sé
um ágreining að ræða. Hann segir
tölur í áætlun ríkisskattstjóra fjarri
því að vera niðurstaða í málinu og
kveðst ekki kvíða niðurstöðu ríkis-
skattanefndar.
Landsbanki ákveði hvort lána
á Rússum vegna síldar
Um það leyti sem Börkur NK
kom að landi með stærsta síidarf-
ERLENT
Forseti Ge-
orgíu hrak-
inn á flótta
Gamsakhúrdía
Zvíad Gamsak-
húrdía, forseti
Georgíu, gafst
upp fyrir upp-
reisnarmönn-
um og flýði í
skjóli nætur úr
þinghúsinu í
Tbílísí, höfuð-
borg landsins.
Þar hafði hann
varist með stuðningsmönnum sín-
um um tveggja vikna skeið. Hélt
hann fyrst til Azerbajdzhan en
síðan tii Armeníu. Uppreisnar-
menn hafa krafist þess, að Gams-
akhúrdía verði framseldur en
Armeníustjóm er ekki til viðtals
um það fyrr en að loknum fijáls-
um kosningum í Georgíu. Gams-
akhúrdía var lýðræðislega kjörinn
forseti en sjálfur beitti hann harla
ólýðræðislegum aðferðum, kom á
ritskoðun og fangelsaði andstæð-
inga sína.
Eftirlitsmenn EB felldir
Fimm eftirlitsmenn Evrópubanda-
lagsins biðu bana þegar orrustu-
þota júgóslavneska sambands-
hersins skaut niður þyrlu þeirra
yfir Króatíu á þriðjudag. Varð
önnur EB-þyrla einnig fyrir skot-
um en flugmönnum hennar tókst
þó að lenda heilu og höldnu. Ríkis-
stjórnir EB-ríkjanna mótmæltu
þessum atburði harðlega og kröfð-
ust tafarlausrar skýringar.
Stjómvöld í Serbíu viðurkenndu
ábyrgð sína á atburðinum og
kjölfarið sagði varnarmálaráð-
herrann, Veljko Kadijevic, af sér
embætti. Hafði það raunar staðið
til áður. Var óttast, að þetta atvik
arm íslandssögunnar, 1.100 tonn,
var greint frá að samið hefði verið
við Rússa um kaup á saltsíld fýrir
1.600 milljónir króna. Landsbank-
inn óskaði eftir áliti ríkisstjórnar-
innar á 800 millj. lánveitingu til
Rússa til að greiða fyrir viðskiptun-
um en ríkisstjórnin telur að bankinn
verðia að ákveða það sjálfur.
Akvörðun liggur ekki fyrir.
Samdráttur í mannahaldi
sjúkrahúsa
Uppsagnir, aðhald í mannaráðn-
ingum, niðurskurður yfirvinnu og
ásframhaldandi lokanir deilda em
framundan hjá sjúkrahúsunum
vegna niðurskurðar á útgjöldum til
þeirra á fjárlögum. Sjúkrahúsin
vinna nú að gerð tillagna til heil-
brigðisráðuneytis um það hvemig
mæta megi 5% flötum niðurskurði.
Heilbrigðisráðherra hefur hins veg-
ar til ráðstöfunar um 500 milljónir
á sérstökum fjárlagalið, sem nota
má til að milda niðurskurðar-
aðgerðir.
Óhugsandi að standa utan
GATT-samnings
Ríkisstjórnin telur -óhugsandi að
íslendingar kjósi að standa utan
heildarsamkomulags um GATT-
samninga ef slíkt samkomulag ná-
ist og innan þess gæti samræmis
milli þeirra sjónarmiða sem taka
þurfi tillit til. Lögð verður áhersla
á það af íslands hálfu að ná fram
þriðjungs lækkun tolla á sjávaraf-
urðum til samræmis við aðra vöm-
flokka og að sambærilegar tillögur
og fyrir liggja um lækkun ríkis-
styrkja til landbúnaðar nái einnig
til sjávarútvegs.
spillti friðarumleitunum í Júgó-
slavíu en hugsanlegt er, að það
verði beinlínis til að greiða fyrir
þeim.
Bush veiktist í Japan
GEORGE
Bush, forseti
Bandaríkj-
anna, veiktist
hastarlega í
kvöldvérðar-
boði hjá Kiichi
Miyazawa, for-
sætisráðherra
Japans, á mið-
vikudag og
varð að yfirgefa veisluna. Var um
að ræða heiftarlega magakveisu
og ofþreytu en veikindin vörpuðu
nokkrum skugga á Japansheim-
sóknina og hafa vakið upp vanga-
veltur um hvort Bush sé búinn
undir það álag, sem fylgir barátt-
unni fyrir forsetakosningamar
næsta haust. Tilgangurinn með
Japansheimsókninni var að semja
um greiðari aðgang bandarískrar
vöru að japanska markaðnum og
koma þannig á meira jafnvægi í
viðskiptum landanna.
