Morgunblaðið - 12.01.1992, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM "SUNNITDAGUR 12. JANÚAR 1992
Þeir félagarnir, Torfi Karl og Hallgrímur.
VEITINGAR
Matsala í Skólabrúnni
*
Anæstu dögum bætist enn í
matsöluflóru miðborgar
Reykjavíkur, er þrír bjartsýnir
náungar opna „Skólabrúnna" í
■ Pósthússtræti 17. Eigendur eru
Bjarni Marteinsson arkítekt og
eiginkona hans Guðborg Kristj-
ánsdóttir, en þessir þrír sem um
er rætt, leigja reksturinn. Þeir
heita Karl Jensson þjónn, Torfi
Axelsson matreiðslumeistari og
Hallgrímur Ólafsson viðskipta-' og
rekstrarráðgjafi. Matreiðslu-
meistari staðarins verður Skúli
Hansen auk Torfa.
„Það er búið að leggja út í
miklar breytingar á húsnæðinu,
enda voru hér til húsa tannlækna-
stofur og fleira. Þrátt fyrir það
er reynt að halda sem mestu í
sinni upprunalegu mynd. Innrétt-
ingarnar hannað eigandi staðarins
sjálfur, Bjarni Marteinsson,“
sagði Torfi Axelsson í samtali við
Morgunblaðið.
Torfí sagði enn fremur, að
stefnt væri að því að um „fínan“
stað yrði að ræða þótt reynt yrði
að stilla verði öllu í hóf. „Við verð-
um bæði með fisk og kjöt og reyn-
um að gera því jafn hátt undir
höfði. Þó má segja að við munum
gefa sauðkindinni gott svigrúm,
enda er hún mjög skemmtilegt
hráefni. Við verðum til að mynda
með að minnsta kosti tvo rétti sem
ég held að hafi aldrei fyrr verið
boðnir á veitingahúsi hérlendis.
Lambatungur í aðalrétt og hjörtu
og nýru í forrétt,“ sagði Torfi.
Skólabrú er „í minni kantinum“
eins og Torfi sagði, hvor hæð
veitingastaðarins er um 150 fer-
metrar. Aðalborðsalur er niðri og
þar komast um 50 manns í sæti.
Uppi í risinu verður setustofa sem
gestir geta nýtt sér til fordrykkja
og eftirrétta.
LAX
Ekki minni eftirspurn
en við áttum von á
Um þessar mundir situr stór hóp-
ur áhugamanna um stanga-
veiði og úthiutar á þríðja þúsund
félagsmönnum Stangaveiðifélags
Reykjavíkur veiðileyfum fyrir kom-
andi vertíð. Úthlutunin er í höndum
stjórnar félagsins og þeirra einstakl-
inga sem skipa árnefndir auk nok-
kurra sérstakra áhugamanna. Þetta
er vanþakkað starf, því ævinlega eru
einhvetjir sem ekki fá þá úthlutun
sem þeir kjósa sér. Farið er eftir
vægi umsókna og „starfsaldri" innan
SVFR þegar úthlutað er á umsetna
tíma á vinsælum svæðum og þegar
menn fá ekki það sem þeir biðja um
fer sá kvittur venjulega á kreik að
stjórnin skammti fyrst sér og sínum
gæðingum, síðan megi hinir óbreyttu
hirða refjarnar. Þetta mun þó vera
víðs fjarri sannleikanum og stórátak
var gert í fyrra til að draga úr slíkri
tortryggni er einn stjórnarmanna,
Guðlaugur Bergmann stóð fyrir þeim
vinnubrögðum að úthlutarar hringdu
í menn út um allar jarðir til að ræða
við þá vandamál úthlutunarinnar.
Stóijók það mikið álag á umrædda
kappa, en minna fór fyrir kvörtunum
og illum tungum. Morgunblaðið sló
á þráðinn á skrifstofu SVFR og hitti
þar á Friðrik Þ. Stefánsson vara-
formann félagsins.
