Morgunblaðið - 12.01.1992, Blaðsíða 20
20 C
MORGUNBLAÐIÐ MENNINGARSTRAUMAR
Önnur
Lynch-
mynd á
árinu
Rætt við Sigurjón
Sighvatsson
kvikmyndafram-
leiðanda
Stefnan er að gera dýrari
myndir sem kosta á bil-
inu frá átta til níu milljónir
dollara og upp í 20 milljónir.
Það er ekki lengur markaður
fyrir ódýrari myndir og þá
færðu líka betra tæknilið og
þekktari leikara, sem hafa
skapað sér nafn,“ sagði
Siguijón Sighvatsson kvik-
myndaframleiðandi í Holly-
wood í samtali við Morgun-
blaðið.
Hann var hér á landi yfir
hátíðamar og var m.a. við-
staddur frumsýningu á Bar-
ton Fink í Laugarásbíói en
Manifesto, fyrirtæki að hluta
í eigu Propaganda Films,
átti þátt í fjármögnun mynd-
arinnar. Á sama hátt setti
Manifesto pening í nýjustu
mynd spænska leikstjórans
Petro Almodóvars, Háir hæl-
ar, og hefur dreyfmgarrétt-
inn á henni. Hún verður að
líkindum frumsýnd í Há-
skólabíói í mars að sögn
Siguijóns.
Propaganda Films er nú
IBIO
Það er oft kvartað undan
einhæfu kvikmyndaúrv-
ali hér þar sem tæp 90
prósent bíómynda eru
afþreyingarefni frá
Hollywood og fyrir
aldurshópinn 15 tii 25
ára. En það eru alltaf
nokkrar myndir í gangi
sem höfða til annars
hóps sem vill sjá öðru-
vísi myndir gerðar af
iistrænum metnaði. Þær
finnast í minni sölunum.
Sambíóin sýndu um
nokkurra vikna skeið
nýjustu mynd Bernardo
Bertolucci,„The Shelter-
ing Sky“, stórfenglega í
útliti frá ítölskum meist-
ara. í Háskólabíói er
Tvöfalt líf Veróniku og
líka Af fingrum fram
eftir James Lapine,
skopleg mynd með góð-
um leikarahópi sem seg-
ir frá samdrætti rithöf-
undarins George Sand,
sem Judy Davis leikur,
og tónskáldsins Chopin.
Og enn má minna á
nokkrar af kvik-
myndahátíðarmyndun-
um sem til sýnis eru í
Regnboganum. Þær eru
Homo Faber eftir Volker
Schlöndorff, Ó, Carmela
eftir Carlos Saura og
Launráð eftir Ken Loach
en Ken hreppti Felixinn
fyrir bestu mynd Evrópu
á síðasta ári, Riff Raff.
Einnig er í Regnbogan-
um franska myndin
Heiður föður míns.
SUNNUDAGUR 12. JANÚAR 1992
Sigurjón Sighvatsson; dýrari myndir.
með fjórar bíómyndir í fram-
leiðslu á mismunandi vinnsl-
ustigi. Ein heitir„Ruby“ og
er um Jack Ruby, morðingja
Lee Harvey Oswalds, og
fjallar um svipað efni og
„JFK“ eftir Oliver Stone en
tengir morðið á John F.
Kennedy við mafíuna. Danny
Aiello leikur Ruby. Leikstjóri
er John Mackenzie sem áður
gerði þrillerinn „The Long
Good Friday“. Myndin kostar
tæpar 700 milljónir íslenskra
króna.
Þá er það nýjasta mynd
Sidney Lumets og dýrasta
mynd Propaganda til þessa.
Hún heitir „Close to Eden“
og fer Melanie Griffíth með
aðalhlutverkið í henni.
Myndin er um löggu sem
dulbýr sig og fer huldu höfði
í afar lokuðu gyðingasamfé-
lagi í New York. „Eden“
kostar rúman 1,1 milljarð.