Er samveldið að riðlast?
DEILUR Rússa og Úkraínu-
manna um yfirráð yfir Svarta-
hafsflotanum magnast stöðugt og
eru jafnvel taldar geta splundrað
hinu nýstofnaða samveldi sjálf-
stæðra ríkja. Borís Jeltsín, forseti
Rússlands, hefur ftrekað, að flot-
inn sé og verði rússneskur en
Úkraínumenn vilja slá eign sinni
á hann allan, um 300 skip. Flagg-
skipinu, flugmóðurskipinu Kúz-
netsov, hafa Rússar þó komið
undan til Múrmansk. Samkvæmt
samkomulagi samveldisríkjanna
verður „strategískur“ herafli und-
ir sameiginlegri stjóm og vilja
Rússar fella flotann undir þá skil-
greiningu en Úkraínumenn ekki.
British Medical Journal;
Líkur á að hvítlaukur dragi
úr hjarta- og æðasjúkdómum
Andremman óleyst vandamál
MARGT bendir til að neysla hvítlauks dragi úr hættunni á hjarta-
og æðasjúkdómum en frekari rannsókna er þörf til að ganga fylli-
lega úr skugga um að svo sé. Engar leiðir eru þekktar til að draga
úr andremmu neytenda án þess að minnka um leið virkni hvítlauks-
ins. Kemur þetta fram í nýlegri grein í British Medical Journal.
Helsta virka efnið í hvítlauk er
allicin, efnasamband sem inniheldur
brennistein. Þegar það leysist upp
myndast hin einkennandi hvítlauks-
lykt. Með hjálp hvata verður allicin
til úr alliin sem er lyktarlaust og
er fyrir hendi í hvítlauknum áður
en hann er rifinn í sundur. Hvítlauk-
ur hefur jákvæð áhrif á blóðstorkn-
un, blóðflögusamsöfnun (sem er
þáttur í blóðstorknun), útvíkkun
æða og styrk blóðvatnslípíðs. Einn-
ig hefur komið fram minnkun fíbrí-
nógens (hvítuefni í blóði sem við
blóðstorknun breytist í fíbrín) og
aukin virkni ensíma sem leysa upp
fíbrín. Hvítlaukur dregur úr mynd-
un blóðtappa í stífluðum kransæð-
um hunda og tilbúið allicin hefur á
tilraunastofum komið í veg fyrir
blóðflögusamsöfnun. Hvítlaukur
víkkar æða í húð og æðar í slímhúð
augans. Hvítlaukur dregur einnig
úr blóðvökvaseigju og blóðþrýst-
ingi. Styrkur þríglýseríðs minnkar
og ákveðinna tegunda kólesteróls.
Nýlegar rannsóknir bentu til að
þótt mikið magn af ferskum hvít-
lauk (7-28 rif á dag) drægi úr
hættu á hjarta- og æðasjúkdómum
þá væri erfiðara að draga slíkar
ályktanir af rannsóknum á notkun
tilbúinna hvítlauksefna.
Ein af ástæðunum fyrir því að
erfitt getur reynst að sýna fram á
gagnsemi hvítlauks er að virk efni
geta farið forgörðum í vinnslu hans.
Rif sem skorin eru og þurrkuð af
vandvirkni halda gildi sínu en unn-
inn hvítlaukskjami eða olíur geta
haft minna gildi. Þar að auki getur
verið tífaldur munur á alliin-inni-
haldi hvítlaukssýnishorna.
Eftirvarandi voru niðurstöður
nýlegrar þýskrar rannsóknar á 261
sjúklingi með of mikla fitu í blóði:
Hjá þeim sem tóku 800 mg af hvít-
lauksdufti á dag (Kwai sem inni-
heldur 1,3% af allicin) féll magn
kólesteróls úr 6,87 í 6,07 mmol/1
og af þríglýseríðum úr 2,25 í 2,12
mmmol/1.
Önnur rannsókn þar sem sjúkl-
ingar tóku svipað magn af hvítlauk
í þijá mánuði leiddi í ljós að blóð-
þrýstingur féll úr 171/102 í 152/89
hjá sjúklingum með of háan blóð-
þrýsting.
Helsti hængurinn á því að nota
hvítlauk til lækninga er andremma
neytenda. Til eru lyktarlausar hvít-
laukstöflur en þá er annaðhvort um
það að ræða að engin virk efni eru
í töflunum eða þá að lyktin kemur
ekki fram fyrr en eftir neyslu þeirra.
Ekki er vitað um efni sem draga
að gagni úr andremmunni. Aðrar
aukaverkanir eru hins vegar óveru-
legar.
