Morgunblaðið - 12.01.1992, Side 29

Morgunblaðið - 12.01.1992, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ VELVAKANDI V* í A Í < ‘ S» ‘ SUNNUDAGUR 12. JANUAR 1992 0 55 Þakkir Það er gömul hefð hér á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund að kveðja þrettándann með veglegri samkomu fyrir heimilisfólkið og er þá ýmislegt sér til gamans gert. Síð- astliðinn þrettándi var hér engin undantekning nema hvað einn af okkar bestu söngvurum, Gunnar Guðbjörnsson óperusöngvari, sem um þessar mundir syngur við Óper- una í Wisbaten í Þýskalandi, kom og söng fyrir okkur. Píanóundirleik annaðist hinn landsþekkti píanóleik- ari Jónas Ingimundarson. Astæðan til þess að Gunnar kom sem sjálfboð- aliði að synga fyrir okkur á Grund var að langamma konu hans, Jóna S. Jónsdóttir, er heimilskona þar á bæ. Vil ég fyrir hönd heimilisfólksins á Grund færa Gunnari og Jónasi bestu þakkir fyrir skemmtunina. En það var meiri söngur á Grund þetta kvöld. Dúfa Einarsdóttir og Hörn Harðardóttir sungu einnig ein- söng og tvísöng við undirleik Guð- bjargar Sigurðardóttur. Einnig bestu þakkir til þeirra og allra annarra sem veittu okkur aðstoð, ánægju og gleði á þessu þrettándakvöldi. Gestur Sturluson -----» ♦ ♦---- Er neyð- aráætlun til staðar? * Abaksíðu Morgunblaðsins fimmtudaginn 9. janúar getur að líta frétt undir fyrirsögninni: Fjór- ir 11 ára strákar sátu fastir í tvær klukkustundir. A henni gæti manni skilist, að það hefðu aðeins verið þessir fjórir drengir, sem lentu í þessum hremmingum, sem bilun í gírkassa stólalyftunnar í Bláfjöllum olli deginum áður. Raunin var hins vegar sú, að lyftan var full af fólki, þegar hún bilaði, ég myndi giska á að í henni hefðu verið 80-90 manns. Meðal þeirra var undirrituð með þijú börn mín. Á fyrsta klukkutíma eftir bilunina tókst starfsmönnum skíða- svæðisins hins vegar að ná um helm- ing fólksins niður, sumum með því að hala þá niður í reipum. Við hin, sem eftir sátum, dvöldum þarna í u.þ.b. tvær klukkustundir. Vistin var köld, frostið var um 10 stig niðri á bílastæðinu um tvöleytið, ekki veit ég hvað það var mikið þarna uppi í fjallinu seinna um dag- inn. Það vildi okkur til happs, að það var logn. Ef hefði farið að hvessa, hefði ástandið verið miklu verra. Þá var átta ára sonur minn orðinn mjög kaldur og hræddur. Bilanir af þessu tagi eru ófyrirsjá- anlegar og er ekki við neinn að sak- ast í þeim efnum. Fróðlegt væri þó að vita, hvort starfsmenn skíðasvæð- isins hafi ekki undir höndum ein- hvers konar neyðaráætlun, sem þeir geta gripið til við bilanir af þessu tagi, þegar bjarga þarf fólki niður úr lyftunni á einhvem hátt. Hins vegar hefði verið hægt að sýna okkur, sem í þessu lentum, þá sjálfsögðu tillitssemi að veita okkur upplýsingar um hvað væri að ge- rast, hvers eðlis bilunin væri, og hvaða ráðstafanir stæði til að gera til að ná okkur niður. Allan þann tíma, sem við biðum þarna, var ekk- ert samband haft við okkur. Þegar niður kom, var ekki beðist afsökunar á þessum óþægindum, ekki einu sinni boðin endurgreiðsla daggjalds, en skíðaiðkunin fór víst fyrir lítið hjá flestum okkar þennan dag. Þetta virðingar- og skeytingar- leysi gagnvart viðskiptavinum skíða- svæðisins hef ég orðið vör við áður. Það kemur meðal annars fram í lít- illi gæslu við efri og neðri enda stóla- lyftanna, þar sem þeir starfsmenn, sem þar eru til staðar, sinna ekki sínum störfum sem skyldi, enda þótt óhöpp séu ekki ótíð þar. Úr þessu mætti auðveldlega