„Lumet er maður sem vinnur
ótrúlega skipulega," segir
Siguijón, „enda búinn að
vera lengi í faginu, hefur
gert uppundir fimmtíu
myndir."
Næstan skal nefna þril-
lerinn „Redrock West“ eftir
sama leikstjóra og gerði aðra
Propaganda mynd, „Kill Me
Again". Hann heitir John
Dahl en með aðalhlutverkin
fara Dennis Hopper og Nic-
olas Cage. Tökur standa nú
yfír á myndinni sem, eins og
„Kill“, er í fílm noir stílnum.
Og loks er það „Candy-
man“ sem gerð er eftir einni
af smásögum hrollvekjuhöf-
undarins Clive Barkers.
Leikstjóri er Bernard Rose,
sem áður gerði „Chicago Joe
and the Showgirl" en Virgin-
ia Madsen fer með aðalhlut-
verkið.
Á þessu ári mun Propag-
anda Films taka þátt í ann-
arri David Lynch-mynd að
sögn Siguijóns en ekki er
vitað fyrir víst hvaða verk-
efni leikstjórinn tekur fyrir
og einnig er á teikniborðinu
hjá Propaganda mynd eftir
leikstjórann John Schlesin-
ger. Ýmislegt annað nefndi
Siguijón, m.a. „Prizzi’s
Family", n.k. formynd sem
gerist áður en atburðirnir í
myndinni „Prizzi’s Honor“
gerast. Það má vera að Lu-
met leikstýri með Nieolas
Cage í aðalhluverki. Einnig
er möguleiki á að Propag-
anda Films taki þátt í fjár-
mögnun tveggja næstu
mynda Joels og Ethans Co-
ens, sem gerðu Barton Fink.
Ekki er þó útséð með það.
Siguijón sagðist vona að
fyrirtæki hans yrði með ein-
hveija mynd á kvikmynda-
hátíðinni í Cannes í maí.
„Við stefnum alltaf á
Cannes,“ segir hann. „Evr-
ópudreifíngin er okkur afar
mikilvæg."
25.000 á Flugása
Alls hafa nú um 25.000
manns séð banda-
rísku gamanmyndina Flug-
ása sem sýnd ej í Sambíó-
unum að sögn Árna Samú-
elssonar bíóeiganda.
Mynd Ridley Scotts,
Thelma og Louise með
þeim Susan Sarandon og
Gena Davis, hafa um
12.000 manns séð, 10.000
manns hafa séð Harley
Davidson og Marlboro-
manninn og Hollywood-
lækninn með Michael J.
Fox og um átta þúsund
manns hafa séð gaman-
myndina „Dutch“.
Næstu myndir Sambíó-
anna eru gangstermyndin
Billy Bathgate með Dustin
Hoffman, gamanmyndin
„Switch“ eftir Blake Edw-
ards, þrillerinn „Decived"
með Goldie Hawn, hryll-
ingsmyndin „Omen IV“ úr
frægri seríu, þrillerinn
„Timebomb" með Michael
Góð aðsókn; Golino og Sheen í Flugásum.
Biehn og glæpamyndin um
einkaspæjarann Warshaw-
sky með Kathleen Turner.
Næstu myndir í hinn
svokallaða Gullmola bíó-
anna, þar sem sýndar eru
listrænni myndir, verða
„Mr. Johnson“ eftir Bruce
Beresford og „Meeting
Venus“ eftir Istvan Szabo
með Glenn Close í aðalhlut-
verki.