Simon syngur í Suður-Afríku
Nelson Mandela, leiðtogi Afríska þjóðarráðsins (ANC), og bandaríski
söngvarinn Paul Simon takast í hendur fyrir fyrstu tónleika Simons
af fimm í Suður-Afríku á föstudagskvöld. Tónleikarnir voru haldnir
í Jóhannesarborg og nokkrar blökkumannahreyfíngar, sem voru
andvíg því að banni við menningarsamskiptum við Suður-Afríkumenn
var aflétt, sögðust ætla að reyna að koma í veg fyrir að fólk kæmist
á tónleikana.
EB-ríki óttast stórveld-
istilburði þýska risans
Nú er rúmt ár liðið frá því 80 milljónir Þjóðverja sameinuðust í
eitt ríki og embættismenn í ýmsum aðildarríkjum Evrópubanda-
lagsins hafa að undanförnu greint merki þess að þýsk stjórnvöld
séu að færa sig upp á skaftið og skirrist ekki lengur við að tryggja
eigin hagsmuni eftir að hafa haldið aftur af sér í áratugi.
Hrun Sovétríkjanna og efna- að því vísu að Þjóðveijar færi
hagsvandinn í Bandaríkjunum
hafa orðið til þess að Þjóðveijar
hafa losnað við þá pólitísku fjötra,
sem kalda stríðið og eigin sektar-
kennd vegna
nasismans ■■^■■■■1
hnepptu þá í eftir
síðari heims-
styijöldina.
Staða þeirra er
einnig sterk
vegna þess að nágrannaríkin í
Vestur- og Austur-Evrópu eru svo
háð öflugu fjármálagangvirki
þeirra að lífskjör íbúanna ráðast
að miklu leyti af ákvörðunum
þýsku stjórnarinnar í efnahags-
málum.
Hingað til hefur verið litið svo
á að forsenda þess að pólitískur
og efnahagslegur samruni Evr-
ópubandalagsins geti orðið að
veruleika sé að Þjóðveijar haldi
áfram að sýna fómfýsi. Flestir
af leiðtogum bandalagsins gátu
til að mynda hrósað sigri eftir
fund þeirra í Maastricht í desemb-
er vegna tilslakana af hálfu Þjóð-
veija. Margir telja að síðan hafi
ýmislegt gerst sem bendi til að
EB-ríkin geti ekki lengur gengið
BflKSVlÐ
eftir Boga Arason
fórnir og hafi hægt um sig. Til
marks um þetta sé sú ákvörðun
þýsku stjómarinnar að viður-
kenna upp á eigin spýtur sjálf-
stæði Króatíu og
■■■^■1 Slóveníu þótt
EB-ríkin hafi
náð samkom-
ulagi um að
móta sameigin-
lega stefnu í
utanríkismálum. A sama tíma
ákvað þýski seðlabankinn að
hækka vexti sína og þeir hafa
aldrei verið jafn háir í 60 ár. Þar
sem gjalmiðlar flestra annarra
EB-ríkja eru tengdir markinu í
evrópska myntkerfinu neyddust
þau til að fara að dæmi bankans
og hækka eigin vexti þótt þau
hefðu stefnt að því að lækka þá
til að stuðla að auknum hagvexti
og stemma stigu við atvinnuleysi.
Helmut Kohl kanslari og Hans-
Dietrich Genscher utanríkisráð-
herra hafa beitt sér mjög fyrir
samruna Evrópuríkja en margir
Þjóðveijar telja að þýska stjórnin
hafi fórnað of miklu til að greiða
fyrir þeirri þróun. Franskir emb-
ættismenn hafa látið í ljós áhyggj-
ur af því að þýsk stjórnvöld séu
nú að komast á þá skoðun að þau
geti ekki fómað meiru og verði
að einbeita sér að því að tryggja
eigin hagsmuni.
John Major, forsætisráðherra
Bretlands, hrósaði sigri eftir
Maastricht-fundinn þar sem hann
fékk því framgengt að Bretum
væri í sjálfsvald sett hvort þeir
tækju upp sameiginlegan gjaldm-
iðil Evrópubandalagsins eða fé-
lagsmálalöggjöf þess. Embættis-
menn bandalagsins hafa sagt að
þessi niðurstaða skapi hættulegt
fordæmi sem geti auðveldað
áhrifamiklu ríki eins og Þýska-
landi að knýja fram eigin stefnu.
Aðildarríki Evrópubandalags-
ins keppast nú við að búa sig sem
best undir aukna samkeppni er
innri markaður þess verður að
veruleika um næstu áramót, með-
al annars með sameiningu ríkis-
fyrirtækja. Margir segja að þótt
stjórnvöld í stærstu aðildarríkjun-
um séu í orði kveðnu hlynnt samr-
una Evrópuríkja einkennist verk
þeirra æ meira af þjóðerniskennd
og hagsmunagæslu. Þeir óttast
að þessi tilhneiging eigi eftir að
ágerast þar sem útlit er fyrir
áframhaldandi efnahagslægð í
heiminum.
Heimild: International Her-
ald Tribune.