bæta og gera dvölina á svæðinu enn ánægjulegri á góðum skíðadögum. Margrét Sumarhjólbarðar í snjó og hálku Til eru bílstjórar sem enn — þrátt fyrir snjó og hálku á götum - eru að flækjast um á sumarhjól- börðum (jafnvel sléttslitnum) og valda með því sjálfum sér og öðrum gífurlegum erfiðleikum í umferð- inni, að ég tali nú ekki um slys sem eru alltof algeng vegna bíla sem að þessu leyti eru á allan hátt van- búnir til vetararaksturs. Ef rétt væri á málum haldið, ætti að taka slík ökutæki úr um- ferð. Á vetrum ætti að leyfa akstur einungis þeim fólksbílum, sem bún- ir eru viðurkenndum vetrarhjólbörð- um og með snjónöglum, til að draga úr rennsli (þar með hliðarrennsli) bílanna í hálku og auka öryggi. Meðan ekki eru ákveðnar reglur, til að fara eftir í þessum efnum, ætti hver akandi maður að líta í eigin barm og hugleiða öryggi sitt og annarra. T.T. Kristján Guðjónsson, Vopnfirðingur, ásamt frænku sinni Margréti Sverrisdóttur, sem þegar var búin að nýta sér útsölurnar til hag- stæðra fatakaupa. verð á fötum of hátt og því væri kærkomið að fá þessa verðlækkun á útsölunum. Skóbúðin Bossanova í Kringl- unni var troðin út úr dyrum enda fyrsti dagur útsölunnar þegar Morgunblaðsfólk bar að garði og að sögn Guðrúnar Hrafnkelsdótt- ur, eins af eigendum búðarinnar, var búið að vera mikið að gera allan daginn. „Við eigum mikið af vörum og svo þýðir ekkert að bíða þegar aðrir verslunareigendur eru famir af stað með sínar útsöl- ur,“ sagði Guðrún þegar hún var innt eftir því afhveiju hún væri svona snemma á ferðinni með út- söluna í ár. Guðrún sagði að þegar útsölur væru hafnar einhvers stað- ar þá héldiTóIk að sér höndunum, því það vildi ekki kaupa vörur sem myndu svo kannski lækka um helming stuttu seinna. Guðrún setti um helming lag- ersins á útsölu og verðlækkunin nemur 30 eða 50% eftir vöru- tegundum. En græða kaupmenn eitthvað á útsölum? Já, Guðrún var nú á því og að minnsta kosti væri betra að losna við vörurnar þótt á lægra verði væri heldur en að sitja uppi með allt saman, þann- ig að ekki væri rými fyrir nýjar vörur. Margir hefðu auk þess tak- markað lagerrými. En fer Guðrún sjálf á útsölur hjá öðrum? „Nei, ég geri mjög lítið af því að fara á útsölur. Mér fínnst miklu meira spennandi þegar nýju vör- urnar koma.“ Það voru margir sem voru að leita sér að skóm á lækkuðu verði í Bossanova. Ættfræðinámskeið Ættfræðinámskeið (3 hópar) hefjast í Reykjavík 20.-22. jan. og standa í 7 vikur (20 klst.). Kennd eru öll undirstöðu- atriði í ættrakningu og samantekt ættartölu og niðjatals. Þátttakendur fá aðstöðu og leiðsögn til ættarleitar. Leið- beinandi Jón Valur Jensson. Einnig verður 5-6 vikna fram- haldsnámskeið og helgarnámskeið á Akureyri, ísafirði, í Borgarnesi og Keflavík. Ættfræðiþjónustan 27100 og 27101 alla daga. Tðnskðli Eddu Borg auglýsir Hljómborðsnámskeið Innritun er hafin á ný hljómborðs- námskeið fyrir byrjendur og lengra komna í síma skólans 73452. Skrifstofan er opin alla daga meðan á innritun stendur frá kl. 12.00-16.00. Söngnámskeið auglýst síðar. Tónskóli iddu Borg, Hólmaseli 4-6, sími 73452. KINVERSK LEIKFIMI TAITIQUAN □ Vinnur gegn streitu og álagssjúkdómum □ Eykur andlegt og líkamlegt jafnvægi □ Stuðlaraðvellíðanogsjálfsöryggi □ Jafnar og eykur orkustreymi líkamans □ Fyrir fólk á öllum aldri □ Morgun- og kvöldtímar □ Jafnframt boðið upp á gufubað Vesturgötu 5, sími 629470. Mörkinni 8, sími 679400,

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.