13. Skjaldbökurnar2
22
14-15. Á mörkum lífs og dauða*
14-15. Uns sekt er sönnuð
16. Nikíta
17-20. Doors
17-20. Flugásar
17-20. Leikaralöggan
17-20. Þrumugnýr
21.Unginjósnarinn
22. Hvað með Bob?
23. Fuglastriðið
24. The Commitments
25-29. Á síðasta snúning
25-29. Hættuleg tegund
25-29. Leikskólaióggan
25-29. Saga úrstórborg
25-29. Hudson Hawk
7. Sofið hjá óvininum 32 þúsund
8. Tortímandinn 2 30 þúsund
9. Börn náttúrunnar 26 þúsun
10. Eymd 25 þúsund w}
H.Tryllt ást* 24 þúsund cit
12. Skjaldbökurnar * 23,8 þúsund
1-2. Aleinn heima
53 þúsund
1-2. Dansarvið úlfa
53 þúsund
3. Beint á ská 21/2
51,2 þúsund
4. Lömbin þagna
5. Hrói höttun Prins þjófanna
40 þúsund
6. Þrir menn og litil dama
32,5 þúsund
50,9 þúsund
19
19
8,5
18
18
18
18
7
16
15,7
15,5
15
15
15
15
15
llUllllIiiniimiKnnuin
xn
* Jólamynd 1990, sýnd fram eftir árinu.
kvikmyndia™
Aleinn dansar viðúlfa
Dnn/ln»ti£>|rn ornmnnmimdin A 1 nmn Iimmn nfGn Tnlin Unmlinn
Dansar við toppinn; Costner í Döns-
um við úlfa.
Bandaríska gamanmyndin Aleinn heima eftir John Hughes
og Chris Columbus og Dansar við úlfa, um þriggja stunda
langur vestri með Kevin Costner og í leikstjórn hans, tróna
efst á lista yfír mest sóttu myndir síðasta árs en báðar fengu
þær 53.000 manns í aðsókn samkvæmt upplýsingum frá
bíóunum í Reykjavík.
Vei; metsölustrákurinn
Macaulay Culkin.
Samkeppnin var hörð á
tíðum en bamastjarn-
an Macaulay Culkin í Al-
einn heima fékk strax mjög
góða aðsókn og skaut stór-
■■■■■■■■■■■■■ stjömum
á borð við
Amold
Schwarz-
enegger
og Bruce
Willis
rækilega
ref fyrir
rass. Það
eftir
Arnold
Indriðoson
sama gerði Costner í marg-
faldri óskarsverðlauna-
mynd sem fáir töldu að
gerði neitt í miðasölu. Hún
afsannaði það rækilega.
Hvomgri þessara met-
sölumynda hafði reyndar
verið spáð neinni aðsókn
þegar þær vom frumsýnd-
ar vestra en Aleinn heima
reyndist vinsælasta gam-
anmynd sem gerð hefur
verið og hefur tekið inn
tæpa 30 miiljarða ísl. króna
í heimsdreifíngu. Gaman-
myndin Beint á ská 2'/2
og þrillerinn Lömbin þagna
vom hinsvegar metsöluefni
frá upphafi og Hrói höttur
einnig, sem fékk 40.000
manns í aðsókn. Athygli
vekur að metsölumynd árs-
ins í Bandaríkjunum, Tor-
tímandinn 2 með Amold
Schwarzenegger, er aðeins
í áttunda sæti. Arnold virð-
ist eiga fastan aðdáenda-
hóp hér heima, sem er í
kringum 20 til 30 þúsund
manns. 24.000 manns sáu
síðustu hasarmynd hans,
Fullkominn hug, árið 1990.
Fleiri myndir fóm yfir
50.000 manns í aðsókn í
ár en í fyrra þegar aðeins
ein mynd, Stórkostleg
stúlka með Julia Roberts,
náði því marki. Á síðasta
ári fóra fjórar myndir yfír
50.000 manna markið.
Listinn er byggður á mynd-
um sem fóru yfír 15.000
manns í aðsókn og
voru þær ná-
kvæmlega jafn-
margar í fyrra og
árið 1990 eða 29.
Listinn nær yfir
þær myndir sem
sýndar vora í kvik
myndahúsum
Reykjavík á síðasta ári
og þær myndir sem byij-
uðu í lok þar síðasta árs
en vora sýndar fram eftir
árinu 1991. Þær myndir
eru merktar sérstaklega.
Upplýsingar um aðsókn
era fengnar frá hveiju
kvikmyndahúsi fyrir sig.