„Það er nú kannski svolítið
snemmt að átta sig á ástandinu til
fullnustu, við erum enn að ljósrita
og raða niður og skipuleggja töm-
ina, en mér sýnist þó í fljótu bragði
að ekki sé minna sótt um nú en við
vonuðumst til. Sum svæðin eru
reyndar greinilega yfirfull, en önnur
er þyngra að selja í eins og venju-
lega. Af yfírfullum svæðum má nefna
Brynjudalsá, Elliðaárnar, Stóru
Laxá, Munaðarnesið, Alviðru, Syðri
Brú, Laxá í Leirársveit og Tungu-
fljót,“ sagði Friðrik. En stoltíð ykk-
ar, Norðuráin? „Það er svipað sótt
um hana og í fyrra, en útlendinga-
tíminn í henni er samt svolítið í lausu
lofti. Menn hafa verið að horfa til
Rússlands, en' við höfum verið að
kynna okkar Norðurárpakka og við
erum mun ódýrari heldur en margar
af hinum þekktari Iaxveiðiánum hér
Formaður og varaformaður
SVFR, Jón G. Baldvinsson t.v.
og Friðrik Þ. Stefánsson t.h.
virða fyrir sér fyrsta lax siðasta
sumars úr Norðurá.
á landi, eins og til dæmis Þverá og
Víðidalsá. Við erum því hóflega
bjartsýnir og svo hefur alltaf selst
nokkuð af dýra tímanum í Norðurá
á innlendum markaði. Við erum ekki
ósáttir við þetta,“ sagði Friðrik.
En miðað við almennt krepputal,
má ekki búast við því að stór hluti
af umsóknunum verði aldrei leystur
út? „Það verður að koma í ljós. Við
kvörtum ekki núna og erum hæfilega
bjartsýnir. Það má svo sem vel vera
að það verði annað hljóð í strokknum
í vor. Lukkan hefur þó verið með
okkur á ýmsan hátt í vetur, t.d. er
bændur við Víðidalsá vildu ekki
semja við okkur vegna þess að við
höfum komið því orði á okkur síð-
ustu árin að leitast við að lækka
verð veiðileyfa. Þó vorum við með
hæsta tilboðið í ána. Þar stýrði lukk-
an okkur og við ætlum ekki að sleppa
af henni hendinni alveg strax,“ sagði
Friðrik Þ. Stefánsson að lokum.
Hér er stærsta tækifærið
til að vinna í stórhappdrætti
UMBOÐSMENN SÍBS í REYKJAVÍK OG NÁGRENNI:
AÐALUMBOÐ
Suöurgötu 10, sími 23130
VERSLUNIN GRETTISGÖTU 26
simi 13665
BÓKABÚÐIN HVERAFOLD 1-3,
Grafarvogi, sími 67775^
SJÓBÚÐIN
Grandagarði 7, sími 16814
HAPPAHÚSIÐ
Kringlunni, sími 689780
BENSÍNSALA HREYFILS
Fellsmúla 24, sími 685632
BÓKABÚÐIN HUGBORG
Grímsbæ, sími 686145
BÓKABÚÐ ÁRBÆJAR
Hraunbæ 102, sími 813355
VERSLUNIN STRAUMNES
Vesturbergi 76, sími 72800
Við drögum á þriðjudaginn
SIBS-DEILDIN, REYKJALUNDI
SÍmi 666200
BÓKABÚÐIN ÁSFELL
Háholti 14, Mosfellsbæ,
sími 666620
BÓKABÚÐ OLIVERS STEINS
Hafnarfiröi, Vilborg Sigurjónsdóttir, sími 50045
BÓKABÚÐIN GRÍMA
Garöatorgi 3, Garöabæ,
sími 656020
SÍBS-DEILDIN, VÍFILSSTÖÐUM
sími 602800
BORGARBÚÐIN
Hófgerði 30, Kópavogi, sími 42630
VÍDEÓMARKAÐURINN
Hamraborg 20A, Kópavogi, sími 46777
SPARISJOÐUR KÓPAVOGS
Engihjalla 8, sími 44155
MIÐINN KOSTAR
AÐEINS 500 KR.
- MEÐ MESTU
VINNINGSLÍKURNAR