Morgunblaðið - 12.01.1992, Side 12

Morgunblaðið - 12.01.1992, Side 12
12 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. JANÚAR 1992 KVIKMYNDIN &]?<«■ T • jY'YíY' .. HVER HVKIl rvrvEDY Rúmlega aldarfjóróungur er nú liðinn frá morðinu á John F. Kennedy, Bandaríkjaforseta. Ymsar getgátur hafa verið uppi um hver eða hverjir stóðu að morðinu, en hin opinbera niðurstaða er sú að Lee FJarvey Oswald hafi myrt Kennedy. Kvikmyndaleikstjórinn Oliver Stone ræðst harkalega að þeirri kenningu í mynd sinni JFK“, og hefur myndin vakið mikið umtal og deilurí Bandaríkjunum. yndin, sem kostaði um 40 milljónir dollara í fram- leiðslu, er byggð á bók Jim Garrisons, „On The Trail of the Assassains“, en Garrison, sem leikinn er af Ke- vin Costner, var ríkissaksóknari í New Orleans þegar Kennedy var myrtur. Fleiri þekktir leikarar eru í myndinni, þar á meðal Donald Sut- herland, Joe Pesci, Kevin Bacon, John Candy, Jack Lemm- on, Walter Matthe- au og Ed Asner. Hin raunverulegi Jim Garrison leikur Earl Warren, hæstarétt- ardómara, og Sissy Spacek leikur konu Jim Garrisons. Oliver Stone álít- ur að ákvarðanir Kennedys í friðarátt - að hætta við aðra innrás á Kúbu, eftir Svínaflóaárás- ina 1962, að kalla heim alla her- menn frá Víetnam og að banna prófanir á kjamorkuvopnum - hafi valdið skelfingu hjá harðlínumönn- um innan ríkisstjómarinnar og hersinsí sem og hjá vopnaframleið- endum sem sáu fram á milljarða tekjutap. „Líttu á hver hagnaðist á morðinu," sagði leyniþjónustu- maðurinn „X“, leikinn af Donald Sutherland, við Jim Garrison. Ekki aðeins þessir aðilar, heldur einnig Lyndon B. Johnson sem í myndinni er sýndur sem skósveinn þeirra. í huga Garrisons nær samsærið enn lengra; hann telur morðin á JFK, Robert Kennedy og Martin Luther King öll tengd. Rannsókn Jim Garrisons og að- stoðarmanna hans á morðinu er rakin í myndinni, sem er rúmlega þriggja klukkustunda löng og svo yfirfull af upplýsingum og vitnisburðum að áhorfendur eiga fullt í fangi með að fylgjast með at- burðarásinni. Það er aldrei dauður punktur í myndinni og flestir áhorfend- ur era bókstaflega agndofa að sýn- ingu lokinni; a.m.k. hrifust sýning- argestir í San Diego svo að þeir stóðu upp og klöppuðu í lok mynd- arinnar, nokkuð sem ekki gerist oft í bandarískum kvikmyndahús- um. Myndin, sem var frumsýnd 20. desember sl., hefur vakið mikið umtal og fengið mikla gagnrýni. Að venju hafa stóra bandarísku fjölmiðlamir risið upp á afturlapp- irnar og gelt hástöfum að Stone fyrir að láta sér detta þessa sam- særiskenningu í hug. Þrátt fyrir hneyksli og spiilingu á hæstu stöð- um eins og „Watergate“ og „Iran- gate“, sem ekki er enn séð fyrir endann á, og þá staðreynd að sam- kvæmt skoðanakönnunum trúa fæstir Bandaríkjamenn að Oswald hafi verið einn að verki - virðast bandarískir fjölmiðlar enn halda að stjórnvöld, CIA og FBI samanstandi af hvítþvegnum kórdrengjum, ef marka má viðbrögð þeirra við myndinni. Stone hefur verið í við- tölum á flestum stóru sjónvarps- stöðvunum og blaðagreinum um myndina hefur rignt yfir bandaríska lesendur, bæði í dagblöðum og tímaritum. Time-tímaritið varði fimm síðum í að gagnrýna myndina og kemst að þeirri niðurstöðu að þær stað- reyndir, sem settar eru fram í myndinni, séu rakalausar og styður mál sitt m.a. með samanburði á „Myndinni" og „Sönnunargögnun- um“. „Sönnunargögn" Time, þau sem Warren-nefndin notaði, eru reynd- ar ekki mikið trúverðugri en tíma- ritið álítur myndina vera. Garrison og Stone segja að sex skotum hafi verið skotið af þremur skotliðum; einu í bókageymslu Texas-skólans (Texas School Book Depository), öðru bak við runna og því þriðja í færi við framhlið forsetabílsins. Time hrekur þetta með þvi að benda á að flest vitnanna greindu frá aðeins þremur skotum. Onnur sögðu að þau hefðu heyrt fjögul- skot. Tímaritið segir að þingnefnd hafi árið 1979 rannsakað hljóðupp- töku þar sem heyra mátti ijögur skot en bendir á að síðari rannsókn hafi hrakið þetta. Time skýrir ekki hvaða munur er á vitnisburði flestra og annarra vitna og hefur ekki fyrir því að tilgreina hvaða síðari rannsókn vitnað er í. Time viðurkennir að „Magic Bullet“-kenningin sé veikasti punktur málatilbúnaðar Warren- nefndarinnar, enda er hún harðlega gagnrýnd í myndinni. Kúlan á að hafa farið í ofanvert bakið á Kennedy, komið út um hálsinn að framanverðu, tekið syo krappa hægribeygju, skellt sér í gegnum sætið fyrir l'raman forsetann, inn Kevin Costner eftir Írisi Erlingsdóttur MYRTI Lee Harvey Osw- ald forsetann eða var Kennedy fórnarlamb skuggalegs samsæris? Kvikmyndaleikstjórinn Oliver Stone heldur því fram í mynd sinni „ JFK“ að Oswald hafi verið hafð- ur sem blóraböggull í þessu máli og að það hafi verið óframkvæmanlegt fyrir hann að fremja verknaðinn einn síns liðs. í myndinni hvetur Stone áhorfendur til að velta því fyrir sér hvort CIA, FBI, bandarísk hernaðaryfirvöld, eða jafn- vel Lyndon B. Johnson, hafi lagt á ráðin um að myrða forsetann, - hvort þar hafi í raun átt sér stað hallarbylting, „coup d’ét- at“. Bíll Kennedy forseta er annar frá vinstri

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.